Morgunblaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 37
ekki frá því að dvöl okkar hefði verið blessuð á einhvern hátt. Næstu daga dvaldi ég í Tel Avív þar sem ég gekk um borgina áður en ég hélt til kvöld- verðar á litlum veitingastað á hlið- argötu við Carmel-markaðinn. Aldr- aðir fastagestir heilsuðu mér hlýlega og fátt virtist taka breytingum dag frá degi í lífi hins vatnspípureykj- andi eiganda og rólyndra gesta hans. En á síðdegisgöngum mínum gegn- um mannmergð þessa vinsæla markaðar vissi ég ekki að ári áður hafði palestínskur táningur úr flóttamannabúðum nálægt Nablus sprengt sig í loft upp og drepið þrjá auk þess að særa yfir þrjátíu manns. En ólíkt Jerúsalem var andrúms- loftið líkara og í hverri annarri vest- rænni stórborg og að undanskildu hinu áberandi starfi öryggisvarða sem þiggja laun fyrir að fórna lífi sínu ef til sjálfsmorðsárásar kæmi, voru átökin eins og fjarlægur veru- leiki sem, fyrir mér, var aðeins í fréttum og dagblöðum. Þegar ég gisti hjá hinum þrítuga Elik og Doru, ítalskri kærustu hans, út- skýrði hann ástandið fyrir mér. Sjálfur er hann gagnrýnin í hugsun og helgast það af sárri persónulegri reynslu og kynnum hans af báðum hliðum málsins og öllu því fólki þar sem hefur þungar sorgir að bera. Óvíst er og óþarfi að spyrja sig að því hvort reynsla hans í sérsveitum hersins í átökum við Líbanon hafi breytt viðhorfi hans, því í miðri her- skyldu sinni umbreyttist tilvera hans þegar tveir palestínskir karl- menn sprengdu sig í loft upp. Fjór- tán ára systir hans, Smadar, stóð of nálægt öðrum þeirra og lét lífið. Reynslu Eliks, arfleifð og sorg, blönduð vilja til að lifa án þess hat- urs sem hann telur stjórna lífi og pólitík ísraelsku þjóðarinnar, hefur auk fjölda ára baráttu við að upplýsa ástandið orðið til þess að hann gegn- irstarfi formanns samtaka sem hafa sameinað og sætt í gegnum samræð- ur 250 fjölskyldur frá Ísrael og sama fjölda frá Palestínu. Allar þessar fjölskyldur eiga það sameiginlegt að hafa misst ástvin í árás, hvort sem er sjálfsmorðsárásarmenn, saklausa borgara eða hermenn. Án þess að af- saka misgjörðir á hvorn veginn sem var fannst mér ég heyra í fyrsta sinn rödd sem ekki væri stjórnað af hatri, hræðslu eða fáfræði. Vandamálin hins vegar, fjölgun ólöglegra land- nemabyggða og hin óneitanlega hætta sem ísraelskum borgurum stafar af árásum frá kúgaðri þjóð, eru of mörg og snúin til að útlista hér. Til að stíga andleg skref burt frá glapstigum núverandi stefnu, tel ég nálgun Eliks og þeirra þúsunda sem hugrekkið hafa, vera eitt hið fyrsta. Beit Sira á Vesturbakkanum Með kaffibolla í hönd og forvitinn strákahóp í kringum mig beið ég þess að kraftmikilli ræðu klerksins lyki og karlmenn smáþorpsins Beit Sira á Vesturbakkanum kæmu frá bænastund. Föstudagsmótmælin gegn byggingu aðskilnaðarmúrsins voru framundan. Um 200 þorpsbúar auk tíu Ísraela og nokkurra al- þjóðaliða gengu niður þorpshlíðina í átt að ólífulundunum þar sem mal- arvegur markar fyrirhugaða legu múrsins sem þar líkt og svo víða mun ólöglega taka gríðarlegt land- svæði af palestínskum þorpum undir landnemabyggðir. Þrátt fyrir þær fullyrðingingar Ísraelsstjórnar að tilgangur múrsins sé að hindra inn- göngu sjálfsmorðsprengjumannaí Ísrael, þykir stærð lands sem tekið er sem og fjölgun landnemabyggða sem nýta það benda til markvissrar stefnu stjórnvalda. Ásamt þeirri kúgun og einangrun sem palestínska þjóðin hefur sætt áratugum saman er líklegt að afleiðingar múrsins verði hrikalegar fyrir báðar þjóðir. Skyndilega fannst mér ég skynja alvöruna og hættuna á ofbeldi sem svo oft einkennir samskipti hersins og Palestínumanna þegar herjeppar þyrluðu upp ryki á ofsaakstri hand- an trjánna. Barnungir strákar hlupu spenntir meðfram hópnum sem hóf upp rödd sína í kallinu, Allah Ak- bhar, eða Guð er mikill. Mér var sagt að trúin væri í raun