Morgunblaðið - 20.01.2008, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
George W. Bush
Bandaríkja-forseti sagði á
sunnu-daginn að stjórn-völd í
Íran ógnuðu öryggi
heims-byggðarinnar. Hann
sagði að Banda-ríkin og
banda-menn þeirra í
araba-löndum þyrftu að
mynda banda-lag gegn Íran
og taka á hættunni „áður en
það verður of seint“.
Bush sagði að
klerka-stjórnin í Íran styrkti
hryðju-verka-hreyfingar
fjárhags-lega, græfi undan
pólitískum stöðug-leika í
Líbanon, vopnaði talibana í
Afganistan, hefði í hótunum
við grann-þjóðir og virti að
vettugi ályktanir öryggis-ráðs
Sam-einuðu þjóðanna í
kjarnorku-málum.
Bush flutti ræðuna í Abu
Dhabi, höfuð-borg
Sam-einuðu arab-ísku
fursta-dæmanna, helsta
viðskipta-lands Írans.
Utanríkis-ráðherra Írans
sagði að mark-miðið með
ferð Bush um Mið-Austurlönd
væri að skaða tengsl Írans
við grann-ríkin en það hefði
ekki tekist.
Bush vill banda-lag gegn Íran
Reuters
Bush með krón-prinsi Abu Dhabi, Sheikh Mohammed Bin Zayed Al Nahyan.
Alla vega
8manns létu
lífið í árás
liðs-manna
taliban--
hreyfingar-
innar á
glæsi-hótel í
Kabúl á
mánu-daginn.
Á meðal þeirra var norskur
blaða-maður, Carsten
Thomassen.
Jonas Gahr Støre,
utanríkis-ráðherra Noregs,
var staddur á hótelinu þegar
árásin var gerð en særðist
ekki. Ban Ki-moon,
framkvæmda-stjóri
Sam-einuðu þjóð-anna, telur
að tilræðis-mennirnir hafi
ætlað að drepa norska
utanríkis-ráðherrann.
Norski net-miðillinn
Nettavisen hafði eftir
tals-manni talibana að þeir
hefðu ekki vitað að Støre
væri á hótelinu. Árásin hefði
beinst að öllum sem
tengdust
Atlantshafs-bandalaginu.
Tals-maður talibana í
Afganistan sagði að
hreyfingin ætlaði að auka
árásir á veitinga-hús, hótel
og aðra staði sem
út-lendingar venja komur
sínar til.
Árás á
hótel í
Kabúl
Carsten
Thomassen
Björk til-nefnd til
Brit-verðlaunanna
Björk Guðmundsdóttir
fær eina til-nefningu til
Bresku
tónlistar-verðlaunanna sem
verða af-hent 20. febrúar.
Hún er til-nefnd sem besti
alþjóð-legi kven-kyns
tónlistar-maðurinn og keppir
þar m.a. við Aliciu Keys og
Kylie Minogue. Það eru
Take That, Mika og Leona
Lewis sem eru með flestar
til-nefningar, fjórar hver.
Inflúensurnar mættar
Báðir stofnar inflúensu,
þeirrar sem árlega gengur
um heims-byggðina, hafa
greinst hér á landi.
B-stofninn greindist á
landinu rétt fyrir jól og
A-stofninn fyrir um einni
viku. Enn má bólu-setja sig
og er að: Byrgja nef og
munn við hósta og hnerra.
Nota bréf-þurrkur svo
dropar úr öndunar-færum
nái ekki að berast út í
loftið. Þvo hendur.
Stutt
Bobby Fischer, fyrrverandi
heims-meistari í skák, lést á
Land-spítalanum á
fimmtudag. Fischer varð
heims-meistari þegar hann
sigraði Borís Spassky í
einvígi í Laugar-dals-höll árið
1972. Einvígið vakti
heims-athygli og þótti kalda
stríðið kristallast í viðureign
skák-snillinganna frá
Banda-ríkjunum og
Sovét-ríkjunum.
Fischer var veitt hæli á
Íslandi 2005 og hafði þá
setið í fangelsi í Japan vegna
framsalskröfu
Bandaríkjamanna sem gáfu
honum að sök að hafa rofið
viðskiptabann með því að
tefla við Spassky í gömlu
Júgóslavíu árið 1992.
Fischer
látinn
Ólafur Elíasson myndlistar-maður mun reisa
fjóra fossa í höfn New York-borgar í sumar.
Kostnaður við lista-verkið er 15 milljónir dala,
en Michael E. Bloomberg borgar-stjóri New
York segir fossana vera „gríðar-stórt og
hugvits-samlegt“ lista-verk. Hann hefur mikla
trú á því að verk Ólafs muni laða fjölda gesta
til borgarinnar, vekja athygli á umhverfis-vernd
– og afla milljóna dala í tekjur fyrir borgina.
Verkið saman-stendur af fjórum tröll-vöxnum
fossum, sem flæða fram af still-önsum úti í
ánni, 28 til 37 metra háir. Hefst rennslið um
miðjan júlí og verður verkið tekið niður um
miðjan október. Fyrir-hugað er að nota
einungis vist-væna orku til að knýja dælurnar
og í lýsinguna.
„Þetta er lang-stærsta verk-efni sem ég hef
fengist við, og ótrú-lega spenn-andi,“ sagði
Ólafur Elíasson daginn eftir að Fossarnir voru
kynntir opinber-lega.
Gríðar-stórt
lista-verk
Reuters
Brúð-guminn heitir nýjasta kvik-mynd Baltasars Kormáks,
sem var frum-sýnd í Háskóla-bíói á miðvikudags-kvöld. Myndin
byggir í grunninn á leik-ritinu Ívanov eftir Tsjekhov, en
hand-ritið skrifuðu Baltasar og Ólafur Egill Ólafsson.
Myndin sem er tragi-kómedía, fékk mjög góðar við-tökur
áhorfenda.
Brúð-guminn
frum-sýndur
Úr Brúð-gumanum sem tekin er í Flatey.
Á fimmtu-daginn hófst
Evrópu-keppni lands-liða í
Noregi. Alfreð Gíslason
landsliðs-þjálfari ákvað að
fara utan með aðeins tvo
mark-verði, þá Birki Ívar
Guðmundsson og Hreiðar
Leví Guðmundsson. Aðrir
leik-menn eru Guðjón Valur
Sigurðsson, Alexander
Petterson, Róbert
Gunnarsson, Gummersbach,
Vignir Svavarsson, Jaliesky
Garcia, Snorri Steinn
Guðjónsson, Ólafur
Stefánsson, Einar
Hólmgeirsson, Ásgeir Örn.
Hallgrímsson, Logi Geirsson,
Sverrir Jacobsson, Sigfús
Sigurðsson, Bjarni Fritzson
og Hannes Jón Jónsson.
Mótið fór illa af stað hjá
Íslendingum, sem töpuðu
fyrir Svíum, 24:19. Þeir léku
síðan við Slóvaka í gær og
leika við Frakka í dag.
EM í hand-
bolta hafið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ólafur Stefánsson meiddist í
leiknum við Svía.
Netfang: auefni@mbl.is