Morgunblaðið - 28.04.2008, Side 20

Morgunblaðið - 28.04.2008, Side 20
20 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞRIÐJA LEIÐIN Forystumenn vestrænna ríkjaeiga í vandræðum vegna opn- unarhátíðar Ólympíuleikanna í Pek- ing. Sumir þeirra komast ekki hjá því að fara, eins og Bush Bandaríkja- forseti, vegna þess hversu miklir hagsmunir eru í húfi í samskiptum Bandaríkjamanna og Kína á öðrum vígstöðvum. Aðrir eru staðráðnir að fara ekki eins og Angela Merkel, kanslari Þýzkalands, og enn aðrir eru tvístíg- andi eins og forseti Frakklands, sem tvístígur yfirleitt. Í grein um þetta mál í Morgun- blaðinu í gær segir m.a.: „Nú telja Vesturlönd, að þau hafi fundið „þriðju leiðina“ með því að hóta að sniðganga opnunarhátíð Ólympíu- leikanna en ekki leikana sjálfa. Með þeim hætti verða kínverskur almenn- ingur, íþróttamenn heimsins og á plánetunni allri sólgnir í „brauð og leika“ ekki sviknir um skemmtunina og kínverskir ráðamenn munu ekki komast upp með að ganga alla leið í fyrirlitningu sinni á mannréttindum og alþjóðlegu almenningsáliti. Vand- inn er sá að slíkur kostur krefst þess að ríkisstjórnir séu algerlega stað- ráðnar í að standa við orð sín.“ Fjarvera ráðamanna á Vesturlönd- um mun engin áhrif hafa á framkomu Kínverja við íbúa Tíbet. En fjarvera þeirra undirstrikar ákveðna afstöðu með sama hætti og nærvera þeirra er til marks um að þeim er alveg sama. Er okkur sama? Er Þorgerði Katr- ínu Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra sama? Er Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni Sjálf- stæðisflokksins sama? Er hún með nærveru sinni, sem menntamálaráðherra, að endur- spegla afstöðu íslenzks almennings til meðferðar Kínverja á Tíbetbúum í 60 ár eða svo? Tæplega. Er hún með nærveru sinni að end- urspegla afstöðu flokksmanna í Sjálfstæðisflokknum til málefna Tíb- et. Tæplega. Af hverju eru íslenzkir ráðamenn svo sólgnir í að sækja alþjóðavið- burði af þessu tagi? Við Íslendingar eigum engra þeirra viðskiptalegu hagsmuna að gæta í Kína, að þeir kalli á nærveru menntamálaráðherra eða annarra ís- lenzkra ráðamanna. Það getur varla verið að ferðalagið til Kína höfði til ráðamanna hér. Á undanförnum árum hefur verið stöð- ugur straumur fólks á milli Kína og Íslands. Er ekki komið nóg? MILLISTIG Grein Árna Tryggvasonar leik-ara sem birtist hér í Morg-unblaðinu fyrir skömmu hef- ur vakið upp þarfar umræður um málefni geðsjúkra. Árni lýsti þeirri skoðun í grein sinni, að það gæti verið erfitt fyrir sjúklinga á bata- vegi að vera innan um mjög veikt fólk. Í gær birtist hér í blaðinu grein eftir Herdísi Benediktsdóttur, með- lim í Hugarafli, þar sem hún tekur upp þráðinn frá grein Árna Tryggvasonar og segir: „Við sem höfum glímt við geð- sjúkdóma vitum að eftir útskrift af geðdeild tekur við mjög erfiður tími. Öll vildum við halda áfram námi, takast á við vinnuna sem við vorum í, eða bara að lífið haldi áfram eins og ekkert hafi í skorist. En dæmið er ekki svona einfalt. Starfsorkan er skert, minnið er oft á reiki og því miður, það er erfitt að segja það, flestir eru brotnar manneskjur.