Morgunblaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
5.
V
íst er það, að hvert mannsnafn
verður útmáð fyrr eða síðar.
Og að sama skapi ljóst er það,
að mannlegri leit eru takmörk
sett. Hver spurning dauðlegs
manns rekst að lyktum á sama kalda þagn-
armúr, sem engin mannleg þrá, þörf eða
megn getur rofið.
Samt heldur mannshugurinn áfram að
spyrja og leita. Getur ekki annað á meðan
hann verður ekki viðskila við eðli sitt eða
kemst í algera mótsögn við sjálfan sig.
Hann hlýtur að spyrja:
Eru hinar bláköldu staðreyndir sannleik-
urinn allur?
Eru mannlegar niðurstöður endanlegar,
mannlegt mat og réttvísi hinsta úrskurð-
arvald?
Er ekki eitthvað handan kalda þagnar-
múrsins, þar sem allt tímanlegt strandar,
brestur og tapast?
Er ekki einhver, sem endurskoðar, sér og
skilur alla málavexti, metur og dæmir af
fullum skilningi, á alveg sönnum for-
sendum?
Er ekki einhver á bak við hjartaslögin í
barminum, sem les í það hljóða mál, sem
þar er tjáð og oft er að segja miklu meira
en orð tungunnar geta ráðið við?
Ýmsir láta mikið yfir því, að þeir séu yfir
það hafnir að spyrja slíkra spurninga, hvað
þá að virða einhvers nærtæk svör við þeim,
sem óneitanlega hafa veitt hugsandi mönn-
um fyrr og síðar ómælda fullnægju.
Ég skrifaði fyrir skemmstu hér, að allir
menn, hvernig sem þeir eru á sig komnir
eða staddir, ættu sama skapara og ég.
Þetta er mín kristna trú.
Aðrir telja sig vita betur: Við eigum eng-
an skapara.
Öll þessi nöfn, öll þessi augu, öll þessi
andlit eru aðeins myndbrigði á skýi, sem
hrekst fyrir dauðri vindstroku úr einni
markleysu í aðra.
Þetta er þeirra trú.
Ekki efast ég um, að það getur verið
heiðarlegt trúarviðhorf.
En hitt er óverjandi grunnfærni eða
óheiðarleg fölsun að sjá ekki og kannast
ekki við það, að þetta viðhorf er trú, engan
veginn betur rökstudd en önnur trú, síður
en svo er hún byggð á vísindalegum rök-
semdum eða staðreyndum fram yfir það,
sem guðstrúarmenn styðjast við.
Allir ættu líka að vita, að með okkur öll-
um dylst sú hneigð að vilja flýja áleitnar
spurningar, sem gera vissar kröfur um við-
horf, um meðferð á sjálfum sér, um breytni
við aðra.
Og kannast ekki margir við innri rödd,
sem segir: Ég vil ekki láta flóknar spurn-
ingar vefjast fyrir mér og hindra mig í því
að njóta lífsins eins og mér þykir best.
HUGVEKJA
Sigurbjörn
Einarsson
Leit og svör
Eru mannlegar niðurstöður end-
anlegar, mannlegt mat og réttvísi
hinsta úrskurðarvald?
Er ekki eitthvað handan kalda
þagnarmúrsins, þar sem allt tímanlegt
strandar, brestur og tapast?
»
NÚ fer annatími í hönd hjá fíkniefnahundinum Aroni. Hann mun ásamt
húsbónda sínum, lögreglunni, hafa aukinn viðbúnað á Reykjavíkurflugvelli
og öðrum vöruflutningamiðstöðvum nú í aðdraganda páskahelgarinnar.
Morgunblaðið/Júlíus
Leita í aðdraganda páska
TÓLF mánaða verðbólga verður
8,5% í mars gangi spá greiningar-
deildar Landsbankans um 1,3%
hækkun vísitölu neysluverðs eftir. Í
febrúar var verðbólga 6,8% og hefur
hún ekki mælst jafnhá og greining-
ardeildin spáir síðan í ágúst 2006.
Í verðbólguspánni segir að í mars
detti út áhrif vegna lækkunar virð-
isaukaskatts í mars á síðasta ári en
jafnframt ráði sömu lykilatriði ferð-
inni og í febrúar, þ.e. hækkun á mat-
vöru, eldsneyti, bílum og fatnaði.
Hægja mun á hækkun fasteigna-
verðs en hún verður engu að síður
einhver að mati greiningardeildar
sem telur áhrif vaxtahækkana á hús-
næðislánum munu hafa meiri áhrif á
fasteignaliðinn en sjálf hækkun
markaðsverðs á fasteignum.
Verðbólga mun ná hámarki á
næstu mánuðum þegar grunnáhrif
lækkunar virðisaukaskatts á matvæli
hverfa alveg og veiking krónunnar
skilar sér inn í verðlagið. Verðbólgu-
horfur eru því slæmar að mati grein-
ingardeildar Landsbankans sem seg-
ir allt að 9% lækkun fasteignaverðs
mikilvæga forsendu fyrir lækkandi
verðbólgu á síðari hluta ársins.
