Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 55
✝ Sigríður Arn-laugsdóttir
fæddist á Akurgerði
í vesturbæ Reykja-
víkur 18.1. 1918.
Hún lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 21.12. síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Arn-
laugur Ólafsson, f. á
Gerðum í Árnes-
sýslu 8.8. 1888, d.
2.9. 1971 og Guðrún
Guðmundsdóttir, f.
á Múlastöðum í
Flókadal í Borgarfirði 6.9. 1884,
d. 6. 8. 1943. Sigríður var næstelst
í stórum systkinahóp, af þeim
börnum sem komust til fullorðins
Guðmundsson Norðdahl, f. 4.7.
1910, d. 10.1. 1974. Seinna var hún
var í sambúð með Jóhannesi Sig-
urðssyni, f. 4.7. 1910, d. 14.9.
1998.
Sigríður stundaði fimleika til
fjölda ára hjá Ármanni og fór hún
margar sýningarferðir bæði inn-
anlands og utan með meist-
araflokki kvenna í fimleikum. Eft-
ir nám í gagnfræðaskóla stundaði
hún nám í Kennaraskólanum og
stundaði framhaldsnám í hand-
mennt í Danmörku og Svíþjóð.
Hún kenndi við barnaskóla í Hafn-
arfirði 1948 en síðan handiðn við
Kennaraskólann til 1972. Eftir
það rak hún mötuneyti fyrir nem-
endur Menntaskólans við Hamra-
hlíð og gegndi því starfi í mörg ár.
Hún skrifaði bókina „Lærið að
sauma“ sem gefin var út 1962 og
var um árabil með fastan þátt í
Þjóðviljanum um handmennt og
heimilishald.
Útför Sigríðar fór fram 4. jan-
úar, í kyrrþey að ósk hennar.
ára, en Skúli bróðir
hennar, f. 30.9. 1916,
dó er hann var á
fyrsta ári eða 8.6.
1917. Önnur systkini
hennar voru Guð-
mundur, f. 1.9. 1913,
d. 9.11. 1996, Ólafur,
f. 2.3. 1920, d. 28.11.
1984, María, f. 19.6.
1921, Helgi, f. 17.3.
1923, Elías, f. 8.11.
1925, d. 4.11. 2000,
og Hanna, f. 29.7.
1928, d. 13.1. 1984.
Sigríður ólst upp í
föðurhúsum, fyrst í Akurgerði,
síðan að Ljósvallagötu 30 og síð-
ast að Öldugötu 25.
Maki Sigríðar var Sigurður
Hún Sigga frænka er dáin. Ég
sé hana enn fyrir mér, hnarreista
og fallega konu. Fyrstu minningar
mínar eru heimsóknir til hennar
og Sigga frænda. Það var áhrifa-
ríkt fyrir litla telpu. Heimili þeirra
bar vott um smekkvísi. Sigga og
Siggi fóru oft í ferðalög sem flestir
gátu bara látið sig dreyma um.
Þau höfðu verið í sýningaflokki í
fimleikum og mamma sagði mér
stolt sögur af Siggu og afrekum
hennar. Við litum alltaf upp til
hennar.
Hún var mjög góð handavinnu-
kona og sérstaklega góður kennari
við Kennaraskóla Íslands. Það sem
ég met mest við frænku mína var
lífsgleði hennar, vilji og geta til að
fylgjast með tímanum. Alltaf var
jafn gaman að spjalla við hana.
Hún var áhugasöm og gaf mér til-
finningu um að vera mikils virði.
Þrátt fyrir marga örðugleika,
sjúkdóma og annað, gafst hún
aldrei upp. Hún var glæsileg kona
alveg fram á síðustu ár, háöldruð
og sjúk. Ég mun alltaf vera stolt
af að hún var móðursystir mín.
Hallfríður Bjarnadóttir,
Sandnes, Noregi.
„Komdu sæl og velkomin í hús-
ið.“Þannig hófust kynni okkar Sig-
ríðar, eða Siggu eins og hún var
alltaf kölluð, fyrir tæpum 30 árum.
