Morgunblaðið - 20.01.2008, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.01.2008, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HVAR finnum við bræður okkar og systur í nútímasamfélagi? Hvert getum við leitað þegar erfiðleikar lífsins leika okkur grátt og við sjáum ekki út úr aug- um? Hvar í samfélaginu finnum við þá þjónustu sem er aðgengileg og greið? Hvernig með- höndlum við sem byggj- um okkar litla sam- félagi þá ábyrgð að líta til hvert með öðru? Hér áður fyrr var samfélagið einfaldara og fólk átti greiðan að- gang að lækninum í þorpinu eða bænum sínum. Það var bara að setjast á bekkinn og bíða þangað til röðin kom að manni. Þá fékk fólk ótakmarkaðan tíma til að ræða sín vandamál við lækninn og oft nægðu þær samræðurnar til þess að fólk gat haldið áfram vegferð sinni. Héraðs- læknarnir nutu virðingar fyrir störf sín og skiptu fólkið miklu máli. Flóknara samfélag, meiri sérhæfing, meiri samvinna Í dag er samfélag okkar flóknara og sér- hæfing fagstétta meiri. Samfélagið leggur sig enn fram um að finna leiðir til þess að þegn- arnir geti lifað sem heil- brigðustu og bestu lífi. Þannig hefur verið unnið að hugmyndum innan heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins í mörg ár um það hvernig hjálpa megi börnum og unglingum með geðraskanir og fjöl- skyldum þeirra. Nið- urstaða þeirrar vinnu birtist í aðgerðaráætlun heilbrigðisráðherra frá árinu 2006 en þar kem- ur meðal annars fram að: Grunnþjónusta heilsugæslunnar við börn með hegð- unar- og geðraskanir verði aukin og bætt og ríkari áhersla lögð á for- varnir. Sett verði á laggirnar teymi fagfólks á heilsugæslustöðvum til að sinna þeim sérstaklega sem mest þurfa á hjálp að halda. Teymin verði m.a. skipuð læknum, hjúkrunarfræð- ingum, sálfræðingum og öðru starfs- fólki eftir því sem við á. Markmiðið verði að tryggja að hvert barn fái þjónustu við hæfi og stuðla að öflugri samvinnu allra sem veita þjónusta á þessu sviði. Jafnframt er hvatt til þess að aukin áhersla verði lögð á fræðslu og forvarnir. Sumarið 2007 samþykkti Alþingi síðan fjölþætta tillögu ríkisstjórn- arinnar til þingsályktunar um að- gerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna og fjölskyldna þeirra hér á landi. Aðgerð- irnar byggjast meðal annars á rétti þeirra eins og hann er skilgreindur í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í þessari áætlun fær heilsugæslan í landinu mikilvægt hlutverk sem sá staður þar sem fólk getur stigið fyrstu skrefin til að leita sér hjálpar þegar um geðræn vandamál barna og unglinga er að ræða rétt eins og þeg- ar þau eru að kljást við líkamleg ein- kenni og sjúkdóma. Þetta er merki um að samfélagið er að viðurkenna að vanlíðan og van- heilsa er hluti af lífi hins venjulega manns og tengist hinu flókna sam- félagi okkar og lífsstíl. Enda verða læknar varir við það að fólk sem leit- ar til þeirra hefur oft ekki grein- anlegan sjúkdóm heldur leitar hjálp- ar vegna erfiðleika sem trufla daglegt líf og valda óöryggi og kvíða. Heilsugæsla Akureyrar, fjölskylduráðgjöf í 20 ár Á heilsugæslustöð Akureyrar hef- ur starfsfólk stöðvarinnar um 20 ára skeið verið þjálfað í þverfaglegri sam- vinnu til þess að leita lausna á erf- iðleikum barna og fjölskyldna þeirra í samvinnu við viðkomandi fjölskyldur. Starfshættir stöðvarinnar hafa mótast af heildarsýn á barnið og allar aðstæður þess. Unnið hefur verið út frá yfirlýstu markmiði heilsugæslu Akureyrar að horfa jafnt til lík- amlegra, tilfinningalegra og fé- lagslegra þátta heilsunnar þar sem þeir eru samofnir og skoða og skilja þessa þætti út frá stöðu barnsins í fjölskyldu og samfélagi. Þá hefur ver- ið lögð áhersla á forvarnarstarf með því að þjónusta sérstaklega fjöl- skyldur ungra barna og freista þess þannig að hindra það að vandinn verði svo mikill að sérþjónustu sé þörf síðar meir með þeim kostnaði og þjáningum sem því fylgir. Jafnframt hefur stöðin lagt áherslu á að vinna kerfisbundið með öðrum stofnunum bæjarins sem vinna að fjölskyldu- málum. Fjölskylduráðgjöf heilsu- gæslu Akureyrar hefur verið leiðandi afl í samvinnu við aðra starfmenn stöðvarinnar í þessari vinnu. Barnið og fjölskylda þess Barnið eyðir þeim árum sem eiga eftir að móta það allar götur síðan í fjölskyldu sinni og