Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 44
Áttu þér lífsmottó?
Ekki detta í kántrí-
tónlist… 48
»
reykjavíkreykjavík
Georgísku flytjendurnir í Evró-
visjón með söngkonuna Diana
Gurtskaya fremsta í flokki hafa
lýst áhuga á því að koma til Íslands
og kynna framlag sitt í keppninni.
Skemmst er að minnast þess þegar
Ruslana hin úkraínska sigraði fyrir
fjórum árum eftir mikinn kynning-
artúr um álfuna, meðal annars hér-
lendis. Georgía er í sömu und-
ankeppni og Ísland og nú er bara
vonandi að Eurobandið sé í jafn öfl-
ugri kosningabaráttu austar í álf-
unni og Gurtskaya og félagar
hérna fyrir vestan.
Evróvisjónbaráttan
er hafin
Þrátt fyrir að
Einar Bárðarson
sé alfluttur til
Bretlandseyja
þar sem hann
stýrir umboðs-
fyrirtæki sínu
Believer Music
hefur hann ekki
gefið Ísland upp á bátinn. Í fjölda-
pósti sem Einar sendi út í gær seg-
ir: „Garðar Cortes vinur minn gæti
auðveldlega unnið bresku tónlist-
arverðlaunin með þínum stuðningi
– nennirðu að hjálpa mér og vippa
þér hérna inn og kjósa.“ Tvennt
vekur athygli í þessum pósti. Ann-
ars vegar að Einar biður fólk um að
hjálpa sér en ekki Garðari Thór og
í öðru lagi finnst Einari það greini-
lega ekki tiltökumál að bresku tón-
listarverðlaunin verði „auðveld-
lega“ unnin með hjálp okkar
Íslendinga. Það er greinilega allt
leyfilegt í ástum, stríði og tónlist-
arverðlaunum.
Íslensku Brit-verðlaunin
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞEIR félagar, Egill og Hjörleifur,
hafa búið í Berlín lengi vel en þetta
er í fyrsta skipti sem um verulega
samvinnu þeirra á milli er að ræða.
Egill hefur fyrir löngu skapað sér
nafn sem einn framsæknasti lista-
maður landsins og Hjörleifur hefur
nú stýrt slagverkshópnum Percu-
semble Berlin í 11 ár en hópurinn
hefur einbeitt sér að flutningi á nú-
tímatónlist. Samvinnuverkefni Eg-
ils og Hjörleifs kallast Inselhopp-
ing eða Eyjastökk og verður flutt á
Listahátíð, mánudaginn 19. maí.
Teygt og togað
Egill rifjar upp að Hjörleifur
hafi tekið þátt í verkefni með hon-
um fyrir löngu síðan en þar hafi
ekki verið um náið samstarf að
ræða. Hjörleifur segir að Eyja-
stökkið hafi hins vegar verið að
gerjast hjá þeim í nokkur ár og
þeir hafi rætt það mikið sín á milli.
„Ég lagði þetta síðan fyrir Þórunni
Sigurðardóttur hjá Listahátíð og
henni leist vel á. Við fórum síðan í
að fjármagna verkið og fluttum
það fyrst úti í Berlín síðasta
haust.“
Eyjastökk gengur þannig fyrir
sig að flutt eru verk eftir átta tón-
skáld frá Írlandi, Berlín og Íslandi
sem skrifuðu verkin sérstaklega
fyrir þetta verkefni. Egill sér svo
um að vinna með umhverfi tónlist-
arflutningsins og gerir tilraun með
að teygja og toga viðteknar hug-
myndir um hvernig flutningur á
tónlistarverkum gengur fyrir sig.
