Morgunblaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Rebekka Ingv-arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 24.
mars 1951. Hún
andaðist á Landspít-
alanum við Hring-
braut 12. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
hjónin Ingvar Þor-
steinsson, hús-
gagnasmíðameist-
ari í Reykjavík, f.
28. maí 1929, og
Steinunn Guðrún
Geirsdóttir hús-
freyja, f. 31. jan. 1930. Rebekka
var elst fimm systkina. Hin eru
Bergljót, f. 8. feb. 1954, Ásta, f. 4.
nóv. 1955, Þorsteinn, f. 19. mars
lauk þaðan stúdentsprófi árið
1971. Hún stundaði íslensku- og
enskunám við Háskóla Íslands og
síðar viðskipta- og rekstrarnám
við Endurmenntun HÍ. Hún stund-
aði einnig MBA-nám við Háskól-
ann í Reykjavík um tíma en þurfti
frá því að hverfa vegna veikinda
sinna. Rebekka hóf störf árið 1972
sem deildarstjóri starfsmanna-
halds hjá Varnarliðinu. Árið 1987
réði Rebekka sig til Skeljungs sem
starfsmannastjóri og starfaði þar
til æviloka. Hún sat lengi í samn-
inganefnd fyrir Vinnuveitenda-
samband Íslands og Samtök at-
vinnulífsins og átti sæti í
svæðisráði Vinnumálastofnunar á
höfuðborgarsvæðinu. Einnig var
hún félagi í Auði í krafti kvenna.
Útför Rebekku verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
1960 og Geir Örn, f.
9. apríl 1967.
Rebekka giftist ár-
ið 1972 Einari Ágústi
Kristinssyni, f. í
Reykjavík 15. febr.
1945. Foreldrar hans
voru Kristinn Ólason
brunavörður, f. 28.
jan. 1910, d. 14. maí
1992 og Anna Ein-
arsdóttir húsfreyja,
f. 4. júní 1921, d. 11.
apríl 1983. Börn
þeirra Rebekku og
Einars eru Ingvar
Örn, f. 28. júní 1981 og Anna
Kristrún, f. 1. mars 1991.
Rebekka stundaði nám við
Menntaskólann við Hamrahlíð og
Látin er langt um aldur fram Re-
bekka Ingvarsdóttir, systir og mág-
kona. Kletturinn í fjölskyldunni er
horfinn og eftir stendur tómarúm og
syrgjandi ættingjar. Rebekka var búin
að berjast við illvígan sjúkdóm und-
anfarin rúm þrjú ár, en baráttuna háði
hún skipulega og af festu. Það voru
einmitt einkenni Rebekku. Hún var
mjög skipulögð kona, hvort sem um
var að ræða vinnuna, sem fylgdi henni
hvert sem hún fór, málefni fjölskyld-
unnar eða tómstundir. Aðrir geta vott-
að um starfshæfni Rebekku, en við
getum staðfest að þeir sem leituðu til
hennar varðandi ráð eða hjálp fengu
alltaf góðar móttökur og úrlausn sinna
mála. Ef einhver átti í vandræðum í
námi eða þurfti gagnrýni eða yfirlestur
á skólaritgerð var leitað til Rebekku. Í
augum hennar skipti menntun miklu
máli og var hún óbilandi í því að hvetja
aðra áfram á því sviði.
Helzta tómstundagaman Rebekku
hin síðari ár var stangaveiði. Stundaði
hún þá iðju bæði með hópi vinkvenna
sinna og veiðifélaga og svo með fjöl-
skyldu sinni. Á því sviði var hún einn-
ig skipulögð og föst fyrir. Þegar Re-
bekka kom að veiðistað gaf hún sér
góðan tíma til að huga að veiðigræj-
unum, aðstæðum á veiðistað og
hverju átti að beita. Ef maðkur varð
fyrir valinu voru settir upp gúmmí-
hanzkar, því ekki gat hún tekið á orm-
inum. Eftir að kastað var út í gat tekið
við margra tíma yfirlega. Ef vitað var
um fisk, gaf hún sig ekki og oftar en
ekki varð þrjózka Rebekku ofan á í
baráttunni við fiskinn.