verður fyrir miklum áhrifum af henni. Í þessum fjölskyldu- tengslum bregst barnið við tilfinn- ingahlöðnum aðstæðum löngu áður en það sjálft getur talað. Fjölskyldan skiptir barnið því höfuðmáli. Þess vegna er það mjög mikilvægt að þegar barn eða unglingur þarf á hjálp að halda að fjölskyldan sé þátttakandi. Fagfólk sem vinnur við að hjálpa börn- um og unglingum þarf því að hafa trú á möguleikum fjölskyldunnar og hjálpa henni til að öðlast trú á eigin styrk. Fagfólk þarf að mæta einstaklingnum í því heildarsamhengi sem hann lifir í og leggja áherslu á þá þroskamögu- leika sem búa með honum og felast í þeim tilfinningakreppum sem mæta honum á lífsleiðinni. Gott fjölskyldulíf og heilbrigð tengsl einstaklingsins skipta vellíðan hans höfuðmáli og stuðla að góðri almennri heilsu. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi Þuríður Hjálmtýsdóttir fjallar um geðræn vandamál barna og unglinga »Mjög mik-ilvægt er að þegar barn eða unglingur þarf á hjálp að halda að fjölskyldan sé þátttakandi. Þuríður Hjálmtýsdóttir Þuríður Hjálmtýsdóttir er sálfræð- ingur og fjölskylduráðgjafi á Heilsu- gæslustöð Akureyrar. Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Sími 530 6500 Vandað 200 fm endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsið er vandað og fullbúið. Það stendur á skjólgóðum stað í neðsta botnlanganum við óbyggt svæði og rétt hjá golfvellinum. Við húsið er hellulagt, upphitað bíl- aplan og fallegur, viðhaldsléttur garður með hellulegðri verönd og timbur sólp- alli. Í húsinu eru fjögur herbergi, þrjár stofur og tvö baðherbergi. V. 57,5 m. Bogi Molby Pétursson fasteignasali sýnir húsið milli kl. 14-15. ÞORLÁKSGEISLI 98 OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 15 Glæsileg 3ja herbergja, 90 fm íbúð og stæði í bílskýli. Íbúðin er á annarri hæð með glæsilegu útsýni af 17 fm svölum yfir sjóinn og bátabryggjuna. Íbúðin er fallega innréttuð á smekklegan hátt. Góð eign á einstökum stað. Laus fljótlega. V. 31,9 m. Tinna og Davíð taka á móti áhugasömum milli kl. 15-16. NAUSTABRYGGJA 40, ÍBÚÐ 203 OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 15 OG 16 Falleg mikið endurnýjuð, 3ja herbergja, 100 fm íbúð í kjallara með sérinngangi á austurhlið hússins. Íbúðin er smekklega innréttuð og vel tækjum búin. Nýlegar innréttingar og gólfefni ásamt gluggum, gleri og lagnakerfi. V. 25,9 m. Sólveig og Guðmundur taka á móti áhugasömum milli kl. 16-17. BARMAHLÍÐ 52 - 3JA HERB. OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 16 OG 17 M b l. 960965 Bogi Pétursson lögg. fasteignasali. 530 1800 30.900.000 Virkilega glæsileg 99,7 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð. Húsið nýlega sprungu viðgert og málað að utan. Þórarinn sölumaður Draumahúsa verður á staðnum. M b l 9 61 12 9 Grandavegur 4 - 107 Rvk OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14:00 - 14:30 LAXAKVÍSL 33 OPIÐ HÚS Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali Þverholti 14 | 105 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is tákn um traust Í dag sunnudag frá kl. 15–16 er opið hús að Laxakvísl 33, 110 Reykajvík. Mjög fallegt, 5 herb. raðhús á þremur hæðum ásamt bílskúr, alls 210,3 fm, á frábærum útsýnisstað. 70 fm óskráð rými í kjallara sem býður upp á mikla möguleika. Stórar stofur. Rúmgóð svefnherbergi. Sólskáli með hita í gólfi. Ræktaður garður. Stutt í skóla og leikskóla. Eigandinn er tilbúinn að skoða skipti á ódýrarri íbúð upp í kaupin. Gott lán getur fylgt með eigninni. Verð 59,9 millj. Nánari upplýsingar gefur Björn Daníelsson hdl./lgf. fasteignasölunni Hóli í síma 595-9000,849-4477. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is FAGRIHVAMMUR 4 - HF. EFRI SÉRH. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14.00 TIL 16.00. Sérlega glæsileg efri sérhæð á þessum frábæra útsýnisstað í Hvammahverfinu í Hafnarfirði. Hæðin er 157,3 fm auk bílskúrs sem er 24,3 fm, samtals 181,6 fm. Hæðin skiptist þannig: forstofa, gestasalerni, hol, 2 stofur og borðstofa, eldhús með borðkróki, þvottahús/búr, 3 svefnherbergi, og baðherbergi. Falleg eign sem vert er að skoða. Laus fjótlega. Verð 48,5 millj. Vigfús og Sæunn bjóða ykkur velkomin, sími 555-2209.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.