Morgunblaðið - 29.04.2008, Page 28

Morgunblaðið - 29.04.2008, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Bogi Péturssonfæddist á Mjó- eyri við Eskifjörð hinn 3. febrúar 1925. Hann lést á Sjúkrahúsi Ak- ureyrar hinn 17. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Pétur B. Jóns- son, f. 27.11. 1889, d. 1966, og Sig- urbjörg Péturs- dóttir, f. 14.2. 1902, d. 1996. Eftirlifandi systkini Boga eru: Guðlaug, f. 6.6. 1930, maki Karl Hjaltason (látinn), Stefán Guð- mundur, f. 8.5. 1931, maki Krist- björg Magnúsdóttir, Jón Pétur, f. 5.3. 1934, maki Guðrún Lár- usdóttir (skildu), Sigurlína, f. 4.4. 1936, maki Eyvindur Pétursson, Halldór, f. 2.10. 1941, maki Bryn- dís Björnsdóttir, Ingi Kristján, f. 22.7. 1943, maki Helga Jónsdóttir (látin) og Þorsteinn Sigurjón, f. 27.5. 1945, maki Snjólaug Að- alsteinsdóttir. Systkini látin: El- ísabet, f. 20.3. 1922, d. 1946, Jó- gamall og hóf sama ár störf hjá skóverksmiðjunni Iðunni. Þar starfaði hann í tæp 50 ár sem verkamaður og verkstjóri. Bogi er þjóðþekktur fyrir störf sín að æskulýðsmálum. Hann starfaði í 54 ár við sumarbúðirnar að Ástjörn í Kelduhverfi og þar af í 40 ár sem forstöðumaður. Hann starfaði í um 25 ár við ylfingastarf hjá skátahreyfingunni á Akureyri. Bogi endaði starfsferilinn sem gangavörður í Gagnfræðaskóla Akureyrar, þar sem hann var inn- an handar 450 börnum og ung- lingum. Í 26 ár heimsótti hann nánast vikulega fanga í fangelsinu á Akureyri og ræddi við þá um andleg mál. Þá var Bogi virkur í Gideonhreyfingunni til áratuga og var mjög annt um það starf. Hann starfaði og að fjölmörgum öðrum sjálfboðaliðasörfum, s.s. sunnu- dagaskólum fyrir börn og afþrey- ingu fyrir heimilisfasta á dval- arheimilum aldraðra. Bogi hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf að æskulýðsmálum. Ár- ið 1990 var hann sæmdur ridd- arakrossi Hinnar íslensku fálka- orðu. Bogi verður jarðsunginn frá Gleráreyrakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. hanna Fanney, f. 26.2. 1923, d. 1963, maki Lesley Ashton (látinn), María, f. 22.2. 1924, d. 1968, Stefanía Una, f. 29.3. 1926, d. 2004, maki Sigurður Þórðarson (látinn), Jóna Vil- borg, f. 26.2. 1927, d. 2005, maki Matthías Jóhannsson (látinn), Hjálmar, f. 20.5. 1931, d. 1997, sam- býliskona Hjördís Einarsdóttir, fyrri eiginkona Ólöf Kristjánsdóttir (skildu) og Valgerður, f. 6.7. 1937, d. 1937. Bogi kvæntist 16. júní 1951 Margréti S. Magnúsdóttur, f. 5.4. 1930. Sonur þeirra er Arthur Örn, f. 21.8. 1955, sambýliskona Dagný Elsa Einarsdóttir, f. 5.3. 1959, dóttir þeirra er Dagbjört, f. 21.6. 2000. Synir Dagnýjar eru Ingi Freyr, f. 14.9. 1976, Ívar, f. 15.9. 1983, og Baldvin Logi, f. 8.6. 1988. Bogi flutti ásamt fjölskyldu til Akureyrar er hann var 14 ára Finn ég þrátt mig þrýtur mátt, þrotin brátt er glíma. Guð, mig láttu sofna í sátt, sígur að háttatíma. (Pétur B. Jónsson) Verkamaður sem lokið hefur löngum starfsdegi fagnar hvíldinni, atorkumaður sem lokið hefur verki sínu, sáttur og þakklátur, eftirlæt- ur verkin í annarra hendur og trú- maðurinn fer héðan í fullvissu þess að búið sé að undirbúa honum betri stað. Bróðir okkar Bogi Pétursson yfirgaf jarðvist sína í þessari full- vissu, síðasta orð hans var er hann tók undir í lok bænastundar: Amen. Minningarnar