Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 52
Lampi án rafmengunar með 4%.
Í GREIN nýlega var bent á
brotalamir um frágang rafmagns.
Dæmin eru mörg. Á aðventunni
voru sett upp jólaljós í nýju fjöl-
býlishúsi í Reykjavík. Það var
mikið í lagt enda lýsa 688 perur
húsið. Fólk var ánægt en afleið-
ingarnar komu brátt í ljós. Ljósa-
stæðin tóku að senda. Rafseg-
ulsvið við mæla í rafmagnstöflu
nam allt að 180 milligauss, langt
yfir mörkum. Mælingar á köplum
rafskauts hússins voru afar sér-
stakar. Mælirinn sló eins og púls;
hann hneig og reis frá fjörutíu
milligássum í fimmtíu og þá sextíu
til áttatíu milligauss að hann
hneig aftur. Hið nýja fjölbýlishús
þjáist sem sagt af húsasótt. Fólk
er misnæmt fyrir rafmengun.
Sumir verða einskis varir á meðan
um 10-15% fólks hefur rafóþol
samkvæmt sænskum rannsóknum.
Hvað var að? Á daginn kom að
rafmagnið fór „vitlausa leið“. Á
tveimur hæðum var núll tengt inn
á spennu og fór því öfuga leið. Við
þetta myndaðist rafmengun, yf-
irtíðnitónar. Sú einfalda aðgerð að
tengja núll í núll varð þess
valdandi að rafstorminn lægði.
Það kviknaði í rafmagns-
töflum og vírar brunnu
Í gróðurhúsi í Mosfellssveit
kviknaði ítrekað í rafmagnstöflum
og vírar brunnu yfir. Lampar ent-
ust illa og starfsmaður hafði það
sérstaka verkefni að skipta um
perur sem sífellt sprungu. Allur
búnaður gekk mjög heitur og
dæmi um 105° hita á vararofum.
Sérfræðingar ráðlögðu eigenda að
fjarlægja hlífar af töflum og hafa
töfludyr opnar til kælingar. Auð-
vitað bara kukl.
Það hefur reynst þrautin þyngri
að fá orkufyrirtækin til þess að
taka á þessum málum sem þó
varða fólk svo miklu; vellíðan og
heilbrigði. Þó fólk upplifi stöðuga
vanlíðan, að ekki sé talað um veik-
indi þá er bara fullyrt að allt sé í
lagi. Orkuveita Reykjavíkur telur
sig ekki þurfa að vita hvað sé að
gerast á núllinu sem ber drulluna
í burtu; hvort kerfið yfir höfuð
hreinsi sig. Meðan svo er málum
háttað er ekki von á góðu.
Röng ráðgjöf Samorku
Mistök í meðferð rafmagns eru
víða. Samorka eru samtök raf-
orkufyrirtækja. Samtökin gefa út
svokallaða tæknilega tengiskil-
mála. Þar er fullyrt að við 125A
heimtaug sé nóg að hafa 10q jarð-
skautsvír til þess að leiða óhrein-
indin í burtu. Þetta er rangt. Það
þarf sverari vír svo rafdrullan
komist í burtu. Þaðan af sverari
vír þarf sverari jarðskautsvír. Þá
þurfa jarðlög að geta leitt raf-
drulluna burt. Því miður er það
svo að mistök eru gerð allt of víða
í ferlinu. Þetta er þeim mun alvar-
legra mál þar sem fólk dvelur
löngum stundum í
rafmenguðum bygg-
ingum; heima og í
vinnu. Mengunin lýs-
ir sér meðal annars í
allt of sterku rafseg-
ulsviði. Samkvæmt
Evrópureglugerð
skal rafsegulsvið ekki
fara yfir 4 milligauss.
Í byggingum er al-
gengt að rafsegulsvið
sé yfir 100 milligáss-
um. Allt of algengt er
að léleg raftæki séu
sett upp. Jafnvel lampar eru settir
upp á barnaheimilum sem teldust
ekki hæfir í fjósum og svínabúum
úti í hinum stóra heimi. Tækin
dreifa rafdrullunni yfir börnin. Al-
gengt er að rafmagnstæki leiði út,
sendi frá sér rafgeisla. Þetta um-
hverfi er fólki afar óheilbrigt.
Nánast allar byggingar á höf-
uðborgarsvæðinu eru rafmeng-
aðar. Rafmagnstæki eyðileggjast,
lampar springa, rúllustigar hætta
að virka. Alvarlegast er þó að fólk
þjáist.
Gróðurhúsið í Mosfellsveit
lagfært
Fyrirtækið Orkulausnir var
kallað til í gróðurhúsið í Mosfells-
sveit og vandinn skilgreindur. Ít-
arleg skoðun fór fram ásamt 24
tíma rafgæðamælingu. Í ljós kom
að yfirtíðni barst inn í hús og tíðni
var mest þegar álag var minnst.
Eftir umbætur lækkaði hiti í töfl-
um í 35°, ljós urðu bjartari og per-
ur endast. Á daginn kom að raf-
mengun barst inn í gróðurhúsið
frá spennistöð og eftir að staf-
skaut voru sett upp drógu þau að
sér rafmengun frá öðrum húsum í
nágrenninu. Þá kom á daginn að
lélegur ljósabúnaður í gróðurhús-
inu olli rafmengun og þar sem
drullan komst ekki í burtu vegna
lélegra rafskauta hlóðust vanda-
málin upp.
Orkulausnir eru stofnaðar af
Brynjólfi Snorrasyni, frumkvöðli á
Akureyri. Í þrjátíu ár hefur hann
rannsakað samspil rafmagns og
rafmengunar, hefur yfirburða-
þekkingu á þessu sviði. Hann er
kallaður til þegar verkfræðingar
geta ekki. Nýverið annaðist hann
um jarðtengingu Grand Hótel.
Eitt stærsta hátæknifyrirtæki
landsins kallaði á hann við jarð-
tengingu höfuðstöðva sinna; einn
stærsta banki landsins kvaddi
hann á vettvang að höfuðstöðvum
sínum eftir að verkfræðingarnir
stóðu ráðalausir og svo framvegis
og framvegis.
Brýnt að hefja rannsóknir
Nú vilja menn opna Lækinn í
Kvosinni. Allt gott um það. Eng-
um dytti þó í hug að leiða óþefinn
aftur fyrir vit Reykvíkinga. Er
ekki kominn tími til hreinsa raf-
drulluna út? Er ekki kominn tími
til þess að hefja víðtækar rann-
sóknir á frágangi rafmagns og
takast á við rafmengun í umhverfi
okkar?
Þegar jólaljósin voru
tendruð tók húsið sótt
Hallur Hallsson og
Svanbjörn Einarsson
skrifa um rafmengun
Hallur Hallsson
Hallur er framkvæmdastjóri og Svan-
björn Bsc. rafmagnstæknifræðingur.
Lampi með háa yfirtíðni, 38%. Rafmengunin sést
glögglega.
» Orkuveita Reykja-víkur telur sig
ekki þurfa að vita hvað
sé að gerast á núllinu
sem ber drulluna í
burtu; hvort kerfið yfir
höfuð hreinsi sig.
Svanbjörn Einarsson
52 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
• Björt og falleg 80 fm, efri sérhæð
• Sérinngangur og bílastæði
• Glæsilegt útsýni
Verð 23,9 milljónir
• Glæsileg 167 fm efri sérhæð og bílskúr
með fallegu sjávarútsýni
• Sérinngangur og tvennar góðar svalir
• Íbúðin er nýstandsett
Verð 49,9 milljónir
• Skemmtileg 140 fm, neðri sérhæð á
sunnanverðu Seltjarnarnesi
• Sérinngangur og skjólsæl suðurverönd
• Þrjú góð svefnherbergi
Verð 39,9 milljónir
Birkihvammur 15, Kópavogi
Opið hús frá kl. 15:15–16:00
Miðbraut 3, Seltjarnarnesi
Opið hús frá kl. 15-16
Miðbraut 17, Seltjarnarnesi
Opið hús frá kl. 14-15
m
bl
.9
61
18
2
Með þér alla leið!
www.miklaborg.is - Sími 569 7000 -
miklaborg@miklaborg.is
Framnesvegur - Einbýli
Opið hús í dag á milli 14 og 16
M
bl
9
60
96
0
Til sölu er einbýlishúsið Austurholt, sögufrægt hús á horni Framnesvegar
og Lágholtsvegar. Húsið er mjög snyrtilegt og þónokkuð endurnýjað.
Húsið er á þremur hæðum og skiptist í kjallara, miðhæð og ris. Á miðhæð
er eldhús, stofa, borðstofa, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Í kjallara eru
tvö svefnherbergi, þvottahús, geymslur og sérinngangur. Í risi er opið rými
sem hægt væri að nota sem barnaherbergi eða vinnustofu. Húsið er
staðsett á mjög góðum stað í vesturbæ Reykjavíkur.
Anna og Gestur sýna húsið í dag á milli kl. 14 og 16.
ÍSLENSKA kvikmyndavorinu
lauk 16. janúar sl. Þá hófst lang-
þráð íslenskt kvikmyndasumar
með frumsýningu Brúðgumans
eftir Baltasar Kormák sem er
best heppnaða kvikmynd Íslend-
inga til þessa. Aldrei fyrr hafa all-
ar deildir íslenskra kvikmynda-
gerðarmanna skilað
jafnóaðfinnanlegu og aðdáun-
arverðu verki í einni og sömu
kvikmyndinni. Aldrei fyrr hefur
íslenskur kvikmyndaleikstjóri
sýnt jafnmikið vald á list sinni og
magnað upp jafnsterkt samspil
úrvalsleikara í öllum hlutverkum.
Aldrei hefur heilt Háskólabíó
sprottið jafnhratt á fætur blístr-
andi, hrópandi og klappandi og á
umræddri frumsýningu og voru
það verðskulduð viðbrögð við
þessari skemmtilegustu kvik-
mynd okkar ungu kvikmynda-
sögu. Þetta var stór gleðidagur í
því samhengi öllu og skal því hér
spáð að kvikmyndin hljóti ekki að-
eins metaðsókn heldur muni hún
efla verulega aðsókn að Þjóðleik-
húsinu þar sem önnur útfærsla
sama hóps, byggð á sama frum-
verki Tsjekovs, er nú til sýningar.
Megi íslenska kvikmyndasum-
arið lengi lifa
Jakob Frímann Magnússon
5 stjörnu Brúðgumi
boðar kvikmyndasumar
Höfundur er tónlistarmaður sem
hefur framleitt kvikmyndirÁSKRIFTASÍMI 569 1100