Morgunblaðið - 29.04.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 17
AKUREYRI
ANNA Gunnarsdóttir textíllista-
kona og Anna Richardsdóttir fjöl-
listakona fá starfslaun listamanna á
Akureyri frá júní 2008 til maí 2009.
Stjórn Akureyrarstofu hélt árlega
Vorkomu í Ketilhúsinu á dögunum
þar sem tilkynnt var um starfslaunin
og jafnframt veittar viðurkenningar
Húsverndarsjóðs fyrir endurbætur
á eldri byggingum.
Alls barst vel á annan tug um-
sókna um starfslaun listamanna. Í
ræðu sinni á vorkomunni sagði Elín
Margrét Hallgrímsdóttir, formaður
stjórnar Akureyrarstofu, að þessi
fjöldi umsókna og fjölbreytileiki
listamannanna sjálfra og listgreina
þeirra væri til marks um gróskuna
sem einkenndi listalífið á Akureyri
og fæli jafnframt í sér heilmikið að-
dráttarafl fyrir bæinn. Á síðasta ári
fengu Björg Þórhallsdóttir söng-
kona og Kristján Ingimarsson leik-
ari starfslaun til sex mánaða hvort.
Viðurkenningar Húsverndarsjóðs
voru annars vegar veittar fyrir end-
urbyggingu á Hafnarstræti 53,
Gamla barnaskólanum, sem hýsir nú
fjárfestingarbankann Saga Capital,
og hins vegar fyrir miklar end-
urbætur á Kaupvangsstræti 6,
Gömlu bögglageymslunni þar sem
veitingahúsið Friðrik V er nú til
húsa. Eiður Gunnlaugsson, núver-
andi eigandi Gamla barnaskólans, og
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, for-
stjóri Saga Capital, tóku við við-
urkenningum fyrir Hafnarstræti 53,
en fyrir Kaupvangsstræti 6 tóku
Halldór Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri KEA, og Friðrik Valur Karls-
son veitingamaður við viðurkenn-
ingum. Gamla bögglageymslan er í
eigu Klappa, fasteignafélags KEA.
Vorkoma Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu, Elín Mar-
grét Hallgrímsdóttir, formaður stjórnar Akureyrarstofu, Friðrik V. Karls-
son, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson og Eiður Gunnlaugsson. Sitjandi frá
vinstri: Halldór Jóhannsson, Anna Gunnarsdóttir og Anna Richardsdóttir.
Anna og Anna fá
listamannalaunin
FLUGFÉLAG Íslands hefur samið
við Fallorku á Akureyri um öll orku-
kaup félagsins. Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Flugfélags Ís-
lands, segir samninginn mikið
ánægjuefni. „Tilboð þeirra var hag-
stætt og að auki fáum við ráðgjöf í
orkunotkun. Við hlökkum mikið til
samstarfsins við Fallorku,“ er haft
eftir honum í frétt frá fyrirtækinu.
Fallorka ehf. er dótturfyrirtæki
Norðurorku hf. og sérhæfir sig í sölu
raforku á smásölumarkaði. Um
nokkurn tíma hefur verið samkeppni
um sölu á raforku en skv. upplýs-
ingum frá Fallorku er lítill munur á
raforkuverði á milli orkusala. „Þrátt
fyrir þetta hafa nokkur stór fyrir-
tæki á landsvísu, flest með höfuð-
stöðvar sínar á höfuðborgarsvæðinu,
flutt raforkuviðskipti frá raforkusöl-
um á landsbyggðinni og jafnvel án
skoðunar á verði og gæðum þjónust-
unnar.“
Að sögn talsmanns Fallorku kom
fljótt í ljós, eftir að fulltrúar Flug-
félags Íslands komu að máli við for-
svarsmenn félagins, að Flugfélagið
lagði áherslu á mat á öllum forsend-
um bæði verðs og gæða þeirrar þjón-
ustu sem er í boði.
Samningurinn sem skrifað er und-
ir í dag gildir frá 1. maí 2008 og felur
í sér orkusölu á mörgum stöðum á
landinu. Franz Árnason, fram-
kvæmdastjóri Fallorku, lýsir yfir
sérstakri ánægju með þess ákvörðun
Flugfélagsins „sem er Fallorku mik-
ils virði, ekki bara af fjárhagsástæð-
um, heldur sýnir þessi ákvörðun fé-
laginu að það er á réttri braut“.
