Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 51
FRUMSÝNING»
ÞRJÁR kvikmyndir verða frum-
sýndar í dag í íslenskum kvikmynda-
húsum auk Stóra plansins, en um-
fjöllun um hana má finna á bls. 47.
The Eye
Sidney Wells er blindur kons-
ertfiðluleikari og nýtur mikillar vel-
gengni í starfi. Hún fær sjónina á ný
eftir að hafa farið í augnaðgerð og
verður að vonum himinlifandi en
gleðin varir ekki lengi því brátt fer
hún að sjá skelfilegar myndir sem
engin skýring fæst á. Ættingjar
Wells fara að óttast um geðheilsu
hennar og hrollvekjan magnast. Í
aðalhlutverkum eru Jessica Alba og
Allessandro Nivola.
IMDb: 5,1/10
Metacritic: 36/100
New York Times: 40/100
The Other Boleyn Girl
Myndin er byggð á samnefndri
metsölubók Philippu Gregory og
segir af Boleyn-systrum, Anne og
Mary, sem keppa um ástir Hinriks
VIII Englandskonungs. Rómantík
og svik eru allsráðandi og valda-
græðgi Boleyn-fjölskyldunnar und-
irliggjandi. Mary verður á endanum
hjákona konungs og elur honum
barn. Anne lætur þó ekki deigan
síga enda takmarkið að verða
drottning. Systurnar leika Scarlett
Johanson og Natalie Portman og
konunginn leikur Eric Bana.
IMDb: 6,9/10
Metacritic: 50/100
New York Times: 40/100
Vantage Point
Spennutryllir með Dennis Quaid,
Matthew Fox og Forest Whitaker í
aðalhlutverkum. Tilraun er gerð til
þess að ráða forseta Bandaríkjanna
af dögum. Leyniþjónustumönnunum
Thomas Barnes og Kent Taylor er
falið að gæta forsetans á ráðstefnu
um hryðjuverkaógn á Spáni sem
tekst ekki betur en svo að forsetinn
er skotinn til bana. Hefst þá leitin að
morðingjanum. Bandarískur ferða-
maður telur sig hafa náð morðingj-
anum á myndband.
IMDb: 6,7/10
Metacritic: 40/100
New York Times: 50/100
Hrollur, svik og morð
Skelfilegt Jessica Alba leikur fiðluleikara sem sér óhuggulegar verur í The Eye.
Ástir konungs Johanson og Portman leika Boleyn-systur.
Engisprettur e. Biljana Srbljanovic
Fyndið og sorglegt verk um allar hliðar fjölskyldulífsins
sýn. fös. 28/3 örfá sæti laus
Vígaguðinn e. Yasminu Reza
Bráðfyndið og ágengt gamanleikrit
sýn. lau. 29/3 örfá sæti laus
Baðstofan
e. Hugleik Dagsson
sýn. fös. 28/3, lau 29/3
Skilaboðaskjóðan
e. Þorvald Þorsteinsson
sýningar sun. 30/3 örfá sæti laus
Sólarferð e. Guðmund Steinsson
Minnum á síðdegissýningar
sýningar. lau 29/3 örfá sæti laus
„Þau eru frábær, öll fjögur…
Þetta er hörkugóð sýning...!“
Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
„Þetta var ekki hefðbundin
kvöldvaka.“ Elísabet Brekkan,
FBL, 13/2.
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
kt. 540291-2259, hefur birt lýsingu vegna töku víxla til viðskipta á OMX
Nordic Exchange Iceland hf. (OMX ICE) og gert aðgengilega almenningi frá
og með 28. mars 2008.
Eftirfarandi víxlaflokkur hefur verið tekinn til viðskipta:
• Flokkur að heildarfjárhæð ISK 25.000.000.000 sem gefinn var út þann 19.
mars sl. Víxlarnir verða teknir til viðskipta á OMX ICE þann 28. mars 2008.
Auðkenni flokksins á OMX ICE er LAIS 09 0401. Víxlarnir eru í ISK
10.000.000 nafnverðseiningum með lokagjalddaga þann 1. apríl 2009.
Víxlarnir bera ekki vexti.
Lýsinguna er hægt að nálgast hjá útgefanda Landsbanka Íslands hf.
Austurstræti 11, 155 Reykjavík eða á vefsetri útgefanda www.landsbanki.is
fram til lokadags víxlaflokksins.
28. mars 2008
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
41
73
0
03
/0
8
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
41
73
0
03
/0
8
Landsbanki Íslands hf.