Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
NICOLAS Sarkozy, forseti Frakklands, sagði í op-
inberri heimsókn sinni í Bretlandi í gær að hann
myndi inna leiðtoga ESB-landanna eftir því hvort
þeir hygðust sniðganga opnunarhátíð Ólympíuleik-
anna í Kína í sumar. Fundur forsætisráðherra
ESB-ríkjanna hefst í Slóveníu í dag og verða mál-
efni Tíbets meðal þess sem tekið verður til umræðu.
Með ummælum Sarkozy eykst alþjóðlegur þrýst-
ingur á yfirvöld í Kína vegna þess hvernig þau hafa
tekið á uppreisn Tíbeta undanfarnar vikur. Tals-
menn Hvíta hússins hafa staðfest að George W.
Bush hafi hringt í forseta Kína til að ýta undir við-
ræður við Dalai Lama, andlegan leiðtoga Tíbets.
Kínversk yfirvöld buðu fámennum hópi frétta-
manna í þriggja daga heimsókn til Lhasa, höfuð-
borgar Tíbets á miðvikudag. Það var í fyrsta sinn
sem erlendum fréttamönnum var hleypt inn í landið
eftir mótmælin og var heimsóknin hugsuð til að
sýna að öldur hefði lægt. Er fréttamenn voru stadd-
ir í einu heilagasta hofi Tíbeta ruddust hinsvegar
um 30 tíbetskir munkar inn og hófu að hrópa mót-
mælaorð og þykir uppákoman hin vandræðalegasta
fyrir kínversk stjórnvöld.
Samskipti Kína og Indlands viðkvæm
Í indverska dagblaðinu The Times of India segir
að viðskiptaráðherra Indlands hafi aflýst för sinni
til Kína sem fyrirhuguð var 1. apríl. Það hafi hann
gert í mótmælaskyni við að kínverska utanríkis-
ráðuneytið kallaði indverska sendiherrann í Peking
á sinn fund um miðja nótt, til að finna að mótmælum
Tíbeta á Indlandi. Samkvæmt AFP-fréttastofunni
segir ráðherrann, Kamal Nath, ákvörðun sína ekki
tengjast málefnum Tíbets.
Tíbet liggur á milli Kína og Indlands og er Dalai
Lama í útlegð á Indlandi auk a.m.k. 100.000 ann-
arra Tíbeta. Indversk stjórnvöld hafa lítið tjáð sig
um átökin í Tíbet og hefur Dalai Lama sagt stefnu
þeirra vera í meira lagi varfærnislega.
Alþjóðlegur þrýstingur á
kínversk stjórnvöld eykst
Reuters
Mótmæli Tíbetskir munkar umkringdu erlenda
fréttamenn og ítrekuðu frelsiskröfu Tíbeta.
Forsætisráðherrar ESB ræða málefni Tíbets Bush hvetur Kína til samræðna
FIMM íbúar hússins, sem hrundi saman að nokkru leyti
í Álasundi í fyrradag er stór skriða féll á það, eru nú
taldir af. Eldur logaði í því enn í gær og þá var talið, að
nokkrir dagar gætu liðið þar til björgunarmönnum
væri óhætt að fara inn í það með leitarhunda. Á mynd-
inni má sjá hvernig bergið fyrir ofan húsið hefur
sprungið fram en áætlað er, að skriðan eða bjargið,
sem fór á húsið, sé allt að 6.000 tonn. Færðist húsið þá
eina sex metra fram í götuna. Bergið hafði raunar ver-
ið styrkt með fjögurra metra löngum boltum, sem bor-
aðir höfðu verið inn í það, en það sprakk hins vegar 10
metrum frá ystu brún.
AP
Fimm íbúanna taldir af
Las Guasimas. AP. | Ana
Magdalena Melian, 91 árs
húsmóðir á Kúbu, hafði aldrei
séð örbylgjuofn þegar slíkur
ofn birtist í eldhúsi hennar
fyrir atbeina kommúnista-
stjórnarinnar í Havana.
