Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 57

Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 57 ✝ Marís KristjánGústaf Adolf Haraldsson fæddist í Bolungarvík 29. ágúst 1908. Hann lést á heimili sínu á Hrafnistu í Hafn- arfirði 29. desem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Haraldur Stef- án Hrómundur Stefánsson, f. í Eyr- arsókn í Seyðisfirði í N-Ís. 26. október 1877, d. 19. mars 1961, og Ágústa Andresína Mar- ísdóttir, f. á Langeyjarnesi á Skarðsströnd 15. desember 1880, d. 13. desember 1930. Systkini Marísar voru, Eggert Karvel, f. 9. apríl 1904, d. 28. janúar 2002, Magnús Ágúst, f. 24. ágúst 1905, d. 15. ágúst 1997, Katrín Guðrún, f. 9. júní 1907, d. 13. september 1907, og samfeðra Þorkell Jens, f. 9. júní 1905, d. 16. september 1947. barnabörn,. 2) Páll Sigurður, f. 2 apríl 1950. Hann á fimm börn og átta barnabörn, 3) Ágústa Katrín, f. 23. september 1953, maki Árni Friðbjarnarson, f. 23. nóv. 1953, þau eiga eina dóttur og eitt barnabarn. 4) Hafrún Valbjörg, f. 16. október 1956, maki Helgi Samsonarson, f. 3. júní 1954 , þau eiga tvö börn og þrjú barnabörn. Marís var lærður tré- og mublusmiður. Hann rak tré- smíðaverkstæðið Þrótt í Bolung- arvík og tók þátt í að byggja mörg hús í plássinu, þar á meðal félagsheimilið. Seinna vann hann hjá Trésmiðju Jóns Friðgeirs í Bolungarvík. Hann og kona hans Guðrún settu á stofn prjónastofu og verslun á staðnum. Marís og Guðrún fluttu til Reykjavíkur 1972. Marís var húsvörður á Kleppsvegi 2-6, í 15 ár, 1987 flytja þau á Dalbraut 20. Það var svo í ágúst 2005 að þau hjón fluttu á Hrafnistu í Hafnarfirði. Marís tók virkan þátt í félagslífi, hann var virkur þátttakandi í Góðtemplarastúkunni í Bolung- arvík og þegar hann kom suður var hann virkur þátttakandi í fé- lagsstarfi innan SÍBS. Útför Marísar fór fram frá Fossvogskapellu 11. janúar, í kyrrþey að ósk hans. Marís var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Ásdís Guð- rún Pálína Jóns- dóttir, f. 30. apríl 1919, d. 6. janúar 1945. Þau giftu sig 1. apríl 1939. Þau áttu saman tvö börn: 1) Marís Gilsfjörð, f. 29. ágúst 1937, maki Birna Björnsdóttir, f. 27. janúar 1936, d. 1995, þau eiga 6 börn, 14 barnabörn og þrjú barna- barnabörn og 2) Guðrún Auður, f. 10. ágúst 1939, maki Ingólfur Ólafsson, f. 22. mars 1935, d. 2003, þau áttu 4 börn, 1 barna- barn og 1 barnabarnabarn. Seinni kona Marísar er Guðrún Þórarinsdóttir, f. 29. júní 1916. Þau giftu sig 1. janúar 1952. Þau eiga saman fjögur börn, 1) Ás- valdur Jón, f. 5 janúar 1948, maki Soffía Jacobsen, f. 21. júlí 1948, þau eiga fjögur börn, og níu Látinn er faðir okkar Marís Har- aldsson frá Bolungarvík. Hann var 99 ára og fjögurra mán- aðar þegar hann dó. Pabbi var mjög vinnusamur maður og þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Ungur að árum fór hann á sjó, en það var það sem hann vildi leggja fyr- ir sig, hann lærði smíðar, þar á meðal mublusmíði og voru smíðar aðalat- vinnugrein hans um ævina. Pabbi var mjög félagslyndur maður, hafði góða söngrödd, og þótti gaman að ferðast, eftir að hann flutti suður keypti hann sér sumarhús uppi í Svignaskarði sem farið var í allar helgar. Þegar aldurinn færðist yfir og honum þótti of langt að keyra þangað var það selt og keyptur bústaður upp við Elliða- vatn sem þá var sveit og þangað farið allar helgar og oft eftir vinnu á dag- inn. Því þar gat hann fengið útrás fyr- ir vinnusemi sína við að dytta að húsi og girðingu og hjálpa mömmu að rækta garðinn, það voru ekki fáar plönturnar sem þar voru settar niður. Ótal minningar koma upp í hugann á þessum tímamótum, en sterkust er minningin um bænastundirnar á kvöldin; þegar við systur vorum hátt- aðar á kvöldin og komnar upp í rúm kom pabbi og breiddi yfir okkur og lét okkur fara með bænirnar. Þetta var ekki ein bæn eða tvær, þegar búið var að læra eina bæn var annarri bætt við og svo koll að kolli, þannig að þetta gat tekið dágóðan tíma og svo eftir að bænastundinni lauk mátti ekki segja eitt aukatekið orð. Pabbi var sérlega bóngóður maður og var mjög gott að leita til hans, því hann var alltaf tilbúinn að gera allt fyrir okkur sem við báðum hann um. Elsku pabbi, við erum öll mjög þakklát fyrir að hafa verið hjá þér þína síðustu stund og missir mömmu er afar mikill, því þið máttuð ekki af hvort öðru sjá, en við munum styðja hana í hennar miklu sorg. Ég vil í Drottni sofna sætt, samviskustríðið allt er bætt, dauðahaldi ég Drottin þríf, dýrstur