Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 62

Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 62
62 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Lögga, læknir og lögfræðingur Kippan STRÁKAR, ÞAÐ ER HÆGT AÐ SEGJA MARGT UM UMBURÐARLYNDI ÉG ER SAMMÁLA ER ÞAÐ? JÁ, FÓLK SEM VILL LÍTA VEL ÚT GETUR EKKI HÆTT AÐ TALA UM ÞAÐ GUNNAR FAGNAR ÞVÍ AÐ VERA FYRSTI MAÐURINN Í HEIMINUM TIL AÐ LÆRA AÐ STRAUJA SYND SAKARUPPGJÖF ÉG ENDURVINN ALLAR PLASTFLÖSKUR OG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ ANDA MINNA. HVAÐ GERIR ÞÚ FYRIR UMHVERFIÐ? MESSUVÍNIÐ Í DAG GUNNAR ER EKKI LENGUR JAFN ÁNÆGÐUR MEÐ AÐ HAFA LÆRT AÐ STRAUJA... dagbók|velvakandi Misbeiting stöðuveitinga PABBADRENGJA-klíkukerfið sem lengst af hefur verið ríkjandi hér á landi er greinilega gengið sér til húðar. Sú óskammfeilni og fyrirlitn- ing sem veitingavaldið hefur sýnt íbúum þessa lands getur ekki gengið lengur. Og þegar viðkomandi klíku- stjóra er bent á ósómann er jafnvel reynt að verja herfilega misgjörð. Það er eins og sumir þessara svo- kallaðra ráðamanna haldi að allt vit sé í þeim geymt og enginn hafi vit nema þeir. Er það til í dæminu að kjörnir fulltrúar fólksins í þessu land séu gjörsneyddir allri réttlæt- istilfinningu og haldi að þeir komist upp með hvað sem er? Þeir hafi vald- ið og þegar valdið er hjá þeim eru þeir handhafar allrar þekkingar, aðrir en þeir eru bara núll. Það er augljóst að setja þarf upp nýtt kerfi sem særir ekki réttlæt- isvitund þjóðarinnar. Nýja kerfið gæti falist í því að velja hæfustu menn til starfa eftir að dregið er um hæfustu menn. Með slíku kerfi væri gengið framhjá svívirðilegum mis- gjörðum sem framkvæmdar hafa verið að undanförnu og í allmörg ár. Það er nauðsynlegt að kjósendur í þessu landi láti það sjást á kjördegi að misbeiting valds er ósómi og svona ósóma þarf að losna við. Eftirlaunaþegi. Erum við nokkuð að drukkna í lauginni HVAÐ var málið með síðasta laug- ardag þegar versta lagið var valið áfram í laugardagslögunum? Er þetta ekki tónskáldakeppni eða svo var þjóðinni a.m.k sagt í upphafi keppninnar. Síðan er þetta orðið eins og einhver hæfi- leikakeppni þar sem grínið er sett framar fallegum laglínum og frá- bærum flutningi. Svo var það auðvitað snilld að fá gestadómara inn í keppnina sem er bróðir eins keppandans. Það hjálpar auðvitað því lagi sem fyrirfram var ákveðið að færi áfram. Já, að sjálf- sögðu, svo allir lagahöfundarnir ættu nú lag í milliriðli. Verður það kannski þannig næstu laugardagskvöldin að við megum bú- ast við því að sjá mæður, bræður eða systur í dómnefndinni til að fylgja eftir þeim lögum sem henta best að fari áfram í það og það skiptið. Frekar fúlt fyrir þjóðina sem á að heita að sé að kjósa þegar það lítur út fyrir að það sé fyrirfram ákveðið hverjir fara áfram. Áhugamanneskja um Evrovision Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is ÞESSi unga mær gleðst yfir snjónum sem hefur kyngt niður að undan- förnu. Hún er vel búin og hefst handa við að leika sér og skapa eitthvað skemmtilegt úr snjónum og lætur fannfergið ekki trufla sig. Árvakur/Valdís Thor Í snjókomunni á Miklatúni Pera vikunnar Finndu minnstu töluna sem talan 7 gengur upp í og gefur 1 í afgang þegar deilt er í hana með tölunum 2, 3, 4, 5 eða 6. Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 28. janúar. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavogur.is en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi hinn 21. janúar. Frekari upplýsingar eru á vef skólans. Stærðfræðiþraut Digranesskóla og Morgunblaðsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.