Morgunblaðið - 28.03.2008, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
8
0
/
6
!"!!
"
#"
#
$ %
#
&'!(
)
*
59! .*("!( % !
! "#$" %&'(
##)*"$" %&'(
+,!'(
-$" %&'(
$.,! ,"/ #,'(
0(,1#,&(2.34.
56. ,"$" %&'(
7%&8, 3 #'(
- / #,4. '(
".'(
9:
!"%1%";%"<"=>="(/'(
?1,'(
@%"'(
: *,*9
"!!%"
A'(
.(6'(
!. !,6," ?
!. !,69!" .%19B
,# #,
.3$" %&'(
C" ? #
56. ,6$" %&'(
D'">,'(
#,&!,'(
"?33, 31,<!*<, '(
E, .%!*<, '(
5%*6'*4;!"%
F !%"?.%1, %1F
0$" ,'(
01&,<> '(
% &%<"#
()*
E,<#,&!,
3,
,./ <G. #3H
7%&.
IAAJ
I I
AA A AJ
J A JA I
AII I II A
A IA I
;
II JJ
;
;
;
;
I AA
IA
IIA JI
J A
JI
AIJ
J I ;
A J
;
;
;
I AI
II
A A
I JI
J AA
J A JA A
A ;
;
A >*.,
),<#,&!
A
IJ
;
;
;
;
I
;
;
3! , 3
),<#)"<
I I I I I I I I I I I I I I I I J I I I I I A I I Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MIKLAR sveiflur einkenndu ís-
lenska hlutabréfamarkaðinn í gær,
en fyrri helming dagsins stefndi í ríf-
lega þriggja prósenta hækkun Úr-
valsvísitölunnar. Um miðjan dag tók
markaðurinn hins vegar að lækka
skarpt og segir í Hálffimmfréttum
greiningardeildar Kaupþings að
skýringarinnar sé líklega að leita í
hagnaðartöku fjárfesta. Þeir hafi séð
sér leik á borði eftir um 13% hækkun
í vikunni og selt hlutabréf af miklum
móð. Hækkun dagsins gekk því að
stórum hluta til baka og svo fór að
hækkun vísitölunnar nam ekki nema
0,07% og stóð vísitalan við lok við-
skipta í 5.025,85 stigum.
Spá 1,2-1,4% verðbólgu
Heildarvelta í kauphöllinni nam
tæpum 40,7 milljörðum króna og þar
af nam velta með hlutabréf rúmum
16,4 milljörðum króna.
Mest var veltan með bréf FL
Group, eða um 5,6 milljarðar króna.
Langstærstur hluti þessara við-
skipta, eða um 5,3 milljarðar, kemur
til vegna fjármögnunar BG Capital,
fjárfestingarfélags í eigu Baugur
Group og hefur félagið lagt viðkom-
andi hluti að veði. BG Capital mun
sem fyrr fara með atkvæðisrétt og
halda öðrum réttindum tengdum
hlutunum. Þá vekur athygli 16,07%
lækkun á gengi bréfa Icelandic
Group í gær, en hafa verður í huga
að viðskipti með bréf félagsins voru
mjög fá í gær og veltan lítil. Við slík-
ar aðstæður þarf ekki mikið til að
miklar breytingar geti orðið á gengi
hlutabréfa.
Í dag verða nýjar tölur um verð-
bólgu í marsmánuði birtar af Hag-
stofu Íslands. Greiningardeildir
bankanna spá 1,2-1,4% verðbólgu í
mánuðinum og gangi sú spá eftir
mun tólf mánaða verðbólga hækka
úr 6,8% í 8,4-8,6%. Er það einkum
gengislækkun krónunnar sem veld-
ur væntanlegri hækkun verðlags, en
stór hluti neysluvara Íslendinga er
aðfluttur. Greiningardeild Glitnis
telur að þróun gengis krónunnar
muni hafa mikið að segja um þróun
verðbólgu hér á landi til skamms
tíma, en útlit sé fyrir að krónan verði
áfram veik á næstunni.
Hagnaðartaka
þurrkaði út hækkun
Í HNOTSKURN
» Af félögum í Úrvalsvísitöl-unni hækkaði gengi bréfa
Teymis mest, eða um 1,90%.
Þá hækkaði gengi bréfa Öss-
urar um 1,66%.
» Bréf Atlantic Petroleumhækkuðu hins vegar mest
allra félaga í kauphöllinni, eða
um 9,95%.
» Velta á skuldabréfamark-aði nam um 24 milljörðum
í gær, mest með ríkisskulda-
bréf til skemmri tíma.
● Írska fjármála-
eftirlitið rann-
sakar nú hvort
neikvæðum orð-
rómi hafi verið
vísvitandi komið
á kreik um írskar
fjármálastofnanir
nýlega með það
að markmiði að
grafa undan þeim og gera þær við-
kvæmari fyrir yfirtöku. Kemur þetta
fram í leiðara Irish Examiner.
