Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 69
Árvakur/Ómar
Stoltir verðlaunahafar Signý Æsa Káradóttir og Karítas Gunnarsdóttir við nokkrar af verðlaunamyndunum í samkeppninni. Á myndina vantar þau
Fjólu Oddgeirsdóttur og Nökkva Jarl Bragason sem ekki gátu verið viðstödd athöfnina.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
JAPANSKA orðið manga þýðir
teiknimyndasaga en flestir kannast
þó við manga sem sérstaka tegund
teiknimyndasagna sem upprunnar
eru í Japan og eru stór hluti jap-
anskrar menningar. Í Japan er
manga út um allt, svo að segja, fólk á
öllum aldri les sögurnar og útgáfan á
þeim er gríðarlega umfangsmikil,
allar sjoppur fullar af manga-sögum.
Manga hefur skotið rótum hér á
landi sem víðar á Vesturlöndum og
nýtur mikilla vinsælda, ef marka má
útlán á sögunum í Borgarbókasafni
Reykjavíkur. Þar var opnuð sýning á
manga-teikningum barna og ung-
linga sl. föstudag, sýning sem unnin
var í samstarfi við sendiráð Japans á
Íslandi. Á þess vegum var haldin
samkeppni um manga-teikningar á
síðasta ári í tilefni af komu Nobuyuki
Tsugata, sérfræðings í japönskum
teiknimyndum (anime) og má á sýn-
ingunni sjá afrakstur samkeppn-
innar, 40 myndir eftir 17 ungmenni,
11-20 ára. Sýningargestir geta rýnt í
fjölbreyttar manga-bækur safnsins,
m.a. manga-teiknikennslubækur þar
sem hægt er að læra að teikna
manga-líkama, manga-borgir,
manga-flugvélar o.s.frv.
Fjórir unnu til viðurkenninga í
keppninni, þau Fjóla Oddgeirsdóttir,
Karítas Gunnarsdóttir, Nökkvi Jarl
Bragason og Signý Æsa Káradóttir.
Úlfhildur Dagsdóttir bókmennta-
fræðingur og verkefnastýra á safn-
inu er vel að sér í manga og mikill
áhugamaður um þá list. Úlfhildur
var í óðaönn að hengja upp verk ung-
mennanna hæfileikaríku á föstudag-
inn var þegar blaðamaður náði tali af
henni.
Sum verkin á sýningunni virðast
teiknuð eftir fyrirmyndum en önnur
algjörlega hugverk höfundar í
manga-stíl, tölva notuð sem hjálp-
artæki í sumum tilfellum og öðrum
ekki. Úlfhildur segir manga m.a.
skiptast í stráka- og stelpu-manga,
strákasögurnar meira um hörkutól
með minni texta, stelpusögurnar
mýkri og sætari með meiri texta. Þó
sé stór hluti sagnanna lesinn af báð-
um kynjum.
Stór Disney-augu
Manga-stíllinn sækir eitt af höf-
uðeinkennum sínum, stóru augun, til
Disney-teiknimynda. Hið broslega
er að nú er Disney farið að stæla
manga, það má m.a. sjá í myndasög-
unni Galdrastelpurnar. En manga er
ekki bara fyrir börn, eins og fyrr
segir. Í bókasafninu má m.a. sjá sög-
una Oldboy, sem samnefnd kvik-
mynd var gerð eftir að sögn Úlfhild-
ar, en sú mynd er stranglega bönnuð
börnum. „Það er mjög þétt samband
milli sjónvarps, kvikmynda og
myndasagna í Japan,“ segir Úlfhild-
ur. Manga-teiknimyndasögurnar
séu miklu stærri hluti japanskrar
menningar en vestrænar teikni-
myndasögur í hluta vestrænnar
menningar. „Þetta er orðinn mik-
ilvægur partur af starfi sendiráð-
anna eins og þessi sýning er dæmi
um,“ segir Úlfhildur. Japönsk sendi-
ráð og utanríkisþjónusta Japans séu
farin að taka manga sífellt meira upp
á arma sína til að auglýsa og kynna
landið. Fólk sé farið að fara í píla-
grímsferðir til Tókýó út af manga og
krakkar fái mikinn áhuga á landinu
með manga-lestri.