Þær minningar helztar, sem við
munum geyma um Rebekku, eru hve
yndisleg systir og vinur hún reyndist
okkur í blíðu og stríðu. Alltaf til staðar
og tilbúin að veita ráð og rétta hjálp-
arhönd. Klettur fjölskyldunnar.
Elsku Einar, Ingvar, Anna Krist-
rún, mamma og pabbi. Við vottum
ykkur samúð og megi góður Guð
varðveita Rebekku.
Blessuð sé minning Rebekku Ingv-
arsdóttur.
Ásta og Brynjólfur.
Elsku Rebekka
Nú er komið að kveðjustund og það
er sárt að kveðja eins góða konu og þig.
Við munum ávallt geyma þær minn-
ingar sem við eigum um þig í hjarta
okkar og bera til þín mikið þakklæti
fyrir þá hlýju sem þú sýndir okkur.
Við vottum Einari, Ingvari og
Önnu Kristrúnu okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur og megi Guð blessa þau á
þessum erfiðu tímum.
Við sendum þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
við biðjum að þú sofir rótt.
Þótt svíði sorg okkar hjörtu
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Við þökkum þau ár sem við áttum
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hugann fer.
Þó þú sért horfinn í heimi
við hittum þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Minning þín ávallt lifi.
Þín frændsystkini
Berglind og Bergsveinn.
Elsku Rebekka frænka, ég bara
trúi því ekki ennþá að þú sért farin og
þetta gerðist alltof hratt. Síðan ég
fékk símhringingu frá pabba sem
færði fréttirnar, hefur sú setning end-
urtekið sig aftur og aftur í huganum:
„Rebekka er dáin“. Nú er komið stórt
skarð í fjölskylduna og ólýsanleg sorg
sem vekur samt allar góðu minning-
arnar sem ég átti með þér og öðrum í
okkar samheldnu fjölskyldu.
Þið mamma mín hafið gengið sam-
an í gegnum sjúkdómsferli í þrjú og
hálft ár, þar sem þið hafið deilt
reynslu og tilfinningum sem enginn
annar getur fullkomlega skilið. Þó
mamma mín sé ein eftir með sjúk-
dóminn, þá er hún ekki ein, hún hefur
okkur og við pössum hana vel. Ég veit
að þú vakir yfir henni sem fallegur
engill.
Þú varst alltaf svo lífleg og
skemmtileg kona með smitandi hlátur
sem gleymist aldrei. Þú hvattir alla í
kringum þig til dáða og leituðu því all-
ir til þín þegar þurfti að taka skyn-
samlegar ákvarðanir og líka til að
njóta félagsskapar þíns.
Ég á skýrar og góðar minningar
frá því þegar þið Einar og Ingvar tók-
uð mig og Ingu Lillý systur með ykk-
ur til Englands og Ítalíu, en þá var ég
tíu ára. Það var alveg einstök ferð og
gerðum við margt saman eins og að
fara í tívolí, vatnsrennibrautagarð og í
dýragarðinn, en ekki má gleyma því
að við keyptum okkur fullt af leik-
föngum sem urðu eftir í ferðatöskun-
um í London. Hver dagur leið eins og
mánuður meðan við biðum eftir
dótinu til Íslands.
Þú hefur alltaf verið svo góð og
skemmtileg við okkur og ekki var
leiðinlegt að koma í barnaafmæli
þeirra Ingvars og Önnu, þegar þau
voru lítil og borða kremkökuna sem
þú dundaðir við. Það var oft Mikka
mús kaka, stundum bíll og stundum
dúkka. Þú gerðir líka þessar kökur
fyrir okkur hin og það vakti mikla
lukku.