Hún var móðursystir mannsins
míns og elsta systirin í stórum
systkinahópi og hún minnti mig oft
á Hönnu tengdamóður mína. Í
fyrstu var ekki mikill samgangur á
milli okkar. Sigga var enn í fullu
starfi og lifði sínu lífi. En með ár-
unum myndaðist mjög góður vin-
skapur milli okkar. Hún sagði mér
frá ýmsu úr lífi sínu, frá uppvaxt-
arárum á Ljósvallagötu, búskap
foreldra sinna í Haga og tauga-
veikinni sem kom upp og einangr-
uninni sem því fylgdi. Einnig sagði
hún mér frá námsárum sínum hér
heima, í Kaupmannahöfn og von-
brigðum sínum þegar hún varð að
hverfa frá námi þegar síðasta próf-
ið var eftir og hún varð að fara
strax heim vegna þess að hún var
með berkla og fór beint á Vífils-
staði, einnig frá framhaldsnámi í
Stokkhólmi. Hún hafði yndi af því
að ferðast og sagði m.a. frá
skemmtilegu hjólaferðalagi með-
fram hinum stóru vötnum Svíþjóð-
ar.
Hún var ákaflega vel lesin kona
og fróð um marga hluti. Hún naut
þess að fara í leikhús og fylgdist
með því sem var á fjölunum hverju
sinni. Áttum við margar góðar
leikhúsferðir saman.
Allt virtist leika í höndum henn-
ar. Hún var ákaflega flink sauma-
kona og alls konar hannyrðir gerði
hún. Hún var líka meistarakokkur
og mikil smekkkona.
Sigga var einstaklega dugleg
kona og viljaföst. Þegar elli kerl-
ing sótti á efldist hún og ætlaði
ekki að láta í minni pokann fyrr en
í fulla hnefanna. Hún var alltaf að
æfa sig og ef hún komst ekki út til
að ganga þá æfði hún sig í stig-
anum. Ég dáði Siggu fyrir það hve
hún lifði lífinu lifandi og hafði
áhuga á því sem var efst á baugi
hverju sinni.
Það verður ekki oftar hlaupið
milli hæða til að vita hvernig líð-
anin er, setjast niður bara til að
spjalla, horfa á sjónvarp saman
eða athuga hvort þurfi að útrétta
eitthvað. Það er tómlegt í ætt-
arhúsinu á Öldugötu.
Í virðingu og þökk kveð ég Sig-
ríði Arnlaugsdóttur.
Kristín Sverrisdóttir.
Þegar hugurinn leitar til löngu
liðins tíma æskuáranna rifjast ým-
islegt upp. Sigríðar Arnlaugsdótt-
ur minnist ég sem glæsilegrar og
mjög ákveðinnar persónu. Hún var
vel að sér, hafði mótaðar skoðanir
um flesta hluti og var með næmt
auga fyrir formi og fegurð. Hún
var virt og flinkur handavinnu-
kennari í Kennaraskólanum, eða
eins og faðir minn orðaði það „hún
var mjög vel metin sem kennari og
þegar við mamma þín vorum að
kynnast skipti miklu máli álit
Siggu“. Þannig minnist ég hennar
með aðdáun og virðingu. Á þeim
árum kom nokkrum sinnum maður
hennar Sigurður Norðdahl ljós-
myndari til okkar, stillti upp tækj-
um sínum og tók ljósmyndir af
okkur fjölskyldunni. Þetta voru
stórviðburðir í huga mínum sem
ungs drengs.
Ég hef búið í sama hús og
Sigga síðastliðin þrjátíu ár. Ég er
þakklátur og kveð nú með sökn-
uði frænku mína. Heimili hennar
er smekklegt og mjög snyrtilegt
eins og ávallt. Hún var mjög dug-
leg kona og einbeitt. Sigga ferð-
aðist meðan hún gat, las mikið og
fylgdist vel með leikhúslífi, kvik-
myndum og öðru menningarlífi.
