Morgunblaðið - 01.03.2008, Qupperneq 24
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Pífur, blúndur, litríkt silkisatín, leður og loð-feldir. Það má telja nokkuð ljóst að ekki leit-uðu fatahönnuðirnir sem sýndu haust- ogvetrartískuna 2008/09 á tískuvikunni í París
allir innblásturs í sama ranni.
Dómsdagur – öllu glaðlegri en orðið sjálft, var
þannig þema Issey Miyake en villimaðurinn (eða
-konan) réð ríkjum hjá Jean Paul Gaultier. Hönn-
uðurinn, sem venjulega hlýtur hrós fyrir frumleika
og óttaleysi við að feta nýjar slóðir, fékk hins vegar
blendnari viðbrögð hjá tískuspekúlöntum að þessu
sinni. Leður og loðfeldir í miklu magni voru enda
aðal sýningar Gaultiers sem var meira að segja
ófeiminn við að prýða fyrirsætur sínar dýrslegum
höfuðfötum.
Comme des Garçons hönnuðurinn Rei Kawa-
kubo skemmti sér á sama tíma við að mara á
mörkum smekkleysunnar. Fléttur, blúndur,
borðar og gervifelldir tvinnuðu þar skemmtilega
saman fínlegri hyskisvísun, fjötrablæti og
kvennadyngjum. Junya Watanabe, sem hannar
fyrir sama merki, hélt sig hins vegar við áhrifa-
mikin einfaldleika sem svartur höfuðbúnaður
fyrirsætanna undirstrikaði enn frekar.
Hjá Galliano voru ráðandi svipaðir straum-
ar og á hátískusýningu hans í janúar – sterk-
litað og glansandi satínsilki – þó að andi
fatalínunnar nú væri meira í átt við sjöunda
áratuginn. Samskonar litadýrð einkenndi
hönnun Christian Lacroix, sem var á fjör-
miklum daðurnótum með egglaga
kokteilkjólum í sterkbleiku, appels-
ínugulu og túrkíslitu satíni.
Hvert sem fatasmekkurinn því stefnir
á komandi vetri – að fínlegum kvenleika,
innra villidýrinu, einfaldleika eða fortíð-
arhyggju, þá ætti alla vegna að mega slá því
föstu að veturinn 2009 þurfi líklega ekki að vera svo
leiðinlegur.
Bardot Áhrif leikkonunnar í þessari
hönnun John Galliano eru augljós.
Bleikt Litríku satínefnin úr hátísku-
línunni réðu enn ríkjum hjá Galliano.
Villt Dýrslegt höfuðfat
frá Jean-Paul Gaultier.
Fjötrablæti Rei Kawakubo hjá Comme des Garcons
tvinnaði fjötrablæti saman við kvennadyngjur.
Látlaus Klæðileg hversdags-
kápa frá Viktor and Rolf.
Einfalt Yohji Yamamoto hélt sig
við asísku naumhyggjuna.
Kvenlegt Skúlptúrlegur einfaldleiki
var ráðandi hjá Junya Watanabe.
Daður Kjólar Christian
Lacroix voru litríkir.
Pífur Stuttur og einfaldur
pífukjóll frá Viktor and Rolf.
Söluvænt Pífur og shiffon lofa
söluvænni línu hjá Givenchy.
Sixtís Áhrif sjö-
unda áratugarins
leyna sér ekki í
hönnun Gallianos
fyrir Dior.
Dómsdagur og
dýrsleg hönnun
Reuters
Námskeið
við félagsfælni
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu
Kvíðameðferðarstöðvarinnar: www.kms.is
Skráningu að ljúka 4. mars n.k. á næsta námskeið
við félagsfælni (óöryggi í samskiptum) á
kms@kms.is eða síma 822-0043.
Skráning hafin á sams konar námskeið
fyrir unglinga.
M
b
l 9
77
49
5
Einnig er hafin skráning á námskeiðið
„Bætt líðan með hugrænni atferlismeðferð“
þar sem kenndar eru leiðir til að bæta samskipti
og breyta hugarfari og viðbrögðum sem stuðla
að vanlíðan.
tíska
24 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