Blaðið segir að ef í ljós komi að
írskir fjármálamenn hafi tekið hönd-
um saman við erlenda aðila um að
grafa undan írskum stofnunum verði
þeir að taka afleiðingunum. Viðurlög
við slíku geti verið allt að 10 milljóna
evra sekt og 10 ár í fangelsi. Er í leið-
aranum bent á Ísland sem dæmi um
land sem glími við áhrif neikvæðs
orðróms. Írland og Ísland séu bæði
lítil, opin hagkerfi sem séu viðkvæm
fyrir breytingum á væntingum.
Rannsakar neikvæðan
orðróm
● SKÖMMU eftir opnun kauphall-
arinnar í gær voru tilkynnt utanþings-
viðskipti með 1,44% hlut í Straumi-
Burðarási. Gengi í viðskiptunum var
11,54 krónur á hlut, sem er hið
sama og í síðustu viðskiptum mið-
vikudagsins en gera má ráð fyrir að
viðskiptin hafi átt sér stað eftir lok-
un markaðar á miðvikudag.
Heildarverðmæti viðskiptanna er
um 1,7 milljarðar króna en ekki hefur
borist nein tilkynning í fréttakerfi
kauphallar sem gefur til kynna hverjir
áttu hlut að máli. Hafi eignarhlutur
viðkomandi ekki farið yfir flögg-
unarmörk er ekki við slíkri tilkynn-
ingu að búast.
Viðskipti með stóran
hlut í Straumi
● EYRIR Invest
heldur áfram að
bæta við hlut sinn
í Marel Food Sys-
tems. Í gær flagg-
aði félagið kaup-
um á tæplega 5
milljónum hluta
og á það nú orðið
35,7% af heildar-
hlutafé Marels.
Árni Oddur
Þórðarson, forstjóri Eyris og stjórn-
arformaður Marels, segir í samtali
við Morgunblaðið að ekki standi til
að yfirtaka félagið. Hann hafi lýst því
yfir á síðasta afkomufundi að stjórn-
endur Marels hefðu metnað til að
hafa félagið skráð á markaði enda
hefði stuðningur frá fjármálamörk-
uðum þjónað vaxtarmarkmiðum fé-
lagsins vel. „Marel er alþjóðlegt fé-
lag með nær einvörðungu erlent
sjóðstreymi en að hluta til innlendan
kostnað. Teljum við að hægt sé að
skapa mikil hluthafaverðmæti á
næstu árum og okkar mat er að
hlutabréfaverð mælt í evrum sé nú
hagstætt,“ segir Árni Oddur.
Eyrir Invest með
35,7% hlut í Marel
Árni Oddur
Þórðarson
BRESKA blaðið Daily Telegraph
segir í grein í blaðinu í gær að efna-
hagsástandið á Íslandi geti haft áhrif
á lönd eins og Tyrkland, Eystra-
saltsríkin, Balkanríkin, Ungverja-
land og hugsanlega Suður-Afríku.
Segir blaðið, að allt séu þetta lönd,
sem lifi langt um efni fram og hafi
stoppað í fjármálagöt með ódýru
lánsfjármagni. Brothætt hagkerfi
Íslands eigi að vera öðrum löndum
víti til varnaðar en greint er frá
hækkun stýrivaxta Seðlabankans í
15%, sem hafi verið gerð til að stöðva
gengisfall krónunnar. Jafnframt er
bent á að eignasafn íslensku bank-
anna sé á við áttfalda framleiðslu
landsins og það sé heimsmet. Segir í
grein blaðsins að nú hafi verið skrúf-
að fyrir ódýra fjármagnið og skulda-
tryggingaálag bankanna sé komið í
álíka hæðir og hjá Bear Stearn fjár-
festingabankanum áður en honum
var bjargað af bandaríska seðla-
bankanum. Þetta veki upp þá spurn-
ingu hvort íslenska ríkið sé nógu öfl-
ugt til að verja bankana ef allt fari á
versta veg.
Jafnframt segir að Ísland sé ann-
að og meira en norrænn vogunar-
sjóður sem þykist vera land. Það sé
líka fyrsta skuldsetta ríkið sem verði
fyrir barðinu á fjárfestaflótta og það
kveiki viðvörunarljós annars staðar.
Hagkerfið öðrum
víti til varnaðar
ERLENDAR hlutabréfavísitölur
hækkuðu flestar í gær, að þeim
bandarísku og japönsku und-
anskildum. Fréttir af minnkandi
fjárfestingu í vélbúnaði og öðrum
framleiðsluvörum í Bandaríkjunum
jók á svartsýni fjárfesta. Þá bárust
fréttir af slakri afkomu tæknifyr-
irtækisins Oracle og samdrætti í
auglýsingatekjum leitarvélarinnar
Google. Dow Jones vísitalan lækk-
aði um 0,97% og Nasdaq um 1,87%.
Eins og áður segir lækkaði Nikk-
ei vísitalan sömuleiðis, eða um
0,80% í gær, en annars voru hófleg-
ar hækkanir á helstu hlutabréfa-
vísitölum. Breska FTSE vísitalan
hækkaði um 1,01%, þýska DAX um
1,37% og franska CAC um 0,92%.
