Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 38

Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 38
38 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ er engin spurning að aðild að Evrópusambandinu hefur bæði kosti og galla. Þess vegna er fátt mik- ilvægara fyrir stjórn- málaflokkana en að vigta stærstu atriðin í tvær körfur, með og á móti aðild. Þetta stóra verkefni var að miklu leyti unn- ið í nefnd sem Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra skip- aði í júlí 2004. Í nefnd- inni áttu allir stjórn- málaflokkarnir fulltrúa, en það var Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sem stýrði nefndinni. Nefndin starf- aði með þremur forsætisráðherrum, þeim Davíð Oddssyni, Halldóri Ás- grímssyni og Geir H. Haarde, og skilaði af sér gagnmerkri skýrslu 7. mars 2007. Fulltrúar flokkanna skil- uðu í lok starfsins áliti sínu í sér- stakri bókun. Hjálmar Árnason, fyrrverandi alþingismaður, og Jón- ína Bjartmarz, fyrrverandi alþing- ismaður og ráðherra, voru m.a. með bókun um málið fyrir Framsókn- arflokkinn. Í henni segir meðal ann- ars: „Framsóknarflokkurinn lýsir sér- stakri ánægju með skýrslu Evrópu- nefndar ríkisstjórnarinnar, sem er tímabær og mikilvæg viðbót í um- ræðu um Evrópumál á Íslandi … Með tilliti til hugsanlegra aðildar- viðræðna í framtíðinni er mikilvægt að Íslend- ingar gefi sér ekki nið- urstöður fyrir fram. Fordæmi sýna að tekið er tillit til sérstöðu ríkja og samnings- markmið Íslands myndu ávallt hafa að leiðarljósi þjóðarhags- muni og sérstöðu landsins, yfirráð yfir auðlindum og nauðsyn- lega aðlögun. Til að tryggja fram- tíðarhagsmuni þjóðarinnar telur Framsóknarflokkurinn mikilvægt að áfram verði unnið að stefnumót- un og markmiðasetningu Íslands í Evrópusamstarfi. Framsókn- arflokkurinn hefur verið leiðandi afl í upplýstri og raunsærri umfjöllun og umræðu um Evrópumál. Kreddulaus og vönduð umræða byggð á bestu fáanlegum upplýs- ingum er grunnforsenda skyn- samlegrar ákvarðanatöku í Evrópu- málum. Fyrir því mun Framsóknarflokkurinn áfram beita sér.“ EES Þessi þverpólitíska nefnd fór yfir öll stærstu álitaefni, þar á meðal þann samning sem oft er nefndur viðskiptabrú Íslendinga við ESB, samninginn um evrópska efnahags- svæðið. Við gerð þessa samnings varð harkalegur skoðanaágrein- ingur við lögleiðingu hans. Sjálf- stæðisflokkurinn lagðist í upphafi gegn þessari leið og talaði fyrir tví- hliða samningi, en skipti hins vegar um skoðun og lögfesti síðar samn- inginn um evrópska efnahagssvæðið í samstarfi við Alþýðuflokkinn. Eitt meginágreiningsefnið var hvort samningurinn stangaðist á við Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Meðal annars af þeim sökum greiddum við framsóknarmenn margir atkvæði gegn samningnum en aðrir sátu hjá. Um þetta deildu lögmenn mjög á þessum tíma og voru skiptar skoðanir um málið á meðal þeirra. Sjálfstæðismenn voru margir þessarar sömu skoðunar fyr- ir sinnaskiptin. Það þarf enginn að efast um að EES-samningurinn hefur haft gríð- arleg áhrif á efnahagslíf okkar. Þótt nú syrti að vegna heimatilbúins vanda og pattstöðu í