Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 46

Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði ✝ Björn Sigurðs-son fæddist í Efstadal í Laug- ardalshreppi í Ár- nessýslu 28. október 1920. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 16. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jórunn Ás- mundsdóttir hús- freyja í Efstadal, f. þar 5. okt. 1880, d. 11. júní 1970, og Sig- urður Sigurðsson bóndi í Efstadal, f. í Eystri-Dalbæ í Landbroti í V-Skaft. 14. jan. 1879, d. 17. mars 1946. Systkini Björns eru: Ásmundur, f. 1913, d. 1996, Magnhildur, f. 1914, d. sama ár, Sigurður, f. 1915, Steinunn, f. 1917, d. 1976, Magnús, f. 1918, d. 1997, Ingvar, f. 1919, d. 1990, og Magn- hildur, f. 1922. Björn kvæntist 9. ágúst 1952 Ár- sólu Margréti Árnadóttur klæða- skera í Reykjavík, f. 19. júlí 1928. Foreldrar hennar voru Árni Eras- musson húsasmíðameistari, f. á Syðri-Steinsmýri í Leiðvallahreppi í V-Skaft. 8. apríl 1880, d. 3. okt. 1963, og Sólveig Ólafsdóttir hús- freyja, f. á Hrófbjargarstöðum í Kolbeinstaðarhreppi í Hnapp. 23. feb. 1896, d. 2. ágúst 1989. Björn og Ársól eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Margrét, f. 21. des. 1952, gift Brynjúlfi Erlingssyni. Synir þeirra eru: a) Björn, f. 1975, kvænt- ur Hildi Björk Kristjánsdóttur, börn þeirra eru Úlfur Örn, f. 2000, Birkir Hrafn, f. 2003, og Rán, f. 2005, b) Erlingur, f. 1979, sambýlis- kona Anna Lilja Oddsdóttir, sonur eldrum hennar, Sólveigu og Árna. Björn byggði hús með Magnúsi bróður sínum við Sólheima í Reykjavík. Þá kom það sér vel hversu laghentur og vandvirkur hann var. Þangað flutti fjölskyldan árið 1959 ásamt foreldrum Ársólar. Þar var heimili stórfjölskyldunnar í gegnum árin. Það var oft fjölmennt á heimilinu því þar bjuggu ætt- ingjar í lengri og skemmri tíma. Einnig komu ættingjar úr sveitinni, bæði úr Laugardalnum og Borg- arfirðinum, þegar þeir áttu erindi til Reykjavíkur. Björn og Ársól ferðuðust mikið um landið með fjölskyldu og vinum, oft með Magn- úsi bróður Björns og fjölskyldu hans. Má segja að þau hjónin hafi verið búin að sjá flest það mark- verðasta sem hægt var að skoða þar sem var fólksbílafæri. Einnig höfðu þau ferðast saman til tíu landa m.a. í síðustu ferð Gullfoss. Þau fóru nokkrar ferðir til Drífu systur Ársólar og fjölskyldu í Bandaríkjunum og eignuðust þar marga góða vini sem hafa heimsótt þau í gegnum árin. Árið 1987 reistu Björn og Ársól sér sumarbústað í Borgarfirðinum. Þar gat Björn stundað áhugamál sín, við smíðar, berjatínslu, ræktun og útivist. Eftir að Björn hætti störfum dvöldu þau hjónin í bústaðnum sumarlangt en þar vildi hann helst vera. Þegar þau hjónin voru orðin ein fluttu þau í Árskóga í Reykjavík. Þar tóku þau þátt í ýmsum félagsstörfum, áttu spilafélaga í bridge, tóku þátt í félagsvist og ýmiss konar handa- vinnu. Í Árskógum bjuggu þau síð- ustu 15 árin en seinustu mánuði sem Björn lifði dvaldi hann á hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ. Útför Björns var gerð frá Frí- kirkjunni í Reykjavík 25. febrúar og fór hún fram í kyrrþey. þeirra er Bjarki Heið- ar, f. 2006. c) Árni, f. 1984. 