Morgunblaðið - 01.03.2008, Page 30

Morgunblaðið - 01.03.2008, Page 30
30 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á HEIMASÍÐU Spalar hf. er að finna grein um tilraunaboranir í Hvalfjarðargöngunum með það fyrir augum að leggja ný göng mun ofar í berginu en núverandi göng liggja. Ef það verður ofan á að leggja væntanleg göng mun ofar í berginu, verður ekki hægt að nýta þetta góða tækifæri í það að auka eldvarnir í göngunum, sem er þó mjög brýnt vegna þess að núverandi eldvarnir í göngum eru af afar skornum skammti, ein- ungis nokkur slökkvi- tæki. Til að auka eld- varnir í Hvalfjarðargöngum er mjög ár- íðandi að ný göng liggi samhliða nú- verandi göngum, þannig að hægt sé að gera flóttaleiðir á milli ganganna á nokkrum stöðum ef upp kemur eld- ur í göngunum eða ef mengunarslys á sér stað þar. Með því móti á fólk einhverja möguleika á að forða sér og fara í gegnum eldvarnarhurðir og yfir í hliðargöngin, gerist þess þörf. Ég ritaði grein sem birt var í Morgunblaðinu fyrir um einu og hálfu ári varðandi eldsvoða sem varð í Mont Blanc-göngunum árið 1999 þar sem 39 manns létust og 34 bif- reiðar eyðilögðust. Grein mín var byggð á fyrirlestri sem Eric Ciroud, fyrrverandi slökkviliðsstjóri í Chamonix-héraði í Frakklandi, hélt þann 6. júlí 2006 fyrir slökkviliðs- menn og lögreglumenn á höfuðborg- arsvæðinu, en Eric var einn þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í eldsvoð- anum í Mont Blanc-göngunum. Mont Blanc-göngin voru opnuð árið 1965 og voru þá lengstu jarðgöng í heimi, en þau eru um 11,6 km löng. Þau eru í Alpafjöllum og liggja á milli Frakk- lands og Ítalíu. Lega ganganna er þannig að þau eru hæst í miðju, en halla niður í átt að gangamunnanum. Fram kom hjá Eric að eldurinn í Mont Blanc-göngunum hafi magnast mjög hratt og hafi ekki orðið við neitt ráðið. Ef tak- ast eigi að ráða við eld eins og þann sem varð í Mont Blanc-göngunum árið 1999, þurfi að slökkva hann innan 3- 10 mínútna eftir að hann kemur upp. Eftir það verði hitinn orðinn svo mikill, að ekki verði við neitt ráðið og ekki hægt að komast að eld- inum, jafnvel með besta hlífðarbúnaði sem völ er á. Hitinn í eldsvoðanum í Mont Blanc- göngunum var mældur og mældist hann vera um 1200 stig. Ekki náðist að slökkva þann eld fyrr en eftir tvo sólarhringa og var þá allt brunnið sem brunnið gat, m.a. var malbikið brunnið á 2 km kafla. Endurbygging Mont Blanc-ganganna tók 3 ár, þar til hægt var að hleypa umferð á þau á ný. Við ritun greinarinnar um Mont Blanc-göngin kynnti ég mér við- bragðstíma næstu slökkviliða og kom í ljós að viðbragðstími slökkvi- liðsins á Akranesi ofan í botn Hval- fjarðarganga er 16 mínútur, en slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á Tunguhálsi í Reykjavík um 20 mín- útur. Það segir manni, samkvæmt kenningu Erics slökkviliðsstjóra, að það væri of seint fyrir þessi slökkvi- lið að komast að eldi, sem magnast á svipaðan hátt og gerðist í Mont Blanc-göngunum árið 1999. Því er það eina sem getur bjargað fólki sem statt er í Hvalfjarðargöngunum ef eldsvoði brýst þar út, er að til séu góðar flóttaleiðir. Samkvæmt upplýsingum á heima- síðu Spalar hf. fóru 2.030.000 bifreið- ar um Hvalfjarðargöng síðastliðið rekstrarár sem gerir 5.561 bifreið á sólarhring. Ef að meðaltali eru þrír menn í hverri bifreið, þá fara 16.683 manns í gegnum göngin á hverjum sólarhring og ef við gefum okkur það að 3/4 þeirra 12.512 manns fari um göngin á tímabilinu frá kl.07:00-18:00 þá fara um 1.140 manns um göngin á klukkutíma. Þetta er gríðarlegur fjöldi fólks og má því búast við að ef alvarlegur eldsvoði brýst út í Hval- fjarðargöngunum, að þar verði eitt- hvert manntjón og jafnvel mjög mik- ið. Því þarf að nota tækifærið við lagningu nýrra ganga og huga vel að eldvörnum og búa til flóttaleiðir sem fólk getur nýtt sér, ef eldsvoði brýst út í Hvalfjarðargöngunum. Með því að leggja ný göng mun of- ar í berglögum Hvalfjarðar, er verið að útiloka þann möguleika sem felst í samhliða göngum, sem hægt væri að nota sem flóttaleið vegna eldsvoða eða eiturefnaslysa, sem geta átt sér stað í Hvalfjarðargöngum. Eldvarnir í Hvalfjarðargöngum Gísli Breiðfjörð Árnason vill að ný fyrirhuguð Hvalfjarðargöng verði samhliða þeim sem nú eru »Ef það verður ofan á að leggja væntanleg göng mun ofar í berg- inu, verður ekki hægt að nýta þetta góða tæki- færi í það að auka eld- varnir í göngunum. Gísli B. Árnason Höfundur starfar sem rannsókn- arlögreglumaður hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. ÞAÐ er ekki oft sem maður brosir allan hringinn þegar sýnt er fram á að maður hafi haft rangt fyrir sér. Ég var allt að því sannfærður í vet- ur að ekki stæði til að byggja nýjan spítala. Meðal annars hafði ég tjáð áhyggjur mínar á síðum dagblaðanna. Í dag kom það skýrt í ljós að mér hafði orðið svolítið brátt í brók og ótti minn ekki á rökum reistur. Reyndar er mér vorkunn að stíflan skyldi bresta í vetur því ég hef beðið eftir deginum í dag í meir en 25 ár. Dagurinn 27. febr- úar 2008 mun lengi vera í minnum hafður á Landspít- alanum. Í dag gerðist það sem allir starfsmenn Landspítalans hafa beð- ið eftir árum saman. Heilbrigð- isráðherra, Guðlaugur Þór, Inga Jóna og fleiri háttsettir embætt- ismenn héldu fund með okkur starfsmönnunum. Það er ekki á hverjum degi sem svo fríður hópur mætir á fund með okkur enda var mjög vel mætt af hálfu starfsmanna. Það var mikil eftirvænting í hópn- um. Við fórum ekki tómhent af fundinum. Guðlaugur Þór og Inga Jóna tóku af öll tvímæli um að til stendur að byggja nýtt sjúkrahús fyrir Íslend- inga. Auk þess var tekið fram að verkið yrði klárað en ekki skilið eftir hálfklárað. Framtíðarsýnin er kom- in á hreint. Til stendur að byggja nýjan og góðan spítala fyrir alla landsmenn. Hann mun þjóna öllum Íslendingum vel og lengi. Ten- ingnum er kastað. Svartsýnisraddir munu sjálfsagt heyrast eftir sem áður. Ég er sann- færður um að þegar úrtölumenn munu sjá nýjan spítala rísa og átta sig á muninum á gamla og nýja tím- anum munu þeir skilja mikilvægi hans. Aftur á móti munum við sem höfum þráð þennan dag árum saman mæta bjartsýnni til vinnu á morgun. Sjúklingar spítalans munu kunna að meta það. Það er ekki ónýtt að fá góðar gjafir á jól- unum en það eru ekki alltaf jól. Áfram verðum við í gömlu húsunum nokkur ár til viðbótar. Á fundinum kom fram skilningur á því að gera okkur vistina bærilega með- an við bíðum eftir nýju húsi. Sjálf- sagt verður það mun léttara fyrir starfsfólk og sjúklinga að þola nú- verandi ástand vegna þeirra tíðinda sem boðuð voru í dag. Nauðsynlegt er fyrir alla aðila sem að þessum málum koma að byggja ekki bara hús. Þó að góð að- staða starfsmanna og sjúklinga sé forsenda árangurs á heims- mælikvarða, sem við stefnum öll að, þá er sjúkrahús miklu meira. Sjúkrahús er fólkið sem vinnur þar, stundum nefnt mannauður nú til dags. Til að ná hámarks ávöxtun á þeim auði þarf ýmislegt að koma til. Stjórnendur þurfa að gæta þess að skapa ekki ónauðsynleg tilefni fyrir hinn almenna starfsmann að kvarta. Við sem nöldrum þurfum að gera það með góðum rökum og að vel yf- irlögðu ráði. Nauðsynlegt er fyrir gæslumenn pyngjunnar að meta störf þeirra sem vinna með veikt fólk. Til að hámarka líkur þess að Íslendingar eigi kost á góðri heil- brigðisþjónustu þurfum við að tryggja það að fólk í heilbrigð- isstéttum sé metið að verðleikum. Til að ungt fólk hafi áhuga á að koma til starfa í heilbrigðiskerfinu og sinna veikum meðbræðrum sín- um þurfum við sem vinnum þar að muna eftir því jákvæða í vinnu okk- ar og það sem fær okkur til að starfa áfram. Við þurfum að kynna störf okkar sem eftirsóknarverð. Það er áhyggjuefni að ungt fólk ætl- ar ekki að starfa innan heilbrigð- iskerfisins í framtíðinni. Vissar for- sendur liggja alltaf að baki áliti fólks á eigin starfi. Því er nauðsynlegt að þeir aðilar sem skapa þær forsendur vandi til verka og hugsi ekki ein- göngu um skammtímagróða heldur ávöxtun auðs til framtíðar, eins og nýbygging Landspítalans ber með sér. Teningnum er kastað – nýtt Háskólasjúkrahús Gunnar Skúli Ármannsson skrifar um heilbrigðiskerfið og nýtt sjúkrahús » Það er ekki oft sem maður brosir allan hringinn þegar sýnt er fram á að maður hafi haft rangt fyrir sér. Gunnar Skúli Ármannsson Höfundur er læknir. ÉG er meistaranemi í þróun- arfræðum við félagsvísindadeild Háskóla Íslands, á heimasíðu Há- skóla Íslands er eftirfarandi ritað um námið: MA-námi í þróun- arfræðum (60e) er ætlað að veita nem- endum fræðilega, hagnýta og að- ferðafræðilega þekk- ingu til að takast á við viðfangsefni á sviði þróunarmála, jafnframt því að und- irbúa þá undir rann- sóknarvinnu. Sam- hliða náminu hef ég verið í ýmsum fé- lagsstörfum innan Háskóla Íslands, má þar helst nefna; for- maður Samfélagsins, félags diplóma-, meistara- og dokt- orsnema félagsvís- indadeildar HÍ, 2006- 2007, fulltrúi Vöku í stjórn stúdentaráðs HÍ, fulltrúi í jafnrétt- isnefnd stúdentaráðs, fulltrúi í alþjóða- og jafnréttisnefnd Vöku, fulltrúi í gæðanefnd háskólaráðs og rit- stjórn Stúdentablaðs- ins 2006-2007. Einnig hef ég unnið með meistaranáminu hjá Rauða krossi Íslands, aðstoðað fjölfatlaðan nemanda með heimanám og lesið yfir fræðigrein- ar hjá Kristínu Loftsdóttur, dósent við mannfræðiskor HÍ. Í aðdraganda seinustu kosninga til stúdentaráðs Háskóla Íslands setti Röskva, samtök félagshyggju- fólks, inn tilkynningu í Morg- unblaðið þar sem þau gagnrýndu mig persónulega fyrir úttekt sem alþjóða- og jafnréttisnefnd Vöku stóð fyrir um aðgengi fatlaðra í fimm helstu byggingum Háskóla Íslands. Þar segir meðal annars: Það er því í hæsta máta undarlegt að Fjóla Einarsdóttir, fulltrúi Vöku, skuli ráðast í úttekt á að- gengi fatlaðra upp á eigin spýtur, vitandi það að Háskólinn sjálfur muni kosta slíka úttekt aðeins mánuði seinna. Jafnframt vakna spurningar um hæfni hennar til að gera slíka úttekt á vísindalegan og gagnlegan hátt. Yfirlýsinguna frá Röskvu má sjá í heild sinni á bls. 9 í Morgunblaðinu 4. febrúar 2007. Ég var að vonum