efnahags- aðgerðum, svo og vegna þeirra sviptinga sem við blasa á heims- markaði, ekki síst í banka- og fjár- málaheiminum, megum við Íslend- ingar ekki gleyma því að síðustu 7-10 árin hafa lífskjör okkar og lífs- gæði batnað meira en víðast hvar í Evrópu. Þá má minna á að Ísland og Noregur tróna á toppi lífsgæðalista Sameinuðu þjóðanna og hafa verið á meðal allra efstu þjóða þar síðustu árin. Því hefur EES-samningurinn, burtséð frá deilum um að hann stangist á við stjórnarskrána, mótað frjálst og öflugt hagkerfi á Íslandi. Í Evrópu er það almælt að EES- löndin sitji í stúkunni og nýti sér kosti ESB á innri mörkuðum en þurfi ekki að takast á við ókosti ESB. Kostir sem um er rætt Í hinni daglegu umræðu eru margir að gefast upp á stýrivaxta- okri Seðlabankans sem máttvana ríkisstjórn Geirs H. Haarde ber mesta ábyrgð á, bæði með aðgerð- um sínum og aðgerðarleysi. Það er réttmæt krafa að vaxtakjör hér á landi verði í framtíðinni sem líkust því sem gerist í nágranna- og sam- keppnislöndum okkar. Það er hins vegar staðreynd að íslenska hag- kerfið er lítið og á síðustu árum hef- ur krónan færst yfir í að vera há- vaxtamynt í heljarböndum jöklabréfa spámanna. Þeir hafa sóst eftir gróða á meðan almenningi, skuldsettu ungu fólki með íbúðalán og skuldsettum fyrirtækjum blæðir út. Evran verður ekki tekin upp ein- hliða, segir nú forsætisráðherra. Á meðan skortir samstillta efnahags- áætlun til að ná vöxtum niður og eðlilegu gengi. Það lítur því út fyrir pattstöðu. Einbjörn togar í Tví- björn, Tvíbjörn í Þríbjörn, Geir í Davíð, Davíð í Geir og hvorugur get- ur neitt. Því er farið að reyna veru- lega á rófuna á kálfinum. Spurn- ingin er hvort okkar efnahagslíf lendir eina ferðina enn í brunninum. Vegna fjármálakreppu eru seðla- bankar í Bandaríkjunum og víðar löngu farnir að lækka vexti og það verulega. Hér hikar Seðlabankinn. Eyðsla er enn mikil og lækkun stýrivaxta myndi framkalla verð- bólgu sem kallar á erfitt efnahags- ástand með tilheyrandi gjald- þrotum. Gengið myndi falla og skuldir yrðu banabiti margra. Við framsóknarmenn höfum í marga mánuði rætt samræmdar efnahagsaðgerðir og þjóðarsátt um markmið og vinnubrögð í þeim efn- um. Ennfremur höfum við viljað skoða stöðu íslensku krónunnar sem á nú undir högg að sækja á tímum alþjóðavæðingar og örra breytinga. Höfum við í því skyni stofnað nefnd innan flokksins sem á að kanna alla þá valkosti sem við stöndum frammi fyrir í gjaldmiðilsmálum. Meðal kosta þar er mögulegt samstarf við aðrar Evrópuþjóðir sem eru utan myntbandalagsins eða hafa ekki tekið upp evru, t.d. Sviss, Noreg, Bretland eða Danmörku. Með því er verið að horfa á möguleika sem gætu komið til álita í náinni framtíð því aðild að ESB er ekki í nánd að óbreyttu og alls ekki að mynt- bandalaginu í þeim efnahagslega ólgusjó sem nú ríkir. Nú heyri ég að ýmsir athafna- menn og hagfræðingar taka undir orð okkar um að leiðir sem þessar beri að kanna. Ríkissjóður er skuld- laus eftir stjórnarsetu okkar fram- sóknarmanna og íslenska lífeyr- issjóðakerfið er eitt hið sterkasta í heiminum. Með lífeyrissjóðakerfið upp á 