„Sumt efnað fólk í Havana
átti örbylgjuofn en við hin lét-
um okkur ekki dreyma um
slíkan munað,“ sagði Melian.
Um 3.000 heimili í bænum
Las Guasimas fengu ör-
bylgjuofn til afnota í tilrauna-
skyni í desember. Margir
vona að tilkoma tækjanna sé
undanfari þess að nýkjörinn
forseti Kúbu, Raul Castro, af-
nemi bann við ýmsum heim-
ilistækjum sem eru á boð-
stólum víðast hvar annars
staðar í heiminum.
Útsendarar komm-
únistastjórnarinnar heim-
sóttu fjölskyldurnar í Las
Guasimas reglulega í þrjá
mánuði til að spyrja hvernig
þeir hefðu reynst og fylgjast
með orkunotkuninni. Ofn-
arnir mæltust svo vel fyrir að
stjórnin íhugar nú að bjóða
öllum fjölskyldum Kúbu ör-
bylgjuofna á langtímalánum.
Þyrfti 20 ára lán
Kúbumenn hafa fengið slík
lán til að kaupa litasjónvarp,
hraðsuðupotta, loftkæling-
artæki og ísskápa. En aðeins
útlendingar og fyrirtæki hafa
getað keypt örbylgjuofna,
tölvur og DVD-spilara.
„Það er eins og örbylgju-
ofninn hafi fallið beint af
himnum ofan,“ sagði Marisa
Gutierrez, 49 ára húsmóðir.
„Við vonum að fleira komi í
framtíðinni. Tölvur og símar á
hvert heimili.“
Samkvæmt minnisblaði,
sem lekið var í erlenda fjöl-
miðlamenn í Havana fyrr í
mánuðinum, hefur ríkis-
stjórnin þegar samþykkt
ótakmarkaða sölu á örbylgju-
ofnum, tölvum, DVD-
spilurum, sjónvarpstækjum
af öllum stærðum og raf-
knúnum reiðhjólum. Í minn-
isblaðinu sagði að þetta væri
mögulegt vegna aukins fram-
boðs á rafmagni.
Kúba hefur fengið ódýra
olíu frá Venesúela á síðustu
árum og það hefur gert Kúbu-
mönnum kleift að auka raf-
orkuframleiðsluna. Lán frá
Kína hafa einnig auðveldað
þeim að flytja inn varning
sem framleiddur er þar og í
Suður-Kóreu.
Í minnisblaðinu kemur
fram að selja eigi tölvur, ör-
bylgjuofna og önnur raf-
eindatæki í verslunum sem
taka aðeins við svonefndum
„skiptanlegum pesóum“, kúb-
verskum gjaldmiðli sem not-
aður hefur verið í sérstökum
verslunum á Kúbu frá 1995 og
er 24-sinnum verðmeiri en
venjulegi pesóinn. Flestir
Kúbumenn myndu ekki hafa
efni á örbylgjuofnum í slíkum
verslunum og það er jafnvel
erfitt fyrir marga að kaupa
ofnana þótt þeir fái lán fyrir
þeim.
Gert er ráð fyrir því að fjöl-
skyldurnar geti keypt ör-
bylgjuofn fyrir 2.000 pesóa,
sem svarar 6.700 krónum.
Meðallaun ríkisstarfsmanns á
Kúbu eru rúmlega 400 pesóar
á mánuði, eða 1.500 krónur.
„Ef ég þarf að kaupa ör-
bylgjuofninn tekur það mig
tuttugu ár að borga lánið
upp,“ sagði Sergio Rodriguez,
76 ára fyrrverandi vörubíl-
stjóri sem fær tæpar 800
krónur á mánuði í ellilífeyri.
