Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 66
HEIMILDARMYNDIN KING
OF KONG: A FISTFUL OF
QUARTERS, SEM SÝND
ER Á BÍÓDÖGUM GRÆNA
LJÓSSINS, SEGIR AF BAR-
ÁTTU TVEGGJA MANNA
UM HEIMSMETIÐ Í
TÖLVULEIKNUM DONKEY
KONG. HELGI SNÆR SIG-
URÐSSON RÆDDI VIÐ
FRAMLEIÐANDA MYND-
ARINNAR, ED CUNNING-
HAM, OG FYRRVERANDI
HEIMSMETHAFA Í LEIKN-
UM, STEVE WIEBE.
Kóngur í ríki sínu Sósumeistarinn og heimsmethafinn Billy Mitchell. Mitchell rekur fyrirtæki sem framleiðir bragðsterkar sósur, og nýtur töluverðrar velgengni.
Þ
að væri auðveldlega
hægt að afgreiða efni
heimildarmyndar-
innar King of Kong: A
Fistful of Quarters
þannig að hún fjallaði
um nörda sem gera ekkert annað en
að hanga í spilasölum og spila tölvu-
leiki daginn út og inn, í von um að
verða skráðir á spjöld sögunnar
sem heimsmethafar í hinum eða
þessum leiknum. Málið er þó ekki
svo einfalt. Myndin afhjúpar stór-
merkilegt samfélag, þá fyrst og
fremst karlmanna, sem virðast svo
færir í því að leika tölvuleiki að
jaðrar við snilligáfu. Kannski eru
þeir snillingar, hver veit?
Í stuttu máli fjallar myndin um
baráttu tveggja manna, Steves Wie-
bes og Billys Mitchells, um heims-
meistaratitil í leiknum Donkey
Kong. Mitchell er goðsögn í þessum
spilakassaheimi, Wiebe er óþekktur
grunnskólakennari sem dreymdi
eitt sinn um að verða rokkstjarna.
Mitchell á sér stóran aðdáendahóp
sem líkist að mörgu leyti mafíu, en
Wiebe er svo að segja einn á báti en
EKKERT APASPIL
Hetjan Steve Wiebe reynir við heimsmetið í Donkey Kong í spilasalnum Fun Spot.
Vantar þig leiðbein-
ingar um hvernig á að
klæða hunda í föt …? 75
»
reykjavíkreykjavík