2) Sigurður, f. 18. nóv. 1954, kvænt- ist Sigríði Sigurð- ardóttur (skildu). Dætur þeirra eru Val- gerður, f. 1980, gift Azfar Karim, og Kristín, f. 1984. 3) Ólafía, f. 4. okt. 1958, giftist Þóri Þórissyni (skildu). Börn þeirra eru: a) Þórir Har- aldur, f. 1977, sam- býliskona Arna Hrund Arnardóttir, börn þeirra eru Árni Björn, f. 2004 og Iðunn Birna, f. 2007. b) Ársól Margrét, f. 1979, sambýlismaður Hrólfur Már Helgason, sonur þeirra Gabríel Helgi Már, f. 2007, dóttir Ársólar og Sveins Hjörleifssonar er Ka- milla María, f. 1997. c) Kjartan Þór, f. 1987. 4) Sólveig, f. 12. júlí 1961 gift Ólafi Einarssyni. Börn þeirra eru Vera Sólveig, f. 1980, Einar Björn, f. 1985, Jón Atli, f. 1993 og Ársól Drífa, f. 1995. Björn byrjaði ungur að hjálpa til við bústörfin í foreldrahúsum í Efstadal og stundaði nám í farskóla í Laugardalshreppi. Hann hafði áhuga á því að læra húsasmíði en það stóð ekki til boða á þeim tíma. Hann vann við bústörfin ásamt sjó- mennsku á vetrarvertíðum í Sand- gerði þar til hann fluttist til Reykjavíkur 26 ára gamall. Í Reykjavík vann Björn við bygging- arvinnu þar til hann hóf störf hjá Hreyfli sem bifreiðastjóri. Við það starfaði hann í 47 ár og var farsæll í starfi. Eftir að Björn kynntist Ár- sólu hófu þau búskap hjá for- Mig langar að minnast föður míns Björns Sigurðssonar sem lést 16. febrúar síðastliðinn eftir erfið veik- indi síðustu mánuðina. Pabbi var sonur bónda og mótaði það líf hans eins og svo margra af hans kynslóð. Hann vandist ungur mikilli vinnu og leiddist aðgerðar- leysi. Þegar ég man fyrst eftir mér fór- um við á æskuslóðir pabba austur í Laugardal á hverju sumri og dvöld- um þar í tvo þrjá daga. Hann vildi hjálpa Sigurði bróður sínum með heyskapinn enda ekki eins mikil vél- væðing þá og er í dag. Við frænd- systkinin höfðum gaman af því að hittast og var margt brallað. Í hey- skapnum var pabbi í essinu sínu, maður sá að hann kunni vel til verka. Faðir minn hélt alltaf góðu sam- bandi við systkini sín og voru skemmtileg boðin þegar þau hittust öll með börnin. Þá var stundum spiluð félagsvist á mörgum borðum, sett upp leikrit og sagðar skemmti- legar sögur. Þegar eitthvað var um að vera í sveitinni á æskustöðvunum fór stórfjölskyldan gjarnan saman í rútu, okkur krökkunum til mikillar ánægju, en tveir bræður pabba voru sérleyfishafar. Vinnudagur pabba var oft langur en hann gaf sér alltaf tíma til þess að fara í bíltúra á sunnudögum. Þeir voru eftirminnilegir fyrir okkur systkinin. Þá var farið að heim- sækja ættingja, vini eða skroppið í Heiðmörkina, tekið með sér nesti og sest í góða laut, síðsumars gjarnan í berjamó. Stundum var farið austur í Laugardal og þar sem bílaeign landsmanna var þá ekki eins mikil og núna var bílinn oft fylltur af ætt- ingjum og brunað úr bænum. Áhugamál föður míns voru mörg en eftir að foreldrar mínir eignuðust land í Borgarfirðinum var það aðal- áhugamálið hans og allt sem tengd- ist því. Eftir að pabbi hætti störfum dvöldu þau í bústaðnum sumar- langt, komu og fóru líkt og farfugl- arnir, fóru daglega í sund, göngu- ferðir og bíltúra um nágrennið og nutu fegurðar Borgarfjarðarins. Áhugi hans fyrir að rækta plöntur sést í sumarbústaðarlandinu þar sem