Morgunblaðið - 20.01.2008, Qupperneq 72
72 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Meðal þess skemmtilegasem kom út á síðastaári voru fjölmargarskífur þar sem menn
sóttu sér innblástur til fyrri tíma
hvort sem það var varðandi hljóm
eða hljóma. Ekki var það alltaf til
að gera eins heldur nýttu ýmsir
sér tækni og hugmyndir og settu í
nýtt samhengi, eða notuðu gamalt
verklag til að skapa eitthvað nýtt.
Nefni sem dæmi frábæra plötu
Black Moth Super Rainbow, sem
nýtti gervilega hljómborðshljóma
og bjagaðar raddir á óvenjulegan
hátt og eins Smoke, afbragðsskífu
Joe Williams sem kallar sig reynd-
ar White Williams.
Leiðin sem Joe Williams / White
Williams fór er dæmigerð að
mörgu leyti; ungur tónlistarmaður
tekur þátt í því sem hæst ber og
finnur síðan fjölina sína, mjakast
úr tón- og tilraunaflækjum í popp
– því í raun er ekkert flóknara en
popp og ekkert eins erfitt.
Williams lærði á píanó sem
krakki og hefur lýst því svo að
hann hafi verið í sífelldu stríði við
píanókennara sinn, enda vildi hann
frekar framleiða hávaða með pí-
anóinu en spila endalausar skala-
æfingar. Þegar hann komst á ung-
lingsár var hann líka fljótur að
leggja píanóinu og taka upp kjuð-
ana og fljótlega var hann orðinn
trommuleikari í óhljóðasveit,
Oblongata, sem varð meðal annars
svo fræg að hita upp fyrir Rapture
og Black Dice.
Ekki bara óhljóð
Óhljóðin voru framkölluð með
slagverki, gíturum og miklu af raf-
eindatólum sem kveikti hjá pilti
áhuga á tölvu sem hljóðfæri. Hann
hætti í óhljóðunum og fór að setja
saman tónlist einn síns lið í tölv-
unni, kenndi sjálfum sér að nota
trommuheilahugbúnað og hljóð-
smala.
Rafeindahljóðsmiðja Williams,
sem hann kallaði So Red, vakti at-
hygli meðal listamanna sem voru á
svipuðum tónlistarslóðum og hann
fór í tónleikaferðir og spilaði á
klúbbum með ýmsum listamönn-
um, þar á meðal Gregg Gillis, sem
áður hefur verið getið á þessum
stað (Girl Talk). Tónleikahaldið
varð til þess að Williams sá á
verkum sínum ýmsa hnökra og þá
ekki síst að tónsmíðarnar voru of
flóknar og svo saknaði hann þess
að engin var röddin.
Hann dró sig í hlé um tíma og
fann upp nýtt aukasjálf, White
Williams, sem byggðist á sunginni
poppmúsík með lifandi hljóðfæra-
leik í bland við tölvuhljóð, en
smám saman lét tölvan líka undan
síga því að Williams fékk gríð-
arlegan áhuga á því hvernig menn
höfðu sett saman þær skífur sem
hann hélt mest upp á frá áttunda
og níunda áratugnum og vildi síð-
an gera eins.
Að gera eins hefur þó aðeins
aðra merkinu hjá Williams en
gengur og gerist því þó hann
byggi á hljómi fyrri tíma, þá fer
hann sínar eigin leiðir, klippir
hlutina nokkuð til og skælir eftir
því sem andinn blæs honum í
brjóst. Það má því segja að skífan
sé hálfgerð þversögn; há-
tæknivædd og gamaldags í senn.
Plötuna hljóðritaði Williams á
flandri, tók hana upp í svefn-
herbergi sínu í Cleveland, Cinc-
innati, New York og San Franc-
isco, á tveggja ára tímabili, en eins
og hann hefur lýst vinnunni þá var
málum iðulega svo háttað að hann
þurfti að deila húsnæði með hinum
og þessum og því varð hann að
grípa í verkið þá sjaldan hann var
einn heima, aukinheldur sem hann
var sífellt að týna upptökum vegna
sífelldra flutninga, en alls tók
hann upp ríflega þrjátíu lög.
Þrátt fyrir vinnulagið segir hann
að stærstur hluti plötunnar hafi
verið unninn frekar hratt, hann
vissi nákvæmlega hvað hann vildi
gera, en frágangurinn tók svo
lengri tíma.
Menn sækja iðulega innblástur aftur í tímann og
ekki nema gott eitt um það að segja; sérstaklega
þegar það er notað til að skapa eitthvað nýtt eins
og White Williams gerir á skífunni Smoke.
Gamalt
og nýtt
Iðinn Joe Williams sem tók sér nafnið White Williams.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
ENCHANTED m/ensku tali kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 1 - 2 - 4 LEYFÐ
AMERICAN GANGSTER kl. 10:20 Síðustu sýningar B.i.16.ára
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA
Í DESEMBER Í USA.
eeee
„...FYRIR ALLA ÞÁ SEM
ÁNÆGJU HAFA AF GÓÐRI
SPENNU“
„...EIN BESTA AFÞREYING
ÁRSINS.“
-S.V. MBLSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
TILNEFND TIL TVEGGJA
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUNA M.A
FYRIR BESTA LEIK,
AMY ADAMS.
eee
- S.V.
FRÉTTABLAÐIÐ
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
THE GAMEPLAN kl. 1 - 3:20 - 5:40 -8 - 10:20 LEYFÐ
NATIONAL TREASURE 2 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
NATIONAL TREASURE 2 kl. 3- 5:30 - 8 -10:30 LÚXUS VIP
DEATH AT A FUNERAL kl. 2 - 4 - 6 - 8 -10:10 B.i. 7 ára
I AM LEGEND kl. 6 - 8 -10:10 B.i.14 ára
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl. tali kl. 1- 3:20 LEYFÐ
THE GAME PLAN kl. 1:20 - 3:40 - 6 - 8 - 10:20 LEYFÐ
DEATH AT A FUNERAL kl.6 - 8:20 - 10:20 B.i. 7 ára
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 -10:30 B.i.12 ára
I AM LEGEND kl. 6 B.i.14 ára
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl. tali kl. 1:20 - 3:40 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN kl. 2D - 4D LEYFÐ DIGITAL
SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB
DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON
2 VIKUR Á TOPPNUM
Í BANDARÍKJUNUM
ÞRÆLFYNDIN GAMANMYND
FRÁ WALT DISNEY
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU
ÚR BÝFLUGNABÚINU Í BULLANDI VANDRÆÐI
MYND SEM ENGIN ÆTTI AÐ MISSA AF!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI