Morgunblaðið - 13.04.2008, Síða 14

Morgunblaðið - 13.04.2008, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ VISTVÆNAR SAMGÖNGUR H lutdeild hjólhestsins í samgöngum er mikil víða um lönd. Svo hefur ekki verið á Íslandi. Morten Lange, formaður Landssamtaka hjól- reiðamanna (LHM), hefur samt tilfinningu fyrir því að reiðhjólum fari fjölgandi í um- ferðinni. Hann tekur þó fram að nýjar tölur vanti í þessu sambandi. Þá hafi þetta aðallega verið kannað þegar fæstir eru að hjóla, seint um haust og á veturna. „Samkvæmt sex ára gömlum tölum frá Reykjavík- urborg eru 1% ferða farnar á reiðhjóli um hávetur en 2,6% seint á haustin, samkvæmt tölum frá 2005. Gaman væri að sjá nýrri tölur og sambærilegar tölur fyrir sumarið,“ segir hann. Morten viðurkennir að íslenska veðrið sé á löngum köflum ekki til þess fallið að hvetja til hjólreiða en seg- ir fleiri og fleiri veita höfuðskepnunum viðnám. „Ég hef ekki fengið upplýsingar í vetur en nokkur und- anfarin ár hafa nagladekk fyrir reiðhjól selst upp. Það er ákveðin vísbending.“ Annað sem hefur áhrif á hjólreiðar er hönnun, skipu- lag og viðhald á stígum en Morten segir stjórnvöld mega gera betur varðandi alla þessa þætti. „Það skort- ir á virðingu fyrir þessum samgöngumannvirkjum. Oft og tíðum eru þau grafin í sundur og eru í kjölfarið ónothæf í langan tíma. Þá er víða of lítið gert í því að hreinsa burt möl, glerbrot og annað slíkt af stígunum.“ Hjólað á götunum En útivistarstígar eru ekki eina leiðin sem er hjól- reiðamönnum fær og Morten segir Landssamtök hjól- reiðamanna og Íslenska fjallahjólaklúbbinn hvetja til þess nú að fólk hjóli í auknum mæli á götunum, eins og skýr heimild er fyrir í umferðarlögum. Rannsóknir sýna líka að fyrir vana hjólreiðamenn er þetta öruggari og skilvirkari leið. „Reiðhjól eru ökutæki og við höfum að mestu sömu réttindi og skyldur á götunum og ökumenn bifreiða. Ég veit að fáum finnst það fýsilegur kostur að hjóla á um- ferðarþungu götunum, allavega til að byrja með, en ég hvet fólk til að prófa sig áfram á fáförnum íbúðagötum og muna að umferðin er samvinna.“ Um þessar mundir vinnur LHM að uppbyggingu námskeiða, „Hjólafærni: Hjólum og verum klár í um- ferðinni“, og hefur starfsfólk hjá nokkrum opinberum stofnunum, að sögn Mortens, þegar sýnt þessu áhuga sem leið til að efla hjólreiðar sem alvöru samgöngu- máta. „Þessi samgöngumáti lengir lífið um 5-10 ár, sparar peninga einstaklinga og samfélagsins og bætir umhverfið á mjög marga vegu.“ Hærri fjárveitingar Að dómi Mortens þarf að veita meira fé til þessara mála og taka hjólreiðar alvarlega sem samgöngumáta. „Þess vegna var ánægjulegt þegar borgin tilkynnti í vetur að hún ætlaði að verja 100 milljónum króna, á fjárhagsáætlun 2008, til að efla hjólreiðar sem sam- göngumáta, bæði með framkvæmdum og ímynd- arvinnu. Þá hefur samtökum hjólreiðamanna verið boðið að mæta á fundi vinnuhóps samgöngunefndar borgarinnar um hjólreiðar og við erum þakklátir fyrir að vera hafðir með í ráðum. VGK Hönnun (núna Mann- vit) hefur líka leitað ráða hjá okkur varðandi hjólreiða- samgöngur á Akureyri. Það fyrirtæki byrjaði reyndar nýlega að borga fólki sem hjólar í vinnuna sem sam- svarar strætókorti fyrir það að spara bílastæði við fyr- irtækið og stunda heilbrigðar samgöngur. Þetta er allt í áttina.“ Morten finnst eins og hjólreiðavakning sé í uppsigl- ingu. „Bensínverðið á bara eftir að hækka og hlutdeild kyrrsetusjúkdóma í heilbrigðisútgjöldum eftir að aukast verulega, nema við spyrnum við fótum. Hvort tveggja hvetur til hjólreiða. Við sjáum líka þróunina úti í heimi, t.d. í París og Lundúnum en þar hefur verið gert átak í þessum málum með mjög góðum árangri. Reiðhjólið er í tísku.“ LENGIR LÍFIÐ OG SPARAR PENINGA Hjólreiðamaðurinn Morten Lange segir hjólreiða- vakningu í uppsiglingu hér eins og víða erlendis. SAFT MÁLÞING UM ALLT LAND SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum, stendur fyrir opnum málþingum um allt land í apríl og maí 2008. Akureyri• Egilsstaðir• Ísafj örður• Grundarfj örður• Höfn• Nánari upplýsingar á www.saft .is Borgarnes• Sauðárkrókur• Vestmannaeyjar• Selfoss• Reyðarfj örður• SAFT MÁLÞING ÞÚ ERT ÞAÐ SEM ÞÚ GERIR Á NETINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.