Morgunblaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
FORSTJÓRAR Landspítalans
sögðu í gær að með ákvörðun sinni
um að fresta breytingum á vaktafyr-
irkomulagi geislafræðinga og skurð-
og svæfingarhjúkrunarfræðinga til
hausts væru þeir að rétta fram sátt-
arhönd í þeirri von að í málinu næð-
ist sátt sem allir gætu unað við.
Öryggi allra og kröfur
Í máli Önnu Stefánsdóttur og
Björns Zoëga, sem hafa verið sett til
að gegna starfi forstjóra til hausts,
kom fram að mikilvægt væri að
tryggja öryggi sjúklinga og hags-
muni starfsmanna og samfara því
skipti miklu máli að nýja vaktafyr-
irkomulagið samrýmdist þeim kröf-
um sem þyrfti að uppfylla í tengslum
við vinnutímatilskipun Evrópusam-
bandsins, sem hefði verið innleidd
með breytingum á lögum um aðbún-
að, hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stöðum.
Stjórnendum viðkomandi deilda
var greint frá ákvörðuninni í gær og
þeim falið að koma henni áfram til
starfsmannanna, að sögn Önnu Stef-
ánsdóttur.
Anna segir að tíminn til hausts
verði notaður til samráðs við starfs-
menn um vaktatímabreytinguna í
þeirri von að farsæl niðurstaða fáist í
málinu. Hún segist treysta því að nú
muni allir leggjast á eitt og þeir sem
sagt hafi upp dragi uppsagnir sínar
til baka.
Björn Zoëga tekur í sama streng.
Hann segir að hugmyndin sé meðal
annars að nota tímann til hausts til
að veita hjúkrunarfræðingum þjálf-
un í aðgerðum sem þeir hafi ekki
sinnt en muni sinna eftir breyting-
arnar.
Uppsagnirnar miðast við 1. maí og
því lítill tími til stefnu. Björn segir
að óhjákvæmilegt hafi verið að grípa
í taumana með fyrrgreindum hætti.
Óformlegar viðræður frá 2004 hafi
ekki dugað, óskað hafi verið eftir
meira samráði og með frestun sé
rétt fram sáttarhönd í þeirri von að
málið leysist.
Leið Landspítala til sátta
Aukið samráð við
starfsmenn og
breytingu frestað
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Tilboð Forstjórar Landspítalans, Anna Stefánsdóttir og Björn Zöega, til-
kynna um frestun gildistöku nýs vaktakerfis til 1. október í haust.
GEIR H. Haarde og Matti Vanha-
nen, forsætisráðherra Finnlands,
funduðu í gær í tilefni opinberrar
heimsóknar Vanhanens hér á landi.
Á fréttamannafundi sem haldinn
var í kjölfarið spurðu finnskir
blaðamenn íslenska forsætisráð-
herrann ítrekað út í efnahags-
ástandið á Íslandi og jafnframt um
hugsanlegan ímyndarvanda lands-
ins.
Fréttamennirnir spurðu Geir
hvort hann gæti staðfest þann orð-
róm, sem þeir höfðu orðið varir við
frá nærri öllum viðmælendum sín-
um úr viðskiptageiranum hér á
landi, að viðskiptaímynd Íslands í
Finnlandi hefði beðið töluverðan
hnekki vegna versnandi efnahags-
ástands.
Geir svaraði því til að hann gæti
ekki sagt til um hvort um ímynd-
arvanda væri að ræða í einkageir-
anum þar sem það væri ekki innan
hans valdsviðs að henda reiður á
því. Reyndist það svo þyrftu fyr-
irtækin að leysa þann vanda. Hann
sagðist ekki hafa áhyggjur af
ímynd Íslands í Finnlandi hvað op-
inber samskipti ríkjanna varðaði og
tók Vanhanen í sama streng, sam-
skipti Íslands og Finnlands væru
mjög góð.
Samskipti ríkjanna við Rússland
voru einnig á dagskrá en stjórn-
málaleg og viðskiptaleg samskipti
Finnlands við Rússland eru mjög
mikil og fara hratt vaxandi. Geir
greindi Vanhanen einnig frá
áhyggjum íslenskra stjórnvalda af
flugi rússneskra flugvéla á íslensku
flugstjórnarsvæði sem síðast átti
sér stað í liðinni viku.
Morgunblaðið/Friðrik
Forsætis-
ráðherrar
funda
Spurðu ítrekað
um efnahagsmálin
KONAN sem lést
í eldsvoðanum í
þjónustuíbúð
aldraðra á Dal-
braut á sunnudag
hét Sigríður Ingi-
marsdóttir.
Sigríður var 84
ára gömul, fædd
1. október 1923.
Hún var um ára-
bil ritstjóri Hús-
freyjunnar og varaformaður Kven-
félagasambands Íslands. Þá var
hún einn af stofnendum Styrkt-
arfélags vangefinna.
Sigríður lætur eftir sig fimm
börn, tíu barnabörn og þrjú lang-
ömmubörn.
Lést í
eldsvoðanum
Sigríður
Ingimarsdóttir
BENSÍNVERÐ hækkaði enn eina
ferðina í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum á bensínstöðvum í gær
hækkaði verð á bensíni hjá N1 og
Skeljungi um tvær krónur en á dís-
ilolíu um þrjár. Hjá Olís var sagt að
hækkunin þar væri einni kr. minni.
