Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 47
Ég skil ekki hvers vegna allir MS-
veikir fá ekki nýja lyfið Tysabri.
Af hverju að skammta þetta? Ég
er að lesa frétt í Morgunblaðinu
17. jan. 2008.
Tárin trilla og ég græt af von-
brigðum því að ég hef haft ómælda
trú á því að þetta lyf myndi gefa
okkur nýtt líf. Eða er verið að
refsa mér vegna þess að rebifið
hefur hjálpað mér svo mikið. Það
fékk ég nánast um leið og byrjað
var að gefa það MS-fólki hér. Þá
var þetta skömmtunarferli og ég
þekki marga sem grétu þá. Ég
hafði svo mikla sektarkennd yfir
að hafa verið ein af útvöldum að
ég þorði varla að tala um að ég
hefði fengið lyfið. Hvernig í ósköp-
unum er hægt að velja út fólk í
þessari aðstöðu. Rebifið hefur
haldið mínum MS-sjúkdómi þokka-
lega niðri og ég fæ væg köst en
eftir hvert kast er ég samt á
nálum yfir hvað hafi nú skemmst.
Tysabriið gefur okkur svo mikla
von um færri köst og þar af leið-
andi minni skemmdir = meiri
styrkur sem skilar sér í því að
maður hlýtur að hreyfa sig meira
og þá enn meiri styrkur. Ég lít
allavega á þetta á þennan hátt.
Nýtt líf.
Þessi sjúkdómur hefur haft mik-
il áhrif á fjölskylduna mína.
Árið 1974 greindist systir mín
þá 19 ára gömul, við vissum þá
ekkert um MS, höfðum aldrei
heyrt talað um hann. Allt var
reynt að gera en hún beið allan
tímann eftir lyfinu sem átti að
koma innan 5 ára. Hún dó 1999 og
fékk aldrei að prófa nýja lyfið.
1994 greinist ég síðan, auðvitað
sjokk fyrir alla og þá held ég sér-
staklega fyrir foreldra okkar sem
höfðu horft upp á systur mína
veslast upp. (Hún var þá komin á
hjúkrunarheimili, algerlega ósjálf-
bjarga.)
1995 kom svo Beta interferon-
lyfið sem ég fékk strax, sprautað í
vöðva 1x í viku og síðan Rebif
sprautað 3x í viku. Köstum fækkar
en skemmdir dálitlar og nú geng
ég draghölt við eina hækju.
Tvær yngri systur mínar fæddar
1965 og 1969 eru núna báðar
greindar með MS og ég horfi á
þær fara hægt niður á við, hvor-
uga á rebifinu og báðar að ströggl-
ast í vinnu en minnka við sig smátt
og smátt.
Þá er spurningin þessi. Komast
þær þá í útvalda hópinn?
Það sem ég tel að hafa hjálpað
mér mest er að ég hætti fljótlega
að vinna og gat þess vegna hvílt
mig alltaf ef ég fann fyrir einkenn-
um um að kast væri að byrja.
Læknirinn minn ráðlagði mér
strax að fara vel með mig svo að
skemmdir vegna sjúkdómsins yrðu
minni þegar nýtt og betra lyf
kæmi.
Nú er lyfið komið og ég fæ það
líklega ekki af því að skemmdir
eru ekki nógu miklar, samt get ég
ekki gengið nema með hækju, út-
haldið lítið, dofin og þreytt flesta
daga.
RAGNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
MS-sjúklingur og býr
í Hveragerði.
Hverjir eru útvaldir
og hvers vegna?
Frá Ragnhildi Guðmundsdóttur:
Glæsileg raðhús Hæðin
Komdu og skoðaðu nútímaleg og falleg raðhús, tvílyft, á skjólsælum stað á Arnarneshæðinni. Húsin eru ýmist
klædd flísum, viði eða báruðu áli. Allur frágangur að utan tryggir lágmarksviðhald. Afhent tilbúin til innréttinga.
Raðhúsin okkar leika aðalhlutverkið í þættinum Hæðin, sem
hefur göngu sína á Stöð 2 innan skamms.
Sími 530 1500 | Suðurlandsbraut 52 | Guðrún Árnadóttir löggiltur fasteignasali | www.arnarnes.is
Við búum á
Hæðinni
Arnarneshæðin er einstaklega vel staðsett á eftirsóttum
stað á höfuðborgarsvæðinu. Hverfið er sólríkt og skjólsælt,
með gullfallegt útsýni til allra átta. Stutt er í alla verslun og
þjónustu, fjölmargir skólar eru í næsta nágrenni og ótal
frábær íþrótta- og útivistarsvæði innan seilingar.
Opið hús í Árakri og Sandakri í dag frá kl. 14–15
Cocoa Beach, Florida
Beautiful, fully furnished condominium in The Pier
Resort, right across the street from famous Cocoa
Beach – a location by many preferred to Hawaii.
Situated on fourth/top floor with a view of the Atlantic Ocean,
the unit contains 1900 square feet (excluding balcony/patio),
three bedrooms, three baths, living room and dining room with
separate large laundry area. Elevator access as well as tennis
courts, swimming pool and exercise room. Guided tour available
upon request.
Price: $ 550-600.000 USD. Smaller unit of 1650 square feet
also available – price: 450-500.000 USD.
Contact: S&J Gruppen, Henrik Kellermann,
+0045 3526 6033
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050