gef þú mér eilíft líf. Lúinn anda ég legg nú af, lífinu ráði sá, sem gaf, í sárum Jesú mig sætt innvef, sálu mína ég Guði gef. Láttu mig, Drottinn, lofa þig, með lofi þínu hvíla mig, ljósið í þínu ljósi sjá, lofa þig strax sem vakna má. (Hallgrímur Pétursson.) Hvíl í friði, elsku hjartans pabbi, og hafðu þökk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Ástarkveðja frá okkur öllum, Páll, Ágústa og Hafrún. Elsku afi, nú ert þú farinn. Ég var voða dapur þagar síminn hringdi 29. desember og pabbi svaraði í símann og ég spurði hver hefði hringt. Hann sagði mér að Ágústa frænka hefði hringt og sagði að þú værir að deyja. Við pabbi fórum strax af stað til þín og á leiðinni fór ég að gráta. Mér leið betur þegar pabbi skýrði út fyrir mér á leiðinni að þú værir að fara í ferða- lag og að þú færir til Guðs. Mér finnst gott núna að hafa getað kvatt þig, áður en þú lagðir af stað, elsku afi minn. Það var alltaf svo gott að koma til þín og ömmu á Dalbraut- ina og svo í Hafnarfjörðinn. Mér fannst þú alltaf svo skemmtilegur. Það var líka svo gott að þið amma voruð alltaf hjá okkur á jólunum. Elsku afi minn, ég sakna þín og það huggar mig að þú ert kominn á góðan stað. Ég ætla að halda í hendina á henni ömmu fyrir þig, afi minn, og vera góður við hana. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Páll Marís Pálsson. Elsku langafi. Það er svolítið skrítið að þú sért farinn frá okkur, þú sem varst svo góður maður. Það verður svolítið skrítið að koma upp í vinnu til mömmu og geta ekki heilsað upp á þig. Mér fannst alltaf jafn gaman að koma upp í vinnu til mömmu og fara inn til þín og ömmu. Það var oft sem ég kom og las fyrir þig Andrésblað eða bara spjallaði við þig. Ég á eftir að sakna þín mikið. Ég veit að þú varst orðinn gamall, en það er samt sárt að þurfa að kveðja þig. Ég er feg- in að hafa fengið að kynnast þér því þú varst svo góður maður. Ég vona að ég verði eins afi og þú varst, alltaf glaður og skemmtilegur. Þú kunnir fullt af vísum sem þú sagðir mér. Takk fyrir samveruna hér og þú munt alltaf verða hjá mér í hjartanu. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Bernharður Guðjón. Langafi var góður maður. Hann var alltaf svo glaður. Það var soltið gott að hann fengi að leggja sig, hann var svo veikur og með hósta. Skrítið að hann dó 29. desember og á afmæli 29. ágúst. Æi, ég vildi að langafi myndi ekki deyja. Það var sorglegt að kveðja þig í síðasta sinn. Hann langafi minn var mjög vitur maður. Hann vissi bara allt um landið sitt. Langafi var besti langafi sem hægt var að eiga, ég sakna hans mjög mik- ið. Kær kveðja Aron Freyr Haraldsson. Marís Kristján Gústaf Adolf Haraldsson Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN HERMANN EYFJÖRÐ JÓNSSON, Dalbraut 14, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag kl. 13.00. Þórey Gísladóttir, Jón Bjarni Eyfjörð Stefánsson, Svanborg Oddsdóttir, Elís Stefán Eyfjörð Stefánsson, Sigríður Albertsdóttir, Jóna Gísley Eyfjörð Stefánsdóttir, Geirmundur Geirmundsson, afabörn og langafabörn. ✝ Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför elskulegs sonar okkar og bróður, JAKOBS HRAFNS HÖSKULDSSONAR, Bröndukvísl 14, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Björgunarsveitum Landsbjargar. Höskuldur Höskuldsson, Aðalheiður Ríkarðsdóttir, Rakel Sara Höskuldsdóttir, Lea Ösp Höskuldsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR ÞÓRÐARDÓTTUR frá Brúsastöðum, Suðurvangi 2. Fyrir hönd ættingja og vina, Ingveldur S. Kristjánsdóttir, Þórður K. Kristjánsson, Elma Cates, Sigurður Kristjánsson, Anna J. Sigurbergsdóttir, Valgerður Kristjánsdóttir, Rúnar Smárason, Kristín Kristjánsdóttir, Magnús Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR ljósmóður. Sérstakar þakkir til starfsfólksins að Hrafnistu við Brúnaveg fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Aðalheiður Sigurðardóttir, Margrét Sigurðardóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN ÞORSTEINSSON, Hamrabergi 6, Reykjavík, sem lést á Líknardeild Landspítalans, Landakoti, þriðjudaginn 8. janúar, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju, Mosfellsbæ, þriðjudaginn 22. janúar klukkan 15.00. Lilían Kristjánsson, Hörður Guðjónsson, Brynhildur Sveinsdóttir, Jóhanna Guðrún Guðjónsdóttir, Guðmundur Jón Guðjónsson, Dóra Magnúsdóttir, Ásta Kristjana Guðjónsdóttir, Jóhann Gestsson, Þorsteinn Sigurður Guðjónsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.