Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 21
LANDIÐ
Reykhólar | Kvikmyndin Heiðin
var sýnd um páskana á Reykhólum.
Vel á þriðja hundrað manns mætti á
sýninguna.
Myndin var sýnd í íþróttahúsinu
á Reykhólum. Þar eru 250 stólar í
rekkum og voru þeir nánast full-
setnir. Sýningin tafðist vegna þess
að fólk streymdi að og bæta þurfti
við stólum.
Um 130 manns búa á Reykhólum
og um 260 manns eru skráðir með
búsetu í Reykhólahrepp öllum, en
einnig mátti sjá gesti úr Dalasýslu
og frá Búðardal.
Nemendur skólans á Reykhólum
seldu popp og kók til fjáröflunar
fyrir Danmerkurferð sína og mynd-
aðist mikil bíóstemming í íþrótta-
húsinu.
Frítt var á sýninguna en aðstand-
endur vildu endurgjalda góðar
móttökur heimafólks er myndin var
tekin upp á staðnum sl. vor og sum-
ar 2007. Leikstjórinn, Einar Þór,
var viðstaddur sýninguna.
Aðsókn á Heiðina í Reykjavík og
á Akureyri hefur verið jöfn, en
myndin fór í 14. sæti á aðsókn-
arlista kvikmyndahúsanna eftir
fyrstu sýningarhelgi 16. mars sl.
Fjölmenni á
Heiðina á
Reykhólum
Heiðin Gunnar Eyjólfsson í
hlutverki sínu í Heiðinni.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Snæfellsnes | Nýir eigendur ferða-
þjónustufyrirtækisins Snjófells á
Arnarstapa hafa verið að endurnýja
tækjakost fyrirtækisins vegna ferða
á Snæfellsjökul og endurbæta að-
stöðuna á Arnarstapa. Auk hefð-
bundinna snjósleðaferða leggja þeir
áherslu á útsýnis- og skíðaferðir á
jökulinn.
„Við höfum tekið í notkun 14 nýja
snjósleða og tekið allt í gegn,“ segir
Hjalti Sverrisson, markaðsstjóri
Snjófells og Arnarstapa. Sverrir
Hermannsson og Björgvin Þor-
steinsson keyptu Snjófell í félagi við
Rúnar Má Jóhannesson fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins og
Hjalta. Sverrir og Björgvin reka
fjölda hótela, meðal annars Hótel
Ólafsvík og Hótel Stykkishólm.
Snjófell er með snjótroðara-, snjó-
sleða- og jeppaferðir á Snæfellsjökul
og rekur veitingastaðinn Arnarstapa
ásamt gistiheimili og tjaldsvæði þar.
„Við getum tekið stærri hópa en
áður. Mikil aukning er á útsýnisferð-
um á jökulinn og skíða- og snjó-
brettaferðum. Útsýnið þaðan er ein-
stakt og það er ótrúleg upplifun að
skíða niður,“ segir Hjalti. Einnig
hefur verið aukin áhersla á hópferð-
ir og hvataferðir fyrirtækja. Fyrir-
tækið annast alla þjónustu, í sam-
vinnu við hótelin í Ólafsvík eða
Stykkishólmi ef það hentar hópun-
um.
Mörg tækifæri
Ferðaþjónustan á Snæfellsjökli
hófst í febrúar og hefur Snjófell tek-
ið á móti mörgum hópum það sem af
er ári. Viðskiptin aukast með betra
veðri og færi. Háannatíminn er þó
fyrrihluta sumars, í júní og júlí, og ef
nægur snjór er er hægt að þjóna
fólki fram í ágúst eða september.
Eigendur Snjófells láta ekki elds-
neytishækkanir og spár um að Snæ-
fellsjökull hverfi á þessari öld vegna
loftslagsbreytinga slá sig út af lag-
inu. Hjalti segir að nýrri tækin séu
sparneytnari en þau eldri og það
vegi hluta hækkanana upp.
Smækkuð útgáfa af Íslandi
Þá vill hann ekki hugsa til þess að
jökullinn hverfi. „Snæfellsnes er
einn fallegasti staður landsins,
finnst mér, og er eins og smækkuð
útgáfa af Íslandi. Svæðið hefur upp
á svo margt að bjóða. Við erum að-
eins í tveggja og hálfs tíma aksturs-
fjarlægð frá höfuðborginni og þá er
fólk komið út í stórbrotna náttúru,“
segir Hjalti Sverrisson, markaðs-
stjóri Snjófells og Arnarstapa.
Nýir eigendur endur-
nýja tækjakostinn
Á toppnum Mikið er um að vera á Snæfellsjökli og umferðin eykst þegar
líður á vorið. Boðið er upp á útsýnis- og skíðaferðir og snjósleðaferðir.
Í HNOTSKURN
»Snæfellsjökull er 1.446 metrahár. Sést hann víða að af
Vesturlandi og Reykjanesi.