“ Þessi lýsing Herdísar Benedikts- dóttur er hárrétt. Hún víkur svo að því hvað sé til ráða og segir: „En meginmálið í þessari grein er þessi hugmynd okkar í Hugarafli og það er að geðheilbrigðiskerfið, geð- deildirnar, hefðu á sínum snærum eftirfylgdarfulltrúa sem talaði við einstaklinga sem eru að fara að út- skrifast af geðdeild og útskýrðu fyr- ir þeim þá valkosti sem eru í boði eftir útskrift og fylgdu þeim af stað af festu … Eftirfylgdarfulltrúinn, t.d. iðjuþjálfi eða notandi í góðum bata, myndi vera eins og áður segir einstaklingur sem bæri ábyrgð á að koma hinum nýútskrifaða í höfn, sem hann finnur sig í og er ekki úti á reginhafi og veit ekki hvert á að stefna.“ Þessi hugmynd þeirra í Hugarafli er góð og er reyndar þannig, að slíkt starf á að vera sjálfsagt á geðdeild- um, þegar sjúklingur, sem þar hefur verið, er útskrifaður og hverfur á braut. Þetta á að vera auðvelt að framkvæma. En spurningin er hvort stíga eigi eitt skref til viðbótar til þess að mæta þeim aðstæðum, sem Árni Tryggvason gerði að umtalsefni og Herdís Benediktsdóttir lýsir svo vel í grein sinni. Þegar sjúklingur hefur verið út- skrifaður af geðdeild bíður hvers- dagslífið hans með öllu því daglega áreiti, sem því fylgir, og hann er sjaldnast tilbúinn til að takast á við. Hér er raunverulega um tvenns konar vanda að ræða. Annars vegar er erfitt fyrir sjúklinga, sem eru á batavegi, að vera innan um mikið veikt fólk. Hins vegar er erfitt fyrir þá, sem útskrifast, að fara beint heim. Það er hægt að leysa þennan tví- þætta vanda á einn og sama veg. Koma upp húsnæði og þjónustu, sem er eins konar millistig á milli geð- deildar og heimilis. Þjónustu, sem dugar fyrir þá, sem eru á batavegi og þurfa ekki lengur að vera inni á geðdeild, þar sem mikið veikt fólk er til meðferðar og um leið fyrir þá, sem eru ekki tilbúnir til að fara beint út í hversdagslífið með verk- efnum þess og vandamálum. Hús- næði og aðstöðu, sem er hálfa vegu á milli bráðageðdeildar og heimilis. Það blasir við að þessa þjónustu vantar og hún mundi leysa þau vandamál, sem þau Árni Tryggvason og Herdís Benediktsdóttir hafa gert að umtalsefni í greinum hér í blaðinu. Það þarf ekki mikið til. Það þarf viljann. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ríkið og Samband ís-lenskra sveitarfélagahafa nú undirritaðsamkomulag um mik- ilvægar aðgerðir í húsnæðis- málum. Á grundvelli þess munu húsaleigubætur hækka um næstu mánaðamót í fyrsta skipti frá árinu 2000. Samkomulagið kveður á um að hámarksfjárhæð húsaleigubóta hækki úr 31.000 kr. í 46.000 kr. á mánuði eða um 48%. Lög um húsaleigubætur tóku gildi árið 1995. Reynslan hefur sýnt að þær eru skilvirk aðferð til að lækka húsnæð- iskostnað leigjenda. Skattlagningu bót- anna var aflétt 2002 en það styrkti þátt þeirra í að jafna húsnæðiskostnað lág- launafólks. Frá þeim tíma hafa bæturnar staðið í stað og grunnfjárhæðir húsa- leigubóta hafa, eins og áður sagði, verið óbreyttar frá árinu 2000. Heimilum sem fá húsaleigubætur fjölgar Á árinu 2007 fengu 9.348 heimili að meðaltali greiddar húsaleigubætur. Markmið samkomulagsins er að þessi heimili fái hærri bætur til að mæta vax- andi húsnæðiskostnaði og að bæturnar nái til fleiri heimila. Meðfylgjandi tafla sýnir hækkun bótanna. Bæturnar byrja að skerðast þegar árs- tekjur ná 2 milljónum. Með hækkun bót- anna nú falla hámarksbætur niður við 6,6 millj. kr. árstekjur í stað 5,1 milljónar áð- ur. Heimilum se leigubótum fjöl innar. Sérstakar hú Samkomulag að ríkið komi nú greiðslu sérstak bætur eru ekki sveitarfélögum þær upp til að v næðisvanda fólk lagslegar aðstæ leigubæturnar húsaleigubótum marki, 70.000 k samræmdar reg yrði fyrir þeim móts við þá sem næðismarkaði. Stefnumótun húsnæðismálu Á næstu dögu mótunarvinna í Loksins hækka húsaleigubæ »Markmið samkomu- lagsins er að þessi heimili fái hærri bætur til að mæta vaxandi húsnæð- iskostnaði og að bæturnar nái til fleiri heimila. Á grundvelli þess munu húsa- leigubætur hækka um næstu mánaðamót í fyrsta skipti frá árinu 2000. Halldór Halldórsson Jóhanna Sigurðardóttir Eftir Jóhönnu Sigurðar- dóttur og Halldór Halldórsson Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is Það er engin regla lengur, helduróreiða á alheimsvísu,“ segirChristopher Coker, prófessor íalþjóðastjórnmálum við London School of Economics. Hann ræddi um hernað í hnattvæddum heimi á vegum Al- þjóðamálastofnunar Háskóla Íslands á dögunum. Coker hefur lengi rannsakað stríð. Hann bendir á að einkenni stríða hafi breyst mikið frá tímum kalda stríðsins. Í kalda stríðinu hafi menn glímt við ógn sem þeir álitu áþreifanlega. „Það var hægt að reikna hættuna út frá tölum um vopna- eign Sovétmanna,“ bendir hann á. Þetta sé nú breytt. Þegar ríki leggi mat á áhættu sé ekki lengur gert ráð fyrir því að hún sé staðbundin. „Hættan getur læðst alls staðar að,“ segir Coker og bætir við að ennfremur sé orðið erfiðara að segja til um hvenær vá ber að dyrum. Hryðju- verkamenn gætu verið við æfingar í búð- um í Afganistan, þótt þeir geri engar árás- ir næstu fimm til tíu árin. Raunar sé það mjög umdeilt nú um stundir hver sé óvin- urinn. „Á tímum kalda stríðsins var aldrei deilt um það en í dag er ekkert sam- komulag um þetta. Sumir segja að það séu loftslagsbreytingar, aðrir nefna hryðju- verk, orkumál, eða sjúkdóma.“ Stöðugt óöryggi Að sögn Cokers hafa þau markmið sem ráðamenn valdamestu ríkja heims setja sér breyst. Hann segir þennan mun krist- allast hjá Bush-feðgunum. Að loknu Persaflóastríðinu við upphaf tíunda ára- tugarins lofaði Bush eldri nýrri skipan heimsmála (New World Order). „Bush yngri hefur ekki lofað neinu slíku,“ bendir Coker á. Þetta tengist óreiðunni sem nú sé uppi. „Í kalda stríðinu bjuggum við við vopnaðan frið, en nú við stöðugt óöryggi,“ segir hann. Vestrænir ráðamenn reyni „að lágmarka óöryg inn í Afganistan ástæðum er ráð ýmsum toga. Þa næmi og fleira. breyst en hugta þess að hafa áhr sér fé.“ Stríð sé áhættustjórnun „Engin regla he óreiða á alheims Alþjóðleg bandalög og al- menningur á Vesturlönd- um stjórnast af því sama: Áhugaleysi á langtíma- skuldbindingum og skammtíma gróðasjón- armiðum. Þetta segir Christopher Coker, pró- fessor í alþjóðastjórn- málum við LSE. Bandamenn Coker bendir á að Bandaríkin virðist ekki len á bandamenn til langs tíma. Þetta hafi skapað árekstra, t.d

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.