Morgunblaðið - 16.03.2008, Page 2
2 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
flugfelag.is
Ferðalag er góð
fermingargjöf
Pantaðu gjafabréf
í síma 570 3030
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
TUGIR aðila hafa þegar fengið lóðir
úthlutaðar í Vatnsendahlíð og greitt
fyrir þær sem svarar tíunda hluta af
lóðaverði, fyrir alls að minnsta kosti
á annað hundrað milljónir króna.
Umhverfisráðuneytið hefur synj-
að tillögu um staðfestingu á svæð-
isskipulagi Kópavogs við Vatnsenda-
hlíð, en í desember barst ráðuneyt-
inu umsögn Skipulagsstofnunar þar
sem lagst er gegn tillögu Kópavogs-
bæjar að breyting á svæðisskipulagi
Kópavogs varðandi Vatnsendahlíð
verði staðfest sem óveruleg.
Aðspurður hvaða áhrif úrskurður
ráðuneytisins muni hafa á fram-
kvæmdaferlið segist Geir Arnar
Marelsson, skrifstofustjóri fram-
kvæmda- og tæknisviðs Kópavogs-
bæjar, vænta þess að lóðirnar verði
afhentar í lok ársins og tekur fram
að þeim hafi verið úthlutað með fyr-
irvara um samþykkt skipulags.
Lóðirnar sem um ræðir voru aug-
lýstar í haust og úthlutað í nóvem-
ber. Geir segist ekki hafa tölu um-
sækjenda á hraðbergi en segir ljóst
að hér ræði um tugi manna og að því
megi varlega áætla að þeir hafi þeg-
ar greitt samtals yfir eitt hundrað
milljónir króna í staðfestingargjöld.
„Í rauninni tel ég að þetta komi
ekki til með að hafa nein áhrif á af-
hendingu lóða. Þetta þýðir að nú fer
fram ýtarlegri kynning, sem tekur
nokkrar vikur,“ segir Geir.
„Þetta er munur á afgreiðsluferli á
svæðisskipulagi. Við hjá Kópa-
vogsbæ vildum fara með þetta inn
sem óverulega breytingu og öll sveit-
arfélögin á höfuðborgarsvæðinu
samþykktu það í nóvember.
Fari svo að verði einhver dráttur á
afhendingu, sem ég tel afar ólíklegt,
má rekja það til þess að afgreiðslan
af hálfu umhverfisráðherra hefur
tekið hátt í fjóra mánuði.“
Þegar búið að úthluta lóðum
Kópavogsbær úthlutaði lóðum í Vatnsendahlíð í haust Kosta frá 13 milljónum
Bærinn telur ekki að synjun á staðfestingu skipulags hafi áhrif á afhendingu lóða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í HNOTSKURN
»Þegar hefur verið gengið frástaðfestingargjöldum vegna
umsókna um lóðir í Vatns-
endahlíð.
»Lóðarverðið er frá þrettánmilljónum króna, en það fer
eftir stærð lóðareitanna sem í
boði voru.
»Lóðirnar eru fyrst og fremsthugsaðar fyrir íbúða-
húsnæði.Dýrmætt Vatnsendalandið úr lofti .
Á SJÖUNDA tug manna úr björg-
unarsveitum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og Landhelgisgæsl-
unnar, auk sérfræðinga úr grein-
ingarsveit Landspítalans, æfðu í
gær viðbrögð við snjóflóði sem sett
var á svið með leikurum fyrir ofan
Sandskeið.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar
tóku þátt í æfingunni en þær flugu
yfir svæðið með nýjan búnað sem
ætlað er að nema boð frá svoköll-
uðum snjóflóðaýlum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg
færði Landhelgisgæslunni bún-
aðinn að gjöf í tilefni af 80 ára af-
mæli félagsins fyrir skömmu.
Búnaðurinn er nýr af nálinni og
einn sá fullkomnasti sem til er í
heiminum í dag, en hann staðsetur
gróflega fólk í flóðinu.
„Sjúklingarnir“ voru tíu talsins,
en þeir voru fluttir með þyrlu í
greiningarbúðir í nágrenninu og
þaðan á sjúkrahús í Reykjavík.
Vonast er til að búnaðurinn efli
leit og björgun úr snjóflóðum.
Morgunblaðið/Eggert
Á fjölmennri æfingu Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-1, flýgur yfir æfingasvæðið fyrir ofan Sandskeið í gær.
