Morgunblaðið - 21.02.2008, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 37
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, jóga
kl. 9, boccia kl. 10, útskurður og myndlist kl. 13,
Grandabíó-Vídeóstund kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, jóga, al-
menn handavinna, fótaaðgerð, morgunkaffi/
dagblöð, myndlist, hádegisverður, bókband, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Postulínsnámskeið kl. 13-16,
leiðb. Hafdís Benediktsd. Rúta frá Laugarnes-
kirkju sækir íbúa kl. 13.30 og verður farið í kirkj-
una þar sem sr. Gísli Kolbeins segir frá ferðum
Skáld-Rósu.
Dalbraut 18-20 | Lýður og harmonikkan kl. 14,
guðsþjónusta annan hvern fimmtudag kl. 15.10.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Að-
alfundur FEB verður 23. febr. nk. kl. 13.30 á Hótel
Loftleiðum í sal 1-3. Leikhópurinn Snúður og
Snælda frumsýna 24. febr., kl. 14 í Iðnó, Flutn-
ingana eftir Bjarna Ingvarsson og inn í sýninguna
er fléttað atriðum úr Skugga-Sveini eftir Matt-
hías Johumsson. Næstu sýningar verða 27. febr.,
2., 6. og 9. mars. Sýningar hefjast kl. 14.
Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ-kórinn æfir
í KHÍ kl. 17. Nýjar raddir velkomnar.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður, al-
menn leikfimi og málm- og silfursmíði fyrir há-
degi, róleg leikfimi og bókband kl. 13, bingó kl.
13.45, myndlistarhópur kl. 16.30 og dönsku-
kennsla kl. 16 og kl. 17.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna og
ganga kl. 9, hádegisverður, kl. 13, handavinna,
brids og jóga.
Félagsheimili KR | Aðalfundur KR-kvenna verð-
ur 28. febrúar kl. 20. Venjuleg aðalfundastörf.
Gestir verða Sigrún Ægisdóttir og Dýrfinna
Torfadóttir. Léttar veitingar.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Bókband
kl. 10, gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 12.40,
karlaleikfimi kl. 13, boccía kl. 14, gler, leir, búta-
saumur og handavinnuhorn kl. 13. Skrifstofa
FEBG opin kl. 13–15, ferð á Garðaholt frá Jóns-
húsi kl. 19.15 og Garðabergi kl. 19.30, skráning í
bæjarferð 25. febrúar, 1.500 kr.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30,
umsj. sr. Svavar Stefánsson. Frá hádegi eru
vinnustofur opnar, m.a. myndlist og perlusaum-
ur. Á morgun kl. 10.30 er leikfimi (frítt) í ÍR-
heimilinu v/Skógarsel, á eftir er kaffi og spjall. S.
575 7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Smíðar og útskurður
kl. 9. Samverustund með handavinnuívafi kl.
13.15, kaffiveitingar. Bingó á morgun kl. 14.
Hraunbær 105 | Kaffi, spjall, blöðin kl. 9, handa-
vinna og postulínsmálun kl. 9-16.30, Líkamsrækt
í Árbæjarþreki kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11,
hádegismatur, félagsvist kl. 14, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.20,
tréskurður kl. 13, bingó kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Jóhönnu kl.
9–16, boccia kl. 10, félagsvist kl. 13.30, kaffiveit-
ingar í hléi. Böðun fyrir hádegi. Hádegisverður kl.
11.30. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Hátíð á morgun kl. 10; Hvað
dettur þér í hug þegar þú hugsar um Íslendinga-
sögurnar? Leiðb. Trausti Ólafsson. Kór Breiða-
gerðisskóla og Jörva kl. 14 og myndlistarsýning
Jörva og Hæðargarðs. Listasmiðjan afhendir
Jörva dúkkurnar sínar í nýjum fötum. S. 568-
3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, föstudag, er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og
Listasmiðjan opin kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og
spjall kl. 9.45, boccia karlaflokkur kl. 10.30,
handverks- og bókastofa kl. 13, postulínsmálun
kl. 13, boccia kvennaflokkur kl. 13.30, kaffiveit-
ingar.
Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur | Leikfimi
fyrir eldri borgara kl. 11.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan og handavinnustofa
opnar kl. 9-16, leirlist kl. 9-12, boccia kl. 10, hug-
mynda- og listastofa kl. 13-16. Hárgreiðsustofa,
s.588 1288, s. fótaaðgerðarstofa 568 3838.
Sjálfsbjörg | Skák kl. 19, í félagsheimili Sjálfs-
bjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaaðgerðir og að-
stoð v/böðun. Boccia, handavinna, spænska
framhald, hádegisverður, kóræfing, leikfimi og
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bók-
band, morgunstund, boccia upplestur kl. 12.30,
handavinnustofan opin, DVD-framhalds-
myndasýning kl. 15, hárgreiðslu- og fótaaðgerð-
arst. opnar alla daga, spilað kl. 13.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10,
leikfimi kl. 13, félagsvist kl. 14.30, kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Samsöngur með organista í neðri
safnaðarsal kl. 14, kaffi á eftir. Klúbbur 8 og 9
ára barna kl. 17 og TTT-starfið kl. 18. Efni beggja
fundanna er "spilafundur" og allir eiga að koma
með spil.
Breiðholtskirkja | Trú og stjórnmál. Biblíulestur
í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar kl. 20.
Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12, leik-
fimi ÍAK kl. 11, bænastund kl. 12. 6-9 ára starf kl.
16-17. Meme junior kl. 19.30-21.30. digra-
neskirkja.is
Dómkirkjan | Opið hús í safnaðarheimilinu Lækj-
argötu 14a kl. 14-16, kaffi og spjall. Kvöldkirkjan
er opin kl. 20-22, bænastundir kl. 20.30 og
21.30, prestur á staðnum.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12,
ýmsir fyrirlestrar, kaffi, djús og brauð fyrir börn-
in. TTT fyrir börn 10-12 ára í Víkurskóla kl. 15-16.
Guðni Ágústsson les 12. passíusálm kl. 18.
Grensáskirkja | Hversdagmessa með Þorvaldi
Halldórssyni kl. 18-19. Bænin, orð Guðs og alt-
arisganga eru uppistaða messunnar en lögð er
áhersla á að stilla töluðu máli í hóf. Hversdags-
messan einkennist af kyrrð og einfaldleika.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, org-
elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal
á eftir.
Háteigskirkja | Íhugað í söng, bæn og lestur
Guðs orðs kl. 20. Máltíð Drottins er höfð um
hönd, fyrirbæn og smurning, fyrir þá sem þess
óska.
Háteigskirkja - starf eldri borgara | Vinafundur
í Setrinu kl. 14-16. Rifjaðar upp gamlar minn-
ingar, viðhorf og skoðanir, rætt um hversdaginn
og trúna. Kristín sér um kaffið.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Samvera eldri
borgara í kaffisal kl. 15. Söngur, hlustað á Guðs
orð og kaffiveitingar. Bænastund í kaffisal kirkj-
unnar kl. 20. Kennsla um grundvöll kristinnar
trúar kl. 20.
Kristniboðsfélag kvenna | Aðalfundur félagsins
er kl. 17. Venjuleg aðalfundarstörf. Margrét Hró-
bjartsdóttir verður með hugleiðingu. Bæna-
stund á undan fundi kl. 16.30.
Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Léttur
málsverður á eftir. Samvera eldri borgara kl. 14.
Sr. Gísli Kolbeins fjallar um ferðir Skáld-Rósu.
Kaffiveitingar í umsjá kirkjuvarðar og þjón-
ustuhóps. Sóknarprestur leiðir stundina. Adr-
enalín gegn rasisma, 9. og 10. bekkur kl. 17.
Selfosskirkja | Fundur í Æskulýðsfélagi kirkj-
unnar kl. 20 í safnaðarheimili kirkjunnar.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrða- og fyr-
irbænastund kl. 22. Tekið er við bænarefnum af
prestum og djákna, kaffi í lok stundarinnar, bibl-
íulestur er einu sinni í mán.
50 ára afmæli. Fimmtugur er
í dag, 21. febrúar, Heimir
Freyr Hálfdanarson mennta-
skólakennari. Hann tekur á
móti gestum á hlaupársdag,
29. febrúar, í Þróttarasalnum í
Laugardal kl. 19.30.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 21. febrúar, 52. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.)
Félagsráðgjafafélag Íslands ogFélag stjúpfjölskyldna efnatil málþings 22. febrúarnæstkomandi undir yf-
irskriftinni Hvernig má efla velferð
stjúpfjölskyldna? Samstarfsaðilar eru
RBF, HÍ, HR, Heimili og skóli, Bisk-
upsstofa og Samtökin ’78.
Valgerður Halldórsdóttir er formað-
ur Félags stjúpfjölskyldna: „Stjúp-
fjölskyldan hefur verið nánast ósýnileg
í opinberri stefnumótun og umræðu til
þessa, þrátt fyrir að stjúpfjölskyldan sé
orðið hið hefðbundna fjölskylduform
fyrir stóran hluta barna. Með mál-
þinginu viljum við skapa vitundarvakn-
ingu jafnt í samfélaginu og meðal
þeirra fagaðila sem sinna málaflokkn-
um og stunda rannsóknir.“
Málþingið hefst með erindi Júlíu Sæ-
mundsdóttur, nema í félagsráðgjöf:
„Hún segir frá eigin reynslu af því að
eignast stjúpföður og fjallar um þau
áhrif sem fjarvera kynföður getur
haft,“ segir Valgerður sem sjálf flytur
erindi um óraunhæfar hugmyndir og
fyrirmyndir um tengsl innan stjúpfjöl-
skyldna og veltir fyrir sér hvort stjúp-
tengsl séu vannýtt auðlind.
„Ólöf Garðarsdóttir, deildarstjóri
mannfjöldadeildar Hagstofunnar,
fjallar um opinberar skráningar, en í
núverandi kerfi er lítið haldið utan um
tölulegar upplýsingar varðandi stjúp-
fjölskylduna,“ segir Valgerður. „Bætt
skráning í opinberum gögnum myndi
ekki aðeins auðvelda rannsóknir, held-
ur gefa stjúpfjölskyldum meiri við-
urkenningu og mikilvægan sýnileika.“
Páll Ólafsson, formaður Fé-
lagsráðgjafafélagsins, segir frá reynslu
sinni sem faðir með börn á tveimur
heimilum og dr. Sigrún Júlíusdóttir og
Björk Erlendsdóttir félagsráðgjafi
fjalla um rannsóknir í félagsráðgjöf.
„Í lokin munu Sigurður Árni Þórð-
arson, prestur í Neskirkju, Helga Mar-
grét Guðmundsdóttir hjá Heimili og
skóla og Guðbjörg Ottósdóttir frá Sam-
tökunum ’78 greina frá sínum hug-
myndum um hvernig megi efla velferð
stjúpfjölskyldunnar og haldnar verða
pallborðsumræður með þátttöku
Ágústs Ólafs Ágústssonar, alþing-
ismanns og formanns nefndar sem m.a.
fjallar um málefni stjúpfjölskyldna.“
Upplýsingar um dagskrá og skrán-
ingu eru á www.stjuptengsl.is
Samfélag | Málþing um velferð stjúpfjölskyldna kl. 14 á föstudag í Öskju
Stjúpfjölskyldan sýnileg
Valgerður Hall-
dórsdóttir fæddist í
Reykjavík 1961.
Hún lauk BA í
stjórnmálafræði og
mannfræði frá HÍ
1989, gráðu í
kennslu- og upp-
eldisfræði frá sama
skóla 1994, öðlaðist starfsréttindi í
félagsráðgjöf 1997 og meistaragráðu
í félagsráðgjöf 2006. Hún kenndi við
FB og síðar MS, var skólafélags-
ráðgjafi í Lækjarskóla og Setbergs-
skóla og sviðsstjóri við hug- og fé-
lagsgreinasvið MS. Hún starfrækir
einstaklings- og fjölskylduráðgjöfina
Stjúptengsl, er stundakennari við HÍ
og jafnframt framkvæmdastjóri FÍ.
Tónlist
DOMO Bar | Tónleikar til heiðurs
Jóni Páli Bjarnasyni gítarleikara
en hann varð nýlega sjötugur.
Fram koma margir af djassleikur-
um þjóðarinnar. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 21 og er aðgangseyrir
1.000 kr.
Gamla Bókasafnið í Hafnarfirði |
Rokktónleikar kl. 20, húsið opnar
kl. 19.30. Rokksveitirnar We
Made God, Diagon og Ten Steps
Away leika.
www.gamlabokasafnid.is.
Hlégarður | Tómas R. Einarsson
verður með sjö manna hljómsveit
22. febrúar kl. 21, þar sem spiluð
verða lög af latínplötum Tómasar,
Kúbanska, Havana og Romm
Tomm Tomm. Miðaverð er
2.000/1.500 kr. Forsala aðgöngu-
miða er í Bókasafni Mosfells-
bæjar, Kjarna, virka daga frá kl.
12-19.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Guðfinna
Eydal talar um ástina í sambönd-
um kl. 17.15. Hún ræðir um hvað
ástin felur í sér, hvort hún er til
staðar, hvað hún gerir fyrir mann,
hvað getur ógnað o.fl. Einnig eru
fyrirsp. og umræður. Ókeypis að-
gangur.
Fyrirlestrar og fundir
Byggðasafn Hafnarfjarðar | Arn-
dís Árnadóttur listsagnfræðingur
heldur fyrirlesturinn, Skatthol,
enskir stólar og marglit gólfteppi.
Um híbýlaprýði í Sívertsens-
húsinu á fyrri hluta 19. aldar. Fyr-
irlesturinn hefst kl. 20 í Pakkhús-
inu, Vesturgötu 8, aðgangur er
ókeypis.
Háskóli Íslands | Hádegisfyr-
irlestur Rannsóknastofu í vinnu-
vernd: Missum ekki erlent starfs-
fólk úr landi. Gefum þeim tæki-
færi til menntunar og starfsþró-
unar. Fyrirlesari er Hulda
Ólafsdóttir framkvæmdastjóri
Mímis–símenntunar. M.a. verður
fjallað um í hvaða störf erlendir
starfsmenn ráðast og tækifæri
sem erlendu starfsfólki bjóðast
til starfsþróunar o.fl. Fyrirlest-
urinn fer fram kl. 12.15 í Odda v/
Sturlugötu, stofu 101.
Landakot | Fræðslunefnd Rann-
sóknastofu í öldrunarfræðum
heldur fræðslufund kl. 12.15 í
kennslusalnum á 7. hæð á Landa-
koti. Guðrún Dóra Guðmanns-
dóttir hjúkrunarfræðingur fjallar
um kvarða og matslykla í rafrænu
öldrunarmati (RAI PAC) og
hvernig megi nýta þá í starfi.
Norræna húsið | Guðrún Bryn-
leifsdóttir heldur fyrirlestur og
gefur að smakka úr matarkistu
Skagafjarðar kl. 16.30.
Lena Abrahamsson og Björn
Ylipää frá Svíþjóð halda fyr-
irlestur kl. 15, um það hvort hægt
sé að nota mat og drykk sem list-
rænt tjáningarform. Þau eru
bæði kokkar.
Sögufélag, Fischersundi 3 |
Rannsóknarkvöld Félags ísl.
fræða kl. 20. Kristján Eiríksson
fjallar um nýja útgáfu ljóðmæla
Einars Sigurðssonar í Eydölum,
helstu einkenni á skáldskap Ein-
ars og þýðingu hans í íslenskri
bókmenntasögu. Einnig verða
rædd ýmis sjónarmið varðandi
útgáfur kveðskapar frá síðari öld-
um.
Þjóðarbókhlaðan | Júlíana Þ.
Magnúsdóttir þjóðfræðingur
heldur fyrirlesturinn 20. aldar
arfsagnageymd og sagnasam-
félag milli Sanda, kl. 17. Hún
fjallar um sagnasjóð sagnamanna
í Vestur-Skaftafellssýslu og sam-
band umhverfis og samfélags-
gerðar við mótun og myndun
sagna og sagnamenningar.
Þjóðminjasafnið | Stofnun Vig-
dísar Finnbogadóttur stendur
fyrir málþingi um móðurmáls-
kennslu tvítyngdra barna í tilefni
af alþjóðlega móðurmálsdeginum
sem haldinn er hátíðlegur víða
um heim. Málþingið hefst kl.
15.30 og fer fram í fyrirlestrasal.
Nánari uppl. á www.vigdis.hi.is.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast
með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og
mánudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Hægt er að senda
á netfangið dagbok-
@mbl.is.
FYRIRLESTUR á vegum Rann-
sóknastofu í vinnuvernd verður
haldinn föstudaginn 22. febrúar kl.
12.15–13.15 í Háskóla Íslands,
Odda, stofu 101.
Í fyrirlestri sínum spyr Hulda
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Mímis-símenntunar spurninganna
„Sitja erlendir starfsmenn á Íslandi
við sama borð og innfæddir í sam-
bærilegum stöðum? og Hvaða tæki-
færi hefur erlent starfsfólk til
starfsþróunar?“
Fyrirlesturinn nefnist: Missum
ekki erlent starfsfólk úr landi – gef-
um þeim tækifæri til menntunar og
starfsþróunar.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni www.riv.hi.is.
Fyrirlestur
um stöðu
erlends
starfsfólks
FRÉTTIR
FAAS eða Félag aðstandenda Alz-
heimerssjúkra gengst fyrir
fræðslufundi á Grand hóteli
Reykjavík fimmtudaginn 28. febr-
úar nk. kl. 20 til að kynna árangur
af nýrri íslenskri tækni og rann-
sóknum til að greina Alzheim-
erssjúkdóminn af öryggi og miklu
fyrr en áður.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að félagsmenn FAAS hafa lagt sitt
af mörkum við þróunarvinnu
Mentis Cura sem nú virðist vera að
skila árangri með nýrri tækni til
að greina Alzheimerssjúkdóminn.
Mentis Cura er íslenskt frum-
kvöðlafyrirtæki stofnað árið 2004.
Kostir við áreiðanlega og tím-
anlega greiningu eru margir, m.a.
með tilliti til lyfjagjafar. Sjúkling-
ur svarar lyfjagjöf betur ef hún á
sér stað snemma á sjúkdómsferlinu
og læknir er síður hikandi við að
ávísa á lyf ef hann getur verið viss
í sinni sök og sér hvernig sjúkling-
ur svarar lyfjagjöf. Niðurstöður
benda til að aðferðin geti t.d.
greint áhrif Alzheimerslyfja á fólk
með sjúkdóminn, segir í tilkynn-
ingu.
Nánari upplýsingar er að finna á
vefsíðunni www.alzheimer.is.
Ný tækni til
að greina Alz-
heimerssjúk-
dóminn
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti stillir
sér upp með nokkrum Gana-búum í Accra,
höfuðborg Gana í gær. Bush er nú í op-
inberri heimsókn í Afríku.
Bush í Afríku