Síðustu árin dáðist ég að já-
kvæðri lífssýn hennar þrátt fyrir
að aldurinn færðist yfir og heils-
unni hrakaði. Hún vissi hvað hún
vildi eða þurfti, keypti sér sjúkra-
rúm og heyrnartæki af bestu
gerð og smart föt fram undir það
síðasta. Hún var stöðugt að þjálfa
sig eftir einhverja leguna, gekk
upp og niður stigann og fór í
gönguferðir með göngugrind og
gerði sín innkaup sjálf eftir því
sem hún gat. Hún vildi sjaldan
þiggja hjálp nema í ýtrustu neyð,
þvoði þvottinn sinn sjálf og
hengdi upp á snúrur, þrátt fyrir
að geta varla lyft höndum. Hún
gerði góðlátlegt grín að vanmætti
sínum og tók mótlæti af æðru-
leysi, alltaf tilbúin að vinna úr
vandanum. Hún mátti muna tím-
ana tvenna en sem ung stúlka
stundaði hún fimleika og fór í
sýningarferðir utanlands sem
innan, með fimleikaflokki Ár-
manns.
Gunnar Bjarnason.
Sigríður
Arnlaugsdóttir
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
✝
Bróðir okkar og mágur,
HALLDÓR SVEINBJARNARSON
frá Ísafirði,
Austurströnd 8,
Seltjarnarnesi,
sem lést á Landakoti 11. janúar verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
21. janúar kl. 13.00.
Sigríður Sveinbjarnardóttir,
Jóhanna Sveinbjarnardóttir, Þorvaldur Tryggvason.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN JÓHANNSDÓTTIR
Árskógum 6,
Reykjavík
verður jarðsungin frá Seljakirkju 21. janúar
kl. 13.00.
Jóhann Sævar Erlendsson, Þuríður E. Baldursdóttir,
Anna Rósa Erlendsdóttir, Guðni Ágústsson,
Kristín Erla Guðnadóttir, Brynjar Víðisson,
Arnar Páll Jóhannsson,
Jóhann Baldur Jóhannsson,
Magnea Mjöll Ingimarsdóttir.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og
langamma,
ELÍN ODDNÝ HALLDÓRSDÓTTIR,
Einilundi 10a,
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 15. janúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 21. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á minningarkort
Öldrunarheimila Akureyrar eða önnur líknarfélög.
Svanhvít Jónsdóttir, Herbert Herbertsson,
Elín Anna Guðmundsdóttir, Sigurður Gunnarsson,
Brynja Guðmundsdóttir,
Jóhann Pétur Herbertsson,
Guðrún Elín Herbertsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
SIGTRYGGUR ÞÓRHALLSSON,
Kleppsvegi 62,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
22. janúar kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Bryndís Bjarnadóttir,
Þórhallur Sigtryggsson, Sesselja Valtýsdóttir,
Bjarni Sigtryggsson,
Sigtryggur Sigtryggsson, Hallgerður Gunnarsdóttir,
Þórdís Ósk Sigtryggsdóttir, Davíð Jóhannsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SVAVA STEFÁNSDÓTTIR
frá Fáskrúðsfirði,
Hjallaseli 55,
áður Mjóstræti 4,
sem andaðist í Seljahlíð föstudaginn 11. janúar,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
22. janúar kl. 13.00.
Snæbjörn Aðalsteinsson, Kristín Lárusdóttir,
Þórdís Aðalsteinsdóttir, Gísli Guðnason,
Kristborg G. Aðalsteinsdóttir, Rafn Guðmundsson,
Stefán Aðalsteinsson, Elín Geira Óladóttir,
Anna Aðalsteinsdóttir, Robert Molodziejko,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR JÓN PÁLSSON
kennari,
Aflagranda 40,
áður Melhaga 5,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 12. janúar, verður
jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 22. janúar
kl. 13.00.
Elín Þórðardóttir, Reinold Kristjánsson,
Steinunn Þórðardóttir, Hrafn Bachmann,
Aðalsteinn Þórðarson, Guðrún Jóhannesdóttir,
Kjartan Þórðarson, Helga Kristín Einarsdóttir,
Gunnar Þórðarson, Hafdís Kjartansdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SÆMUNDUR JÓHANNSSON
múrarameistari,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardag-
inn 12. janúar, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 21. janúar kl. 13.00.
Kjartan Sæmundsson, Katerina Siparinko,
Ásta K. Norrman Sæmundsdóttir, Tommie Norrman,
Guðrún Sæmundsdóttir, Kjartan Birgisson,
barnabörn og barnabarnabörn.