Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 58

Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 58
58 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Bókaveisla Hinni landsfrægu og margróm- uðu janúarútsölu lýkur um helg- ina. Höfum bætt við fullt af fín- um bókum á 300 kr. stk. 50% afsl. af öðrum bókum. Við erum í Kolaportinu, hafnarmegin í hús- inu. Opið um helgina kl. 11-17. Bækur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Barnavörur Tvíburakerra með regnslá Til sölu nánast ónotuð tvíburakerra, Schwinn Safari TT Double auk regnslár. Sætin eru aðskilin og þurfa því ekki að vera í sömu stlillingu. Verð: 12.000 kr. S.: 845 8585. Viðskipti Notaðu skynsemina og skoðaðu möguleikann Viltu vera með í að byggja upp öflugt fyrirtæki með peningum sem þú ert hvort sem er að nota til að byggja fyrirtæki annarra? Skoðaðu þá http://www.Netis.is Byggingavörur Smáauglýsingar MINNINGAR ✝ Hafliði Jónssonfæddist á Pat- reksfirði 20. októ- ber 1923. Hann and- aðist á Elliheimilinu Grund í Reykjavík 19. desember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Jónína Guðrún Jónsdóttir, f. 1885, d. 1961, og Jón Indriðason skó- smiður, f. 1884, d. 1974. Systkini Haf- liða voru Sigurður, f. 1905, dó á fyrsta ári; Sigurður Kristinn, f. 1906, d. 1968; Rannveig, f. 1908, dó á fyrsta ári; Rannveig Lilja, f. 1910, d. 1950; Marta, f. 1911, d. 1999; Þorgerður, f. 1913, d. 1962; Indr- iði, f. 1915, d. 1998; Jón úr Vör, f. 1917, d. 2000; Sigrún, f. 1918, d. 1988; Sólveig, f. 1919, d. 2003; Gunnar, f. 1922, d. 1992; Fjóla, f. 1925, d. 1996, og Björgvin, f. 1929, sem enn býr í Kópavogi. Hafliði var tólfti í systkinaröðinni. Eiginkona Hafliða var Guðleif Hallgrímsdóttir, alltaf kölluð Gulla, f. 15. apríl 1926, d. 24. maí 1989. Synir þeirra eru Hallgrímur Valur, f. 1947, kvæntur Sig- urbjörgu Þórðardóttur, dóttir hans er Guðleif og á hún þrjú börn; Jón Gunnar, f. 1949, kvæntur Ernu Hannesdóttur, son- ur hans er Hafliði; Indriði Már, f. 1950, d. 2003, eiginkona hans er Ranveig Johansen, dætur hans eru Guðleif Hafdís og Berglind, Guðleif Hafdís á tvö börn; Atli Geir, f. 1960, kvæntur Höllu Jónasdóttur, börn þeirra eru Sóley Björk og Gunnar Daði; Stefán Daði, f. 1963. Sonur Hafliða og Sigríðar Salvarsdóttur er Hafsteinn Sævar, f. 1946, kvæntur Iðunni Óskarsdóttur. Dætur þeirra eru Ragnheiður Gróa sem á fjögur börn; Gunn- þóra sem á tvær dætur og Sigríð- ur sem á fjóra syni. Hafliði gekk í barnaskóla á Pat- reksfirði, fór þaðan í Ungmenna- skólann á Núpi. Útskrifaðist sem garðyrkjufræðingur frá Garð- yrkjuskóla ríkisins vorið 1942. Hann var garðyrkjustjóri Reykja- víkurborgar frá 1956 til 1985. Útför Hafliða fór fram frá Foss- vogskirkju föstudaginn 11. jan- úar, í kyrrþey að beiðni hans sjálfs. Gamall maður deyr. Einum kafla í lífsins bók lýkur. Andlát öldungs sem smámsaman fjaraði út úr nær- vistinni og var horfinn til foreldra- húsa í lítið, lágreist hús á fjörukambi í þorpi undir brattri hlíð í firði fyrir vestan. Lausn og hvíld frá hrörnun sem hann fann mjög fyrir og ágerð- ist þar til allt rann saman í roflaust rugl. Hvíld frá þreytu og ótta sem óskiljanleikinn olli. Hið eina sem í grillti var óljós minningin um mal- arkambinn og móðurknéð. Hann vildi fara heim. Hafliði Jónsson var tíundi í röð- inni af tólf systkinum sem upp kom- ust af fjórtán fæddum. Lífsbaráttan var hörð. Marga munna þurfti að metta. Faðirinn stundaði skósmíðar, eins og hann hafði lært til, en drýgði tekjurnar framanaf með sjósókn á vertíðunum. Móðirin blíðlynd, lág- mælt, guðrækin