Ósjaldan var leitað til þín til að fara
yfir ritgerðir og koma með ýmis góð
ráð varðandi framtíðina. Þú varst allt-
af svo dugleg og skipulögð. Ég kom til
þín þegar ég var að sækja um
Listaháskóla Íslands og síðan Mynd-
listaskólann á Akureyri.
Frændur þína og frænkur hefur þú
nánast gert að þínum eigin börnum
og hefurðu spurt okkur hvort þú meg-
ir eiga okkur.
Ég sá skilaboð frá þér í ársgamalli
bloggfærslu sem ég skrifaði meðan ég
bjó á Ítalíu. Þú notaðir titilinn: Uppá-
haldsfrænkan skrifaði … og þar hafð-
irðu rétt fyrir þér. Þú ert frænka sem
allir myndu vilja óska sér og mín ósk
rættist. Ég hef alltaf verið stolt af þér
sem frænku og er enn.
Mikill sársauki nístir hjartað þegar
ég átta mig á því að þú ert raunveru-
lega farin en aldrei muntu hverfa úr
huga mínum. Þú verður einnig alltaf í
hjarta mínu og ég sakna þín mjög
mikið. Elsku Einar, Ingvar og Anna,
við Halli vottum ykkur enn og aftur
okkar dýpstu samúð. Guð styrki ykk-
ur og veri alltaf með ykkur.
Auður og Haraldur.
Það var bjartur sumardagseftir-
miðdagur og það var eftirvænting í
loftinu á heimili ömmu minnar á Víði-
melnum. Einar frændi var nefnilega
að koma í fyrsta skipti í heimsókn
með kærustuna sína, konuna með sér-
saka nafnið (allavega fannst 10 ára
gutta það), hana Rebekku. Það er
mér einnig í fersku minni þegar við
sátum við kaffiborðið og ég gæddi
mér á safaríku epli, þá benti Einar
mér kurteisilega á það að beiðni Re-
bekku að ég smjattaði of mikið á epl-
inu. Ég svaraði þeim um hæl með
þeim orðum að það gæti ekki verið
rétt þar sem ég heyrði það ekki sjálf-
ur. Við þetta svar mitt hló Rebekka
mikið. Síðan þá hef ég ekki smjattað.
Snemma á unglingsárum mínum hög-
uðu heimilisaðstæður því þannig til
hjá mér að ég bjó á heimili Einars og
Rebekku í einn vetur. Samvera mín
með þeim þar og síðan er þau keyptu
fokhelt hús að Vesturbergi 91, þar
sem eyddi ég ánægjulegum stundum
við að hjálpa til eftir því sem ég gat,
eru með ánægjulegustu minningum
unglingsára minna. Voru þau óþreyt-
andi að hvetja mig til framhaldsnáms
og buðu mér alla þá aðstoð sem ég
kynni að þurfa, hvert svo sem hugur
minn stefndi. Þau sendu mig t.d. til
tungumálanáms í Bournemouth í
Englandi, en sú utanför var sú fyrsta
sem ég hafði farið á ævinni og því
mjög spennandi. Rebekka var hins
vegar ekki alveg nógu ánægð með
mig þar sem ég skrifaði þeim fyrsta
bréfið eftir ca. 6 vikur til þess að láta
vita að utanferðin hefði bara gengið
vel. En dvölin ytra var ánægjuleg og
námið gekk mjög vel. Ég ákvað hins
vega að geyma frekara nám þar sem
annað í lífinu virtist vera meira spenn-
andi en lestur bóka. Þessar minning-
ar eru þær fyrstu sem koma upp í
huga minn þegar ég hugsa til baka og
enn fleiri fara í gegnum huga minn
þegar ég rifja upp kynni mín af Re-
bekku. Í gegnum tíðina hefur það ver-
ið einkar ánægjulegt að heimsækja
Einar og Rebekku og eru þau eina
fólkið sem ég þekki sem hefur tekist
að halda afmælisveislur barna sinna
og aðrar veislur alltaf í glimrandi sól-
skini.
En um svipað leyti og Einar og Re-
bekka voru að flytja í nýja húsið sitt
að Smárarima dró ský fyrir sólu. Þær
fregnir bárust að Rebekka væri al-
varlega veik. Ég fylltist mikilli reiði
við þessar fréttir, fannst þetta ein-
faldlega ekki réttlátt. En nú er Re-
bekka horfin á braut langt um aldur
fram. Mér finnst sem almættinu hafi
orðið á þau mistök að stimpla rangt
brottfararspjald. Í huga mínum er
minningin um Rebekku einstaklega
björt, minning um einstaklega vel
gerða manneskju sem gerði alla þá
sem henni kynntust ríkari. Ég kveð
hana Rebekku með mikilli sorg í
hjarta en einnig miklu þakklæti
vegna þess láns sem ég varð aðnjót-
andi að hafa notið þeirra forréttinda í
lífinu að hafa kynnst Rebekku. Ég vil
votta fjölskyldu Rebekku, Einari,
Ingvari og Önnu mína dýpstu samúð
á þessum erfiðu tímum. Foreldrum,
systkinum og mökum votta ég einnig
mína dýpstu samúð.
Guð gefi mér æðruleysi til þess að
sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt.
Kjark til þess að breyta því sem ég
get breytt og vit til þess að greina þar
á milli.
Kristinn R. Kristinsson.
Elsku besta Rebekka. Mér finnst
það svo skrýtið að þú sért dáin og ég
fái ekki að sjá þig aftur, það er svo
Rebekka Ingvarsdóttir ✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, bróðir og afi,
GUÐNI ODDGEIRSSON,
Melási 3,
Raufarhöfn,
verður jarðsunginn frá Raufarhafnarkirkju
laugardaginn 23. febrúar kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lára Þorsteinsdóttir,
Þorbjörg Rut Guðnadóttir, Ársæll Geir Magnússon,
Oddgeir Guðnason, Elísabet Karlsdóttir,
Guðný Guðnadóttir,
Árni St. Björnsson
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
BIRNA HALLDÓRSDÓTTIR
Dalalandi 1,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
mánudaginn 25. febrúar kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Minningarsjóð Sóltúns hjúkrunarheimilis
sími 590 6000.
Laufey Vilhjálmsdóttir, Samir Bustany,
Halldór Vilhjálmsson, Bryndís Helgadóttir,
Sigríður Vilhjálmsdóttir, Þórarinn Þórarinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og
hlýhug við andlát og útför,
BENEDIKTS THORARENSEN
Þorlákshöfn.
Guðbjörg Magnúsdóttir Thorarensen.
✝
Við viljum færa innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og afa,
JÓHANNESAR GUNNARSSONAR,
Kristnibraut 53.
Sérstökum þökkum viljum við skila til Sr. Gunnars
Matthíassonar fyrir hlýlegt viðmót og til félaga í
Kiwanisklúbbnum Kötlu fyrir þeirra stuðning.
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir,
Kristján Jóhannesson, Þórey Gísladóttir,
Helgi Jóhannesson, Margrét Ingibergsdóttir
og barnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HÖRÐUR GUÐMUNDSSON
hárskerameistari,
Funalind 13,
Kópavogi,
áður til heimilis í Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
22. febrúar kl 15.00.
Rósa Helgadóttir,
Helga Harðardóttir,
Halla Harðardóttir,
Þóra Harðardóttir, Sigurgeir Þorleifsson,
Inga Sigríður Harðardóttir, Gunnar Guðjónsson,
og barnabörn.
✝
Elsku systir okkar,
ÓSK F. ÞÓRSDÓTTIR
frá Bakka í Svarfaðardal,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík sunnudaginn
17. febrúar.
Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn
23. febrúar kl 13.00.
Jarðsett verður í Tjarnarkirkjugarði.
Kristín, Eva, Helga og Vilhjálmur.