hann fékk allt til að vaxa. Einn- ig hafði hann mjög gaman af að fylgjast með fuglunum, brandönd- inni sem verpti undir bústaðnum, maríuerlunni sem átti hreiður inni í skúrnum, rjúpunni sem átti varps- tað bak við klettinn, erninum sem sást sveima yfir og óteljandi öðrum fuglum sem áttu sér griðastað í landinu þeirra. Foreldrar mínir voru mjög sam- rýnd og samtaka í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur á lífleiðinni. Ég minnst þess einnig hve mikil virðing ríkti á milli föður míns og afa og ömmu, með þeim öllum áttum við systkinin góða æsku. Ég kveð föður minn með bæn sem Árni afi samdi. Góði Jesús, veg mér vísa, veikan styrk minn andans þrótt. Kærleiks geisla láttu lýsa lífi mínu dag og nótt, vetur, sumar, vor og haust. Vertu hjá mér endalaust. Gefðu síðast frið ég finni, frið í dýrðar birtu þinni. (Á.E.) Pabba verður ætíð minnst sem einstökum manni sem lét verkin tala. Hann var hógvær, hjálpsamur öðlingur sem öllum þótti vænt um. Hann átti óendanlega gæsku og hjartahlýju handa okkur afkomend- um hans. Þannig verður gott fyrir okkur sem eftir lifum að minnast hans. Margrét. Afi hafði alltaf tíma fyrir okkur. Alltaf sagði hann já, fór í dúkkuleik eða hvað sem okkur krökkunum fannst skemmtilegt. Þegar við Ársól Drífa og Jón Atli vorum orðin leið á að leika saman í leikherberginu báð- um við afa að koma og leika. Hann tók þá með sér kaffibollann og Morgunblaðið og sat hjá okkur, þá fannst okkur afi vera svo góður að leika. Skemmtilegast af öllu var að vera með afa og ömmu uppi í sumarbú- stað. Þar hafði afi gróðursett tré í kringum alla lóðina. Við Vera Sól- veig og Einar Björn hjálpuðum til við að gróðursetja þau, öll hjálp- uðum við honum að vökva þau og fylgdumst með litlu hríslunum verða að trjám. Þegar við vorum í bústaðnum fór afi alltaf með okkur í sund í Borg- arnesi, keypti snúða í bakaríinu, ís í Hyrnunni og fór með okkur á Bjöss- aróló. Endalaust eigum við af skemmtilegum minningum þaðan, að spila, að byggja kofa, að sitja á uppáhaldsstaðnum hans afa og horfa á sólarlagið eða sitja í fanginu og fá að sofna þar. Elsku amma, við vitum hvað þú saknar hans mikið, við skulum knúsa þig jafnmikið og hann gerði. Vera Sólveig, Einar Björn, Jón Atli og Ársól Drífa Ólafsbörn. Elsku besti Bjössi afi. Við söknum þín mikið. En við vit- um að þér líður miklu betur þar sem þú ert núna. Við munum alltaf minnast þín. Við erum þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast þér og að vera afadætur þínar. Við minnumst þín þar sem þú ert við uppáhaldsiðjuna þína – að hugsa um plönturnar þínar í sumarbú- staðnum, annaðhvort að gróðursetja tré, vökva, slá blettinn eða að taka upp kartöflur. Við minnumst fallega brossins þíns, hlátursins og góðlátlegu augn- anna. Svo blíður og góður afi sem þú varst. Við minnumst stundanna sem við áttum með þér og Ársól ömmu. Elsku Ársól amma, Magga, pabbi, Olla og Solla. Guð styrki ykkur við fráfall afa. Elsku Bjössi afi, takk fyrir allt. Þínar sonardætur, Valgerður og Kristín. Ég man þegar ég var í pössun hjá ykkur ömmu að ég vaknaði um miðja nótt. Ég fór fram í eldhús í Sólheimunum og settist við eldhús- borðið. Ég horfði út í myrkrið og skoðaði auglýsingaskiltin í Skeif- unni. Eftir dágóða stund heyrði ég að einhver var vaknaður og á leið inn í eldhús. Ég leit á klukkuna og sá að hún var að verða hálfsex. Þú komst inn í eldhús. Ég spurði þig: „Af hverju ertu að vakna svona snemma?