Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 17
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
ÍRASKAR öryggissveitir áttu í gær
í hörðum átökum við sveitir sjíta í
hafnarborginni Basra, í borginni
Kut og í nokkrum hverfum Bagdad-
borgar. Óttast sumir, að borgara-
stríð sé að brjótast út í landinu en
það stendur þó ekki á milli súnníta
og sjíta eins og ætla hefði mátt, held-
ur á milli stríðandi sjítafylkinga.
Talið er, að nokkur hundruð
manns hafi fallið í átökunum en Nuri
al-Maliki forsætisráðherra, sem er
sjíti, sendi 15.000 manna lið til að
uppræta „óaldarflokkana“ í Basra.
Er þá einkum átt við Mahdi-herinn,
liðsmenn sjítaklerksins Moqtada al-
Sadrs, en Maliki gaf þeim þriggja
sólarhringa frest til að leggja niður
vopn í fyrradag. Þar geisuðu samt
blóðugir bardagar í gær og lá svart-
ur reykjarmökkur yfir borginni,
helstu olíuútflutningshöfn landsins,
eftir að olíuleiðsla hafði verið
sprengd í sundur. Varð það til þess,
að heimsmarkaðsverð á olíu hækk-
aði töluvert og fór í 107 dollara fatið.
Þrjár meginfylkingar
Sjítafylkingarnar, sem berjast um
ítök og völd í Írak, eru í fyrsta lagi
Mahdi-her al-Sadrs en innan hans er
þó klofningur. Annars vegar eru
þeir, sem fara að fyrirmælum al-Sa-
drs, til dæmis um vopnahléið, og
hins vegar þeir, sem virða það að
vettugi.
Önnur fylking er Badr-herdeildin,
vopnaður armur stjórnmálaflokks-
ins Íslamska æðstaráðsins, en liðs-
menn hennar hafa oft átt í útistöðum
við liðsmenn Mahdi-hersins. Virðist
Badr-herdeildin lítið koma við sögu í
þeim átökum, sem nú eiga sér stað
og standa einkum á milli stjórnar-
hersins og Mahdi-hersins.
Þriðja fylkingin er Fadhila. Er
stuðningur við hana bundinn við
suðurhluta landsins og hún ræður í
raun yfir drjúgum hluta olíufram-
leiðslunnar þar.
Í fjórða lagi má nefna leynilegar
sveitir vopnaðra manna, sem eru
sagðir fara eftir fyrirmælum frá Ír-
ansstjórn.
Auk átakanna í Basra var barist í
borginni Kut og einnig í Hilla og
Diwaniya. Fréttir voru þó um þreif-
ingar milli fulltrúa al-Sadrs og
stjórnarinnar en ekki er alveg ljóst
hvers vegna hún ákvað að láta nú til
skarar skríða. Telja sumir, að hún
vilji klekkja á sjítafylkingunum fyrir
sveitarstjórnarkosningar í október
en aðrir segja, að slagurinn standi
fyrst og fremst um olíuna, megin-
uppsprettu alls fjármagns í landinu.
AP
Æsingar Sjítar í Bagdad brenna
mynd af Maliki forsætisráðherra.
Átökunum í Írak líkt
við borgarastyrjöld
Standa þó ekki á milli gömlu fjandmannanna, sjíta og súnníta,
heldur á milli sjítafylkinga sem berjast um völd og áhrif
EINN af tíu
bandarískum
kjósendum telur
ranglega að Bar-
ack Obama sé
múslimi skv.
nýrri óháðri
skoðanakönnun.
Könnunin náði til
demókrata,
repúblikana og
óákveðinna. Fréttir af ágreiningi
vegna ummæla fyrrum prests í
kristnum söfnuði er Obama til-
heyrði, virtust ekki hafa áhrif á
þessa skoðun fólks. Orðrómi um að
Obama sé múslimi hefur m.a. verið
dreift á netinu.
Telja Obama
vera múslima
Barack Obama
BANDARÍSKUR maður í Oregon,
Thomas Beatie, sem var kona en
fór í kynskiptaaðgerð, segist nú
vera vanfær og kominn fimm mán-
uði á leið, að sögn The Guardian.
Beatie, sem er kvæntur, hét áður
Tracy Lagondino og var þá lesbía á
Hawaii og virk í réttindabaráttu
samkynhneigðra. Beatie mun hafa
sett mynd af sér og grein á vefsíð-
una The Advocate og lýsir þar
ánægju sinni með að eiga von á sér.
Ófrískur karl?
BÚNAÐURINN er ekki flókinn:
Eyrnapinni til að taka sýni úr
munninum, eyðublað til að stað-
festa að við-
skiptavinurinn
samþykki skil-
málana og um-
slag. Síðan þarf
að bíða allt að
fimm daga eftir
niðurstöðunni
og fá staðfest að
barnið hafi ver-
ið rétt feðrað.
Identigene, bandarískt fyr-
irtæki sem rekur DNA-rann-
sóknastofu, selur nú þessa þjón-
ustu í apótekum vestanhafs.
Kostar búnaðurinn 30 dollara, um
2200 krónur og rannsóknin sjálf
119 dollara að auki, um 9.000 kr.
Niðurstöðurnar duga þó ekki fyr-
ir rétti, þá er krafist nákvæmari
og dýrari rannsókna.
Rétt eða röng
feðrun?
! "#
$
$ % &'
())) *
+!!* ' , -$
#
' ./
0
1
* *
' 2$
3+425-6743-896: ;() <=>> 3+
42?-6743@AB>-&+7"6@6-
! *
(C
DE@F32G4
BBB)
- kemur þér við
Sérblað um ferðalög
fylgir blaðinu í dag
Vegagerðin fór rangt
með við UNESCO
Skata beit Frey
Eyjólfsson í tána
Það besta í bænum um
helgina
Volkswagen Tiguan
reynsluekið
Hrafn Jökulsson skrif-
ar um hamingjuvogina
Fimm heimili mygluðu
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Dalvegi 10-14 • Sími 5771170
Innrettingar
Drauma eldhu´s
XE
IN
N
IX
08
02
00
9
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Barcelona
24. apríl
Frábær helgarferð
á sumardaginn fyrsta!
frá kr. 29.990
Beint morgunflug - síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða ótrulegt tilboð á síðustu flugsætunum í beinu morgun-
flugi til Barcelona, á sumardaginn fyrsta, 24. apríl. Barcelona er einstök
perla sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Borgin býður frábært
mannlíf og óendanlega fjölbreytni í
menningu, afþreyingu og úrvali fjöl-
breyttra veitingastaða og verslana.
Gríptu þetta frábæra tækifæri -
takmarkaður fjöldi flugsæta í boði!
Mb
l
98
73
97
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, flugsæti með sköttum.
Sértilboð 24. apríl í 3 nætur.