og bókhneigð. Skóaraverkstæðið var einskonar fréttastofa og fundarstaður þar sem þjóðmálin voru reifuð og ýmsum skoðunum skaut upp. Þetta um- hverfi mótaði Hafliða og fylgdi hon- um lengst af og þangað leitaði hug- ur hans, hálft í hvoru, alla tíð. Öðrum, en jafn varanlegum áhrif- um varð hann svo fyrir í Ung- mennaskólanum á Núpi. Sá andi og sú uppeldisstefna sem þar ríkti þá varð honum leiðarljós og vakti löng- un hans til gera ræktunarstörf að ævistarfi. Um þessar mundir var Garðyrkjuskóli ríkisins stofnaður og þaðan útskrifaðist hann sem garð- yrkjufræðingur vorið 1942. Frá 1943 starfaði Hafliði sem fastráðinn garðyrkjumaður hjá skrúðgörðum Reykjavíkurbæjar og varð svo fyrsti eiginlegi garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar árið 1956. Því starfi gegndi hann til starfsloka árið 1985. Hafliði skrifaði mikið öll sín ár og skriftir voru hans helsta áhugamál eftir að hann fór á eftirlaun og meðan heilsa entist. Frá honum hefur ým- islegt birst undir höfundarnafninu „Hafliði Jónsson frá Eyrum“. Fræg- ast af því eru kannski Æviminningar Kristínar Dahlstedt veitingakonu. Sú bók hefur verið ívitnunarrit íslenskra femínista og lesin sem framhalds- saga í Ríkisútvarpinu. Eftir hann liggja nokkrar skáldsögur í handrit- um. Merkar frásagnir hans um fólk og samfélagið á Patreksfirði þegar hann var að alast upp, „Við Brell- urætur“, hafa birst í ritinu „Frá Bjargtöngum að Djúpi“ á árunum 2000-2002. Í einkalífi sínu var Hafliði farsæll, hjónaband hans og Gullu var hlýtt og traust. Hann tók langvarandi veik- indi hennar nærri sér og lagði sig fram um að létta byrði hennar þeirra vegna. Eftir lát hennar fann hann til tómleika og saknaðar en hann var ekki gefinn fyrir að láta tilfinningar sínar í ljós. En það lamaði alveg sjálf- stæði hans, og hluta af lífsviljanum, þegar hann varð að hætta að aka bíl og komst þar með ekki lengur allra sinna ferða án aðstoðar frá öðrum. Sjálfstæði og sjálfræði, svo að oft á tíðum jaðraði við einþykkju, var alla tíð hans helsta persónueinkenni. Hann eyddi litlum tíma í að ráðfæra sig við hvern sem var, en fór oft til þeirra sem hann áleit vera sama sinnis. En jafnframt var hann góð- lyndur og greiðvikinn og lagði oft töluvert á sig til að greiða götu náungans. Þar gerði hann engan mannamun. Við sem gengum samtíma Hafliða Jónssyni, stuttan spöl eða langan, eigum honum margt að þakka. Bless- uð sé minning hans. Hafsteinn Hafliðason. Snyrtilegur með þverslaufu og hatt, með staf í hönd, strýkur afi geitarskeggið sitt og horfir spekings- lega á stelpuna sína með glettni í augum og brosir hlýtt. Þannig minnist ég afa míns sem var mér svo kær. Ég var svo lánsöm að fá að búa hjá afa um stund og sá tími reyndist mér mjög dýrmætur. Við áttum margar góðar stundir saman, þar sem margt var rætt, oft um gamlar stundir, bókaskriftir, list og náttúruna. Afi var mjög hugulsamur, hjálp- samur og hjartahlýr gagnvart mér og mínum. Mér fannst ég alltaf svo örugg og vernduð hjá afa, hann pass- aði vel uppá stelpuna sína. Ég mjög þakklát fyrir afa minn sem ég kveð með söknuði en ljúfar minningar búa ávallt í hjarta mínu. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Guðleif Hafdís Indriðadóttir. Nokkur orð til minningar um skólabróður minn og vin, Hafliða Jónsson, fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar. Veturinn 1939- 40 – fyrri vetur Hafliða í Núpsskóla í Dýrafirði – seinni vetur minn. Hafliði var feiminn og hlédrægur, það leyndi sér samt ekki að þarna var kominn afbragðs nemandi. Þar sem skólinn var rekinn með anda Grundt- vigs að leiðarljósi var lögð áhersla á samfélagsþroska með námi, enda hét ein námsgreinin „samfélagsfræði“. Hafliði sagði mér að hann vildi fara í Kennaraskólann eftir Núp. Hann vildi verða kennari. Veturinn 1942-43 hittumst við Hafliði aftur í húsnæði sem Útvarpstíðindi höfðu til afnota í húsi Garðars Gíslasonar við Hverf- isgötu. Jón úr Vör, bróðir Hafliða, og Gunnar M. Magnúss rithöfundur gáfu út Útvarpstíðindi og ég hafði fengið þarna íhlaupavinnu. Ég innti Hafliða eftir því, hvort hann væri bú- in að ljúka kennaranáminu. „Ég fór aldrei í námið, það voru ekki til pen- ingar,“ var svarið. Það snart mig hvað hann sýnilega harmaði þetta. Um vorið hafði hann lokið námi í Garðyrkjuskóla ríkisins í Ölfusi. Seinna varð Hafliði garðyrkju- stjóri Reykjavíkurborgar, vann að mörgu menningarlegu framtaki eins og að skipuleggja Austurvöll, Laug- ardalinn og Grasagarðinn, einnig var Árbæjarsafn honum hugleikið. Það er gott til þess að hugsa að hafa kynnst þvílíkum dreng sem Haf- liði var. Afkomendum hans sendi ég samúðarkveðjur. Edda Jónsdóttir. Hafliði Jónsson, fyrrum garðyrkju- stjóri Reykjavíkurborgar, var einn af bestu vinum föður míns, Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. Þeir kynntust fyrst árið 1949 þegar Haf- liða var falið að aðstoða föður minn við skipulag lóðar sem hann hafði fengið úthlutað við Sigtún í Reykja- vík. Þar með hófst gagnkvæm vin- átta þeirra sem hélst alla tíð. Umhyggja Hafliða fyrir foreldrum mínum var einstök. Listamenn eru oft svo uppteknir af eigin starfi að venjulegt veraldarvafstur verður þeim aukaatriði. Þar kom Hafliði til sögunnar og leysti alls konar mál af hugkvæmni og dugnaði. Hafliði varð smám saman mikill fjölskylduvinur og var ekki síður góður vinur og hjálparhella móður minnar. Hann hafði lifandi áhuga á fólki og gaf sér tíma til að kynnast högum þess. Hafliði hafði fyrir venju að koma vikulega í Kúluna til að spjalla og leita frétta. Einnig kom hann reglu- lega í heimsókn til þess að klippa föður minn sem sá lítinn tilgang í því að eyða löngum stundum á rakara- stofum. Alltaf hýrnaði yfir foreldrum mín- um þegar Hafliði birtist með sitt góða skap og glettni. Síðan var rætt jafnt um málefni líðandi stundar sem æskuárin í sveitinni og myndlistina í landinu. Áhugi Hafliða á myndlist var einlægur. Í starfi sínu sem garð- yrkjustjóri Reykjavíkur hafði hann m.a. það hlutverk að velja staði fyrir útilistaverk í borginni. Hann lagði mikinn metnað í að finna réttu stað- setninguna og margar ferðir fór hann með foreldra mína til að velja bestu staðina. Eftir að Hafliði lét af störfum hóf hann að rita æviágrip nokkurra myndhöggvara sem hann hafði kynnst á lífsleiðinni þeirra á meðal Einars Jónssonar og Ásmundar Sveinssonar. Þessi skrif hafa að geyma mikinn fróðleik sem Hafliði skráði hjá sér í framhaldi af sam- tölum við listamennina eða hafði eft- ir öðrum þeim nákomnum. Hafliði gerði sér far um að leita upplýsinga hjá vinum og ættingjum listamann- anna. Þetta fólk er nú flest fallið frá svo ómetanlegt er að eiga frásagnir þess. Með Hafliða Jónssyni er genginn góður drengur. Hafi hann þökk fyrir þá vináttu og aðstoð sem hann árum saman sýndi foreldrum mínum. Ég og fjölskylda mín vottum son- um Hafliða og fjölskyldum þeirra innilega samúð okkar. Ásdís Ásmundsdóttir. Hafliði Jónsson ✝ Jónína Bjarna-dóttir fæddist á Héðinshöfða á Tjör- nesi 1. apríl 1927. Hún lést á Dval- arheimilinu Hlíð á Akureyri 6. desem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Hólmfríður Jónasdóttir, f. 1895, d. 1975 og Bjarni Stefánsson, frá Kaldbak í Reykja- hverfi, f. 1884, d. 1968. Systkini Jón- ínu eru; Ljótunn, f. 1917, Sigríð- ur, f. 1919, báðar látnar, Bergljót, f. 1929, búsett á Húsavík, Jónas, f. 1932 og Bjarni, f. 1934, ábúendur á Héðinshöfða. Jónína stundaði nám við Alþýðuskól- ann og Húsmæðra- skólann á Laugum í Reykjadal og lauk prófi frá Hús- mæðrakenn- araskóla Íslands vorið 1952. Útför Jónínu fór fram frá Höfðakap- ellu á Akureyri í kyrrþey 14. desem- ber. Jarðsett var í Húsavík- urkirkjugarði sama dag. Þegar fregnin barst um andlát Jónínu setti okkur hljóðar jafnvel þótt fregnin hefði ekki verið óvænt. Jónína var ein okkar sextán skóla- systra sem hófum nám í Húsmæðra- kennaraskóla Íslands haustið 1950. Fljótlega mynduðust náin kynni í þessum litla hópi þar sem skóladag- urinn var oftast langur og samvinna óvenjumikil. Innileg vinátta okkar skólasystr- anna, sem þarna var lagður grunnur að, hefur haldist í rúma hálfa öld þótt oft yrði vík milli vina. Enn fækkar í hópnum okkar. Jón- ína er sú áttunda sem kveður. Góðar eru minningarnar um ljúfar samverustundir öll þessi ár. Saumaklúbbarnir í gamla daga hjá hveri og einni, stundirnar er við komum saman og hjálpuðumst að við ýmis verkefni að ógleymdum öllum útskriftarafmælisdögum okkar. Hugurinn reikar til ársins 1981 en þá ákvað Erla skólasystir, sem bú- sett er í Bandaríkjunum, að koma heim og halda veglega upp á 50 ára afmælið sitt og bjóða ættingjum og vinum til veislu. Við sem heima sát- um ákváðum að sjá um veisluhaldið og þá var gott að hafa Jónínu með í ráðum. Sameiginlega lögðum við hönd að verki og glöddumst með af- mælisbarninu í góðra vina hópi. Jón- ína var ein af þeim sem voru að norð- an, Þingeyingur í húð og hár og talaði fallega norðlensku sem eftir var tekið. Góðir námshæfileikar hennar komu fljótt í ljós. Hún var vel und- irbúin til að takast á við námsefnið hvort sem það var á verklega eða bóklega sviðinu. Hún var samviskusöm, hógvær, elskuleg í samskiptum og góður fé- lagi skólasystra sinna. Námið nýttist Jónínu vel alla hennar starfsævi. Hún fór að ráðum Helgu Sigurðardóttur skólastjóra um að við yrðum að vera þjóðinni hollar og starfa við námsgrein okkar í a.m.k. 10 ár að námi loknu. Nokkru eftir útskriftina varð Jónína ráðs- kona á Bessastöðum hjá forsetahjón- unum Dóru Þórhallsdóttur og Ás- geiri Ásgeirssyni. Við heimsóttum hana þangað og sú ferð var okkur lengi minnisstæð. Annars varð aðal- starf Jónínu kennsla í hússtjórnar- fræðum, m.a. við Húsmæðraskólana í Reykjavík og á Laugum í Reykja- dal, en á Laugum var hún skólastjóri um árabil. Síðustu árin kenndi hún þroskaheftum börnum matreiðslu í Reykjavík og síðar á Akureyri. Þar naut hún sín vel sem og ann- ars staðar og gladdist innilega yfir áhuga og framförum nemenda sinna. Í nokkur sumur starfaði Jónína við sumarhótel í samstarfi við Sig- urlaugu Eggertsdóttur skólasystur okkar. Árið 1975 urðu þáttaskil í lífi Jón- ínu er hún hóf sambúð með Birni Karlssyni frá Siglufirði. Kynni þeirra hófust með ævintýralegum hætti. Skólasystir okkar Ásta, ein nánasta vinkona Jónínu, hafði boðið henni upp í Borgarfjörð, en þar sem þær urðu seinar fyrir var ákveðið að gista hjá vinkonu á Akranesi. Þar var Björn gestkomandi og þetta kvöld voru örlög þeirra ráðin. Þau áttu síðan góð ár saman, bæði í Reykjavík og síðustu árin á Akur- eyri. Björn lést fyrir tveimur árum. Við vottum aðstandendum Jónínu innilega samúð og kveðjum hana með söknuði, virðingu og þökk. Skólasystur. Jónína Bjarnadóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.