Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
SÉRSTAKA öryggisfylgd þarf að
hafa þegar öryggisskjöl utanríkis-
ráðuneytisins verða flutt til skrán-
ingar á Ísafirði í vor. Samningagerð
Þjóðskjalasafnsins og ráðuneytisins
vegna verkefnisins er að ljúka og
tekur þá við vinna vegna fram-
kvæmdarinnar sjálfrar.
Skjölin flutt aftur til Reykja-
víkur að lokinni skráningu
Skjölin eru frá tímabilinu 1945 til
1991 og er um að ræða skjöl sem
snerta öryggismál íslenska ríkisins.
Skráningin fer fram að einhverju
leyti í ráðuneytinu sjálfu en mestur
hluti skjalanna verður fluttur til Ísa-
fjarðar til skráningar og að því loknu
verða skjölin flutt aftur til Reykja-
víkur þar sem þeim verður komið í
geymslu, ýmist hjá Þjóðskjalasafn-
inu eða ráðuneytinu sjálfu.
Styrkja héraðsskjalasöfnin
víða um land
Um gríðarlegt magn af skjölum er
að ræða, eða um tvö þúsund hillu-
metra, að sögn Ólafs Ásgeirssonar
þjóðskjalavarðar, að viðbættum
skjölum frá Pósti og síma sem varða
öryggismál ríkisins. Þjóðskjalasafn-
ið mun vinna að skráningu skjalanna
í verktöku og tekur vinnan nokkur
ár.
„Við fögnum þessu viðbótarverk-
efni,“ bendir Ólafur á. „Á Ísafirði er
öflugt héraðsskjalasafn og við erum
að leggja drög að því að styrkja þau
víða um land.“
Í vor eru því fyrirhugaðir miklir
skjalaflutningar milli Ísafjarðar og
Reykjavíkur og segir Ólafur að
fylgja verði ákveðnum öryggis-
reglum á þessum ferðum.
„Höfum sérstakan
vara á okkur“
„Við höfum sérstakan vara á okk-
ur í þeim efnum,“ segir hann en af
öryggisástæðum upplýsir hann ekki
í hverju þær ráðstafanir felast. Gera
megi ráð fyrir að upplýsingar í sum-
um skjölum séu viðkvæmar og því
þurfi að gæta þeirra vel.
Ströng öryggisgæsla
við flutning skjala
Tvö þúsund hillumetrar af viðkvæmum gögnum um örygg-
ismál ríkisins verða fluttir til Ísafjarðar til skráningar í vor
AUGLÝSINGASTOFAN Jónsson
og Lemacks var sigurvegari árlegr-
ar Lúðrahátíðar auglýsingastofa og
markaðsfólks, sem haldin var í gær.
Stofan hreppti verðlaunagripinn
Lúðurinn í átta flokkum af fjórtán
sem keppt var í. Fíton, Hvíta húsið
og Ennemm hlutu hvert um sig
verðlaun í tveimur flokkum.
Í flokkunum auglýsinga-
herferðir, tímaritaauglýsingar,
veggspjöld og umhverfisgrafík
hlutu Jónsson & Lemacks Lúðurinn
fyrir auglýsingar sem gerðar voru
fyrir bókaverslanir Eymundsson.
Þá sigraði stofan í flokkunum út-
varpsauglýsingar fyrir Júdas sem
framleidd var fyrir Hive, mark-
póstur Sjálfstætt fólk sem fram-
leidd var fyrir Lífís, vefauglýsingar
fyrir Veðurfjarstýringu sem fram-
leidd var fyrir Glitni og í opnum
flokki fyrir Rolex aðgöngumiða
fyrir SÍA-hátíðina.
Fíton fékk verðlaun í flokkunum
almannaheillaauglýsingar, bæði í
prentmiðlum og öðrum miðlum,
fyrir VR-auglýsingar.
Ennemm sigraði í flokkunum
dagblaðaauglýsingar og sjónvarps-
auglýsingar fyrir Síðustu kvöld-
máltíð Símans.
Þá fór Hvíta húsið með sigur af
hólmi í flokkunum viðburðir fyrir
Reykjavíkurmaraþon Glitnis og
vöru- og firmamerki Samtakanna
78.
Það eru ÍMARK, félag íslensks
markaðsfólks, og Samband ís-
lenskra auglýsingastofa sem standa
fyrir Lúðrinum. Þetta var í 22. sinn
sem keppnin var haldin og bárust
630 auglýsingar í hana. Sjötíu voru
tilnefndar til verðlauna og sóttu 470
manns úr markaðs- og auglýs-
ingageiranum afhendinguna í gær.
Jónsson &
Lemacks
sigruðu
Verðlaun markaðsfólks og auglýsingastofa fyrir bestu auglýsingarnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Síðasta kvöldmáltíðin Ennemm sigraði í flokki dagblaðaauglýsinga. Gylfi Þór Þorsteinsson afhenti verðlaunin
fyrir hönd Morgunblaðsins. Hjörvar Harðarson og Jón Sæmundsson framkvæmdastjóri fögnuðu verðlaununum.
HITINN í
Reykjavík í febr-
úar var 0,6 gráð-
um undir meðal-
lagi, sem er -0,2
gráður, en 1,1
stigi yfir meðal-
lagi á Akureyri,
þar sem meðal-
hitinn er -0,3
stig, samkvæmt
tölum í gær-
morgun. Tölur um úrkomu liggja
ekki fyrir en Trausti Jónsson, veð-
urfræðingur á Veðurstofunni, hefur
á tilfinningunni að hún hafi ekki
verið mjög mikil.
Trausti segir að hitinn hafi verið
undir meðallagi í Vestmannaeyjum,
á Suðvesturlandi og Vestfjörðum.
Hann bendir á að ekki hafi verið
mjög hlýtt í febrúar í fyrra en þar á
undan hafi hitinn í mörgum febr-
úarmánuðum verið yfir meðallagi.
Hitinn í
Reykjavík
undir
meðallagi
Trausti Jónsson
90% LANDSMANNA treysta Há-
skóla Íslands og er það mesta
traust sem stofnun hefur notið frá
upphafi mælinga Gallup. Traust til
borgarstjórnar Reykjavíkur mælist
hins vegar aðeins 9% og er það
minnsta traust sem sést hefur í
mælingum Gallup.
Traust á HÍ hefur aukist um 5%
frá síðasta ári. Traust á lögreglunni
hefur aukist um um tvö prósentu-
stig og er nú 80% sem er besta út-
koma lögreglunnar frá því traust-
mælingar hófust 1993. Traust
þjóðarinnar til heilbrigðiskerfisins
hefur hins vegar minnkað um tvö
prósentustig og er nú 68%.
42% treysta Alþingi
Traust til umboðsmanns Alþingis
hefur aukist um 5 prósentustig og
er 62%. Ríkissáttasemjari nýtur
61% trausts, 14 prósentustigum
meira en síðast. Þjóðkirkjan nýtur
52% trausts, Alþingi 42% miðað við
29% síðast, bankakerfið 40% og
dómskerfið 39% trausts.
Þetta eru niðurstöður úr síma-
könnun Capacent Gallup dagana
15.–26. febrúar. Svarhlutfall var
nær 61% og úrtaksstærð 1.573
manns.
90% lands-
manna
treysta HÍ
♦♦♦
MENNTAMÁLARÁÐHERRA und-
irritaði í gær samning við Mennta-
félagið ehf. um rekstur nýs fram-
haldsskóla sem verður til við
sameiningu Iðnskólans í Reykja-
vík og Fjöltækniskóla Íslands.
Samningurinn er til fimm ára og
gildir frá 1. júlí næstkomandi, en
skólinn verður stærsti framhalds-
skóli landsins með vel á þriðja þús-
und nemendur á yfir 40 náms-
brautum.
Fram kemur í frétt af þessu til-
efni að til að byrja með verður
námsframboð í hinum nýja skóla
óbreytt, en samið hefur verið um
þróun námsframboðs í skólasamn-
ingi og samráðshópur á vegum
skólans og menntamálaráðuneyt-
isins mun starfa. Þá munu eig-
endur Menntafélagsins leggja
fram 100 milljónir króna til þróun-
arstarfs, en það eru Samtök iðn-
aðarins, Landssamband íslenskra
útvegsmanna, Samorka, Samband
íslenskra kaupskipaútgerða og
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík.
Félagið hefur annast rekstur Fjöl-
tækniskóla Íslands með samningi
við menntamálaráðuneyti frá
árinu 2003, en það er ekki rekið í
ágóðaskyni heldur rennur allur
hugsanlegur ágóði af rekstri þess
beint í skólareksturinn.
Markmið að fleiri
velji iðn- og starfsnám
Markmið sameiningar skólanna
er m.a. að móta öflugan iðn- og
starfsmenntaskóla og að fjölga
nemendum sem velji sér iðn- eða
starfsnám um 10% á samningstím-
anum. Einnig að auka skilvirkni í
iðn- og starfsnámi og að draga úr
brottfalli í iðn- og starfsnámi um
20% á þremur árum.
Menntafélagið rekur sameinaðan iðnskóla
Morgunblaðið/RAX
PILTUR sem
slasaðist alvar-
lega í bílslysi á
Vesturgötu á
Akranesi hinn 18.
febrúar síðastlið-
inn lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans í
Fossvogi síðast
liðinn fimmtudag.
Hann hét Þor-
valdur Kristinn Guðmundsson,
fæddur árið 1989, og var til heimilis á
Höfðabraut 4 á Akranesi.
Tveir voru í bílnum er slysið varð
og slösuðust báðir alvarlega. Annar
piltanna var útskrifaður af gjör-
gæsludeild nokkrum dögum eftir
slysið.
Piltur látinn
eftir bílslys
Þorvaldur Kristinn
Guðmundsson
♦♦♦
KÚABÚ í Skagafirði hefur verið sett
í einangrun eftir að smitsjúkdómur-
inn hringskyrfi greindist í sláturgrip
frá bænum og athugað verður með
frekari aðgerðir eftir helgi.
Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir
Skagafjarðar- og Eyjafjarðarum-
dæmis, segir að sjúkdómurinn hafi
aðeins greinst í einum nautgrip en
sýni hafi verið tekin úr fleiri gripum.
Í fyrrahaust greindist hringskyrfi í
nautgripum á tveimur nágrannabæj-
um í Eyjafirði, en Ólafur segir að
ekki sé vitað um nein tengsl milli
þeirra og bæjarins í Skagafirði.
Fyrstu aðgerðir miða að því að
hindra frekari smitdreifingu, en
Ólafur segir að umrædd tilfelli gefi
vísbendingu um að sjúkdómurinn sé
útbreiddari en talið hafi verið.
Hringskyrfi orsakast af húðsvepp
sem nefnist Trichophyton verrucos-
um og einkennin eru hringlaga hár-
lausir blettir í húð. Smitið berst með
snertingu og getur borist í fólk.
Setja bæ í
Skagafirði í
einangrun