“ Þú brostir og sagðir: „Ég hef alltaf vaknað á þessum tíma.“ Þú bjóst til hafragraut fyrir okkur. Við ræddum saman á meðan við borðuðum. Þegar við vorum búnir klæddir þú þig í jakkann, settir upp húfuna og baðst mig um að kanna hvort ég gæti ekki sofnað aftur, sem ég gerði. Þetta var sú besta stund sem ég átti með þér í æsku. Ekki man ég hvað við ræddum um og ég hef aldrei verið hrifinn af hafra- graut, en þarna var grauturinn sá besti í heimi og við einir út af fyrir okkur. Ég man þegar þú og amma voruð að passa okkur og eins og svo oft sóttir þú mig á leikskólann. Þórir bróðir kom oft með þér í bíltúr að sækja mig. Ég vildi alltaf fá að teikna og þú varst alltaf svo glaður þegar ég gaf þér teikninguna. Þeg- ar heim í Sólheimana var komið var oft mikið fjör og við kepptumst við að láta taka okkur í kleinu. Þú söngst svo oft með okkur „Afi minn fór á honum Rauð“ ásamt mörgum öðrum lögum. Þú hafðir alltaf tíma til að setjast niður með okkur og segja okkur sögurnar af Búkollu og Rauðhettu. Þær voru í miklu uppá- haldi hjá okkur. Við vorum ekki gömul þegar þið amma hófust handa við að byggja Árselið en við fengum svo oft að koma með og við hjálpuðum ykkur að gróðursetja eða laga girðinguna. Þetta voru svo yndislegir tímar. Elsku afi, við söknum þín. Þórir og Ársól. Björn afi skilur eftir sig margar ánægjulegar minningar og nutum við bræðurnir skemmtilegra og gef- andi samverustunda með honum. Þegar hann og amma byggðu sum- arbústað í Borgarfirðinum hjálpuð- ust allir í fjölskyldunni að og var stórum sem smáum úthlutað hlut- verki. Hann treysti manni fyrir hin- um ýmsu hlutum þó svo að hann vissi, í sumum tilfellum, að hann þyrfti að gera hlutinn aftur. Maður fékk iðulega mikið hrós eftir gott dagsverk, hvort sem það var gróð- ursetning trjáa, kartöflutínsla eða smíðavinna. Þetta fyllti unga drengi ómældu stolti og var einnig ástæðan fyrir því að maður vildi alltaf glaður hjálpa til. Þegar afi var hættur að vinna dvaldi hann ásamt ömmu í sumarbústaðnum yfir allt sumarið. Þá fengu yngri barnabörnin oft að dvelja hjá þeim vikum saman og hjálpuðu afa með verkin sem þurfti að vinna í sumarbústaðarlandinu. Við fengum að fara með í útrétt- ingar í Borgarnes ásamt því að fara nánast daglega í sund. Þegar kvölda tók var oftast gripið í spil, en það þótti okkur öllum gaman. Afi var sjálfur alltaf tilbúinn til að hjálpa til. Þegar kom að því að reisa hús foreldra okkar í Logafoldinni þá var hann nánast alltaf á svæðinu. Hann var einnig alltaf tilbúinn að sækja okkur bræðurna á íþrótta- og tónlistaræfingar þegar foreldrar okkar gátu það ekki. Maður grét það ekki að fá að fara í bíltúr með afa á leigubílnum hans. Fyrir andlát hans hafði honum hrakað mikið á stuttum tíma en það var hann ekki sáttur við, enda hafði hann nánast ekki komið á sjúkrahús allt sitt líf. Afi var einnig farinn að vera gleyminn en þó rifjuðust hlut- irnir fljótt upp