Morgunblaðið - 21.02.2008, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
AÐALVON okkar á slaghörpu af
yngstu kynslóð, Víkingur Heiðar
Ólafsson (24), á sér trauðla fylgjend-
ur fáa, eins og berlega kom fram á
uppseldum tónleikum í Salnum á
þriðjudag. En þó að æskudýrkun nú-
tímans hjálpi sjálfsagt eitthvað til, er
það að öðru leyti ofur skiljanlegt –
miðað við óvenju glæsilegan feril á
aðeins átta árum, að nýloknu sex ára
framhaldsnámi við Juilliard. Og þó að
samspilari hans Denis Bouriakov (28)
hafi ekki verið hlustendum jafn-
kunnur, virtist ferill flautuleikarans
frá Krímskaga engu ómerkari ef
marka mátti kynningarorð SÍ-flautu-
leiðarans Hallfríðar Ólafsdóttur í
Mbl. Þurfti því varla að undrast
flenniaðsóknina.
En jafnvel þótt innsti kjarni fagur-
tónkera væri hér kannski minna
áberandi en oftast gerist, þá má
óhætt segja það strax að útkoman
hafi réttlætt húsfyllinn. Samspil
þeirra félaga hefði nefnilega að fullu
átt skilda álíka hástigs umfjöllun og
forðum féll í skaut fremstu „ofur-
tríóum“ rokkgeirans kringum 1970,
enda var á köflum engu líkara en að
piltarnir hefðu starfað saman í ára-
raðir.
Fyrir hlé beindist brennidepillinn
hins vegar að einleik hvors um sig.
Bouriakov tjaldaði umritun sinni á
frægum Chaconne-þætti Bachs úr II.
Fiðlupartítu í d-moll, og kom hún fjöl-
rödduninni furðuvel til skila með eld-
liprum herplum. Þó að flautan réði
vitanlega lítt við tvíröddunargetu fiðl-
unnar, náðist samt merkilega mikil
dýpt og stígandi. M.a. þökk sé óvenju
styrkvíðum blæstri, er fyrst heyrðist
hér um slóðir úr flautu Manuelu heit-
innar Wiesler. Nutu og seinni flautu-
atriði kvöldsins góðs þar af.
Að því loknu flutti Víkingur 28.
píanósónötu Beethovens Op. 101 í
A-dúr frá 1816 (þá fyrstu frá svoköll-
uðu þriðja sköpunarskeiði) og var
hún líflega túlkuð í vakurri meðferð
Víkings á hröðu þáttunum en af
syngjandi íhugun í þeim hægari.
Marsinn (II) var kannski í hrað-
skreiðara lagi og sumir stakkatóstað-
ir nær staccatissimo, en þróttmikil
innlifunin hélt samt hlustendum bí-
sperrtum á stólbarmi allt til enda.
Fyrir mér varð nýklassískur gim-
steinn Prokofjevs frá 1943, Flautu-
sónatan í D-dúr Op. 94, hápunktur
kvöldsins. Hann ku að vísu jafntíður í
seinni útgáfu tónskáldsins fyrir fiðlu
og píanó, en í sprækri útleggingu
dúósins staðfestist grunur manns um
að frumgerðin þjóni tjábrigðum
verksins bezt. Hér vottaði hvergi fyr-
ir snöggum blettum (allavega voru
þeir vel faldir að góðra virtúósa
hætti), og húmor, kraftur, hressileiki
og ljóðrænt legató fóru á sannköll-
uðum kostum í hnífsamstilltri með-
ferð tvímenninganna.
Þótt grynnra væri á skemmtiverki
Benjamins Godards (Suite de Trois
Morceaux Op. 116) og hinu alkunna
Introduction et Rondo Capriccioso
Op. 28 eftir Saint-Saëns í flautum-
ritun Bouriakovs, þá hélzt leikgleðin
þar engu ósviknari. Funheitar undir-
tektir áheyrenda voru eftir því, enda
af nægu tilefni.
Ungt
ofurdúó
TÓNLIST
Salurinn
Verk eftir Bach, Beethoven, Prokofjev,
Godard og Saint–Saëns. Denis Bouriakov
flauta, Víkingur Heiðar Ólafsson píanó.
Þriðjudaginn 19. febrúar kl. 20.
Kammertónleikarbbbbm
Ríkarður Ö. Pálsson
Árvakur/Frikki
Stórgóðir Víkingur og Bouriakov á
tónleikunum í Salnum í fyrrakvöld.
VIKULEGT, opið og stefnu-
laust spjall og flæði verður í
boði í hádeginu á föstudögum
á kaffihúsinu Babalú, Skóla-
vörðustíg 22, frá og með
morgundeginum.
