Morgunblaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 28
10 ára afmæli mbl.is
28 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Miðill augnabliksins
„Á blogginu sér maður hinar smáu gárur þjóðfélagsins blika,“ segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og
Egill Helgason, fjölmiðlamaður og fréttaskýrandi, segir bloggið hafa flesta kosti nokkuð opins lýðræðis.
Dagur Gunnarsson ræddi við tvo landsfræga og á stundum umdeilda bloggara.
Fjölmiðlamanninn ogfréttaskýrandann EgilHelgason er óþarft aðkynna, fyrir utan sjón-
varpsþættina sína er hann líka vel
þekktur ofurbloggari. „Þetta er
náttúrulega ótrúlega mikil bylting
í fjölmiðlun,“ segir Egill um blogg-
ið og heldur áfram: „Umræðan
verður mjög hröð, dálítið skræk
og dálítið hysterísk á köflum og
ekkert mjög yfirveguð en hins
vegar þarf ekki meira til að úti-
loka þennan heim en að kveikja
ekki á tölvunni. Það getur dunið
yfir þig einhver haturs-, heiftar-
og reiðialda en hún getur samt
ekki verið merkilegri en það að ef
þú gleymir að kveikja á tölvunni í
tvo daga þá getur hún farið alger-
lega framhjá þér,“ sagði Egill.
Máttur bloggsins er mikill
Egill fullyrðir án nokkurra efa-
semda að nú sé áhrifameira að
skrifa á vefinn en að skrifa í blöð.
„Ég hef líka heyrt það frá mörg-
um að útbreitt blogg sé áhrifa-
meira en aðsend grein í Mogg-
anum. Áhrif bloggsins eru ómæld
og ég hef fundið það sjálfur að
þegar ég hef verið að skrifa grein-
ar um pólitík í tímarit fæ ég aldrei
nein viðbrögð á það. Annað hvort
les það ekki nokkur maður eða þá
að menn lesa það allt öðruvísi. Svo
skrifar maður eitthvað umdeilt á
bloggið og maður er undir eins
kominn með hálfan bæinn á móti
sér … eða manni finnst það vera
hálfur bærinn því þetta er kannski
hávær og frekur hópur sem maður
fær yfir sig,“ segir Egill og kímir.
„Í borgarstjóraslagnum sáum við
til dæmis hvað þetta er dásamlega
hraðvirkur miðill. Það er búið að
túlka atburðina fram og til baka,
teygja þá á bæði borð örfáum
klukkutímum eftir að þeir gerast
og það er náttúrulega mikil nýj-
ung í hinum pólitíska veruleika.“
Hættulegt fyrir fljótfæra menn
Egill er ekki í nokkrum vafa um
að bloggið sé hættulegt. „Ég er
stundum svolítið fljótfær og þetta
er hættulegur miðill fyrir fljót-
færa menn … en það er partur af
leiknum. Maður skrifar einhverja
vitleysu og sendir hana frá sér,
maður verður bara að lifa með því
eða þá einhvern veginn að reyna
að draga í land á næstu dögum
svona hægt og bítandi. Nú eða þá
að standa fastur á vitleysunni, það
er líka hægt. Ég er ekkert stoltur
af öllu sem ég hef sett á netið,“
sagði Egill. Getur hann nefnt ein-
hver dæmi?
„Jaaaaah, ég skrifaði einhverja
þvælu um Halldór Laxness fyrir
einhverjum árum sem var svona á
grensunni. Það er nokkuð sem við
skulum segja að ég myndi ekki
vilja fá útgefið í eitthvert ritsafn.
Svo skrifaði ég einu sinni ein-
hverjar svívirðingar um einhvern
lögfræðing úti í bæ sem fór í taug-
arnar á mér en annars hef ég allt-
af reynt að forðast það að vera
persónulega rætinn. Menn sem eru
það, dæma sig sjálfir úr leik og
detta fljótt útbyrðis,“ sagði Egill.
Bloggið styður
sjónvarpsþættina
Egill segist vera svolítið mont-
inn af því að vera einn af þeim
sem tengdu saman sjónvarpið við
Að tala er silfur –
að blogga er gull
Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson
Egill Helgason „Áhrifameira að skrifa á vefinn heldur en að skrifa í blöð.“
» Skuggahliðarnar eru
svo þessi hystería
sem grípur stundum um
sig á blogginu.
Össur Skarphéðinsson iðn-aðarráðherra er lands-frægur bloggari, hannsegist fá útrás fyrir sköp-
unarþörfina með því að blogga. „Ég
hef bara svo gaman af því að skrifa,
ég er eins og helmingur allra Íslend-
inga, falleraður rithöfundur og er til
dæmis ógurlega stoltur af því að hafa
einu sinni skrifað bók um urriða, urr-
iðadans, ástir og örlög stórurriðans í
Þingvallavatni. Það var eitt af því
skemmtilegasta sem ég hef gert,“
sagði Össur. Hann segist hafa tekið
upp á því að blogga þegar hann var
felldur sem formaður. „Þá átti ég
lausar stundir, ég var ekki í neinum
nefndum í þinginu og hafði tíma til að
lesa og hugsa,“ sagði Össur.