þegar maður talaði við hann. Í heimsóknum okkar á Skógabæ sagði hann okkur skemmtilegar sögur frá gamla tím- anum sem ekki hafði borið á góma fyrr og sýndi þannig á sér nýjar hliðar. Fjölskyldur okkar urðu einnig þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast góðmennsku hans sem við höfum tekið okkur til fyrirmyndar. Barna- barnabörnunum hefur fjölgað og mörg þeirra eiga eftir að eiga góðar minningar um langafa sinn. Hann lætur því mikið eftir sig, stóra fjöl- skyldu og marga aðra góða hluti. Hans verður sárt saknað meðal okkar. Hvíldu í friði. Björn, Erlingur og Árni. Fallinn er frá kær föðurbróðir minn, hann Bjössi hennar Ársólar eins og við kölluðum hann alltaf. Þó ég vissi að hverju stefndi þá brá mér er ég fékk fréttirnar um að hann væri látinn. Hægt væri að skrifa heila bók um hversu góður maður hann var. Ég man ekki hvað ég var gömul þegar ég fór að muna eftir Bjössa og Ársólu. Ég átti heima í sveitinni á fæðingarstað Bjössa, Efstadal í Laugardal. Þegar ég var lítil stelpa var alltaf mikill gestagangur á sumrin og þá sér- staklega um helgar en það var alltaf svo mikil tilhlökkun þegar frænd- fólkið kom í sveitina. En ég hlakk- aði alltaf mest til að fá Bjössa og fjölskyldu. Við urðum líka miklar vinkonur ég og Solla yngsta dóttir þeirra. Hún kom og fékk að vera í sveitinni og svo fékk ég að fara í höfuðborgina. Mér er það mjög minnisstætt þegar ég fékk að fara til Reykjavíkur og gista hjá Sollu frænku. Það var mikil upplifun að fara til höfuðborgarinnar. Ársól og Bjössi voru mér eins og bestu foreldrar. Björn starfaði sem leigubílstjóri á Hreyfli alla tíð og ég man hvað mér fannst Bjössi klár að geta ratað um alla borgina. Ég var líklega 12 ára þegar ég fór í bíó í fyrsta skipti með Sollu frænku. Það var alltaf svo mikill spenningur og tilhlökkun að fá að fara í Sólheim- ana til Bjössa og fjölskyldu en í þá daga var ég ungur, orginal sveita- lubbi. Það einfalda eins og að fara í strætó var bara virkilega spenn- andi. Maður lagði það á sig að grenja í nokkra daga bara til að fá að fara til Reykjavíkur í einn dag, þó svo að ég væri þrælbílveik. Fyrir mér var þetta jafn spennandi eins og fyrir krakka í dag að fara til sól- arlanda Ég var 16 ára þegar ég fór að vinna í bænum og Bjössi og Ársól opnuðu heimili sitt og hjálpuðu mér með allt sem upp kom. Ég fékk sér- herbergi og tekin inn á heimilið af þvílíkum hlýhug og ekki minna dekrað við mig en dæturnar þeirra. Það var gefandi og nærandi að fá að umgangast þetta góða fólk. Bjössi var einstaklega hjartahlýr, ljúfur og góður maður alla tíð og það besta var að hann var alltaf til staðar. Ég heyrði hann aldrei tala neikvætt um einn né neinn. Ef mann vanhagaði um eitthvað þá leitaði ég til hans enda var hann úrræðagóður og hjálplegur. Ég er viss um að það var ekki til bónbetri maður. Allir sem þekktu hann skynjuðu hversu góður maður hann var. Elsku Ársól, Magga, Siggi, Olla, Solla og fjölskyldur. Söknuður ykk- ar er sár, en eftir lifa góðar minn- ingar um einstakan mann. Hvíl í friði elskulegi frændi minn og bestu þakkir fyrir allt. Ása Björk Sigurðardóttir. Björn Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.