Morgunblaðið - 01.03.2008, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 47
Albert
Sigurðsson
gsm: 898 3868
Agnar
Agnarsson
gsm: 820 1002
Ísak V.
Jóhannsson
gsm: 822 5588
Lóðir í Suður-Englandi og
hótelíbúðir í Kaupmannahöfn
Laugardaginn 1. mars nk. milli kl. 14-18 kynnir Stórhús fasteignasala í samvinnu
við Scala Landgroup áhugaverða fjárfestingarkosti sem fela í sér kaup á óskipulögðum
lóðum í s-Englandi. Lóðarverð getur fjórfaldast þegar byggingarleyfi fæst. Nú gefst öllum
tækifæri til að kaupa óskipulagt land og fá þann hagnað sem áður hefur aðeins staðið
stórum fjárfestum til boða. Búið er að forkanna landið og liggja ítarleg gögn þess efnis
fyrir á fundinum.
Stórhús mun einnig kynna í samvinnu við Friis og Söborg hótelíbúðir (íbúðir án búsetu-
skyldu) á frábærum stað í Kaupmannahöfn. Tom Söborg og Greg Baker munu halda
kynningar.
Kynningin verður haldin á Hótel Hilton, Suðurlandsbraut 2, í sal E.
Á meðan kynningu stendur verða sérstök kjör í boði.
Nánari upplýsingar veittar hjá Stórhús sími 534 2000
storhus@storhus.is – www.storhus.is
Kynning á Hótel Hilton laugardaginn 1. mars
Hrafnhildur Bridde löggiltur fasteignasali – Sigurberg Guðjónsson hdl.
HLUSTENDUR Ríkisútvarpsins
hafa eflaust tekið eftir því að dag-
skráin í gær var með óhefð-
bundnu sniði. Ákveðið var í tilefni
hlaupársdagsins, 29. febrúar, að
rugla saman rásunum tveimur og
þannig sáu dagskrárgerðarmenn
Rásar 2 um þætti Rásar 1 og öf-
ugt.
Ágúst Bogason, gítarleikari og
dagskrágerðarmaður á Rás 2, brá
sér í nýtt hlutverk í gær þegar
hann vaknaði eldsnemma um
morguninn til þess að sjá um
Morgunvaktina á Rás 1.
„Ég man ekki hvenær ég vakn-
aði síðast svona snemma, það hef-
ur örugglega verið til þess að
mæta í flug, en núna vaknaði ég
til þess að fara í vinnuna,“ sagði
Ágúst þreytulegur. „Þetta var að-
eins öðruvísi en Popplandið en
samt mjög skemmtilegt, meiri
undirbúningur og alvarlegri um-
fjallanir.“ Ágúst sagðist þó vera
feginn að hlaupár bæri aðeins upp
á fjögra ára fresti.
Þau Ævar Kjartansson, Hanna
G. Sigurðardóttir, Svanhildur Jak-
obsdóttir og Gunnar Stefánsson af
Rás 1 höfðu umsjón með Popp-
landi í gær. Um morguninn kynnti
svo Ólafur Páll Gunnarsson lögin í
Óskastundinni, sem venjulega er
undir stjórn Gerðar G. Bjarklind.
Rokkari á
Morgunvaktinni
Morgunblaðið/G.Rúnar
Árrisull Ágúst Bogason
vaknaði fyrr en flestir Ís-
lendingar í gærmorgun.
Starfsmenn Rásar
1 og 2 rásuðu á
milli stöðva í
tilefni hlaupárs-
dags í gær
- kemur þér við
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Samfylkingarfólk vill
að Össur bloggi varlega
Lúðvík Gizurarsyni
fannst þungur kross
að vera launsonur
Jón Svavar Jósefsson
sýnir í myndaalbúmið
Óttarr Proppé langar
að verða geimfari
Gunnar I. Birgisson
klifraði upp háspenn-
umöstur
Illugi Jökulsson vill
ekki fleiri meiðyrðamál