Morgunblaðið - 01.03.2008, Side 21

Morgunblaðið - 01.03.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 21 ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | Fimleikadeild Ungmenna- félags Selfoss fagnaði 20 ára afmæli sínu sl. haust. Starfsemi deild- arinnar hefur vaxið jafnt frá stofnun og hefur aldrei verið eins öflugt og núna. Í dag æfa um 320 börn og ung- lingar fimleika hjá deildinni, auk 70 barna í íþróttaskóla. Í meistaraflokki deildarinnar æfa rúmlega tuttugu stúlkur á aldrinum 15 til 23 ára. Þær hafa æft fimleika frá 5 til 6 ára aldri og lengst af með fimleikadeild Umf. Selfoss. „Fimleikar eru krefjandi og skemmtileg íþrótt og í hópfimleikum er hver og einn iðkandi mikilvægur hlekkur í keðjunni. Þátttaka í íþrótt- um, ekki síst hópíþróttum, er þrosk- andi afþreying, eflir samskiptahæfni barna og styrkir sjálfsmynd þeirra sem hjálpar þeim að taka ákvarðanir af ábyrgð þegar kemur að neyslu tóbaks, áfengis og annarra vímu- efna,“ sagði Brynja Hjálmtýsdóttir, formaður deildarinnar. „Yngri iðkendur deildarinnar líta mjög upp til stúlknanna enda eru þær góðar fyrirmyndir. Þeir fylgjast af áhuga með framförum þeirra og árangri, bæði á æfingum og mótum. Brottfall unglinga, einkum stúlkna, úr íþróttum upp úr fermingu er staðreynd. Deildin hefur náð góðum árangri í baráttunni gegn brottfalli og á nú að skipa fjölmennu og öflugu liði stúlkna í efstu bekkjum grunn- skólans og í FSu. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á að íþróttaiðkun á unglingsaldri er ein mikilvægasta forvörnin gegn neyslu áfengis og vímuefna á unglingsárum. Af þeim sökum er starfsemi meistaraflokks fimleikadeildar Umf. Selfoss sér- staklega mikilvæg,“ sagði Brynja en hún hefur gegnt því starfi í fjögur ár. Norðurlandamót í apríl Landsliðshópur fimleikadeild- arinnar mun taka þátt í Norð- urlandamóti yngri iðkenda í hópfim- leikum, sem verður haldið í Haukelandshallen rétt fyrir utan miðbæ Bergen í Noregi laugardag- inn 19. apríl nk. Á mótinu keppa ungmenni frá Norðurlöndunum á aldrinum 13 til 18 ára í flokki kvenna (10 lið), karla (7 lið) og blönduðum flokki (7 lið). Auk liðsins frá Selfossi mun hópur fimleikafólks frá Gerplu taka þátt í mótinu. Liðin tvö frá Íslandi munu keppa við kvennalið frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Iðkendur koma víða að Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss er ein af átta deildum Ung- mennafélags Selfoss. Deildin er með fjölmennustu deildum félagsins. Auk Árborgarbúa eru iðkendur víðs veg- ar af Suðurlandi, t.d. frá Hveragerði, Ölfusi, Flóahreppi, uppsveitum Ár- nessýslu og Rangárvallasýslu. Deildin er leiðandi í greininni á Suð- urlandi og hefur tryggt Umf. Selfoss fyrsta sæti í liðakeppni Héraðssam- bandsins Skarphéðins (HSK) í fim- leikum undanfarin ár. Deildin hefur undanfarin tíu ár átt keppendur á verðlaunapalli á mótum á vegum Fimleikasambands Íslands (FSÍ). Deildin er aðili að FSÍ og tveir þjálf- arar deildarinnar eiga sæti í tækni- og mótanefnd sambandsins. „Það er mjög skemmtilegt að vera formaður þessarar öflugu deildar. Við erum með frábæra þjálfara þar sem Olga Bjarnadóttir yfirþjálfari er í fararbroddi. Þá erum við með mjög öflugt foreldraráð í eldri flokk- unum og þá er gaman að segja frá því að deildin var fyrsta félag á Suð- urlandi til að hljóta útnefningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ en það var á síðasta ári,“ sagði Brynja að lokum. Hver iðkandi er mikilvægur hlekkur Meistarahópur Hluti af meistarahópi fimleikadeildarinnar á Selfossi mun taka þátt í Norðurlandsmótinu í Bergen 19. apríl. Fimleikadeildin hefur nýlega flutt starfsemi sína í nýtt og glæsilegt æfingahúsnæði í íþróttahús- inu við Sunnulækjarskóla. Þá má segja frá því að nú er í undirbúningi að setja á fót fimleikaakademíu á Selfossi. Forysta Brynja Hjálmtýsdóttir, formaður fimleikadeildarinnar, stendur á milli Sigríðar Harðardóttur þjálfara og Olgu Bjarnadóttur yfirþjálfara. Öflugt starf með 320 iðkendum er hjá fim- leikadeild Umf. Selfoss. Félagið ávann sér rétt til að keppa á Norður- landamóti yngri iðk- enda í hópfimleikum fyrir hönd Íslands. FULLTRÚAR í samstarfsnefnd þriggja slökkviliða á Suðurnesjum hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um sameiningu. Fram kemur það álit að sameining yrði hagkvæm og myndi auka mjög útkallsstyrk og þjónustu við íbúa og þá sem um Kefla- víkurflugvöll fara. Slökkvilið Keflavíkurflugvallar er stærsta slökkviliðið á Suðurnesjum. Hlut- verk þess hefur breyst eftir að varnarliðið fór og stór hluti varnarliðssvæðisins hefur verið tekinn til borgaralegra nota og þannig fallið undir slökkviliðin í Reykjanesbæ og Sandgerði. Það hefur áfram mikilvægu hlutverki að gegna við flugvöllinn. Bruna- varnir Suðurnesja eru í eigu Reykjanes- bæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfé- lagsins Voga og þjóna þessum þremur sveitarfélögum. Þriðja liðið er Slökkvilið Sandgerðis. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Sandgerði, segir um aðkomu Sandgerðis að bærinn hafi ákveðnum skyldum að gegna á flugvellinum vegna þess að flugstöðin og fleiri mannvirki og meginhluti flugbrautanna sé innan bæjar- marka Sandgerðis. Slökkvilið Grindavíkur stendur utan við sameiningarvinnuna. Hugmyndin er að skipta flugvallar- slökkviliðinu upp og sameina húsbruna- deildina hinum slökkviliðunum. Tekið er fram í viljayfirlýsingunni að ekki sé ætlunin að segja upp starfsmönnum. Stefán Thord- ersen flugvallarstjóri tekur fram að enn sé verið að afla gagna og kanna kosti og galla sameiningar og engar ákvarðanir hafi verið teknar. Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðs- stjóri Brunavarna Suðurnesja, segir að með sameiningu sé hægt að auka mjög útkalls- styrk slökkviliðanna og reka þau á hag- kvæmari hátt til lengri tíma litið. Viljayfirlýs- ing um sam- einingu slökkviliða Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Vogar | Stórheimili var formlega tekið í notkun og blessað við athöfn í fyrradag. Heimilið fékk nafnið Álfabyggð. Svokölluð stórheimili eru nýjung hjá Búmönnum. Álfabyggð í Vog- um er fyrsta heimilið sem byggt er eftir þessari hugmynd en verið er að undirbúa uppbyggingu í nokkr- um öðrum sveitarfélögum. Í stórheimili eru íbúðir fyrir aldr- aða og þjónustumiðstöð. Innan- gengt er úr íbúðunum í þjónustu- miðstöðina sem einnig mun þjóna öllum eldri borgurum í sveitarfé- laginu. Íbúar þróa þjónustuna Í þjónustumiðstöðinni er, auk smástjórnunarkjarna, borðsalur og æfingasalur, eldhús, setustofa, tóm- stundaherbergi, lítið þvottahús og smá snyrtistofa, auk yfirbyggðrar götu sem hægt er að nota á marg- víslegan hátt. Ekki hefur verið ákveðið endan- lega hvaða þjónusta verði veitt í þjónustumiðstöðinni sem sveitarfé- lagið tekur á leigu hjá Búmönnum. Fram kom hjá Birgi Erni Ólafssyni, forseta bæjarstjórnar, við athöfn- ina að íbúar og aðrir væntanlegir notendur kæmu að þróun starfsem- innar. Guðrún Jónsdóttir, arkitekt hússins og formaður Búmanna, lýsti ánægju með það, sagði það eðlilegt þar sem allt húsið væri á einn eða annan hátt heimili þeirra sem byggju í íbúðunum og því eðli- legt að þeir tækju þátt í starfsem- inni eftir getu hvers og eins. Húsið er tæplega 1.400 fermetr- ar að stærð. Guðrún sagði að mikil áhersla hefði verið lögð á garðinn í kringum húsið og væri vonast til að skjólsælir pallar og góðir göngu- stígar gætu örvað íbúana til úti- veru. Samkeppni um nafn Í stórheimilinu eru þrettán íbúð- ir, eins til tveggja herbergja. Á sömu lóð eru sex Búmannaíbúðir í parhúsum og fyrir átti félagið tíu íbúðir í Vogum. Búmenn eiga því 29 íbúðir í sveitarfélaginu. Þær eru leigðar út með búseturétti til fólks sem er 50 ára og eldra. Vegna vígslu hússins var efnt til samkeppni um nafn á stórheimilið. Tillaga Bergs Sigurðssonar, Álfa- byggð, varð fyrir valinu og var við athöfnina afhjúpaður skjöldur með heitinu. Nafnið vísar til fyrri íbúa lóðarinnar og götuheita í nágrenn- inu. Trésmiðja Snorra Hjaltasonar byggði Álfabyggð fyrir Búmenn. Heimilið fékk margar góðar kveðj- ur og gjafir við vígsluathöfnina. Þannig gaf kvenfélagið heimilinu borðbúnað fyrir fimmtíu manns. Álfabyggð tekin í notkun Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Vígsluhátíð Einn íbúi Álfabyggðar, Sigurður Marinó Sigurðsson, lék á harmónikku við vígsluathöfnina ásamt hjónunum Þorvaldi Erni Árnasyni og Ragnheiði Jónsdóttur. Fjöldi gesta var viðstaddur. Stórheimilið í Vogum er nýjung hjá Búmönnum Í HNOTSKURN »Búmenn hafa tekið í notk-un í heildina á fimmta hundrað íbúðir í þrettán sveit- arfélögum og hafa um tvö hundruð íbúðir til viðbótar í byggingu eða á undirbúnings- stigi. »Þar af eru liðlega 150 áSuðurnesjum, 41 í Reykja- nesbæ, 36 í Garði, 30 í Grinda- vík, 29 í Vogum, og 17 í Sand- gerði. Frekari uppbygging á Suðurnesjum er í undirbún- ingi. SUÐURNES

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.