1600-1700 milljarða, að við- bættum olíusjóði Norðmanna og hinni miklu sérstöðu Svisslendinga gætu öll löndin styrkt sína stöðu með auknu samstarfi á sviði gjald- miðils- og peningamála. Matvæli og atvinnuleysi Oft draga menn fram þá sýn að matvælaverð muni snarlækka með Guðni Ágústsson fjallar áfram um Evrópusambandið og heimssýn 21. aldarinnar » Til að tryggja fram- tíðarhagsmuni þjóð- arinnar telur Fram- sóknarflokkurinn mikilvægt að áfram verði unnið að stefnu- mótun og markmiða- setningu Íslands í Evrópusamstarfi. Guðni Ágústsson Um stöðu Íslands í hinum stóra heimi Selvað 1-5 – Nýtt lyftuhús með bílskýli! Allt að 95% lánamöguleikar Valhöll fasteignasala og Gissur og Pálmi ehf kynna: Nýtt 36 íbúða lyftuhús í Norðlingaholti Nýjar íbúðir sem afhendast fullfrágengnar án gólfefna og án flísalagnar á baðherbergjum. Húsið, lóðin og bílastæði afh. fullfrág. Fyrstu íbúðir til afhendingar strax. Vandaðar innréttingar frá Brúnás. Upplýsingar í Gsm 899-1882 Þórarinn lögg fs. – Heiðar lögg fs. Gsm 693-3356 Dæmi um kaupverð og greiðslukjör. 2ja-3ja herbergja íbúð verð 24,3 millj. Útb. í pen við samn. 800 þ. Lán frá Íbúðarl.sj. 18.000 þ. ** Greiðslub. ca 82,000 pr. mán. 40 ár 5,5% vxt. Lán frá sparisj. 1.440 þ. ** Greiðslub. ca 21.000 pr. mán. 40 ár 6,85% vxt. Lán frá GogP.* 3.645 þ. ** Greiðslub ca 32.000 pr. mán. 25 ár 7,0% vxt. Við lokafrágang. 415 þ. * Lán til allt að 25 ára vísitölutryggt með 7% vöxtum án uppgreiðslugjalds ** Samtals greiðslubyrði ca 135 þúsund á mán. fyrsta árið fyrir utan vaxtab. Greiðslumat og staðfestingu þarf frá Íbúðarlánasjóði og Spron eða lánastofnun. Dæmi um kaupverð og greiðslukjör. 4ra herbergja íbúð verð 26,8 millj. Útb. í pen við samn. 840 þ. Lán frá Íbúðarl.sj. 18.000 þ. ** Greiðslub. ca 82.000 pr. mán. 40 ár 5,5% vxt. Lán frá sparisj. 3.440 þ. ** Greiðslub. ca 32.000 pr. mán. 40 ár 6,85% vxt. Lán frá GogP.* 4.020 þ. ** Greiðslub. ca 56.000 pr. mán. 25 ár 7,0% vxt. Við lokafrágang 500 þ. * Lán til allt að 25 ára vísitölutryggt með 7% vöxtum án uppgreiðslugjalds ** Samtals greiðslubyrði ca 170,000 kr. á mán. fyrsta árið fyrir utan vaxtab. Greiðslumat og staðfestingu þarf frá Íbúðarlánasjóði og Spron eða lánastofnun. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is GLITVANGUR - HF. GLÆSILEGT EINBÝLI Nýkomið í einkasölu glæsilegt einbýli á einni hæð með innbyggðum bílskúr samtals 212 fm. Húsið skiptist m.a. þannig: 4 svefnherbergi, stofa, borðstofa, arinn, eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi ofl. Glæsileg hornlóð. Hiti í plani, góð staðsetning. Eign í sér- flokki. Myndir á mbl.is. Laust strax. Spönginni 37 – 112 Reykjavík – www.fmg.is Sími 575 8585 Sigrún Stella Einarsdóttir lögg. fasteignasali GSM 824 0610 Karl Dúi Karlsson sölumaður GSM 898 6860 MOSFELLSBÆR Erum með kaupanda að 3 til 4ra herbergja íbúð, helst á efstu hæð í nýlegu, litlu fjölbýli í Þrastarhöfða, Klapparhlíð, Tröllateig eða Stórateig. Verðhugmynd er á bilinu 28 til 30 millj. ÍBÚÐ ÓSKAST Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteignasali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.