Alltaf eitthvað japanskt
– Segir manga manni mikið um
japanskt samfélag?
„Allt manga segir manni eitthvað
um Japan. Þó sumar sögurnar gerist
ekkert í Japan og segi ekki af jap-
önskum persónum, haga þær sér á
japanskan máta, ákveðnar kurteisis-
og samskiptavenjur sem eru jap-
anskar,“ segir Úlfhildur. Meðal ann-
ars megi finna manga-víkingasögur í
Borgarbókasafninu.
„Það er engin tilviljun að manga
er svona sterkt í landi eins og Japan
sem er með þessa ofboðslega auðugu
myndhefð,“ segir Úlfhildur. Það sem
hrífi hana við manga sé að þegar það
gerist best nái Japanar ákveðinni
hæfni í myndrænni frásagnartækni
sem sé sérstaklega heillandi, ein-
hverri færni í því að segja sögu í
myndum sem á Vesturlöndum sé allt
öðruvísi. „Þeir hafa einhver tök sem
eru ofboðslega sjarmerandi.“
Sýningin í Borgarbókasafninu
stendur til 6. febrúar.
Heillandi heimur manga
Raunsæi? Manga hefur farið í gegnum miklar breytingar í gegnum tíðina
og þrátt fyrir auðsæ einkenni hefur stíllinn orðið raunsærri í seinni tíð.
Í HNOTSKURN
» Japanir eiga sér langa söguþegar kemur að mynd-
lýstum handritum og mynd-
verkum sem segja sögur, m.a.
Ukyo-e tréristurnar (17.- 20.
öld).
» Teiknarinn Osamu Tezukamótaði manga-stílinn sem
við þekkjum í dag á eftirstríðs-
árunum, hinn japanski Walt
Disney, svo að segja.
» Manga-sögurnar eru oftastsvart-hvítar, oftar en ekki
lesnar afturábak og þá er við-
vörun á öftustu blaðsíðu ætli
menn að byrja á öfugum enda.
»Hægt er að finna allar gerð-ir manga-sagna, m.a. eró-
tískar, hasar- og ævintýrasög-
ur, rómantískar, íþróttasögur,
sagnfræðilegar, vísindaskáld-
skap og hryllingssögur.
Ofurstrákur Osamu Tezuka er af mörgum talinn upphafsmaður Manga.
Sýning á verðlaunamyndum eftir 17 íslensk ungmenni opnuð í Borgarbókasafni Reykjavíkur
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 69
■ Fim. 24. janúar kl. 20.00
Tónleikar á Ísafirði í tilefni af 60 ára afmæli tónlistar-
skólans. Verk eftir Shostakovitsj, Poulenc, Chopin og Jónas
Tómasson. Listamenn á Ísafirði eru áberandi á tónleikunum.
Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Einleikari á píanó: Anna Áslaug
Ragnarsdóttir. Einsöngur: Ingunn Ósk Sturludóttir. Kór: Hátíðarkór
Tónlistarskólans á Ísafirði. Kórstjóri: Beáta Joó
■ Fim. 31. janúar kl. 19.30
Ættgeng snilligáfa
Natasha Korsakova, ungur rússneskur fiðlusnillingur, flytur hinn
rómaða fiðlukonsert Brahms.
■ Fim. 7. febrúar kl. 19.30
Myrkir músíkdagar
Einstakur viðburður, frumflutningur tveggja íslenskra sinfónía, eftir
Atla Heimi Sveinsson og John Speight.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
MÁNUDAGUR 21. JAN KL. 20
LJÓÐSTAFUR JÓNS ÚR VÖR
UPPLESTUR, TÓNLIST, VEITINGAR
OG VERÐLAUNAAFHENDING.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.
SUNNUDAGUR 27. JAN KL. 20
TÍBRÁ: MUSIC FOR A WHILE
JÓHANNA HALLDÓRSDÓTTIR
og barokksveit. Söngvar, svítur og
dansar frá 16. & 17. öld
Miðaverð 2.000 kr.
MYRKIR MÚSÍKDAGAR
VIKUNA 3.–10. FEB ’08
Nánar auglýst síðar.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111