Samnorræna hlutabréfavísitalan
hækkaði um 1,18% í gær.
Misjafnt gengi hlutabréfa erlendis
Reuters
ÞETTA HELST ...
● KRÓNAN veiktist um 1,8% gær,
en gengisvísitalan var við lokun
markaða 153,40 stig en var 150,65
stig þegar markaðir voru opnaðir í
gær. Mikil velta var á millibanka-
markaði og nam hún 89,6 millj-
örðum króna. Gengi Bandaríkjadals
var við lokun markaða 75,65 krónur,
evru 119,45 krónur og punds
151,80 krónur. Tryggingarálag á
skuldabréf bankanna hækkaði í
gær, en munur á kaup- og sölu-
tilboðum var mun minni í gær en í
fyrradag, sem er vísbending um að
viðskipti með bréfin hafi aukist. Álag
á bréf Landsbanka er nú um 725
punktar, álag á bréf Kaupþings er nú
um 945 punktar og álag á bréf Glitn-
is er nú um 1022,5 punktar.
Krónan veiktist í gær
ALLS hafa verið felldar niður 104 af-
skriftir fyrir hlutum í Skiptum, móð-
urfélagi Símans, eftir að Kaupþing
ákvað að innheimta ekki áskriftirnar í
hlutafjárútboðinu. Exista hefur sem
kunnugt er gert öllum hluthöfum
Skipta yfirtökutilboð.
Er Kaupþing nú skráð fyrir um
1.980 milljónum hluta í Skiptum, sem
nemur um 26,9% alls hlutafjár í félag-
inu. Fyrir útboðið var Kaupþing skráð fyrir 27,8% hlut í
Skiptum en Exista er stærsti hluthafinn með 43,6% hlut.
Næstu hluthafar þar á eftir, fyrir útboðið, voru lífeyr-
issjóðir, þ.e. Lífeyrissjóður verslunarmanna, Gildi, Stafir
og Sameinaði lífeyrissjóðurinn. Tilboð Exista hljóðar upp
á 6,64 krónur á hlut sem greiða á fyrir með bréfum í Ex-
ista á genginu 10,1. Þess má geta að gengi bréfa Exista
var komið 10,93 í kauphöllinni í gær og bréf Skipta stóðu í
6,57. Yfirtökutilboðið gildir frá klukkan níu á mánudag-
inn 31. mars og til dagsloka þann 26. maí nk..
Kaupþing með 27% í Skiptum
ENGAR formlegar eða óformlegar
viðræður eru í gangi milli Spari-
sjóðsins í Keflavík og Icebank um
hugsanlegan samruna félaganna, að
sögn Geirmunds Kristinssonar,
sparisjóðsstjóra SpKef. Segir Geir-
mundur að fréttir af slíkum viðræð-
um séu lítið annað en vangaveltur að
svo stöddu þar sem samruni geti
aldrei orðið fyrr en SpKef verði
breytt í hlutafélag. „Til stendur að
breyta sparisjóðnum í hlutafélag,
eins og greint hefur verið frá áður,
en sú vinna er tímafrek.“
Varðandi hvað taki við að hluta-
félagavæðingunni lokinni, að því
gefnu að stofnfjáreigendur sam-
þykki hana, segir Geirmundur að vel
geti orðið af samruna SpKef og Ice-
bank en það verði undir hluthöfum
félaganna komið.
Engar
viðræður
HARÐNAÐ hefur á dalnum á hús-
næðismörkuðum víða um heim
vegna lánakreppu á fjármálamörk-
uðum. Spánn er þar engin undan-
tekning. Um 27% færri íbúðir
skiptu um eigendur á Spáni í jan-
úar á þessu ári en í sama mánuði í
fyrra, samkvæmt upplýsingum frá
hagstofu Spánar (NE). Og heildar-
fjárhæð nýrra húsnæðislána í mán-
uðinum lækkaði um 28% milli ári.
Frá þessu er greint í frétt í Fin-
ancial Times (FT).
Segir í frétt FT að José Luis
Rodriguez Zapatero, forsætisráð-
herra Spánar, hafi lofað grípa til
aðgerða til að freista þess að snúa
þróuninni á húsnæðismarkaðinum
við. Meðal annars verði stuðlað að
aukinni atvinnu á vegum hins op-
inbera.
Hörð lending
hjá Spánverjum
♦♦♦
TVÆR nýjar útgáfur af sérvörðum
skuldabréfum Kaupþings fengu í
gær lánshæfiseinkunnina Aaa hjá
matsfyrirtækinu Moody’s og er það
hæsta einkunn sem fyrirtækið gefur.
Um er að ræða annars vegar 4 millj-
arða skuldabréf sem kemur til
greiðslu árið 2031 og hins vegar 15,5
milljarða bréf sem kemur til greiðslu
árið 2045.
Segir í tilkynningu frá Moody’s að
við einkunnagjöfina hafi verið litið til
lánshæfis Kaupþings og þeirra fast-
eignalána sem lögð voru til trygg-
ingar skuldabréfunum.
Fá hæstu
einkunn