»Hann er hluti af samnefndumþjóðgarði sem nær yfir vest-
asta hluta Snæfellsness.
»Snæfellsjökull er sögusviðbókarinnar Leyndardómar
Snæfellsjökuls eftir Jules Verne.
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Brúsastaðir í Vatnsdal
voru afurðahæsta kúabúið í Austur-
Húnavatnssýslu á síðasta ári. Bær-
inn ber nafn með rentu.
Kúabændur í Austur-Húnavatns-
sýslu héldu aðalfund sinn á dög-
unum. Gunnfríður Hreiðarsdóttir,
landsráðunautur í nautgriparækt,
flutti erindi um skýrsluhaldið og
nautgriparæktina almennt og Bald-
ur H. Benjamínsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands kúabænda,
fór yfir stöðu greinarinnar í landinu.
Á fundinum komu fram upplýs-
ingar um að afurðahæstu búin í
Austur-Húnavatnssýslu eru Brúsa-
staðir í Vatnsdal með 6.613 kg eftir
árskúna, Hlíð í Skagabyggð með
6.156 kg og í þriðja sæti voru Hösk-
uldsstaðir í Skagabyggð með 6.014
kg.
Afurðahæstu kýrnar á svæðinu á
síðasta ári voru Sóley frá Steinn-
ýjarstöðum en hún skilaði eigendum
sínum 10.956 kg af mjólk. Næst
kom Heiðbrá frá Hnjúki með 9.460
kg og
Villa frá Auðólfsstöðum var þriðja
með 9.353 kg.
Fundarmenn lýstu miklum
áhyggjum af hækkandi verði á að-
föngum og fjármagnskostnaði.
„Fundurinn telur brýnt að leiðrétta
afurðaverð til samræmis við hækk-
anir þessar strax, svo stéttinni verði
búin viðunandi lífskjör og matvæla-
öryggi þjóðarinnar verði tryggt.“
Stjórn félags kúabænda í Austur-
Húnavatnssýslu skipa Magnús Sig-
urðsson Hnjúki, formaður, Jóhann-
es Torfason Torfalæk, Gróa Lár-
usdóttir Brúsastöðum, Jóhann
Bjarnason Auðólfsstöðum og Jens
Jónsson Brandaskarði.
Brúsastaðir
bera nafn
með rentu
Egilsstaðir |
700IS Hreindýra-
land, alþjóðleg og
árleg kvikmynda-
og myndbands-
verkahátíð á
Austurlandi,
verður formlega
sett á morgun.
Hátíðin stend-
ur fram til 5. apr-
íl. Í kringum
hundrað myndir verða sýndar á há-
tíðinni í ár en mun fleiri bárust í
keppnina. Listnemar frá Listahá-
skóla Íslands, Manchester Metropo-
litan-háskólanum og Tempe Arizona
taka þátt í námskeiðum á vegum há-
tíðarinnar auk nemenda af listabraut
Menntaskólans á Egilsstöðum, frá
Verkmenntaskóla Austurlands og
norskra nemenda úr kvikmynda-
skóla í Vesteralen.
Hátíðin verður opnuð í Sláturhús-
inu á Egilsstöðum kl. 20 á laugar-
dagskvöld og hefst með ávarpi Ólaf-
ar Nordal alþingismanns. Opnuð
verður sýning nöfnu hennar Ólafar
Nordal myndlistarmanns, í sam-
starfi við Ásgerði Júníusdóttur óp-
erusöngkonu og Þuríði Jónsdóttur
tónskáld. Dagskráin færist svo yfir á
Gistihúsið Egilsstöðum síðar um
kvöldið. Hátíðin fer víða á næstu
dögum og verður m.a. í Sláturhús-
inu, á Skriðuklaustri, á Höfn í
Hornafirði, á hreindýraslóðum á
Jökuldal, á Eiðum og Café Valný á
Egilsstöðum. 700IS er haldin í sam-
starfi við Menningarmiðstöð Fljóts-
dalshéraðs og styrkt af Fljótsdals-
héraði, menningarráði Austurlands,
Glitni og Alcoa Fjarðaráli.
Deigla Fjölbreytt
verk sýnd á 700IS.
100 mynd-
ir sýndar
á 700IS
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Egilsstaðir | Í dag er í síðasta
skiptið pakkað mjólk í mjólkurstöð
MS á Egilsstöðum. Umtalsverðar
breytingar verða nú á starfseminni
þar.
„Það stefnir í síðasta mjólkur-
pökkunin hér verði í dag“ segir
Guttormur Metusalemsson, vinnslu-
stjóri MS á Egilsstöðum. „Nú fer öll
pökkun og tiltekt á vörum í pantanir
til Akureyrar. Allir þeir sem panta
vörur gera það á Akureyri og þær
verða teknar til þar og fluttar aust-
ur.“
Guttormur segir að pakkað hafi
verið að meðaltali á milli fimm og
sjö tonnum af mjólk á dag, einkum
nýmjólk, léttmjólk og undanrennu.
Öll sérvara, t.d. jógúrt, hefur verið
pakkað á Selfossi og víðar, þar tekn-
ar til pantanir og ekið á Austurland
þar sem þær hafa verið afgreiddar
út frá Egilsstöðum. Framvegis
verður þetta gert á Akureyri.
Öll mjólkin í mosarellaost
„Nú verður einungis um osta-
framleiðslu að ræða hér hjá okkur
og einnig munum við sjá um dreif-
inguna á Austurlandi. Hingað á að
koma bíll fimm daga vikunnar með
vörur frá Akureyri, vörurnar verða
svo fluttar á milli bíla og þeim dreift
um fjórðunginn, að mestu leyti eins
og verið hefur.“
Mosarellaostur verður framvegis
framleiddur úr allri þeirri mjólk
sem af Austurlandi kemur, þ.e. af
svæðinu frá Vopnafirði til Beru-
fjarðar, en það eru hátt í fimm millj-
ónir lítra á ári. Söfnun á mjólk af
þessu svæði verður með sama hætti
og áður. Mjólk frá Höfn og því
svæði er sótt frá Selfossi.
Í mjólkurstöð MS á Egilsstöðum
verða nú átta starfsmenn. Líklega
þarf þó að bæta einum mjólkurbíl-
stjóra við þann mannskap, þar sem
bíllinn sem ekur milli Akureyrar og
Egilsstaða verður gerður út frá Eg-
ilsstöðum. Þrír af þeim sex starfs-
mönnum sem sagt var upp störfum
fyrir áramót eru hættir og hinir þrír
hætta nú um mánaðarmótin.
„Þetta breytir auðvitað talsverðu
hjá okkur hér á Egilsstöðum og
maður áttar sig ekki alveg á hvaða
vinna verður í kringum dreifinguna.
Þá minnkar stórlega það rými sem
við notum í húsnæði mjólkurstöðv-
arinnar. Ekki hef ég heyrt neinar
hugmyndir um að nýta afganginn af
húsnæðinu í annað tengt mjólkur-
vinnslu en eitthvað hefur verið talað
um að leigja út umframhúsnæðið.
Slíkt yrði algerlega að aðskilja frá
okkar starfsemi,“ segir Guttormur.
Starfsmenn hafa miklar efasemd-
ir um þá hagræðingu sem á að verða
í kjölfar breytinganna á Egilsstöð-
um. Þeir hafa gert tillögur um við-
bótarhagræðingu sem minnka
myndi akstur um allt að 130 þúsund
km árlega en þær ekki hlotið hljóm-
grunn hjá yfirstjórn MS.
Pakka ekki lengur
mjólk á Egilsstöðum
Öll mjólk af Austurlandi fer framvegis til ostagerðar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Breytingar Starfsfólki hefur nú verið fækkað og framleiðslunni breytt í
mjólkurstöð MS á Egilsstöðum. Þar fer framvegis öll mjólk í mosarellaost.
Egilsstaðir |
Flutningafyr-
irtækið Að-
alflutningar,
sem stofnað var
árið 1998, hætt-
ir starfsemi í
dag. Fyrirtækið
hefur haft
starfsstöðvar á
Egilsstöðum,
Djúpavogi og í
Reykjavík og missa ellefu starfs-
menn þess vinnuna.
Fyrirtækið Betri flutningar
keyptu Aðalflutninga árið 2004
og voru með vöruflutninga til og
frá höfuðborgarsvæðinu og innan
Austurlands.
Eigendur Aðalflutninga segja
ekki rekstrargrundvöll lengur
fyrir fyrirtækið, enda sam-
keppnin hörð. Fyrirtækið sé þó
ekki á leið í gjaldþrot, heldur
hafi verið ákveðið að leggja
reksturinn af.
Aðalflutningar
hætta rekstri
Rekstrarlok Aðal-
flutningar hætta.
Egilsstaðir | Leikfélag Mennta-
skólans á Egilsstöðum frumsýnir í
kvöld verkið Lísu í Undralandi, eft-
ir Lewis Carroll, í leikgerð Sig-
urðar Ingólfssonar. Leikstjóri er
Halldóra Malín Pétursdóttir. Leik-
gerðin er nútíma útgáfa af Lísu þar
sem dægurtónlist er fléttað saman
við. LME hefur vegna skorts á boð-
legri leiklistaraðstöðu á Egils-
stöðum orðið að byggja upp frá
grunni leikhús í gömlu húsnæði
Trésmiðju Fljótsdalshéraðs í Fella-
bæ og þar fer sýningin fram.
Sýningin hefst kl. 20.
Lísa á fjal-
irnar í kvöld
AUSTURLAND