Morgunblaðið - 28.04.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 28.04.2008, Síða 17
|mánudagur|28. 4. 2008| mbl.is daglegtlíf Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Þegar fólk er með fugla sem gæludýrþá vill það stundum verða svo aðþeim er ekki nægilega vel sinnt. Þaðer nefnilega ýmislegt sem þarf að hafa í huga þegar kemur að umhirðu fugla. Anna Jóhannesdóttir dýralæknir á dýralækn- isstofunni Dagfinni segir að algengasta vanda- málið sem hún sjái í þeim málum sé mis- brestur á fóðrun fuglanna. „Að sumu leyti er það ekkert óeðlilegt, vegna þess að við höfum þessa mynd af fugl- um úti í náttúrunni að borða fræ. En þeir borða fjölmargt annað en fræ. Ef fugl sem er gæludýr í búri, fær einvörðungu fræ, þá fær hann fæðu sem er allt of feit og orkurík fyrir hann. Það þarf alltaf að gefa fuglum eitthvað annað með, fæðu á borð við grænmeti eins og til dæmis brokkolí, gulrætur eða spínat. En svo er líka hægt að setja fuglana á heilfóður, og þá helst fóður þar sem hlutföll næringar- efna eru eins og þau eiga að vera. Ég hef séð ótrúlega jákvæðar breytingar á fuglum við það eitt að skipt er um fóður hjá þeim.“ Fituæxli getur myndast Anna segir að einhæft fæði fyrir fugla geti valdið veikindum. „Þrátt fyrir þessa miklu fitu sem er í fræjunum, þá verða fuglar sem fá ein- göngu fræ, ekki feitir af því, þó ég hafi séð dæmi um slíkt hjá einstaka tegund. Oftast verða fuglar of grannir af einhæfri fæði, því þeir geta ekki nýtt fituna ef þá vantar önnur efni. Gárar mynda til dæmis ekki fitu utan um allan kroppinn eins og mannfólkið, heldur myndast stundum hjá þeim fituæxli, sem er auðvitað ekki æskilegt. Slík æxli sitja oft inni í kviðarholinu og því er ekki hægt að fjarlægja þau. Þetta eru góðkynja æxli og verða því ekki mikið vandamál fyrir fuglinn fyrr en æxlin eru orðin mjög stór og umfangsmikil. Ef fuglinn er settur nógu snemma á rétt fóður, þá stend- ur æxlið í stað eða getur jafnvel minnkað að- eins. Fuglinn losnar hins vegar aldrei alveg við það, þó hægt sé að lengja líftíma hans um nokkurn tíma, jafnvel einhver ár, með réttu fóðri.“ Popp og pasta er ekki það sem fuglar þurfa Anna segir að þeir sem eigi stóra fugla séu yfirleitt meðvitaðri um að þeir þurfi fjölbreytt fæði. Hún segir flesta fugla kunna sér maga- mál en ekki sé svo um alla fugla og því þurfi að gæta þess að hafa grænmetisbitana ekki of stóra, og mikilvægt sé að grænmetið sé ferskt. „Vissa hluti þarf að forðast þegar valin er fæða handa fuglum. Avókadó-ávöxturinn er dæmi um mat sem er eitraður fyrir fugla. Sama er að segja um súkkulaði, sem er reynd- ar slæmt fyrir öll dýr. Það er heldur ekkert sniðugt að gefa fuglum hvað sem er. Sumir gefa fuglunum sínum það sama og þeir borða sjálfir, en það er ekki endilega heppilegt fyrir fuglinn. Þó hann sé kannski brjálaður í popp- korn og pasta, þá er það ekki það sem hann þarf, því fuglar nýta slíka fæðu ekki vel.“ Kaffibollar hættulegir Anna segir að í umhirðu fugla sé mjög mik- ilvægt að búr fuglanna sé af réttri stærð. „Stærðin þarf að vera þannig að fuglinn geti breitt út vængina inni í búrinu og æskilegt er að þeir geti svifið aðeins um í búrinu.“ Hún segir að það sé allt í lagi að sleppa fugl- inum stundum út úr búrinu og leyfa honum að flögra um heimilið. „En það er ekki æskilegt að gera það nema undir ákveðnu eftirliti, því hætturnar eru margar fyrir lítinn fugl. Kaffi- bollar fullir af sjóðheitu kaffi eru til dæmis mjög hættulegir fyrir litla og létta fugla sem kannski langar að kíkja og detta ofan í. Þeir geta stórslasast á nokkrum sekúndum ef þeir lenda ofan í kaffibolla. Mjög lítil rifa á glugga getur líka dugað gára til að sleppa út og týnast. Eins eru dæmi um að litlir fuglar hafi orðið á milli stafs og hurðar þegar einhver skellir og veit ekki af fljúgandi skepnunni. Uppgufun af teflon- pönnum sem fólk notar í eldamennsku er sömuleiðis eitruð fyrir fugla. Þeir eru mjög viðkvæmir fyrir öllu slíku.“ Samskipti nauðsynleg Anna segir að mikilvægt sé að hafa búr fuglsins staðsett á heimilinu þar sem fuglinn geti átt í samskiptum við heimilisfólkið. „Þeir hafa mikla þörf fyrir félagsskap og þeir þurfa örvun sér og eigandanum til skemmtunar. Það er nefnilega ekkert gaman að eiga fugl ef maður eyðir ekki smá tíma með honum dag- lega og leikur við hann. Fuglar sem eru mikið einangraðir eða þeim illa sinnt geta tekið upp á því að plokka fjaðrirnar hver af öðrum. Reyndar geta verið margar ástæður fyrir slíkri hegðun, til dæmis fóður, hormónar eða samskipti. Stundum festast þeir líka í svona hegðunarmunstri og þá getur það orðið að vandamáli sem þarf að leita til dýralæknis með. Það er betra að fyrirbyggja plokkunar- vandamálin en að taka á þeim eftir á. Fyr- irbyggjandi aðgerðir eru til dæmis að hafa búrið nógu stórt, umhverfið örvandi, nógu mikið af leikföngum inni í búrinu og skipta þeim reglulega út til að skapa tilbreytingu. Einnig er gott að tala mikið við fuglinn og eiga sem mest samskipti við hann. Svo er aldr- ei of oft minnt á nauðsyn þess að skipta um vatn hjá fuglinum á hverjum degi og þrífa búr- ið daglega.