Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 49
MAGNÚS Kjartansson hljóm-
listamaður segir nýtt lag hafa kom-
ið í leitirnar nýverið sem Magnús
samdi og Vil-
hjálmur Vil-
hjálmsson söng
og samdi texta
við. Lagið fann
upptökustjórinn
Tony Cook sem
vann í mörg ár á
Íslandi en það
var prufuupp-
taka sem gerð
var á sama tíma
og verið var að vinna síðasta lagið
með Vilhjálmi
Lagið hefur ekki hlotið neinn titil
enn sem komið er en Magnús veit
ekki hvort lagið verður gefið út.
Hann segist hafa hlýtt á lagið nú
tæpum 30 árum eftir að það var
tekið upp en Vilhjálmur fórst í bíl-
slysi fyrir sléttum 30 árum í dag,
við Lúxemborg þann 28. mars 1978.
Magnús segir það líkt og hafa
flakkað aftur í tíma að hlýða á upp-
tökuna og í kjölfarið hafi hann áttað
sig á því að safna yrði saman öllu
efni tengdu Vilhjálmi, kassettum og
öðru, og halda til haga. Hann hvet-
ur alla þá sem eiga myndir af Vil-
hjálmi, upptökur eða annað honum
tengt að setja sig í samband við
Senu svo hægt sé að varðveita efn-
ið.
Vilhjálms veglega minnst
„Ég, Sena, Concert og aðrir ætl-
um okkur að minnast Vilhjálms
veglega á þessu ári,“ segir Magnús.
Til greina komi að halda mikla
heiðurstónleika í ágúst en þó hafi
ekkert verið ákveðið í þeim efnum.
Jón Ólafsson og Björgvin Hall-
dórsson muni þá væntanlega taka
þátt í því verkefni ásamt fleirum, að
ógleymdri fjölskyldu Vilhjálms.
Þykir Magnúsi ekki ósennilegt að
það verði umfangsmiklir tónleikar
með fjölda hljóðfæraleikara og
söngvara. „Það stendur mikið til,“
segir Magnús og meira sé ekki
hægt að segja um málið í bili.
Í kvöld og annað kvöld verður
Vilhjálms minnst með tónleikum í
Salnum í Kópavogi. Söngvaranir
Stefán Hilmarsson, Pálmi Gunn-
arsson, Friðrik Ómar og Guðrún
Gunnarsdóttir syngja lög Vilhjálms
og Kjartan Valdimarsson píanóleik-
ari stjórnar sex manna hljómsveit
ásamt strengjakvartett Rolands
Hartwell. Plata með úrvali laga Vil-
hjálms hefur notið mikilla vinsælda
seinustu vikur á Íslandi enda einn
ástsælasti söngvari landsins fyrr og
síðar.
Nýtt lag fannst
með Vilhjálmi
Magnús
Kjartansson
Fyrir 30 árum Frétt af andláti Vilhjálms í Morgunblaðinu 29. mars 1978.
/ AKUREYRI
Frábær gamansöm þroskasaga
með Ryan Gosling í aðalhlutverki
styrkir Geðhjálp
STÓRA PLANIÐ kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
SHUTTER kl. 8 B.i. 12 ára
10,000 BC kl. 6 B.i. 12 ára
THERE WILL BE BLOOD kl. 10 B.i. 12 ára
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10 B.i. 10 ára
THE EYE kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
HORTON m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI
FRÁ LEIKSTJÓRA
INDEPENDENCE DAY OG
THE DAY AFTER TOMORROW
eeee
- G.H.J
POPPLAND
eeee
EMPIRE
eeee
NEWSDAY
eeee
OK!
„Næstum því
fullkomin mynd
með frábærum
leikurum“
- Wall Street
Journal
„Furðuleg en
heillandi.... með
hjartað á réttum
stað“
- Film4
„...Lítið
kraftaverk“
- Premier
„Mynd sem á
erindi til allra“
- Sveinn
Magnússon
formaður
Geðhjálpar
J E S S I C A A L B A
ÞAÐ GETUR VERIÐ
SKELFILEGT AÐ SJÁ
SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Á AKUREYRI SÝND Á SELFOSSI
- H.J., MBL
eeee
STÓRA PLANIÐ kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
SEMI-PRO kl. 6 B.i. 7 ára
SPIDERWICK CHRONICLES kl. 8 B.i. 7 ára
10,000 BC kl. 10:20 B.i. 7 ára
l
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
„Allt smellur saman og gengur upp”
- A.S., MBL
eeee
„Fín Fjölskyldumynd”
- 24 Stundir
eee
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
l
ATH:
Á UNDAN MYNDINNI
VERÐUR FRUMSÝNT
FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ (TRAILER)
ÚR ICE AGE 3!
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 49
Þau mistök urðu við birtingu mynd-
ar frá kveðjuhátíð Gauks á Stöng
sem birtist í Morgunblaðinu síðast-
liðinn þriðjudag að þar var Ívar Örn
Hansen rangnefndur Ívar Odd-
geirsson. Er hér með beðið velvirð-
ingar á þessu.
LEIÐRÉTTING
Rangt nafn
ALMENN miðasala hefst í dag á
tónleika Bob Dylan sem fram fara í
Egilshöll hinn 26. maí næstkomandi.
Tvö þúsund miðar seldust í gær á
nokkrum mín-
útum þegar sér-
stök forsala fór
fram fyrir hand-
hafa Master-
card og fengu
mun færri miða
en vildu. Það má
því gera ráð fyr-
ir því að salan
fari vel af stað í
dag.
Byrjað verður að selja miða
klukkan tíu fyrir hádegi bæði á Miði-
.is og á öllum afgreiðslustöðum fyr-
irtækisins. Sex þúsund miðar eru í
boði og hægt er að velja um að
greiða 6.900 krónur fyrir stæði fjær
sviðinu eða 8.900 fyrir að standa nær
rokkgoðinu á tónleikunum.
Miðasala
hefst á Dylan
Bob Dylan