Morgunblaðið - 16.03.2008, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 49
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
POLLYJAR SÆMUNDSDÓTTUR,
síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í
Kópavogi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sunnuhlíðar fyrir
góða umönnun og hjálpsemi.
Eygló Guðjónsdóttir, Kristinn Guðjónsson, Valgarður Guðjónsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru,
HELGU PÁLSDÓTTUR
fyrrum húsfrú,
Eyjum 1,
Kjós,
til heimilis í Gullsmára 7,
Kópavogi.
Ingólfur Guðnason,
Anna Ingólfsdóttir, Kristinn Helgason,
Hermann Ingólfsson, Birna Einarsdóttir,
Páll Ingólfsson, Marta Karlsdóttir,
Guðrún Ingólfsdóttir, Óskar H. Kristjánsson,
Valborg Ingólfsdóttir, Ómar Ásgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
JÚLÍUSAR R. EINARSSONAR,
Suðurgötu 8,
Keflavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
D-deildar og heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýju.
María G. Ögmundsdóttir og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
EINARS B. STURLUSONAR
skipasmíðameistara
frá Hreggsstöðum.
Sérstakar þakkir til Sigurðar Helgasonar læknis og
starfsfólks á Hrafnistu í Reykjavík fyrir einstaka alúð og
umönnun.
Kristín Andrésdóttir,
Valgerður Björk Einarsdóttir,
Guðný Alda Einarsdóttir,
Þórdís Heiða Einarsdóttir,
Sturla Einarsson, Freyja Valgeirsdóttir,
Andrés Einar Einarsson, Halldóra Berglind Brynjarsdóttir,
Guðrún Björg Einarsdóttir, Helgi G. Bjarnason,
María Henley, Kristján Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
THEU SIGURLAUGAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Álftamýri 24.
Gunnar Sveinsson, Katrín Baldvinsdóttir,
Eiríkur Sveinsson,
Þórir Sveinsson, Jónína H. Hjaltadóttir,
Birgir Sveinsson, Karin Larsen,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
JÓNS GUÐLAUGSSONAR
frá Vík í Mýrdal,
Hraunbæ 103,
Reykjavík.
Margrét Ögmundsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Oddur Þórðarson,
Jóna Jónsdóttir, Pétur Eiríksson,
Guðlaugur G. Jónsson, Sigríður Ingunn Ágústsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
BÁRU HALLDÓRSDÓTTUR,
Sæviðarsundi 32,
Reykjavík.
Lárus Fjeldsted,
Rúnar og börn,
Stefanía, Þór og börn,
Matthildur, Hermann og börn,
Guðmundur og börn,
Sigurjón Þorberg.
Elsku afi Elli, þú
varst mjög góður,
brosmildur og hjarta-
góður afi. Mér fannst mjög gaman að
heimsækja ykkur ömmu í Hnífsdal,
sérstaklega þegar ég fékk að koma
ein með flugvélinni. Við horfðum oft á
sjónvarpið saman eða borðuðum syk-
urmola. Ég fór líka að labba með þér
fram í dal. Þú hlýtur að vera einn af
bestu sjómönnum. Á næstum því öll-
um myndum ertu brosandi.
Ég mun minnast þín mjög mikið,
elsku afi, og ég lofa að geyma þig í
hjarta mínu svo lengi sem ég lifi.
Elsku afi, þú varst alltaf brosandi
og umhyggjusamur afi. Takk fyrir all-
ar góðu minningarnar sem þú skildir
eftir hjá mér, elsku afi minn.
Þín
Magnea Mist.
Í dag kveðjum við Björn Elías Ingi-
marsson hinsta sinni.
Elli Bjössi eins og hann var ávallt
nefndur í okkar hópi var borinn og
barnfæddur Hnífsdælingur, fæddist á
Bakkaveginum og bjó við þá götu alla
tíð. Ungur fór hann til sjós og var
skipstjóri meðal annars hjá útgerð
föður síns, Ingimars Finnbjörnsson-
ar, sem var einn þeirra framsýnu
manna, sem stofnuðu Hraðfrystihúsið
hf. í Hnífsdal árið 1941. Elli tók síðan
sæti í stjórn Hraðfrystihússins hf. ár-
ið 1980 og þegar félagið sameinaðist
Gunnvöru hf. árið 1999 settist hann í
stjórn Hraðfrystihússins – Gunnvar-
ar hf. og var þar til dauðadags.
Það var gott að starfa með Ella,
hann þekkti vel til alls er viðkom sjáv-
arútvegi og alltaf var stutt í glettnina
hjá honum. Það er skarð fyrir skildi
hjá okkur við fráfall hans og við sjáum
á bak góðum félaga og vini.
Við færum eftirlifandi eiginkonu
hans, Theodóru Kristjánsdóttur,
börnum þeirra og öðrum aðstandend-
um okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Stjórn og framkvæmdastjóri
Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf.
Elli Bjössi, skipstjóri úr Hnífsdal,
lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði hinn 9.
mars sl. Á Vestfjörðum þekktu hann
flestir undir þessari nafnaröð, enda
menn vestra vanir því að haga gælu-
nöfnum að sínu lagi. Fullu nafni hét
hann Björn Elías Ingimarsson, sonur
útgerðarmannsins Halldórs Ingimars
Finnbjörnssonar og konu hans Sig-
ríðar Elísabetar Guðmundsdóttur
sem bjuggu í spýtuhúsinu, fyrsta húsi
við Bakkaveginn þar sem vel sást til
veðrabrigða og sjólags á Djúpinu.