Leggur iðrin á borðið
„Þetta er sköpunarþörfin sem
brýst þarna fram hjá mér, ég finn í
þessu slökun og á blogginu er ég allt-
af með viðhorf og skoðanir og mitt
blogg er þannig að ég legg iðrin á
borðið, sem hefur verið mjög háska-
samt fyrir mig á stundum en ég
skrifa bara það sem mér finnst,“
sagði Össur.
Staldrarðu ekki við og hugsar þig
um tvisvar áður en þú sendir pistla í
loftið?
„Jú, það eru hér nokkrir pistlar í
tölvunni minni sem hafa aldrei birst.
Til dæmis þriðji pistillinn um Orku-
veitu Reykjavíkur og REI, hann var
aldrei sendur,“ sagði Össur og bætir
síðan við: „Einu sinni tók ég út pistil,
þar fjallaði ég um ungan stjórnmála-
mann sem var að gera sig breiðan á
þinginu, hann var í öðrum flokki en
ég sjálfur. Stundum tekst mér nefni-
lega mjög vel upp í því að vera háðsk-
ur og þetta var einn af þeim pistlum.
Ég setti hann inn korter fyrir eitt,
sem er snemmt fyrir mig, og fjörutíu
mínútum síðar kom bréf frá þessum
manni sem var helsár og ég hugsaði
með mér að ég væri ekki að þessu til
að særa ungt fólk og tók pistilinn út
og það er eini pistillinn sem ég hef
tekið út.
Sama markmið
og á Alþýðublaðinu?
Össur segist ekki velta því mikið
fyrir sér hversu margir lesi bloggið
hans eða hverjir það kunni að vera.
„Ég hef aldrei kannað lesendafjölda.
Mitt markmið er það sama og þegar
ég var ritstjóri Alþýðublaðsins sem
var blað sem hafði enga útbreiðslu.
Þeir sem lásu það var þröngur hópur
skoðanaleiðtoga í atvinnulífinu,
stjórnmálamenn og blaðamenn og
þannig komum við okkar skoðunum
á framfæri. Mér finnst einfaldlega
gaman að skrifa og leika mér með
orð,“ sagði Össur.
Bloggið er öflugt tæki
augnabliksins
Össur segir bloggið vera miðil
augnabliksins þar sem hægt sé að sjá
viðbrögð fólks við málefnum sem
snerta það djúpt, málefnum sem
vekja ástríðu af einhverju tagi. „Á
blogginu sér maður hinar smáu gár-
ur í þjóðfélaginu blika. Það sem mér
þykir merkilegt er að þarna kemst
maður að því hvernig fólk hugsar í
takt, menn eru yfirleitt að hugsa um
svipaða hluti. Mannssálin er svo svip-
uð sama hvaða holdi hún er klædd og
atburðir vekja oft svipaðar kenndir
hjá fólki, sagði Össur og bætir við:
„Stundum er hægt að hafa áhrif á
hluti ef maður kemur með meitlaða
og fleygaða skoðun nálægt upp-
tökum atburðarásarinnar. Þessi mið-
ill hefur það umfram dagblöð og jafn-
vel ljósvakamiðlana að þú getur gefið
frá þér kveinið eða fagnaðarópið um
leið og hlutirnir gerast og þá geturðu
stundum haft áhrif. Ekki svo að
skilja að það sé ætlun mín en ég bara
finn það,“ sagði Össur.
Litlir atburðir fá sitt vægi
„Það sem er jákvætt við frétta-
miðla á borð við mbl.is er að þar eru
komnar fréttir af atburðum um leið
og þeir gerast og fréttir sem eru
kannski ekkert stórvægilegar og
hefðu aldrei náð á helstu staði í dag-
blaði ná samt í sitt stutta augnablik
að vera efstar á mbl.is og að því leyti
lyftir mbl.is smáum atburðum sem
samt hafa sinn eigin þunga og verð-
skulda að lifa á forsíðu sitt stutta
augnablik. Hinn kosturinn er þessi
möguleiki á ítarefninu sem mbl.is
getur boðið upp á. Þegar upp koma
umdeildir hlutir í samfélaginu á borð
við úttektir og skýrslur, er hægt að
nálgast þær þar. Ég hef oft notfært
mér þetta sem þingmaður. Þá finn ég
skýrslurnar þar í stað þess að þurfa
að bíða, eins og jafnvel þingmenn í
framlínu þurfa oft að gera í einn eða
tvo daga,“ sagði Össur.
Umferðarreglur á blogginu
Össur segir að 90% af skrifum
hans séu lituð af hans pólitísku sýn
og að oft fái hann holskeflu af ill-
yrtum athugasemdum við sitt blogg.
„Menn leyfa sér alla andskotann á
netinu, þeir skrifa sumir hverjir
mjög illa og fá mikla útrás fyrir harð-
neskju og beiskju, finnst mér. Þeir
sem skrifa athugasemdir eru yfirleitt
andstæðir mér í pólitík og eru oft
mjög illyrtir. Ég vil ekki loka fyrir
Bloggið bjargaði hinu pólitíska lífi Össurar
Össur Skarphéðinsson „Það er auðvelt að koma hlutum á framfæri á
blogginu því þeir bergmála í öðrum miðlum.“
» Jafnvel þegar menn
saka mig um að sitja
drukkinn og blogga og
þaðan af verra læt ég
það standa .
Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson