Morgunblaðið - 01.03.2008, Page 56
LAUGARDAGUR 1. MARS 61. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Uppsagnir hjá DeCode
Íslensk erfðagreining hefur sagt
upp um 60 starfsmönnum. Uppsagn-
irnar eru liður í aðhaldsaðgerðum og
hafa sumir starfsmennirnir þegar
látið af störfum, en eftir uppsagn-
irnar starfa um 390 manns hjá fyrir-
tækinu. » Forsíða
Bændur bregða búi
Flótti er brostinn á í röðum bænda
vegna mikilla hækkana á aðföngum
undanfarin tvö ár. » Forsíða
Sérstök öryggisfylgd
Öryggisskjöl utanríkisráðuneyt-
isins verða flutt til skráningar á Ísa-
firði í vor og verður ströng örygg-
isgæsla viðhöfð, en að lokinni
skráningu verða skjölin flutt aftur til
Reykjavíkur. » 2
Krónan hindrun
Eitt helsta vandamál íslensks fjár-
málamarkaðar er að ekki hefur tek-
ist að laða að erlenda langtíma-
fjárfesta og augljós hindrun er
íslenska krónan. » 4
SKOÐANIR»
Staksteinar: Morgunblaðið,
umhverfið og ál
Forystugreinar: Uppsagnir |
Samráð við Reykvíkinga
UMRÆÐAN»
Eldvarnir í Hvalfjarðargöngum
Svar við persónulegri árás
Ráðdeild og sjálfsbjörg
Íslenskir bautasteinar
Lesbók: Listasafn Íslands
Ást, friður, frelsi og hamingja ’67
Börn: Frábær verðlaunasaga
Sögubíllinn Æringi frumsýndur
LESBÓK | BÖRN»
4&
'4
4
4 4 4 4
4&
''4 5 $6!( /
!, $
7 %
%!!'"! /#! 4 4'
4 4 4
4'
4
''4
'4' . 82 ( 4'
4 4& 4
4 4'
9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(8!8=EA<
A:=(8!8=EA<
(FA(8!8=EA<
(3>((A"!G=<A8>
H<B<A(8?!H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast 0 °C | Kaldast -8 °C
Norðaustanátt,
víða 5-10 metrar á sek-
úndu en hægari suð-
vestan til. Skýjað og
stöku él. » 10
TÖLVULEIKIR»
Stríðið hefst
um helgina
Menn verja verð-
mæt landssvæði með
kjafti og klóm í Eve
Online. Aðeins einn
stendur uppi þegar
yfir lýkur. » 50
FÓLK»
Nútímaútgáfa af Marilyn
Monroe? » 49
Er líf eftir Laug-
ardagslögin? Ým-
islegt er hægt að
gera þegar sjón-
varpsdagskráin
bregst. » 51
SJÓNVARP»
Stjörnur og
skautar
TÓNLIST»
Hjálmar eru í frístunda-
fíling í stúdíóinu. » 53
TÓNLIST»
Brit-verðlaun gætu verið
á næsta leiti. » 49
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Piltur látinn eftir umferðarslys
2. Ásdís Rán gæti unnið tugi millj.
3. Fyrirsæta fannst látin í Signu
4. Baltasar: Getur breytt öllu
Íslenska krónan styrktist um 0,7%
ÍSLENSKA
skjaldarmerkið er í
forgrunni vegg-
spjalds Vífilfells
sem ætlað er að
auglýsa sérkjör á
krám í Reykjavík í
tilefni af því að í
dag eru 19 ár liðin
frá lögleiðingu
bjórsins. Að vísu er
um afbökun á ríkisskjaldarmerkinu
að ræða þar sem landvættirnar fjórar
sjást með ölkrús í hönd. Í 12. grein
laga um ríkisskjaldarmerkið segir að
skjaldarmerki Íslands sé auðkenni
stjórnvalda ríkisins og að notkun á
því sé þeim einum heimil. Snorri
Jónsson hjá auglýsingastofunni Vat-
íkaninu sem hannaði veggspjaldið
segir að þar hafi menn ekki leitt hug-
ann að lögum um skjaldarmerkið
þegar auglýsingin var gerð en það
hafi alls ekki verið gert í þeim tilgangi
að brjóta lög. Sé umrædd auglýsing
brot á lögum um ríkisskjaldarmerkið
gætu lög um þjóðfána Íslands einnig
átt við þar sem fánann er að finna á
sjálfu skjaldarmerkinu en í fánalög-
um segir að enginn megi óvirða þjóð-
fánann í verki. Þá gæti veggspjaldið
brotið gegn áfengislögum því bannað
sé að sýna neyslu áfengis í auglýs-
ingum. | 46
Ölglaðar
landvættir í
auglýsingu
Við skál Hluti
veggspjaldsins.
