Morgunblaðið - 20.01.2008, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 20.01.2008, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VERSLUNARORGÍUR Íslend- inga erlendis voru nýlega á forsíðu The Minneapolis Star Tribune í grein um vinsælar verslunarferðir útlendinga, en sér- staklega Íslendinga, vegna lágs gengis doll- ars, til Bandaríkjanna. Forsíðuna prýddi mynd af örþreyttum Íslendingi sem lá ofan á góssinu úti á Hump- hrey-flugvelli. Þegar ég las þetta yfir kaffinu þennan desembermorgun í Minnesota þar sem ég bý, hugsaði ég með mér að nú hefðum við alveg gengið af göfl- unum í neyslunni – neyslugleði okk- ar var orðin að forsíðufrétt í heims- pressunni. En það var ekki fyrr en ég kom heim yfir hátíðarnar að ég skildi hvers vegna Íslendingar halda áfram að versla erlendis þó landið sé fullt af „big-box“ búðum og allt til af öllu. Í íslenskri verslunarmenn- ingu stendur nefnilega alltaf það sama upp úr hvað neytendur varð- ar; óheyrileg dýrtíð og afburða léleg þjónusta. Ekki aðeins að krómslegnar ok- urbúllur mannaðar spjátrungslegu afgreiðslufólki séu fullar af nank- inbrókum sem kosta hálf mán- aðarlaun meðallaunþega – íslenskir verslunareigendur eru líka enn fast- ir í því sem ég kalla KGB-stílinn hvað snertir þjónustu við neyt- endur. Ég hlakkaði til að borða jólamat- inn, hamborgarhrygg og í Hagkaup keypti ég tvo, einn til að elda á aðfangadags- kvöld og annan til að taka með mér út. Ham- borgarhryggirnir eins og maður hefur fengið þá heima í gegnum tíð- ina eru nefnilega ekki auðfundnir í Banda- ríkjunum; maður verð- ur að leita uppi gam- alreynda kjötvinnslumenn í smá- bæjum með skringi- legum nöfnum til að finna reykt svínakjöt sem lítur út eins og alvöru kjöt með kjötþráðum en ekki eins og frauð- plast. En þegar hryggurinn hafði verið eldaður kom í ljós að Hagkaup virtist hafa hrifist af þessari amer- ísku kjötvinnsluaðferð svo eftir jólin fór ég að skila hryggnum sem ég ætlaði að taka með mér út. „Veistu, ég get ekki tekið við þessu,“ sagði afgreiðsludaman, „Það má ekki end- urgreiða matvöru.“ Ég hafði vart upphafið ræðu mína um lélega þjón- ustu, um Íslendinga sem búa er- lendis og hrörnun íslenskrar kjöt- vinnslu þegar hún sá aumur á mér og byrjaði að fylla út innleggsnótu. „Við megum nú ekki gera þetta.“ Ég hafði reyndar ætlað að fá pen- ingana mína til baka því ég ætlaði niður í Nóatún til að kaupa annan hrygg, en ákvað að segja ekkert. Laus við svínið hélt ég beinleiðis yfir í 66°N, þar sem ég hafði fjárfest í jólagjöf sem átti að fara aftur með fjölskyldunni út. Gjöfin, jakkapeysa, passaði ekki svo það þurfti að skipta henni. En rétta stærðin var ekki til, hvorki þar né í öðrum verslunum 66°N. „Ókei… jæja, ég ætla þá bara að fá þetta endurgreitt,“ sagði ég við afgreiðslustúlkuna, enda hafði ég borgað með debetkorti fyrir vör- una. Hún leit á mig eins og ég hefði sagt eitthvað dónalegt. „Endurgreitt?! Nei. Það er ekki hægt.“ „Hvað meinarðu, það er ekki hægt,“ spurði ég. „Það er ekki gert hérna. Það bara tíðkast ekki í búð- um á Íslandi að maður fái end- urgreitt. Þú getur fengið innleggs- nótu.“ Bíddu nú við, hvar er ég stödd, hugsaði ég, er þetta Rassgat- istan eða Podunkistan? Hér er ég með vöru sem ég staðgreiddi, ónot- aða, enn með miðunum á, í gjafaum- búðunum frá versluninni sjálfri, með kvittun, það er ekkert til í búð- inni sem ég get notað, en ég get ekki fengið hana endurgreidda? Þá datt mér snjallræði í hug. „Það er 66°N-sjoppa í flugstöðinni í Kefla- vík, kannski get ég notað hana þar…“ „Þú getur prófað það,“ sagði afgreiðslustúlkan, fegin að losna við þessa freku kellingu út úr búðinni. Lítið úrval var í fríhafnarbúðinni, en ég fann eina peysu sem passaði hvað varðaði stærð og verð og lagði hana á afgreiðsluborðið ásamt inn- leggsnótunni. „Nei,“ sagði af- greiðsludaman, eftir að hún hafði litið á nótuna merkta lógói 66°N. „Við megum ekki taka við þessu,“ eins og ég hefði lagt notaðan kló- settpappír á borðið. Nú var mér al- veg nóg boðið. Ég vissi að þessi markvissa „léleg þjónusta er okkar stolt“ stefna verslunareigendanna var ekki vesalings konunni að kenna, en að geta ekki notað inn- leggsnótu 66°N í þeirra eigin versl- un… Það sauð í mér pirringurinn. „Þú getur talað við Halldór,“ sagði konan. „Hann er yfir þessu öllu, hann er í Reykjavík…“ Svo ég hélt aftur til Ameríku, peysulaus og orðlaus yfir dónaskap íslenskra kaupmanna. Sennilega get ég fengið alveg eins jakka í Col- umbia Sportswear-búðinni fyrir þrjú eða fjögur þúsund kall eða minna í staðinn fyrir tíu þúsund krónurnar sem ég greiddi fyrir hann heima. Enda var það ekki jakkinn sjálfur sem var það mik- ilvægasta – ættjarðarástin birtist í ýmsum myndum og ein þeirra er að vera í sér „íslenskum“ fatnaði, t.d. flík sem á stendur 66°N og er búin til í Sjóklæðagerðinni. (Ég er reynd- ar ekki alveg viss um hvað er sér- íslenskt við 66°N-fatnaðinn. Á fal- legri 66°N-húfu sem dóttir mín á stendur: Made in Latvia.) Ég hef ekki enn hringt í Halldór (eða Hagkaup) en það væri fróðlegt að vita, frá honum eða einhverjum forsvarsaðilum íslenskra verslunar- eigenda, hvers vegna þeim finnst í lagi að bjóða íslenskum neytendum upp á svona þjónustuleysi. Þangað til mun ég í framtíðar ferðalögum aftur heim reyna að gera eins og landinn á Fróni og forðast íslenskar verslanir. Léleg þjónusta í íslenskum verslunum Íris Erlingsdóttir fjallar um samskipti sín við íslenska verslunareigendur » Í íslenskri versl-unarmenningu stendur nefnilega alltaf það sama upp úr hvað neytendur varðar; óheyrileg dýrtíð og af- burða léleg þjónusta. Íris Erlingsdóttir Höfundur er fjölmiðlafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Gestgjafans. Baughús 9 Opið hús í dag kl. 14-16 Til sýnis í dag fallegt 180 fm parhús á tveimur hæðum á fráb. útsýnisst. Vandaðar inn- réttingar, mikið skápapláss. Fráb. staðsetn. Innbyggður góður bílskúr. Stutt í skóla og frábæra íþróttaaðstöðu Fjöln- is. Fallegt og vel skipulagt á einstökum útsýnisstað. V. 51 m. Allir velkomnir í opið hús. www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Sími 588 4477 Lögg. fasteignasali Hrafnhildur Bridde Agnar Agnarsson Sigurberg Guðjónsson hdl. Hrafnhildur Bridde, lögg.fasteignasali 821 4400 534 2000 www.storhus.is Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 14-15 MÓVAÐ 45, 110 REYKJAVÍK EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR. Glæsilegt einbýlishús á einni hæð. Húsið er 219,2 fm en þar af er bíl- skúrinn 43,1 fm. Fallegar innréttingar og vönduð gólfefni. Parketið er gegn- heil eik. Fjögur svefnherbergi. Rúmgóð stofa með útgangi út í garð og gott sjóvarpshol. Baðherbergið er flísalagt og m. sturtuklefa. Bílaplanið er hellu- lagt. Ósnortin náttúra er í göngufæri og mikil útivistarparadís. Verð 82 millj. BERGSTAÐASTRÆTI, 101 REYKJAVÍK RÚMGÓÐ OG VEL SKIPULÖGÐ EFSTA HÆÐ Í TVÍBÝLISHÚSI ÁSAMT BÍLSKÚR. SVALIR OG HÁTT TIL LOFTS. Tvö svefnherbergi. Rúmgóð stofa með góðum gluggum og er eldhúsið opið inn í stofuna. Suð-vestursvalir með út- sýni. Baðherbergi m. baðkari. Íbúðin og geymslan eru 89,3 fm og bílskúrinn 22,9 fm. Verð 36,9 millj. BÓKIÐ SKOÐUN ! ELDRI BORGARAR! BÓLSTAÐARHLÍÐ, 105 RVK. 2JA HERB. M. BÍLSKÚR 42,9 fm íbúð á 1. h. og 23,1 fm bílskúr. Yfirbyggðar svalir. Íbúðin skiptist í eld- húskrók, stofu, baðherb. og svefnherb. Húsvörður. Lyfta. Þjónusta á vegum Reykjavíkurborgar í húsinu. Skilyrði er að viðkomandi sé félagi í samtökum aldraðra. Verð 19,5 millj. BÓKIÐ SKOÐUN ! M b l. 961137 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095 Sími: 588 9090 Vorum að fá í sölu mjög vel staðsetta byggingarlóð undir einbýlishús við Skeiðakur í Akralandi. Um er að ræða um 750 fm lóð. Lóðin snýr á móti suðri. Teikningar geta fylgt. Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali í síma 861-8611 AKRALAND, GARÐABÆR MJÖG VEL STAÐSETT BYGGINGARLÓÐ FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Falleg 191,1 fm efri sérhæð á þessum vinsæla stað. Þar af 24,5 fm bílskúr. Þríbýlishús. 4 svefnh. 3 stofur. Tvennar svalir, aðrar eru yfirbyggðar. Gott viðhald á húsi. Verð 47,5 millj. Nánari uppl. gefur Bjarni 896-3875 OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 15-16 GLAÐHEIMAR 22, efsta hæð - 104 RVK m bl 9 60 89 1 Skrifstofuhúsnæði Fiskislóð 75 – 101 Reykjavík Til leigu er 300 fm skrifstofuhúsnæði við Fiskislóð. Um er að ræða gott skrifstofuhúsnæði á annari hæð með góðum síma- og tölvulögnum. Stækkunarmöguleikar fyrir hendi. Næg bílastæði. Verð 1.400 kr. pr. fm á mánuði. Upplýsingar veitir Jón Svan sölufulltrúi í síma 891 8803 Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími 566 8800 • www.vidskiptahusid.is • Jón Sigfús Sigurjónsson Hdl & Löggiltur FFS M bl 9 57 80 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.