Egill nýtir sér þannig t.d. víd-
eótækni en skrifar auk þess leið-
beiningar fyrir tónlistarmennina,
hvernig þeim ber að athafna sig við
flutninginn. „Ég bý þannig í raun
til „score“ eða nótur sem fella sig
að flutningnum. Sá partur er jafn
mikill hluti af tónlistinni og það
sem þú heyrir, þetta er ekki viðbót
heldur samþættist öllu ferlinu.“
Mikið flug
Hjörleifur segir að þeir félagar
hafi farið á mikið flug við þessa
vinnu og möguleikarnir til ný-
breytni á þessu sviði séu svo gott
sem óþrjótandi. „Ég hef mikinn
áhuga á að fara lengra með þessar
hugmyndir, ég er farinn að finna
mig ríkulega í svona „performance
art“ eða gjörningum og vinna á
einhverjum óljósum mörkum list-
greina. “
Á efnisskránni eru verk eftir
írska tónskáldið Ed Bennett, Berl-
ínartónskáldin Jeremy Woodruff
og Helmut Zapf og íslensku tón-
skáldin Úlfar Haraldsson, Atla
Heimi Sveinsson og Pál Ívan Páls-
son. Í verkum Atla Heimis og Hel-
muts Zapf leikur Freyja Gunn-
laugsdóttir einleik á klarínettu en
hún er, eins og strákarnir, búsett í
Berlín.
Hvað ertu, tónlist?
Egill Sæbjörnsson
og Hjörleifur Jóns-
son takast á við
tónlistina í samein-
ingu á komandi
Listahátíð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjörleifur og Egill „Ég hef mikinn áhuga að fara lengra með þessar hugmyndir,“ segir Hjörleifur.
DAILY Mirror, eitt stærsta dag-
blað Bretlandseyja, nefnir Iceland
Airwaves sem eina af bestu
tónlistarhátíðum heims í úttekt
sem birt var í blaðinu um síðustu
helgi. Þar er Iceland Airwaves í
góðum hópi virðulegra viðburða á
borð við Fuji Rocks í Japan,
Benecassim á Spáni og The Big
Day Out í Ástralíu sem Björk lék
á í janúar.
Belgíska hátíðin Pukkelpop var
valin besta hátíð heims á listanum,
en Airwaves hafnar hins vegar í
sjötta sætinu. Það verður að telj-
ast mjög góður árangur, sér-
staklega ef miðað er við höfðatölu,
og í tilkynningu frá aðstandendum
hátíðarinnar segir að þeir séu
mjög ánægðir með að vera settir í
hóp með bestu tónlistarhátíðum
heims.
Iceland Airwaves 2008 fer fram
í miðborg Reykjavíkur daganna
15.-19. október næstkomandi. Til-
kynnt verður um fyrstu listamenn
hátíðarinnar í ár á næstu vikum
samhliða því sem miðasala hefst á
alþjóðavettvangi.
Framkvæmd Iceland Airwaves
er í höndum fyrirtækisins Hr. Ör-
lygs, en hátíðin er haldin í sam-
vinnu við Icelandair og Reykjavík-
urborg.
Airwaves er ein sú besta
Morgunblaðið/ÞÖK
Iceland Airwaves Hljómsveitin The Telepathetics á hátíðinni árið 2006.
■ Á morgun kl. 14.00 – Örfá sæti laus
Maxímús Músíkús – Tónsprotatónleikar
Músin Maxímús Músíkus villist inn á æfingu og tónleika hljómsveitar-
innar. Tónleikar í tilefni af útkomu samnefndrar barnabókar Hallfríðar
Ólafsdóttur flautuleikara með myndum eftir Þórarin Má Baldursson
víóluleikara. Valur Freyr Einarsson leikari segir söguna af Maxímúsi,
trúðurinn Barbara lítur við og Maxímús sjálfur kemur í heimsókn. Á
efnisskránni eru m.a. Bolero eftir Ravel og fyrsti kaflinn úr fimmtu
sinfóníu Beethovens. Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
■ Fim. 3. apríl kl. 19.30
Einstakur gestur
Robert Levin er einhver merkasti tónlistarhugsuður okkar tíma. Hann
leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven og spinnur sína eigin
kadensur.
■ Fös. 4. apríl kl. 21.00
Heyrðu mig nú!
Öðruvísi upplifun af sinfóníutónleikum. Stuttir tónleikar þar sem lista-
mennirnir kynna verkin og partí í anddyri Háskólabíós á eftir. Róbert
Levin leikur píanókonsert eftir Beethoven og spinnur út frá lögum sem
tónleikagestir leggja til. Heppnir tónleikagestir vinna iPod í boði FL
Group.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is