Elli Bjössi hóf ungur sjómennsku
og þegar ég lauk stýrimannsprófinu á
Ísafirði í ársbyrjun 1965, þar sem
reyndir skipstjórar, þeir Símon
Helgason og Sturla Halldórsson, sem
nú er nýlátinn, blessuð sé minning
þess góða manns, kenndu okkur til
siglingar og sjómennsku, réð ég mig
sem stýrimann á mótorbátinn Pál
Pálsson ÍS sem Elli Bjössi var skip-
stjóri á. Við rerum frá Hnífsdal og
lögðum upp aflann hjá Hraðfrystihús-
inu í Hnífsdal. Ekki vissi ég þá að það
yrði síðar starf mitt mestalla mína
skipstjóratíð að afla fiskjar sem færi
til vinnslu í því frystihúsi og sækja
skuttogarann Pál Pálsson ÍS 102 til
Japans 1972 þar sem ég var síðan
skipstjóri í tæpa tvo áratugi. Svona
eru ýmsar leiðir lífsins tilviljunum
háðar.
Elli Bjössi var lengst af skipstjóri á
eigin bát, Finnbirni sem gerður var út
til rækjuveiða í Ísafjarðardjúpi á vet-
Björn Elías
Ingimarsson
✝ Björn Elías Ingi-marsson fæddist
í Hnífsdal 12. ágúst
1936. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði 9.
mars síðastliðinn.
Elías verður jarð-
sunginn frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag
og hefst athöfnin
klukkan 11.
urna en handfæri yfir
sumartímann. Það var
reyndar venjubundið
útgerðarmynstur allra
minni rækjubáta við
Ísafjarðardjúp lengst
af. Sumir fóru þó einnig
á steinbítsveiðar með
línu á vorin. Þessir út-
gerðarhættir breyttust
verulega eftir að kvóta-
kerfið var sett á og
óveiddur fiskur í sjó
varð frjáls verslunar-
vara upp úr 1990.
Elli Bjössi var gæt-
inn skipstjórnandi og kom skipi sínu
heilu í höfn. Því miður var það ekki
víst um fiskveiðar á minni bátum frá
Vestfjörðum, jafnvel þó stundaðar
væru veiðar innan Djúps, að allir
kæmu að landi úr róðri dagsins. Svo
skörp eru veðraskil að jafnvel reyndir
sjómenn fá ekki ráðið sinni heimferð
að skaðlausu.
Ég á góðar minningar af samveru
okkar á mótorbátnum Páli Páls frá
Hnífsdal og bjartar voru sumarnæt-
urnar á síldveiðum sumarið 1965. Ég
lærði sem ungur stýrimaður af Ella
Bjössa um skipstjórn og verktilhögun
eins og öðrum skipstjórum sem ég
starfaði með. Það reyndist mér síðar
vel við skipstjórn á skipum við illviðri
á Íslandsmiðum. Ég fékk síðar á æv-
inni tækifæri til að kenna Finnbirni,
syni Ella Bjössa til fiskveiða og að
stjórna skipi til veiða við öldurót og
misjafnar aðstæður. Það er ánægju-
legt hlutverk skipstjóra að miðla af
reynslu sinni til þeirra sem sækja sjó-
inn. Þannig gengur reynsla og þekk-
ing milli kynslóða.
Ég minnist góðs drengs og sam-
starfsmanns með þakklæti og færi
eiginkonu, börnum, tengdabörnum og
barnabörnum, sem og ættingjum og
vinum innilegar samúðarkveðjur og
bið þeim Guðs blessunar.
Guðjón Arnar Kristjánsson.
Laugardaginn 15. mars verður vin-
ur okkar og félagi til margra ára,
Björn Elías Ingimarsson, borinn til
grafar í Hnífsdalskirkjugarði. Elli
Bjössi eins og hann var ávallt kallað-
ur, var mikill Hnífsdælingur og lá
ekkert á þeirri skoðun sinni, en hann
var líka mikill Kiwanismaður og starf-
aði í Básum á Ísafirði frá árinu 1981 til
dánardags. Hann var forseti klúbbs-
ins á árunum 1998 til 1999. Það var
gott að starfa með Ella Bjössa og allt-
af var hann boðinn og búinn að mæta
til starfa þegar á þurfti að halda, á
fundi mætti hann alltaf þegar hann
var í landi, en hann var sjómaður til
margra ára og þá lengst af skipstjóri
og síðast útgerðarmaður og skipstjóri
á eigin báti .
Elli Bjössi var mjög vanafastur
maður, á fundum vildi hann ávallt sitja
í sama sætinu og einnig skrifa sig í
mætingarbók númer 13, hann fylgdist
mjög vel með því þótt hann væri
mættur með fyrstu mönnum að skrifa
sig ekki fyrr. Einnig var mjög mik-
ilvægt að með kjötmeti væri borið
fram sultutau eins og hann kallaði
það.
Það er fyrir okkur Kiwanismenn
mikil eftirsjá að missa góðan félaga og
vin en sorgin er þó mest hjá eftirlif-
andi eiginkonu Theodóru Kristjáns-
dóttur, börnum þeirra og öðrum að-
standendum og um leið og við þökkum
fyrir að hafa fengið að eiga Ella
Bjössa að félaga og vini, vottum við
þeim okkar dýpstu samúð og megi
góður Guð vera með þeim.
Félagar í Kiwanisklúbbnum
Básum, Ísafirði.
Fleiri minningargreinar um Björn
Elías Ingiimarsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.