Algengt sjálfsafgreiðsluverð á
bensíni hjá stóru félögunum þrem-
ur er nú 151,6 til 152,6 kr. og á dís-
ilolíu 162,50 til 165,60 kr.
Á heimasíðum ÓB, EGO, Orkunn-
ar og Atlantsolíu kom fram að al-
gengasta verð á bensíni væri frá
148,90 til 149,90 kr. en 160,90 fyrir
dísilolíu.
Athygli vekur að mörg olíufélag-
anna bjóða sérstaklega gott verð á
Akranesi en þar er bensínlítrinn á
um 144,4 til 145,50 kr.
Bensínið orðið
enn dýrara
Dýrtíð Um þetta leyti fyrir ári var
lítrinn á 122,9 kr. og þótti nógu dýr.
Morgunblaðið/Frikki
STARFSMENN á verkstæði heim-
ilistækjaverslunar Einars Farest-
veit munu taka til athugunar mögu-
lega orsök þess að ísskápur sprakk
með miklu afli upp úr þurru inni á
heimili við Kvisthaga aðfaranótt
laugardags. Að sögn Ragnars Ey-
þórssonar, eiganda ísskápsins, kom
vinnuflokkur frá tryggingafélagi
hans til að þrífa eldhúsið eftir
sprenginguna og jafnframt var
skipt um rúðu í eldhúsglugga.
„Þeir hjá Einari Farestveit ætla
síðan að taka ísskápinn inn á verk-
stæði til sín til að rannsaka ítarlega
hvað gæti hafa sprungið. Fram að
þeirri rannsókn er það ráðgáta
hvað gerðist.“
Ísskápurinn
rannsakaður
FRÁ OG með 17. maí næstkomandi
verða gerðar þær breytingar á lottó-
inu að dregið verður úr 40 tölum en
undanfarin 20 ár hefur verið dregið
úr 38 tölum. Vinningsmöguleikarnir
breytast þannig úr 1/501 þúsund í 1/
650 þúsund.
Fyrstu tvö ár lottósins, 1986-88,
var dregið úr 32 tölum.
Fylgja fólksfjölgun
Að sögn Stefáns Konráðssonar,
framkvæmdastjóra Íslenskrar get-
spár, eru þessar breytingar gerðar
til að fylgja fólksfjölgun í landinu en
árið 1988 voru Íslendingar 251 þús-
und en eru nú 313 þúsund. Stefán
segir þessa fjölgun talna í pottinum
því eðlilega en Íslensk getspá hafi
reynt að bíða með þær eins lengi og
mögulegt var.
Stefán segir lykilatriði að ekki er
verið að breyta fjölda útdreginna
talna, þær verða áfram fimm, en það
yrði töluvert meiri breyting en að
stækka talnapottinn eins og nú á að
gera.
Telur Stefán líklegt að með þessu
breytta fyrirkomulagi muni vinn-
ingsupphæðirnar hækka eins og
gerðist þegar tölunum var fjölgað
árið 1988 því þegar vinningslíkurnar
minnka geta „pottarnir“ stækkað.
Stefán segir Íslendinga „mjög potta-
sækna þjóð“ og eykst áhugi þeirra
þegar potturinn er margfaldur.
Fjölga kúlunum í lottó-
vélinni úr 38 í 40 í maí
Líkurnar á fimm réttum verða þá 1:658008 en voru 1:501942
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Happ Það verður erfiðara en áður
að hreppa stóra vinninginn
Í HNOTSKURN
»Með fleiri kúlum minnka lík-urnar á stóra vinningnum.
»Um leið gerist það oftar aðfyrsti vinningurinn verður
margfaldur.
»Þegar lottóið byrjaði 1986voru 32 kúlur í vélinni.
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir manni sem
réðst að öryggisverði verslunar 10-
11 í Austurstræti aðfaranótt 6.
apríl sl. Maðurinn verður í haldi
lögreglu til miðvikudagsins 21. maí
nk. á grundvelli almannahags-
muna.
Í greinargerð lögreglustjóra
höfuðborgarsvæðisins kemur fram
að maðurinn hafi játað árásina,
sem bæði var tilefnislaus og afar
fólskuleg, en maðurinn sló örygg-
isvörðinn fyrirvaralaust með gler-
flösku í höfuðið þar sem hann var
við störf sín í versluninni. Hann
gæti átt yfir höfði sér allt að 16
ára fangelsi.
Rannsókn málsins er nánast lok-
ið en lögregla bíður eftir frekari
niðurstöðum lækna um afleiðingar
árásarinnar, ástand öryggisvarðar-
ins og batahorfur.
Gæsluvarð-
hald staðfest
Beðið eftir upplýs-
ingum um batahorfur
LÖGREGLAN á Hvolsvelli stöðvaði
átta bílstjóra fyrir of hraðan akstur
skammt austan við Hvolsvöll frá
klukkan 17 til 20 í gærkvöldi. Þeir
sem hraðast óku voru spænskir
ferðamenn á tveimur jeppum sem
báðir mældust á 145 km hraða þar
sem 90 er hámarkshraði.
Annar ferðamaður sem var
stöðvaður fyrir of hraðan akstur ók
á 130 km hraða.
Þungir
bensínfætur