Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 65

Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 65 Krossgáta Lárétt | 1 sauður, 8 ónar, 9 tungumál, 10 litla tunnu, 11 hljóðfæri, 13 peningar, 15 foraðs, 18 Lappar, 21 glöð, 22 eyja, 23 nytjalönd, 24 kon- ungur. Lóðrétt | 2 múlinn, 3 til- biðja, 4 gista, 5 alda, 6 íþróttagrein, 7 at, 12 her- flokkur, 14 dveljast, 15 slappleiki, 16 geri ama, 17 í ætt við, 18 á skipi, 19 drápu, 20 lélegt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 bylja, 4 hirta, 7 tugur, 8 andúð, 9 sæl, 11 ræði, 13 barr, 14 lokka, 15 skil, 17 króm, 20 err, 22 ræddi, 23 ísing, 24 koðna, 25 totta. Lóðrétt: 1 bútur, 2 lógað, 3 aurs, 4 hjal, 5 rudda, 6 arður, 10 æskir, 12 ill, 13 bak, 15 strák, 16 ildið, 18 reist, 19 mögla, 20 eima, 21 ríkt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Nú hættirðu að fresta hlutunum. Það ríður á að halda áfram með verkefnin og það þarf að taka ákvarðanir sem er betra að þú takir. Krabbi laðast að ákveðninni. (20. apríl - 20. maí)  Naut Að taka til og skipuleggja er ekki uppáhaldið þitt – nema það sé undanfari þess að fara að versla og stílísera heimilið, þá er það æði! (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú vilt ekki setja margar reglur í samböndum þínum, og þess vegna er auðvelt að vera vinur þinn. En í dag kem- ur það þér í koll að leggja ekki smá línur. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þegar þú sérð tækifæri til að tengja við einhvern, berðu þá fram út- hugsaða spurningu sem krefst álíka svars. Manneskjunni mun líka við þig. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Erfiði ástarsambands ræður ríkjum í sambandinu. Slakið á. Gerið eitthvað nýtt – eða ekki neitt. Þannig endurnýið þið sköpunargleðina og drifkraftinn. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú vilt að sambandið sé yfir hvers- dagsleikann hafið. Þú vilt rómantík, spennu og glamúr. Þú finnur spennuna sem þú leitar að, en hún verður heim- ilislegri en þú væntir. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Eltu skuggann þinn og hann sleppur í burtu. Snúðu baki í hann og hann eltir þig. Notaðu þessa reglu til að laða að ein- hvern sem erfitt er að ná í. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Sambönd þín þróast eðlilega, og verkin sem þú skapar þroskast áður en þú býður þau til sölu. Þroski þýðir að fara eins hægt og kostur er til að vera viss um hvert skref. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú hefur sífellt meiri áhrif og ábyrgðin eykst. Hvernig viltu svo að þín verði minnst? Að nota ímyndunaraflið í hvívetna er frábær ákvörðun. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert eins og vitringurinn á fjallstindinum. Leit þín að innri friði er aðdáunarverð. Að ná sáttum milli andans og áhugans á viðskiptum gæti orðið flókið. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert svo sannarlega til í smá breytingu. Þú gætir viljað bæta útlit þitt, vinnuna og umhverfið. Steingeit og ljón búa yfir góðum ráðum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ein góð hugmynd rekur aðra. Það er eins og kvikni á hundrað snilldarlegum marglita ljósaperum yfir hausnum á þér. Venjulegir hlutir fá nýja merkingu. Ertu ástfanginn? stjörnuspá Holiday Mathis 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Bb7 5. Bg2 g6 6. Rc3 Bg7 7. O–O d5 8. cxd5 exd5 9. Da4+ c6 10. Bg5 h6 11. Bxf6 Bxf6 12. e4 dxe4 13. Rxe4 Be7 14. Re5 O–O 15. Hac1 Kg7 16. Hfe1 f6 17. Rd3 Ra6 18. Rf4 Rc7 Staðan kom upp á minningarmóti Torres sem lauk fyrir skömmu í Merida í Mexíkó. Þýski stórmeistarinn Alexander Graf (2576) hafði hvítt gegn kollega sínum Holder Hernandez (2566) frá Kúbu. 19. d5! Hf7 svartur hefði tapað manni eftir 19… cxd5 20. Hxc7!. Í framhaldinu var staða hans einnig töpuð. 20. Re6+ Rxe6 21. dxe6 b5 22. Db3 Hf8 23. Hed1 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Góðar og slæmar fréttir. Norður ♠9643 ♥D106 ♦652 ♣ÁG8 Vestur Austur ♠KDG1075 ♠2 ♥94 ♥K87532 ♦G9 ♦10873 ♣753 ♣62 Suður ♠Á8 ♥ÁG ♦ÁKD4 ♣KD1094 Suður spilar 6♣. Sagnhafi gefur slag á spaða, svo það verður allt að ganga upp í rauðu lit- unum. Góðu fréttirnar eru þær að hjartasvíningin heppnast, en vondu fréttirnar að tígullinn fellur ekki. Og þar eð vestur á þrílitinn í trompi geng- ur ekki að taka tvisvar tromp og fara svo í tígulinn – vestur mun trompa þann þriðja. Hvernig á að leysa tíg- ulvandann? Með þvingun á austur. En til þess að hún gangi þarf sagnhafi að vera stadd- ur í borði hjá hjartahótuninni þegar úr- slitastundin rennur upp. Og það gerir hann með því að stytta sig tvisvar í trompi. Sem sagt: Drepið á ♠Á og spaða spilað um hæl. Segjum að vestur trompi út. Borðið á slaginn og ♥D er svínað. Spaði er næst trompaður, laufi spilað á blindan og spaði aftur tromp- aður. Svo kemur tromp á ásinn og austur er þvingaður með ♥K og lengd- ina í tígli. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Hvað hefur sóknarbörnum kaþólska safnaðarins hérá landi fjölgað mikið frá 1990? 2 Tekið hefur verið upp nýtt meistaranám í Háskól-anum á Bifröst. Í hverju? 3 Fyrsta vélmennaapótekið hefur verið tekið í gagnið ínýrri verslunarmiðstöð hér á landi. Hvar? 4 Einstaklingur birtir opnuauglýsingu í öllum dagblöð-unum á föstudag með áskorun til Jóhönnu Sigurð- ardóttur um að veita lífeyrissjóðum heimild til að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara. Hver er hann? Svör við spurn- ingum gærdagsins: 1. Tomas Svens- son, markvörður Svía, reyndist Íslendingum erfiður í handbolta- landsleiknum í fyrra- kvöld. Hversu gamall er hann? Svar: Fertugur. 2. Hannes Jón Jónsson, landsliðsmaður í handknattleik, kann að vera að færa sig um set. Hvert gæti hann verið að fara? Svar: Til Þýskalands. 3. Starfsmenn Landhelgisgæsl- unnar hafa verið að æfa með áhöfn dansks varðskips. Hvað kallast það? Svar: Vædderen. 4. Hvað fer mikið af vannýttum lyfjum til eyðingar á 10 mánuðum í gegnum apótekin? Svar: 5 tonn. Spurter… ritstjorn@mbl.is Árvakur/Golli dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR EVRÓPUVIKA gegn legháls- krabbameini verður 20.-26. janúar. Í tilkynningu frá Krabbameins- félaginu kemur fram að hér á landi verða seld sérstök barmmerki, svonefnd vísdómsperla, til stuðn- ings baráttunni. Lyfja sér um söl- una fyrir Krabbameinsfélagið. Í tilkynningunni segir: „Til að gera konum auðveldara að mæta í leghálskrabbameinsskoðun verður Leitarstöð Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 opin lengur en venju- lega miðvikudagana 23. og 30. jan- úar. Hægt er að panta tíma í síma 540 1919. Sérstök ástæða er til að hvetja konur til að mæta reglu- lega, ekki síst á aldrinum frá 20 til 30 ára. Þessa sömu daga verður einnig opið í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins til kl. 19. Ráðgjafarþjónustan er ætluð þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra. Boðið er upp á faglega ráðgjöf, hagnýtar upplýsingar og fleira. Þá hafa Evrópusamtök um leg- hálskrabbamein (ECCA, European Cervical Cancer Association) hafið baráttu fyrir því að allar evr- ópskar konur njóti sama réttar til bestu fáanlegra forvarna gegn þessum sjúkdómi. Hvatt er til þess að Evrópuþingið, framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins og rík- isstjórnir allra landa í Evrópu veiti konum þennan rétt. Hægt er að skrifa undir áskorun á vefsíðu samtakanna. Slóðin er http:// www.cervicalcancerpetition.eu/ Nú eru undirskriftirnar orðnar yfir sjötíu þúsund, þar af meira en sex þúsund frá Íslandi. Aðeins tvö önnur lönd eru með meiri fjölda en að teknu tilliti til íbúafjölda eru Ís- lendingar langefstir. Leghálskrabbamein er næstal- gengasta krabbamein meðal kvenna ef litið er til heimsins alls. Á hverju ári greinast í Evrópu um 50.000 konur og um 25.000 deyja af völdum þessa sjúkdóms. Hér á landi er dánartíðnin hvað lægst á heimsvísu vegna skipulegrar leit- ar. Aðrar þjóðir, jafnvel innan Evrópu, geta ekki státað af slíkum árangri.“ Evrópskt átak gegn leghálskrabbameini Leitarstöðin í Skógarhlíð opin lengur 23. og 30. janúar JAPÖNSK stjórnvöld bjóða fram styrk til ungs fólks sem hyggur á há- skólanám í japanskri tungu eða jap- önskum fræðum við háskóla í Japan. Styrkurinn er til eins árs frá og með október 2008. Menntamálaráðuneyt- ið í Japan (MEXT) greiðir flugfar- gjöld fram og til baka, skólagjöld, sérstakan komustyrk og mánaðar- lega fær styrkþegi greidd 134.000 jen sem eru um 77.000 ísl. krónur. Styrkur þessi stendur til boða þeim sem fæddir eru eftir 2. apríl 1978 og fyrir 1. apríl 1990. Hann er ætlaður þeim sem eru þegar í há- skólanámi utan Japans og leggja stund á japönsk fræði eða japönsku og sem munu halda áfram slíku námi þegar þeir snúa heim á ný. Styrkina hljóta nemendur sem hafa góða þekkingu á japönsku og hefur gengið vel í námi. Umsóknum þarf að skila eigi síðar en 22. febrúar 2008 til sendiráðs Japans. Styrkur til náms í japönsk- um fræðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.