Skv. upplýsingum frá Fallorku er
hlutur raforkusala og framleiðanda á
mánuði ekki hærri samtals en fasta-
gjaldið fyrir síma á heimili á mánuði,
sem sé dæmi um það hve verð á raf-
orku er lágt miðað við annað sem
þarf til að reka heimili. Tekið er
dæmi frá Akureyri, sem sé sambæri-
legt við aðra staði á landinu. Nefnt er
raðhús sem notar 4.300 kílóvatt-
stundir á ári; þar kostar raforkan
3.732 kr. á mánuði og af því fá raf-
orkusalinn og framleiðandinn (Fall-
orka) 1.566 kr. Til dreifiveitu fara
2.166 kr., þar af 513 kr. til Landsnets
fyrir flutning um kerfi þess.
FÍ kaupir alla
orku af Fallorku
Samið Árni Gunnarsson og Franz
Árnason handsala samninginn.
Hagstætt tilboð og
ráðgjöf um notkun,
segir Flugfélagið
Í HNOTSKURN
»Sjö fyrirtæki selja raforku áÍslandi, í Reykjavík eru það
Orkusalan og Orkuveita Reykja-
víkur. Á landsbyggðinni eru það
Fallorka Akureyri, Hitaveita
Suðurnesja, Orkuveita Húsavík-
ur, Rafveita Reyðarfjarðar og
Orkubú Vestfjarða.
NEMENDUR í
lífsleikni 4.
bekkjar MA
standa í kvöld
fyrir tónleikum í
Kvosinni, sam-
komusal Mennta-
skólans, til
styrktar samtök-
unum Barna-
heillum. Allur
ágóði rennur til
þeirra. Fram koma Magni, sem
gerði garðinn frægan í Rock Star
Supernova, Eyþór Ingi Gunn-
laugsson, sem sigraði í keppninni
Bandið hans Bubba á Stöð 2, hin
eina sanna Helena Eyjólfsdóttir,
Álftagerðisbróðirinn Óskar Pét-
ursson, dúettinn Hundur í óskilum,
Helga Maggý sem var í Söngkeppni
framhaldsskólanna fyrir MA og
Flashy Hannes. Aðgangseyrir er
1.500 kr. en 1.000 kr. fyrir skóla-
fólk. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Syngja til
styrktar
Barnaheillum
Eyþór Ingi
Gunnlaugsson
ALDURSTAKMARK að tjaldsvæð-
unum við Þórunnarstræti og að
Hömrum á Akureyri verður 18 ár í
sumar. Samningur bæjarins og
skátafélagsins Klakks, sem rekur
tjaldstæðin, hefur raunar alltaf
miðast við aðgengi frá 18 árum en
ákveðið var í fyrra að yngri en 23
ára fengju ekki aðgang um versl-
unarmannahelgina. Það olli mikl-
um deilum. Áfram verður lögð
áhersla á að um sé að ræða fjöl-
skyldutjaldstæði og fólki undir 18
ára verður ekki heimill aðgangur
nema í fylgd með forráðamönnum.
Aldurstak-
mark 18 ár
AUSTURLAND
Seyðisfjörður | Einn vorboðanna á
Austurlandi er að Herðubreiðarbíó á
Seyðisfirði hefur á ný hafið kvik-
myndasýningar eftir nokkurra miss-
era hlé. Menn kættust mjög þegar
kvikmyndahús opnaði á Reyðarfirði í
upphafi virkjunar- og stóriðjufram-
kvæmda á svæðinu, en það lagði upp
laupana fyrir tæpu ári.
Herðubreiðarbíó opnaði sem sagt
með bravúr á laugardaginn var og
sýndi íslensku myndina Brúðgum-
ann. Bæjarfélagið bauð upp á popp
og drykk í tilefni dagsins. Bíóið held-
ur sínu dásamlega gamla yfirbragði
að mestu og því líkast að stökkva um
borð í tímavél aftur til árdaga kvik-
myndasýninga. Það er þó blekkingin
ein, því tækjakostur hefur verið end-
urnýjaður, m.a. eru nýir hátalarar,
ný sýningarvél, magnari og Dolby
Digital-hljóðkerfi. Hluti tækjanna
var einmitt keyptur frá hinu andaða
Fjarðabíói.
Í Herðubreiðarbíói eru 126 sæti
og vænta íbúar á Seyðisfirði og nær-
sveitamenn góðs af kvikmyndasýn-
ingum sumarsins.