Þar verður m.a. hægt að
hitta myndlistarmenn, fræði-
menn og rithöfunda, boðið
upp á fastan stað og stund en
breytilegt flæði fólks og um-
ræðuefna. Fjórir komu í spjall 8. febrúar sl. og
var umræðuefnið þá m.a. svokölluð við-
burðavæðing safna og alþjóðleg þróun og breyt-
ingar í starfsemi sýningarsala. Ekki er alltaf
sérstakt umræðuefni enda er spjallinu ætlað að
vera stefnulaust.
Umræðufundur
Stefnulaust spjall
og flæði í Babalú
Babalú
JAZZKLÚBBURINN Múlinn
er í fullu fjöri og býður upp á
nýja 15 tónleika dagskrá.
Fyrstu tónleikarnir verða
haldnir í kvöld á DOMO Bar,
Þingholtsstræti 5, til heiðurs
gítarsnillingnum Jóni Páli
Bjarnasyni sem er nýorðinn
sjötugur.
Á tónleikunum munu margir
af helstu djassleikurum þjóð-
arinnar leika með Jóni í ýms-
um samsetningum, m.a. Ásgeir Ásgeirsson og Eð-
varð Lárusson, Óskar Guðjónsson, Ólafur
Jónsson, Ómar Guðjónsson, Jóhann Ásmundsson
og Pétur Grétarsson. Tónleikar Múlans hefjast kl.
21 og er aðgangseyrir 1.000 kr.
Tónleikar
Múlinn heiðrar
Jón Pál Bjarnason
Jón Páll
Bjarnason
SÖGUBÍLL Borgarbókasafns-
ins, Æringi, leggur af stað í
sína fyrstu ferð á morgun kl.
11, en þá verður hann afhjúp-
aður við leikskólann Tjarnar-
borg í Reykjavík með aðstoð
barnanna þar.
Æringi er litli bróðir bóka-
bílsins Höfðingja og mun í
framtíðinni heimsækja alla
leikskóla Reykjavíkur og bjóða
börnum í sögustund. Brian
Pilkington myndskreytti bílinn. Í bílnum verður
lesið fyrir börn, þeim sagðar sögur en einnig
stendur til að fá eldri borgara til að koma í bílinn
og segja börnunum frá atburðum eða aðstæðum
úr eigin bernsku.
Bækur
Sögubíllinn Æringi
rúllar af stað
Brian
Pilkington
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
DANS-ANDI nefnist febrúarsýning
íslenska dansflokksins, sem verður
frumsýnd á föstudagskvöldið. Þá
svífur norrænn andi yfir sviði Borg-
arleikhússins, í verkum Norð-
mannsins Jo Strömgren og Svíans
Alexanders Ekman.
Verk Ekmans, Station Gray -
Last Stop, hefur hann frumsamið
fyrir dansflokkinn. Ekman hefur
verið lýst sem rísandi stjörnu í evr-
ópskum dansheimi.
„Í verkinu mínu er hópur af full-
orðnu fólki og við fylgjumst með
því í ólíkum aðstæðum á einum
degi. Þau finna æskuna að nýju og
við spinnum út frá því,“ segir Ek-
man þegar hann lýkur æfingu einn
morguninn fyrr í vikunni.
„Þetta er verk með mörgum kar-
akterum og býsna hrynkennt,“
heldur hann áfram. „Ég nota allan
hópinn og það er leikrænt, með
ýmsum uppákomum.“
Brosandi segir Ekman að þetta
sé heimsfrumsýning á föstudags-
kvöldið. „Tónlistin er talsvert
blönduð og sjálfur samdi ég það
sem heyrist í einni senunni. Annars
er þetta blanda af gamalli tónlist og
hún er býsna notaleg.“
Fæ að vera hreinni dansmaður
Jo Ströngren kemur til okkar og
þegar hann er spurður um verk
sitt, Kvart, kemur skelmislegt bros
fram á varirnar og hann segir það
„norrænt meistaraverk.“ Að
minnsta kosti sé verkið mjög nor-
rænt, en aðrir verði síðan að dæma
um hitt.
Íslenski dansflokkurinn er að
sýna verk eftir Strömgren í annað
sinn en hann samdi Kraak fyrir
flokkinn árið 2001. Þá hefur hann
komið með leikverk hingað til lands
og tók í vor þátt í uppsetningu
Ræðismannsskrifstofunnar hjá
Leikfélagi Reykjavíkur.
Sagt er um Kvart, sem dansað er
á hvítu teppi, að höfundurinn sé að
rannsaka dans sem sést ekki oft á
sviði, þar sem dansarar dansa hver
fyrir annan.