Spá mikilli
hækkun
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi ályktun frá þingflokki
Vinstri grænna:
„Þingflokkur VG lýsir þungum
áhyggjum af ástandinu í heilbrigð-
iskerfinu og því upplausnarástandi
sem þar er að skapast vegna fram-
göngu heilbrigðisráðherra í skjóli
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Mikilvægustu heilbrigðisstofnunum
landsmanna er haldið í fjárhagslegri
spennitreyju, vinnuálag fer vaxandi
á þegar undirmönnuðum deildum,
vöktum er breytt í óþökk starfsfólks
og nú er hafin handahófskennd
einkavæðing einstakra þátta heil-
brigðisstarfseminnar eða heilla
deilda. Afleiðingar alls þessa birtast
nú m.a. í hópuppsögnum sem að
óbreyttu munu lama ómissandi
kjarnastarfsemi í heilbrigðisþjónust-
unni. Að lokum gefast stjórnendur
upp, fullsaddir af skeytingarleysi
heilbrigðisráðherra og hrokafullri
framkomu. Alvarlegra er þegar þeir
eru beinlínis hraktir úr starfi eins og
nú hefur gerst með æðstu stjórnend-
ur Landspítalans. Þingflokkur
Vinstrihreyfingarinnar græns fram-
boðs mun ganga eftir því að upplýst
verði um það mál. Á Alþingi brýtur
heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór
Þórðarson, í blað og hreinlega neitar
að standa fyrir máli sínu gagnvart
því hinu sama þjóðþingi og hann
sækir umboð sitt sem ráðherra til.
Með því er brotin stjórnskipuleg
grundvallarregla í þingræðisríki sem
aldrei má láta líðast. Haldi ráðherra
uppteknum hætti er engin spurning
hvort hlýtur að víkja, ráðherrann eða
þingræðið og heilbrigðiskerfið.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
mun ekki láta ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar komast
þegjandi og hljóðalaust upp með að
vinna óbætanleg skemmdarverk á
heilbrigðiskerfinu og flæma þaðan
burtu í stórum stíl mestu verðmæti
þess, starfsfólkið. Heilbrigðiskerfið
og mannauður þess er margfalt mik-
ilvægara en einn hrokafullur ráð-
herra, það er dýrmætara en heil rík-
isstjórn,“ segir í tilkynningunni.
VG segir upp-
lausnarástand í
heilbrigðiskerfinu
Segja æðstu stjórnendur hrakta úr starfi
FLUGVÉL af gerðinni
Beechcraft 350C með
skráningarnúmerið
N4466A millilenti á Kefla-
víkurflugvelli á föstudag.
Vélin er í eigu félagsins
Aviation Specialities Inc.
en í skýrslu Evrópuþings-
ins frá árinu 2006 segir að
það sé eitt leppfélaga
bandarísku leyniþjónust-
unnar, CIA, sem notuð
hafi verið til að flytja
fanga milli landa á ólögleg-
an hátt.
Flugvélin kom hingað frá Stav-
angri í Noregi, en þangað kom hún
frá Brno Turnay í Tékklandi. Að
sögn Friðþórs Eydals, upplýsinga-
fulltrúa Keflavíkurflugvallar, var
flugvélin í um klukkutíma á vell-
inum og tók eldsneyti. Tollverðir í
Keflavík fóru fóru að sögn um borð
í vélina og voru þar aðeins tveir
CIA-flugvél milli-
lenti í Keflavík
Morgunblaðið/Sverrir
Fangaflug Önnur vél CIA sem lent
hefur hér, talin tengjast fangaflugi.
flugmenn en engir farþegar. Flug-
vélin hélt héðan til Grænlands og
síðan til Bandaríkjanna. Norska
blaðið Aftenposten segir norska
stjórnmálamenn líta málið alvarleg-
um augum.
SEXTÍU og
fimm af 254 öku-
tækjum mældust
á of miklum
hraða í íbúðar-
götum í Hafnar-
firði á fimmtudag
og föstudag.
Myndað var við
tvo staði á Ás-
braut, þar sem er 50 km hámarks-
hraði. Við leikskólann Stekkjarás
ók 41% ökumanna of hratt, á með-
alhraðanum 68 km. Sá sem hraðast
ók mældist á 84 km hraða en mælt
var í eina klukkustund. Á hinum
staðnum, milli Goða- og Vörðutorgs
óku 12% ökumanna of hratt fyrir
hádegi, meðalhraði þeirra var 64
km/klst.
Í Hlíðarbergi við Setbergsskóla
óku 33 of hratt, eða 30% ökumanna
eftir hádegi á föstudag. Meðalhraði
hinna brotlegu var 44 km/ klst en
hámarkshraði í götunni er 30. Mesti
hraðinn mældist 52 km/klst.
Við ofangreinda staði kom lög-
reglan fyrir ómerktri lögreglubif-
reið sem er búin myndavélabúnaði.
Á vef lögreglunnar kemur fram að
notkun slíks búnaðar hafi reynst
gefa gagnlegar upplýsingar um
ástand umferðarmála.
Fjórðungur
ók of hratt