Herðubreiðarbíó tekið til
starfa á Seyðisfirði á ný
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Egilsstaðir | Lögð verður fram til-
laga um sölu fimm skála Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs (FFF) norðan
Vatnajökuls á aðalfundi félagsins í
maí. Stofna á Vatnajökulsþjóðgarð
formlega í júní nk. og eru skálarnir
innan hans. Um er að ræða skálana í
Kverkfjöllum, Geldingafelli, Hvanna-
lindum, við Kollumúla og Snæfell.
Sigurðarskáli í Kverkfjöllum er sam-
eign FFF og Ferðafélags Húsavíkur.
FFF á og rekur að auki skála í
Breiðuvík og Húsavík. Ferðafélag Ís-
lands hefur gert formlegt tilboð í skál-
ana fimm og vill greiða fyrir þá 45
milljónir króna. Tryggingaverðmæti
þeirra er í kringum 80 milljónir kr.
Fá ekki félaga í sjálfboðavinnu
Þórhallur Þorsteinsson, formaður
Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, segir
svona komið vegna þess að aðeins
örfáir félagsmenn fáist til að vinna
sjálfboðastörf að viðhaldi skálanna og
umsjón þeirra yfir sumartímann. Fé-
lagið sé of lítið til að bera launaðan
starfsmann til að sinna skálunum, en
slíkt myndi kosta um tvær milljónir á
ári. „Vinna við skálana hefur upp á
síðkastið verið á höndum örfárra ein-
staklinga og skiptir orðið hundruðum
vinnustunda fyrir þá sem mest koma
nálægt þessu. Svona hefur þetta verið
of lengi og komið að ákveðnum enda-
punkti. Að selja frá sér 38 ára upp-
byggingu er ekki gert nema að vand-
lega athuguðu máli og fyrir að
mönnum finnst þeir vera búnir að
reyna það sem hægt er,“ segir Þór-
hallur. Talsverð andstaða er innan fé-
lagsins gegn sölunni. Segja sumir til-
raunarinnar virði að halda áfram og
reyna að ná inn peningum til að kosta
starfsmann. Brýnt sé að skálarnir
haldist í eigu heimamanna, ekki síst
vegna tækifæra sem slíkt geti skapað
í ferðaþjónustu innan Vatnajökuls-
þjóðgarðs. Þórhallur segir mikið hafa
verið reynt að fá fjármagn til að
styrkja rekstur skálanna, en ekki
gengið. Viðræður séu í gangi við
Fljótsdalshérað um stuðning og nið-
urstöður þeirra ættu að verða ljósar
fyrir aðalfund. Það verði þó alltaf fé-
lagsmenn sjálfir sem ákveði endan-
lega hvort af sölu verður.
Hann segir enga tryggingu fyrir að
FFF, stærsti aðilinn með rekstur inn-
an Vatnajökulsþjóðgarðs, hafi eitt-
hvað að segja um stjórn svæðisins
norðan jökuls. Fulltrúi FFF sitji í
svæðisráði Austursvæðis sem fulltrúi
frjálsra útivistarsamtaka en aðild
þeirra hafi fengist í gegn með naum-
indum. Lög þjóðgarðsins verði endur-
skoðuð að fjórum árum liðnum og þá
alls óljóst hvort FFF komi þar nokk-
uð að málum í framhaldinu. Þess beri
þó að geta að náðst hafi samningur
milli þjóðgarðsins og ferðafélaga um
notkun skála fyrir húsnæði og að-
stöðu starfsfólks garðsins og sé hann
hagstæður báðum aðilum.
Tækifærum glutrað
eða grunnur treystur?
Ljósmynd/ÞÞ
Öflugur Sigurðarskáli í Kverkfjöllum er í eigu Ferðafélags Fljótsdalshér-
aðs og Ferðafélags Húsvíkinga. Hugsanlega verður hann nú seldur.
Nauðugur kostur
að selja fimm skála
Í HNOTSKURN
»Skiptar skoðanir eru um til-lögu stjórnar Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs um að selja beri
fimm skála félagsins norðan
Vatnajökuls.
»Hörgull er á félögum til sjálf-boðavinnu við umhirðu skál-
anna og félagið ber ekki kostnað
við starfsmann.
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sætúni 4 Sími 517 1500
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.
Skútuvogi 13, S. 517 1500 www.teknos.com