LÁGMARKSLAUN ættu að vera
218 þúsund krónur á mánuði, sam-
kvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Að með-
altali telja konur að launin ættu að
vera 224 þúsund en meðaltal álits
karla er 211 þúsund krónur á mánuði.
35% landsmanna sögðu að lág-
markslaunin ættu að vera 200 þúsund
krónur, 19% sögðu að þau ættu að
vera 250 þúsund og nær 28% sögðu
að þau ættu að vera 190 þúsund eða
hærri. 14% töldu að þau ættu að vera
hærri en 275 þúsund og 13% sögðu að
þau ættu að vera 150 þúsund eða
lægri. 97% voru sammála því að lögð
yrði áhersla á hækkun lægstu launa.
64% svarenda voru andvíg verk-
fallsboðun en 28% hlynnt. Stuðningur
við verkfall er mestur hjá félags-
mönnum Starfsgreinasambandsins
eða 37%, 35% hjá BHM og BSRB og
23% hjá KÍ.
Niðurstöðurnar eru úr símakönn-
un sem Capacent Gallup gerði 15. til
26. febrúar. Svarhlutfall var nær 61%
og úrtaksstærð 1.573 manns.
Lágmarks-
laun verði
218 þúsund
„ÉG er sprelllifandi og þetta ævintýri með myndina
hefur verið stórskemmtilegt,“ segir Kanadabúinn
Ninalee A. Craig sem er kunn sem fyrirsætan á einni
kunnustu ljósmynd 20. aldar, Bandarísk stúlka á Ítalíu,
eftir Ruth Orkin, frá 1951. Hér er hún á Austurvelli en
á myndinni frægu er hún 23 ára gömul og hópur karla
starir á hana og blístrar. Craig segir myndina hafa ver-
ið notaða til að sýna áreiti sem konur verða fyrir. „En
ég skemmti mér þó konunglega,“ segir Craig sem kem-
ur árlega hingað til lands og nýtur vetrarins. | 28
Stórskemmtilegt ævintýri
Lenti fyrir 57 árum á einni kunnustu ljósmynd 20. aldar
Morgunblaðið/RAX
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
VÍSINDAMENN við Uppsalahá-
skóla í Svíþjóð hafa birt niðurstöður
nýrra rannsókna er varða uppruna
taminna hænsna og þeirra á meðal
íslensku landnámshænsnanna. Nið-
urstöðurnar voru birtar í gær á
vefsíðu vísindatímaritsins PLoS
Genetics.
Rannsóknarvinnan er ekki síst
mikilvæg fyrir þá staðreynd að hún
kollvarpar kenningu Charles Darw-
ins um uppruna taminna hænsna,
en Darwin hélt því fram að uppruni
þeirra væri fremur einfaldur, þ.e.
að þau væru komin af rauðum villi-
hænsnum (l. Gallus gallus).
Vísindamennirnir frá Uppsalahá-
skóla hafa nú afsannað þá kenningu
og sýnt fram á að þó hænsnin séu
vissulega að mestum hluta komin af
rauðu villihænsnunum þá hafi
snemma átt sér stað kynblöndun.
Kynblöndunina röktu vísinda-
mennirnir með því að bera kennsl á
genið sem veldur gulum fótalit tam-
inna hænsna. Þetta gen var svo
rakið til leppahænsna (l. Gallus
sonneratii) og því þykir sýnt að
landnámshænan á sér uppruna í að
minnsta kosti tveimur tegundum
hænsna. „Við vitum ekki hvers
vegna maðurinn valdi að temja ein-
mitt þessa gerð hænsna. Kannski
að hænsn með gula fætur hafi þótt
vera hraustari eða frjósamari. Ef til
vill hafa þau bara heillað menn
vegna þessa útlitseinkennis,“ segir
prófessor Leif Andersson sem
stýrði rannsóknarverkefninu.
Fjallað er um niðurstöðurnar
m.a. á vefnum Telegraph.co.uk og
situr þar fyrir sem afbragðsdæmi
um tamda hænu landnámshænan
Dröfn á Brandshúsum í Flóa.
Kenning Darwins felld?
Uppruni taminna hænsna, þ.á m. íslensku landnámshænsn-
anna, er mun flóknari en vísindamenn hafa talið hingað til
Í HNOTSKURN
»Guli liturinn í hænum á samauppruna og t.d. bleiki liturinn
í laxi.
»Genið sem fannst skráir fyrirensími sem brýtur niður lit-
inn, það er ekki virkt í húð
hænsna og því eru fæturnir gulir.
»Niðurstöðurnar birtust á vefvísindatímaritsins PLoS
Genetics. Flóknar Landnámshænur á ferð.
♦♦♦