hinn eini styrkur hins almenna borgara í baráttu við ofureflið sem að þeim sækti. Brátt mættum við andstöðunni. Hún sam- anstóð af ungum hermönnum sem stöðvuðu hópinn. Töfraorðin voru sögð, framundan var lokað hern- aðarsvæði. Fleiri herjeppar komu aftan að hópnum, og spark ungs drengs að brynvörðum bílnum fékk reiðilegan yfirmann til að stökkva út og slá þann sem næst bílnum stóð. Eldri menn þorpsins skökkuðu leik- inn. Skömmu síðar voru ungir karl- menn þorpsins komnir í þvögu uppi við þéttan vegg hermanna sem töldu nóg komið. Skothríðin tók völdin. Holir háværir hvellirnir kveiktu á skynfærum er ég hljóp dofinn milli trjánna. Ég leit á litlu strákana og heyrði hljóðin í táragashylkjunum sem þeyttust yfir höfði okkar og skoppuðu loks eftir jörðinni. Það sveið í lungun og ég huldi vit mín eins og aðrir. Ég sá menn liggja slasaða eftir gúmmíkúlur og herinn gekk á eftir og skothríðin varð óreglulegri. Pallbíll kom brunandi úr þorpinu, síðan sjúkrabíll. Við jaðar þorpsins hvíldist stór hópur, sumir slasaðir. Ungur ísraelskur lögfræð- ingur gaf mér sígarettu og ég reykti hana skjálfandi. Vitandi að þó að við- vera útlendinga drægi oftast úr hörku hersins skynjaði ég mig að- eins sem hrædda postulínsdúkku með of lítil tengsl við þær raunveru- legu og yfirvofandi aðstæður þorps- búa að verða lokaðir inni. Ramallah Ég nálgaðist Kalandia-landa- mærastöðina við jaðar Ramallah í strætó ásamt heimamönnum, ekki laus við visst óöryggi. Ef einsleitur og neikvæður fréttaflutningur und- anfarin ár af slæmu ástandi þess ill- flokkanlega landsvæðis sem Vest- urbakkinn er, fengu þöglir spegla- glersvarðturnar á 8 metra háum steypuveggnum ásamt hinum óþrjótandi gaddavír mig til að efast um öryggið fyrir innan. Stanslaus straumur fólks fór í gegn undir ár- vökulu eftirliti ungra hermanna og eftirlitsmyndavéla. Ég gekk út í gegnum gaddavírsgangana sem einnig gegndu hlutverki lítils mark- aðar þar sem seldar voru kvikmynd- ir og stríðskarlaleikföng. Þannig komst fólk heim til sín, nema þegar stöðinni er lokað í refsingarskyni fyrir árás einstaklings í Ísrael. Fyrir innan voru leigubílar innan um steypurústir og illa farin hús. Leigu- bíll ók mér til miðju borgarinnar. Eftir að hafa hitt unga stúlku úr Beit Sira-mótmælunum og notið hjálp- semi ungra drengja sem lánuðu mér símann sinn, mælti ég mér mót við unga palestínska konu sem starfar fyrir mannúðarsamtök í borginni. Á ráðstefnu um uppbyggingu Vest- urbakkans skar ég mig úr sem eini Vesturlandabúinn ásamt því að vera fremur óformlega klæddur miðað við jakkaföt Hamas-manna sem sátu og fóru yfir tölur og hugmyndir tengdar uppbyggingu samgangna og mannvirkja í ljósi hernámsins. Textinn á skjánum var á ensku, líkt og bæklingurinn sem ég las og fjallaði um afleiðingar múrsins á samfélag og efnahag þjóðarinnar. Með yfirvofandi hrun efnahagsins og alþjóðlega einangrun ríkisstjórn- arinnar var tal um uppbyggingu með tilheyrandi billjónakostnaði fyrir mér eins óskiljanlegt og arabískan sem töluð var. Um kvöldið ókum við að útjaðri þessarar best settu borgar Vesturbakkans, þar sem enn starfa erlend sendiráð og lúxusbílaumboð. Mér virtist borgin aldrei hafa náð sér á strik. Hrundar byggingarnar vöktu spurningar sem að hluta hefur verið svarað með fréttamyndum af jarðýtum Ísraelshers. Konan er þrítug og býr ásamt dóttur sinni í blokk með útsýni yfir fjallalendi sem er undir stjórn Ísr- aels. Á meðan hún bakaði súkku- laðiköku sagði hún mér sögur af samfélagi því sem hún lifir í. Það er samfélag þar sem yfir helmingur barna hefur orðið vitni að ofbeldi frá ísraelska hernum, niðurrifi húsa og fangelsun fjölskyldumeðlima. Helm- ingur þeirra nær ekki fullkomlega að jafna sig andlega og fjárskortur skólanna takmarkar þá faglegu að- stoð sem er nauðsynleg í stöðugu óöryggi umhverfisins Framtíð- arhorfur samfélags með um