„Eins og örbylgjuofninn hafi
fallið beint af himnum ofan“
AP
Nútímaþægindi Marisa Gutierrez, 49 ára húsmóðir, notar ör-
bylgjuofn á heimili sínu í bænum Las Guasimas á Kúbu.
ALI Babacan, utanríkisráðherra
Tyrklands, segir að hætta sé á að
viðræðum Tyrkja við Evrópusam-
bandið um aðild verði frestað ef
dómstólar banni stjórnarflokk Re-
cep Tayyip Erdogans forsætisráð-
herra, AKP. Ríkissaksóknari Tyrk-
lands fór fyrr í mánuðinum fram á að
stjórnlagadómstóll bannaði flokkinn
á þeirri forsendu að AKP bryti lög
um aðskilnað ríkisvalds og trúar með
því að ota fram trúarlegum sjónar-
miðum í stjórnsýslunni.
Talið er að liðið geti sex mánuðir
áður en málið um lögmæti flokksins
verður útkljáð. ESB hefur þegar
stöðvað viðræður um átta af alls 35
mikilvægum málaflokkum sem fara
þarf yfir áður en ríki geti fengið að-
ild. Ágreiningur er milli aðilanna
vegna þess að Tyrkir neita að veita
gríska hluta Kýpur tollaívilnanir
komi til aðildar en gríski hlutinn er
nú aðili að ESB. Einnig er andstaða
við aðild Tyrkja hjá mörgum leiðtog-
um í sambandinu.
Viðræðum
um ESB-að-
ild frestað?
Deilt um lögmæti
stjórnarflokks
Tyrklands
BANDARÍSKT
flugfélag flutti
fimm manns yfir
Atlantshafið í 240
sæta þotu. Bens-
ínið, sem til
þurfti, var 83.000
lítrar eða 16.700 l
á hvern farþega.
Talsmenn um-
hverfissamtaka
segja, að ferðin
hafi ekki verið neitt annað en
hneyksli og raunar dæmigerð fyrir
sóunina á þessum vettvangi eins og
svo mörgum öðrum. Ferðin var farin
9. febrúar en þá kom upp vélarbilun
hjá American Airlines og því varð að
aflýsa eða fresta fjórum ferðum frá
Chicago til London. Flestir farþeg-
anna fóru þá með öðrum flugfélögum
en fimm urðu eftir og eftir 11
klukkustunda bið voru þeir fluttir til
London.
Bensínið á hvern þeirra var eins
og áður segir 16.700 lítrar og koltví-
sýringsmengunin jókst um 215 tonn
eða 43 tonn á mann. Það svarar til
þess, að bíl af gerðinni Ford Mondeo
hafi verið ekið fimm sinnum í kring-
um jörðina.
Launakostnaður flugfélagsins var
á fimmtu milljón króna en talsmaður
þess segir, að það hafi ekki átt
neinna kosta völ. Í London hafi heill
flugvélarfarmur af farþegum beðið
eftir að komast vestur..
16.700
lítrar á
farþega
Þotur í eigu Am-
erican Airlines.
Fimm fluttir í 240 sæta
vél yfir Atlantshafið
FUNDIST hafa á Spáni steingerð
bein, neðri kjálki, auk tanna úr for-
föður manna og talið að leifarnar séu
liðlega milljón ára gamlar. Er um að
ræða elstu leifar manna sem fundist
hafa í Vestur-Evrópu, að því er fram
kemur á vefsíðu BBC.
Leifarnar, sem líklegt er að séu úr
konu, fundust í héraðinu Sierra
Atapuerca í grennd við Burgos en
þar er mikið af hellum og hafa áður
fundist þar merkar leifar forfeðra
nútímamannsins í nokkurra hundr-
aða metra fjarlægð frá staðnum þar
sem leifarnar fundust núna, Sima del
Elefante. Auk beina fundust áhöld
úr steini og steingerð bein dýra sem
fólkið hefur veitt sér til matar.
Milljón ára
beinaleifar
♦♦♦