Leituðu
fórnarlamba
„snjóflóðs“
Björgunarsveitirnar prófuðu nýjan búnað á fjölmennri æfingu
LÖGREGLUFÉLAG Reykjavíkur
hefur mótmælt þeirri skerðingu sem
orðið hefur á löggæslu við samein-
ingu embættanna á höfuðborg-
arsvæðinu. Þeir Óskar Sigurpálsson,
formaður LR, og Karl Jóhann Sig-
urðsson, varaformaður, funduðu um
þessi mál með Birni Bjarnasyni
dómsmálaráðherra fyrir hönd lög-
reglumanna á föstudag.
Á heimasíðu LR segir að Birni
hafi verið gerð grein fyrir því að lög-
reglumenn skorti í nánast allar
deildir en þó sérstaklega í almenna
deild. Fjöldi lögreglumanna þar sé
nú sá sami og hann var í Reykjavík
einni fyrir sameiningu, sem dragi úr
öryggi borgara og lögreglumanna.
Einnig var komið á framfæri mót-
mælum við ráðherra vegna upp-
sagnar lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu á samkomulagi við
hundaþjálfara en Björn sagði um
skipulagsbreytingu vera að ræða hjá
lögreglu og tollgæslu.
Lögreglumennirnir lýstu einnig
furðu sinni á því að lögreglustöðinni
við Hverfisgötu hefði verið lokað
fyrir almenning á kvöldin, næturnar
og um helgar. Þá sögðu þeir ým-
islegt benda til að fæstir þeirra
nema sem nú eru í Lögregluskól-
anum myndu fá vinnu að loknu námi.
Haft er eftir Birni, að honum sé
kunnugt um þetta og verið sé að
skoða málið.
Nýfallinn dómur Héraðsdóms
Reykjavíkur vegna árásar hóps
manna á lögreglumenn að störfum
kom til tals á fundinum. „Voru allir
sammála um að niðurstaðan væri
ekki í samræmi við þær breytingar
sem dómsmálaráðherra beitti sér
fyrir að gerðar voru á 106. gr. hegn-
ingarlaga,“ segir á heimasíðu Lög-
reglufélags Reykjavíkur.
Mótmæla
skerðingu á
löggæslu
Morgunblaðið/Júlíus
Þjálfun Fíkniefnahundar lögreglu
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
Í ÁLITI Skipulagsstofnunar, frá 4.
október sl., um mat á umhverfis-
áhrifum vegna álvers í Helguvík er
fólgin ákvörðun, sem sætir kæru til
umhverfisráðuneytisins, þótt álitið
sem slíkt sæti ekki kæru. Þetta segir
Bergur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Landverndar. Enn fremur tel-
ur Bergur það mikinn misskilning
hjá forsvarsmönnum Norðuráls, sem
fram hafi komið í Morgunblaðinu á
föstudag, að kæran hafi engin áhrif á
útgáfu framkvæmdaleyfis.
Krafan sem sett er fram í kæru
Landverndar er að „álit Skipulags-
stofnunar verði ógilt og að fram fari
lögformlegt umhverfismat á fram-
kvæmdunum í heild sinni, …“
„Óheimilt er að gefa út fram-
kvæmdaleyfi nema álit Skipulags-
stofnunar liggi fyrir. Álitið liggur
fyrir og því var e.t.v. heimilt að gefa
leyfið út, þó það sé reyndar vond
stjórnsýsla. Fallist ráðherra hins
vegar á kröfu Landverndar og ógildi
álitið sem hefur að geyma hina
kærðu ákvörðun eru forsendur út-
gáfunnar brostnar,“ segir Bergur.
Umhverfisráðuneytið hefur þegar
komist að þeirri niðurstöðu að í áliti
Skipulagsstofnunar hafi falist
ákvörðun í skilningi 2. mgr. 5. gr.
laga um mat á umhverfisáhrifum, en
slíkar ákvarðanir eru kæranlegar,
þótt álitið sé það ekki. Því verður
kæran tekin til efnislegrar meðferð-
ar, eins og fram kemur í bréfi ráðu-
neytisins til Reykjanesbæjar, dag-
settu 22. nóvember 2007.
Ekki rétt að kæra Land-
verndar hafi engin áhrif
Í HNOTSKURN
»Álit Skipulagsstofnunar sætaekki kæru til ráðuneytis.
»Hins vegar var í álitinu semum ræðir ákvörðun, kær-
anleg skv. 2. mgr. 5. gr. laga um
mat á umhverfisáhrifum.
Verðmætt en umdeilt Ál er ein
helsta útflutningsafurð Íslendinga.