“ Fuglar eru ekki bara fræætur Reuters Frelsi Páfagaukum finnst gaman að fá stundum frelsi úr búrinu en það skal vera undir eftirliti. Fjölbreytt fæði Fuglar hafa gott af því að fá grænmeti, til dæmis spínat, brokkólí og gul- rætur auk frætegunda. DEPURÐ hrjáir orðið fjölmarga unglinga, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar, sem gerð var á vegum Children’s Society í Bret- landi. Meira en fjórðungur unglinga, sem rannsóknin náði til, á aldrinum 14 - 16 ára kannaðist við einkenni depurðar sem sérfræðingar segja að kalli á aukinn stuðning og úrræði til handa þessum hópi. Í gegnum tíðina hafa menn gjarn- an skellt skollaeyrum við hugarvíli unglinga, en nú eru menn að vakna upp við það að vaxandi skilningur skili sér margfalt til lengri tíma litið í betri velferð og vellíðan ungdóms- ins, að sögn sérfræðinga, enda ætti geðheilsa barna og unglinga að koma öllum við. Vitað er að eitt af hverjum tíu ungmennum glímir við e.k. geð- vanda og því er það vitaskuld áhyggjuefni að meira en fjórðungur aðspurðra kannist við geðlægðir og depurð. Mikilvægt er að ungt fólk fái sjúkdómsgreiningu á ástandi sínu svo hægt sé að ganga úr skugga um hve alvarlegur vandinn sé og hægt að veita meðferð sem fyrst, að því er sérfræðingar segja í nýlegu viðtali við vefmiðil BBC. Þar kemur jafn- framt fram að UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hafi í fyrra flokkað evrópsk börn með tilliti til velferðar og munu bresk börn hafa lent í botnsætinu miðað við jafnaldra annars staðar í Evrópu á grundvelli menntunarskorts, óhamingju og óheilbrigðis. Depurð er alvöru ung- lingavandi Morgunblaðið/Ásdís Depurð Vandi sem þarf að taka á. er staðið. Auk þess er flest fréttaefni að- gengilegt á netinu eða í dagblöðum og skynsamlegra að sækja sér fréttaefnið þaðan á þeim tíma dags sem hentar en að vakta í sífellu fréttatíma. x x x Önnur rök eru aðbörnin séu svo háð tækinu og erfitt sé að svipta þau teiknimyndum og annarri afþreyingu. Það verður þó að segjast að með hækkandi sól er ólík- legt að þau muni sakna tækisins og jafnvel betra að það sé ekkert að flækjast fyrir í sumarsólinni. Reyndar hefur sú ákvörðun verið tekin á heimili Víkverja að hætta áskrift að erlendum stöðvum og tak- marka þannig magnið og spara pen- inga í leiðinni. Það verður að teljast skref í rétta átt og hver veit nema skrefið verði tekið til fulls áður en langt um líður. x x x Annars er Víkverjifullur bjartsýni á sumarið og hlakkar til að fara í veiðiferðir og úti- legur innanlands. Skipu- lagning sumarleyfisins er langt á veg komin og stefnt á Íslandssumar. Víkverji lætur smám saman smitast af veiði- bakteríu og fór í sjóbirt- ingsveiði snemma í apríl. Enginn fiskur beit á í Grímsánni enda svo sem ekki við því að búast svo snemma árs. Glampandi sólskin og logn gerðu veiðina þó að prýðis útivist. Víkverji á langt í land með að ná færni í flugu- kasti og var feginn að ekki voru margir viðstaddir þá hryllingssjón sem frumraunin var. Ekki urðu þó meiðsli á mönnum við tilfæringarnar svo það er bara að halda áfram að æfa sig. Víkverja langar óskaplega til aðlosa sig við sjónvarpstækið. Hugmyndin hefur oftar en ekki verið rædd á heimilinu en skrefið virðist hreinlega of stórt og breytingarnar of róttækar til að af því hafi orðið enn. Víkverji heyrir reglulega af fólki sem hefur tekið af skarið og lýsir undantekningarlaust yfir ánægju með framtakið. Heimilisfriðurinn sé orðinn hreint með eindæmum ótrúlegur og kvöld- stundirnar jafnframt lengri og ánægjulegri. Auk þess sem fjöl- skylduböndin hafi eflst og útvarps- hlustun og bóklestur tekið við af heilaletjandi störunum. Hljómar vel ekki satt? x x x En af hverju ætli þetta sé svonaerfið ákvörðun? Er þar um að kenna lítilli sjálfsstjórn eða sjón- varpssýki Víkverja? Víkverji telur sér trú um að það sé fyrst og fremst fréttaefnið sem heldur í hann, þó minnstur hluti sjónvarpsáhorfsins fari í þann hluta dagskrár þegar upp      víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.