helming íbúa undir 17 ára aldri virðast slæm- ar ef áfram heldur sem horfir. Þó er reynt eftir megni að aðstoða börnin, meðan áfall fullorðinna við barns- missi eða tap sjálfsvirðingar frammi fyrir fjölskyldu mætir aðeins þögn. Þrýstingurinn að bera sig vel reynist fólki erfiður. Hún sagði mér frá at- viki úr eigin lífi. Eftir mánaðar að- skilnað við dóttur sína vegna lok- unar landamærastöðva borgarinnar sem barnsfaðir hennar bjó í var leið- in aðeins greið um stundarsakir og barnsfaðir hennar nýtti tækifærið. Herinn stöðvaði leigubílinn á leiðinni til Ramalah, skammt frá landnema- byggð, hirti bíllykla og síma farþega áður en þeir skildu fólkið eftir. Barnsfaðir hennar hafði falið síma sinn og tókst að hringja í hana og sambönd hennar leiddu til að hern- um var skipað að skila lyklunum. Smávægilegt miðað við svo margt annað, sagði hún meðan við borð- uðum súkkulaðiköku. Rétt þykir mér að vekja athygli á því að aðstæður og ástand sem ég lýsi í greininni áttu sér stað fyrir tveimur árum, og þó að enn sé ástandið slæmt er nauðsynlegt að hafa í huga að breytingar, hvort sem eru góðs eða ills, gerast hratt. Frá- sögn þessi felur í sér aðeins brot af raunveruleikanum og er bundin per- sónulegri reynslu sem og takmörk- uðum tíma höfundar. helgu landi MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 37 Properties in Germany Yield up to 8,7% Objects from 1 Mill. to 77 Mill. Contact: PCI Invest consult GmbH, Hamburg-Germany. Tel. 0049 (0) 5193-970034 - e-mail: info@pci-invest.de Sími 575 8500 - Fax 575 8505 Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík Pálmi Almarsson og Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasalar ÁLFATÚN 17 – OPIÐ HÚS Í dag á milli kl: 14:00 - 15:00 verður til sýnis falleg 4ra herb. tæplega 100 fm. íbúð á 2.h. ( efstu ) í fjórbýlishúsi ásamt tæplega 20 fm. bílskúr eða samtals 116,7 fm. Íbúðin skiptist í hol með skápum, flísalagt baðherb. með baðkari og sturtuklefa, 3 parketlögð svefnherb. með skápum, rúmgóða, bjarta parket- lagða stofu með suður-svölum út af og eldhús með vandaðri innréttingu og borðkrók. Bílskúr innbyggður í húsið. Hús steypuviðgert og málað að utan ár- ið 2006. Áhugasamir velkomnir á ofangreindum tíma. Valtýr á bjöllu. Áhv. 19,9 millj. Verð 29,9 millj. M bl . 98 35 14 SÖRLASKJÓL 88 OPIÐ HÚS Í dag sunnudag 16. mars verður opið hús frá kl. 15-16 að Sörlaskjóli 88, 107 Reykjavík, jarðhæð. Þetta er falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð alls 70,1 fm. Stór stofa. Rúm- góð svefnherbergi. Eldhús og hol samliggjandi. Hellulögð gangstétt og góð lýsing í garði. Nýjar fulningarhurðir. Allir gluggar endurnýjaðir. Endurbætur standa yfir á skolplögnum. Stutt í fallega náttúru. Verð 21,8 millj. Þverholt 14 l 105 Reykjavík l Sími 595 9000 l holl@holl.is l www.holl.is Björn Daníelsson Löggildur fasteignasali Gsm: 849 4477 Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is HRAUNHÓLAR - GARÐABÆR Hraunhamar fasteignasla hefur fengið í einkasölu glæsileg 300- 312 fm raðhús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr á frábærum stað við Hraunhóla 20-26 í Gbæ. Húsin eru smekklega hönnuð af Vektor arkitektastofu og standa við hraunjaðarinn og Skrúðgarð Garðbæinga. Húsin eru í byggingu og skiptast eftir teikningu í forstofu, hol, gastasnyrtingu, stofu, borðstofu, eldhús, lesherbergi, bílskúr og geymslu. Á efri hæð eru þrjúr stór herbergi, baðherbergi, hjónaherbergi með baðherbergi og fataherbergi inn af, sjónvarpshol og þvottahús. Húsin afhendast fullbúin að utan og lóð frágengin en að innan fokheld eða lengra komin samkvæmt nánara samkomulagi milli kaupanda og seljanda. Allar nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður. gsm.8960058. Bros Þrátt fyrir að búa á stríðshrjáðu svæði er stutt í brosið hjá strákunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.