mjög slegin við að fá svona persónulega árás á mig þar sem ég vann að þessari úttekt með sex manna nefnd, fannst undarlegt af hverju ég var tekin út og gagnrýnd harðlega op- inberlega. Þetta var einnig und- arleg yfirlýsing í ljósi þess að ekki var búið að birta skýrslu nefnd- arinnar um úttektina og hafði Röskva þar af leiðandi ekki vitneskju um umfang hennar. Það sem sló mig þó mest var að með því að efast um hæfni manneskju til þess að gera úttekt um að- gengi fatlaðra (sem var gerð í samstarfi við fatlaða ein- staklinga) á vísinda- legan og gagnlegan hátt sem er að ljúka námi sem á undirbúa fólk undir rannsókn- arvinnu er ákveðin vantraustsyfirlýsing á rannsóknartengt meistaranám við Há- skóla Íslands. Helstu ástæður þess að ég skrifa þessa grein er að ég vil hreinsa mannorð mitt af þess- um efasemdum Röskvu um hæfni mína sem rannsak- anda. Mér finnst það mikilvægt sökum þess að ég er að skila af mér 25 eininga rann- sóknarverkefni 25. apríl næstkomandi sem fjallar um götubörnin í Windhoek, höfuðborg Namibíu. Ég hef unnið hörðum höndum að þessu verkefni, á vís- indalegan og að ég tel gagnlegan hátt, samkvæmt viðurkenndum reglum eigindlegra rannsókn- araðferða undir handleiðslu dr. Jónínu Einarsdóttur, dósents við mannfræðiskor Háskóla Íslands. Ég efast um að kennarar mínir vilji að nemendur þeirra sem vinna að ársrannsóknarverkefni séu yf- irlýstir opinberlega vanhæfir um að gera tveggja tíma úttekt á vís- indalegan eða gagnlegan hátt, sem gerð var í samstarfi við eitt stykki nefnd í þokkabót. Ég vona að með þessari grein hafi ég útskýrt mál mitt og vonandi hreinsað mannorð mitt af þessum ásökunum Röskvu – sem eins og fram hefur komið ég leit á sem persónulega árás og op- inbera niðurlægingu. Svar við persónulegri árás Fjóla Einarsdóttir svarar persónulegum árásum Röskvu Fjóla Einarsdóttir »Helstu ástæður þess að ég skrifa þessa grein er að ég vil hreinsa mannorð mitt af þessum efa- semdum Röskvu um hæfni mína sem rannsakanda. Höfundur er meistaranemi í þróun- arfræðum við Háskóla Íslands. ÞINGFLOKKUR Sjálfstæð- isflokksins er gripinn tauga- veiklun sem verður ekki skýrð á annan veg en að skjólstæðingar flokksins í fjármálalífinu óttist um sinn hag. Í fjölmiðlum og á þingi tala þingmenn einka- framtaksins kinnroðalaust fyrir pilsfaldakapítalisma. Upphlaup þigmannanna kemur í kjölfar kröfu bankamanna um að lífeyr- issjóðirnir hætti sparnaði launa- fólks í bankahítina. Fjármálafurstarnir vilja að almenningur borgi fyrir fíflsku peningaaðalsins. Áður en Sjálfstæðisflokkurinn ákveður að veita almannafé til bjargar fjármálastofnunum ættu þeir að íhuga íhaldssöm grunngildi eins og ráðdeild og sjálfsbjörg. Ráðdeild er að eyða ekki um efni fram og hafa borð fyrir báru. Sjálfsbjörg lærist á því að bjarga sér á eigin efnum. Íslensku bankarnir eru rúnir trausti erlendis og búa við erfið lánskjör. Bankarnir geta engum nema sjálfum sér kennt um ófarirnar. Þeir sýndu ekki ráð- deild en fá nú tækifæri til að læra sjálfsbjörg. Þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins ættu ekki að fikta við siða- lögmál sem eru undirstaða flokksins. Stjórnmálaflokkar geta staðið af sér fjármálakreppu en ekki siðferðilegt skipbrot. Páll Vilhjálmsson Ráðdeild og sjálfsbjörg Höfundur er blaðamaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.