„Við Ekman höfum deilt pró-
grammi áður,“ segir Strömgren en
það fer greinilega vel á með dans-
höfundunum. „Venjulega er það ég
sem þarf að vera með leikræna
þáttinn og gefa öðrum höfundum
„leikræna fjarvistarsönnun“ en þeg-
ar ég er með Ekman í prógrammi,
þá fæ ég tækifæri til að vera
hreinni dansmaður. Ekman fær að
sjá um hið listræna.“ Og aftur læð-
ist bros fram á varirnar.
„Ég hef komið að leikhúsverk-
efnum hér á landi – þannig að nú er
gaman að vera bara með abstrakt
dans.“
Kvart hefur ekki verið sýnt á Ís-
landi áður og Strömgren segir
verkið fært í nýjan búning hér, með
nýrri lýsingu og búningum Stein-
unnar Sigurðardóttur fatahönn-
uðar. Tónlistin er harmónikkumús-
ikk eftir Finnann Kimmo Pohjonen.
„Þetta er afskaplega norræn dag-
skrá,“ segir hann. „Meira að segja
tónlistin er hánorræn.“
Snjórinn var upphafspunktur
Fatalína Steinunnar Sigurðar-
dóttur er iðulega út í svart svo að
það kemur á óvart þegar hún segir
búningana við verkið vera hvíta.
„Það er búið að snjóa svo mikið,“
segir hún. „Allur snjórinn hér í vet-
ur var eiginlega upphafspunkt-
urinn. Glit og frost. Og hrímuð and-
lit.“ Steinunn segir að sér finnist
erfiðara að gera búninga en hanna
fatnað. „Hér er verið að spila svo
mikið upp á hreyfinguna – hreyf-
ingarnar stjórna eiginlega búning-
unum. Á æfingu voru dansararnir
með þessar áhugaverðu axlahreyf-
ingar; útfrá þeim spunnust hug-
myndirnar.“
Afskaplega norræn dagskrá
Árvakur/Einar Falur
Á sviðinu „Þegar ég er með Ekman í prógrammi, þá fæ ég tækifæri til að
vera hreinni dansmaður.“ Danshöfundarnir Ekman og Strömgren.
Dansverk Jo Strömgren og Alexander Ekman á febrúarsýningu Íd
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
EIN skærasta stjarna sellóheims-
ins, Þjóðverjinn Daniel Müller-
Schott, leikur einleik í sellókonsert
eftir Joseph Haydn á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Há-
skólabíói í kvöld.
Müller-Schott fór með sigur af
hólmi 15 ára gamall í Tsjækovskíj-
keppninni fyrir unga tónlistarmenn í
Moskvu og í kjölfarið tók fiðlusnill-
ingurinn Anne-Sophie Mutter hann
upp á sína arma. Árni Heimir
Ingólfsson, tónlistarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, segir Mutter
hafa greitt götu sellóleikarans unga,
séð til þess að hann kæmist í selló-
tíma hjá Rostropovitsj og dýrt og
fínt selló og tekið hann með sér í tón-
leikaferðir. Út á það hafi Müller-
Schott fengið mikla og góða kynn-
ingu. Eftir sigurinn í keppninni
komst ferill hans á flug, að sögn
Atla. „Hann fer bara frá einni stór-
hljómsveitinni til þeirrar næstu, er
að fara beint héðan að spila sama
konsertinn í tónleikaferð um Hol-
land. Hann sagði mér það í morgun
að hann stoppaði varla nokkurn tíma
heima hjá sér í München,“ segir Atli.
Lúmskt erfiður
Atli segir sellókonsertinn sem
Müller-Schott kemur til með að leika
vera lúmskt erfiðan, líkt og mörg
verk Haydns. Haydn samdi aðeins
tvo sellókonserta um ævina. Müller-
Schott leiki konsertinn afskaplega
vel. „Það sem hann gerir líka er að
hann spilar sína eigin kadensu, það
er staður í konsertinum þar sem
sólóistinn fær að gera það sem hon-
um sýnist, og hann semur sinn eigin
bút, sína eigin fantasíu, um stef
Haydns,“ segir Atli. Müller-Schott
sé án efa einn allra besti sellóleikari
heimsins í dag.
Fyrir tónleikana verður haldinn
s.k. súpufundur á Hótel Sögu kl. 18.
Þar mun Ingibjörg Eyþórsdóttir
tónlistarfræðingur fjalla um tón-
skáldin og verkin sem leikin verða á
tónleikunum á meðan gestir gæða
sér á veitingum. Auk sellókonserts-
ins eru það forleikurinn að Töfra-
flautunni eftir Mozart og Sveita-
sinfónía Beethovens. Hljómsveitar-
stjóri er Eyvind Aadland.
Sellóstjarna og súpukvöld
Ljósmynd/Sonja Werner
Einbeittur Daniel Müller-Schott,
einn fremsti sellóleikari heims.
Daniel Müller-Schott leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands