Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
DANSKI rithöfundurinn Naja Mar-
ie Aidt fékk í gær Bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs fyrir smá-
sagnasafnið Bavian. Átta ár eru
síðan verðlaunin féllu síðast Dana í
skaut og Aidt sagðist ekki hafa trúað
eigin eyrum þegar tilkynningin
barst. „Ég er ofboðslega hissa og
mjög glöð. Þetta er mikill heiður fyr-
ir mig,“ sagði hún í samtali við
danska blaðið Politiken. „Mér var illt
í maganum í morgun þegar ég vakn-
aði. En ég reyndi að draga úr spenn-
ingnum eins og ég gat yfir daginn.
Það verður maður jú að gera þegar
maður er tilnefndur til verðlauna, því
svo fær maður þau kannski ekki. Svo
að þetta er bara dásamlegt.“
Naja Marie Aidt hefur gefið út
átta ljóðabækur og þrjú smásagna-
söfn, auk þess sem hún hefur skrifað
nokkur leikrit og kvikmyndahandrit.
„Ég er sérstaklega ánægð með að fá
verðlaunin fyrir smásagnasafn.
Þetta er sigur fyrir smásagnaformið
og ég vona að þetta hvetji fleiri til
þess að lesa smásögur, sem mér
finnst einmitt stórkostlegt form af-
lestrar.“
Í umfjöllun sinni um tilnefningar
til verðlaunanna í Lesbók Morg-
unblaðsins fyrir viku sagði Soffía
Auður Birgisdóttir það heyra til und-
antekninga að smásagnasöfn hlytu
verðlaunin. Um Bavianen sagði
Soffía meðal annars: „Sögur Aidt eru
afar áhrifaríkar í grótesku raunsæi
sínu og sýn hennar á hversdagslífið
er beinlínis uppáþrengjandi.“
Í ár voru þau Kristín Steinsdóttir
og Bragi Ólafsson tilnefnd til Bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs
fyrir Íslands hönd.
Trúði
ekki eigin
eyrum
Norðurlandaráð
verðlaunaði Aidt
Verðlaunuð Naja Marie Aidt
FINNSKI harmonikkuleik-
arinn Tatu Kantomaa og Hjör-
leifur Valsson fiðluleikari leiða
saman hesta sína í tónlistar-
húsinu Laugarborg í Eyja-
fjarðarsveit klukkan 15 í dag.
Þar ætla þeir að eigin sögn að
flytja „lauflétta, en um leið
blóðheita og safaríka efnis-
skrá.“
Hjörleifur Valsson lærði
fiðluleik í Noregi, Tékklandi og
Þýskalandi og starfar nú við kennslu í tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar.
Tatu Kantomaa hefur leikið á harmónikku frá
blautu barnsbeini og hefur meðal annars spilað
með Caput-hópnum og Rússíbönum.
Tónlist
Harmonikka og
fiðla í Laugarborg
Hjörleifur
Valsson
Hjálmar Þorsteinsson hélt sína
fyrstu myndlistarsýningu á
Akranesi fyrir fjörutíu árum
og nú er hann snúinn aftur á
gamlar slóðir eftir langa dvöl í
Danmörku. Hann opnar mál-
verkasýningu á morgun í
Listasetrinu Kirkjuhvoli á
Akranesi.
Hjálmar er að mestu sjálf-
menntaður í myndlist, en hefur
sinnt henni markvisst í áratugi.
Helsti áhrifavaldur hans er hollenski málarinn
Vincent van Gogh og skilgreinir Hjálmar sig sjálf-
ur sem expressjónista.
Sýningin stendur til 9. mars og er Listasetrið
opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18.
Myndlist
Hjálmar snýr aftur
á Skagann
Hjálmar
Þorsteinsson
TÓNLEIKARÖÐ Tónlist-
askólans í Reykjavík í Nor-
ræna húsinu lýkur í dag klukk-
an tvö með Vínarklassík.
Meðal fjölmargra tónlist-
arnema sem spila á tónleik-
unum í dag er söngkonan
Ragnheiður Gröndal, en í þetta
skiptið mun hún vera í öðru
hlutverki en vanalega og leika
á píanó.
Meðal þess sem boðið verður
upp á er fyrsti þáttur sónötu í D-dúr op. 6 eftir
Ludwig van Beethoven og sónata nr. II fyrir tvær
víólur, selló og kontrabassa eftir Wagenseil.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir
velkomnir.
Tónlist
Vínarklassík í
Norræna húsinu
Ragnheiður
Gröndal
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÞÓRBERGSSMIÐJA er heiti hátíð-
ar sem haldin verður í Háskóla Ís-
lands helgina 8. og 9. mars en þar
verður þess minnst á fjölbreytilegan
hátt, að 12. mars verða 120 ár frá
fæðingu Þórbergs Þórðarsonar.
„Þetta á ekki aðeins að vera sam-
tal sérfræðinga heldur fjöl-
skylduskemmtun þar sem allir finna
eitthvað við sitt hæfi,“ segir Bergljót
S. Kristjánsdóttir, prófessor við HÍ,
sem er í undirbúningsnefndinni.
Bergljót segir að fyrirlestrar og
dagskrárliðir tengist hugðarefnum
Þórbergs. „Báða daga verður byrjað
með Müllersæfingum og þá verða
fyrirlestrar um eilífðarmálin,
skrímsli og pólitík, orðasöfnun og
bókmenntir, og Fjölnir Torfason og
Þorbjörg Arnórsdóttir á Hala fjallar
um uppruna Þórbergs.
Lilla-Hegga meðal gesta
Fyrirlesarar verða margir þessa
daga. Meðal þeirra eru rithöfund-
arnir Bragi Ólafsson og Stefán
Máni, en fyrirlestur hans kallast
Hann var einu sinni nörd, Helga
Jóna Ásbjarnardóttir (Lilla-Hegga),
Auður og Sólveig, dæturs Einars
ríka, og Guðrún Kvaran sem fjallar
um orðasöfnunarævintýri Þórbergs.
Ýmis tónlist verður flutt, meðal ann-
ars af Erni Arnarsyni, Baggalút og
Dr. Gunna og Heiðu úr Unun.
Aukinn áhugi virðist vera á verk-
um og ævi Þórbergs þessi misserin.
Þórbergssetur opnaði að Hala árið
2006 og á síðustu tveimur árum hafa
tvær bækur um skáldið komið út.
„Þegar Þórbergur var að skrifa
mörg verka sinna, eins og Suð-
ursveitarbækurnar, þá töldu sumir
þetta heldur ómerkilegt efni,“ segir
Bergljót. „Nú er þessi heimur horf-
inn og til að mynda stendur Suð-
ursveitarbálkurinn eftir sem einhver
merkilegasta saga byggðarlags.
Þórbergur var ólíkindatól; hann
sviðsetti sig í verkunum sem sérvitr-
ing, lýsti því hvað hann var ófram-
færinn í návist kvenna og gerði grín
að skáldsögum. Fólk trúði þeirri
sviðsetningu. Svo kemur í ljós að all-
ar stelpur skotnar í honum, „sönnu“
sögurnar hans voru skáldskapur og
annað í þeim dúr, mýtan hrynur.
Nú er komin fram kynslóð sem ég
held að Þórbergur eigi betur við en
margar aðrar. Þegar hann er að
skrifa, samþættir hann ákaflega
margt. Nú lifum við á tímum þar
sem talað er um að fólk eigi að vera
þverfaglegt og allt í einu kynnist
ungt fólk rithöfundi sem hafði áhuga
á öllu og samþætti það í verkum sín-
um á hugkvæman hátt. Hann leyfir
sér líka ærsl og tekur sig ekki eins
hátíðlega og margir aðrir. Svo ekki
sé talað um hvað hann hvetur til að
menn séu gagnrýnir á vélræna hugs-
un og klisjur í máli.“
Hugvísindastofnun og Bók-
menntafræðistofnun standa að Þór-
bergssmiðju, í samvinnu við Mími,
félag stúdenta íslenskum fræðum,
Forlagið, sem gefur út verk Þór-
bergs, og Morgunblaðið.
Byrjar á Müllersæfingum
Í Þórbergssmiðju verður fjallað um helstu hugðarefni Þórbergs Þórðarsonar
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Í Umskiptingastofunni Þórbergur og Matthías Johannessen ræða saman.
Matthías fjallar um kynni sín af Þórbergi í Þórbergssmiðjunni.
Í HNOTSKURN
» Þórbergssmiðja verður íHáskóla Íslands helgina 8.
og 9. mars.
» Skrímslastofa verður fyrirbörn báða dagana, í umsjón
Mímisliða.
» Bryndís Petra Bragadóttirstýrir Mullersæfingum.
» Meðal fyrirlesara verðaGuðmundur Andri Thors-
son, Pétur Gunnarsson, Ingunn
Snædal, Dagný Kristjánsdóttir,
Halldór Guðmundsson, Ástráð-
ur Eysteinsson, Kristín Svava
Tómasdóttir og Kristján Ei-
ríks.
SÝNINGIN sem Sara Björnsdóttir opnar í dag ber
nafnið Víma / Intoxication og er óður hennar til rauðvíns-
drykkju. Á sömu sýningu er hún með vídeóverk um
reykingar. „Ég er að fjalla um rauðvín og sígarettur sem
hvort tveggja hafa sínar neikvæðu hliðar. Við vitum að
sígarettureykingar eru banvænar og ógeðslegar og
hættulegar, en við heyrum aldrei neitt annað. Ég bý þess
vegna til ofboðslega fallega sýningu um þessi tvö vímu-
efni, en það skín samt margt í gegn annað en fegurð og
rómantík,“ segir Sara.
Verkin á sýningunni hafa verið sýnd áður, en koma nú
saman sem ein heild í fyrsta skipti. Sá hluti sem fjallar
um rauðvínið samanstendur af ljósmyndum sem Sara
sýndi í Gallery Crystal Ball í Berlín. „Í myndlistinni finn-
ur maður sér eitthvað til að vinna út frá sjálfur, eitthvað
sem er manni kært þá og þá stundina. Núna ákvað ég að
vinna þessa sýningu um rauðvín og gera því hátt undir
höfði og búa til eitthvað sjúklega fallegt sem væri líka
einhver firring í og brenglun. Þetta eru svolítið tvöföld
skilaboð. Það er svo mikið af áfengissjúklingum á Ís-
landi, það virðast allir sem drekka áfengi vera vissir um
að þeir séu sjúklingar. Mér finnst þetta svo mikið bull.“
Vídeóverkið kom fyrst fyrir almenningssjónir á
Sequences-hátíðinni í október. „Það er myndband sem
heitir Salem Lights og sýnir sígarettureyk. Það bara til-
heyrir, sígaretta og rauðvínsglas.“
Sýningin er haldin í Gallerí Ágúst og verður opnuð
klukkan 16 í dag.
Reykmettaður óður til
rauðvínsdrykkju
Víma Brot af einu ljósmyndaverkanna á sýningu Söru
Björnsdóttur í Galleríi Ágúst.
ALLT frá árinu 2000 hefur Dieter
Roth akademían stefnt myndlist-
arnemum til Seyðisfjarðar þar þem
þeir hafa dvalið við listsköpun í
stuttan tíma og sýnt svo afrakst-
urinn að verki loknu. Sýningin í ár
ber nafnið HARDWARE/SOFTW-
ARE og er haldin í menningar-
miðstöðinni Skaftfelli. „Þetta eru
allt verk sem þau hafa fengið að
vinna á verkstæðum hérna víðs-
vegar um bæinn, í stálsmiðjunni,
trésmiðjunni og hér og þar. Þau eru
með allskyns muni héðan af svæð-
inu og næsta nágrenni. Verkin
tengjast öll Seyðisfirði,“ segir Þór-
unn Hjartardóttir framkvæmda-
stjóri Skaftfells.
Tveir listnemanna koma erlendis
frá til þess að taka þátt í námskeið-
inu á Seyðisfirði, einn frá Tallinn
og annar frá Malmö.
Þau Ástríður Magnúsdóttir,
Dmitri Gerasimov, Eva Dagbjört
Óladóttir, Logi Bjarnason, João
Leonardo, Páll Haukur Björnsson,
Una Björk Sigurðardóttir og Unn-
dór Egill Jónsson eiga verk á sýn-
ingunni og sýningarstjóri er Björn
Roth.
Úr smiðjunni
Listnemar sýna seyðfirsk myndverk
Í vinnslu Verk eftir Loga Bjarna-
son verður til í Skaftfelli.