hafa að undan- förnu hrannast upp. Dýrmætt er að þær skuli vera fullar þakklætis og hlýju. Fullhlöðnum jeppa með ofhlaðna kerru er ekið frá Akureyri. Bifreið- in staðnæmist, bílstjórinn tekur niður gamlan sixpensara, spennir greipar og fer með ferðabæn. Þarna var á ferðinni trú- og at- hafnamaðurinn Bogi Pétursson á leið til Ástjarnar. Í yfir fimmtíu ár var þetta jafn öruggt og farfugl- arnir, Bogi að hlaða jeppann og kerruna. Vorið krafðist undirbún- ings fyrir dvöl barna sem ætluðu að dvelja á Ástjörn. Ótrúlegt hvernig hann hafði búið tengslanet Ástjarn- arvina sem gáfu til Ástjarnar. Aldr- ei keyptur fiskur. Bræður Boga á togurum ÚA og vinir sem stjórn- uðu fyrirtækinu gáfu fisk. Síðar þeir Samherjabræður sem gáfu svo ríkulega að á stundum var Bogi af- lögufær, honum þótti það ekki verra. Margar hjálparhendurnar komu að Ástjörn, útilokað að nefna þær allar en Bogi var þakklátur öll- um. Fyrir nokkrum árum varð Bogi að leggja af ferðir þessar, heilsan leyfði ekki að hann héldi þeim áfram. Erfiðisvinna og vökur slíta jafnvel hinum sterkustu mönnum. Hugurinn var þó ferskur og ráða- gerðir snerust um Ástjörn. Ungur eignaðist Bogi trú, tók við Jesú Kristi sem frelsara sínum. Allt hans líf snerist um það að segja öðrum frá, bera út trúna. Hann sagði frá að eitt af því sem hafði djúp áhrif á hann var er einn af yngstu bræðrunum veiktist mik- ið og var vart hugað líf. Gekk þá Bogi afsíðis og bað til Guðs að ef þessi bróðir mætti lifa mundi hann fylgja honum alla tíð. Þetta efndi Bogi trúfastlega. Við systkini hans nutum þess að eiga hann fyrir stóra bróður, traustan og trúfastan. Vænst þótti honum um börnin og þau voru fljót að sjá vin í Boga. Hann gat verið ákveðinn, vildi láta hlýða sér. Jafn- vel mestu ólátabelgir voru hlýðnir hjá Boga. Stóra lífslán Boga var Magga, Margrét Magnúsdóttir frá Sunnu- hvoli. Magga var þeim eiginleikum búin að sættast við athafnamanninn sem stöðugt var að koma og fara. Vottum við henni, syninum Arthúr eiginkonu hans og dóttur okkar dýpstu samúð. Nú er vor í lofti og sunnanþeyr- inn ber hlýja loftstrauma yfir land- ið. Góður dagur til að lesta jeppa og kerru og halda í vinnuferð. En Bogi er farinn heim í himininn. Far þú í friði kæri bróðir. Halldór, Ingi og Þorsteinn Péturssynir. Enginn hefur dregið upp jafn skýra og litríka mynd fyrir mér af því hvað það þýðir að fylgja Jesú Kristi og Bogi föðurbróðir minn sem margir þekkja sem Boga á Ástjörn. Nú hefur Bogi kvatt þenn- an heim og er farinn héðan til frels- ara síns, Jesú Krists. Ég veit að Drottinn tekur vel á móti þessum trúfasta þjóni sínum. Ef við hefðum þá visku að setja þjónustuna við náungann í forgang að hætti Boga þá væri það sam- félag sem við búum í skrefinu him- neskara. Minningin geymir ótal augnablik þjónustu Boga við náungann í krafti þess kærleika sem Drottinn Jesús Kristur gaf honum til starfsins. Við vorum mörg börnin sem sett- umst á hverjum sunnudegi upp í Broncoinn hans Boga og nutum þess að vera í sunnudagaskólanum í Glerárskóla. Hann þekkti okkur öll með nafni og mætti alltaf sjálfur til að ná í okkur. Hann var fullorð- inn einstaklingur og vinur sem hafði tíma fyrir okkur krakkana. Við vorum margir ylfingarnir sem urðum þess aðnjótandi að taka þátt í ylfingastarfinu hans Boga í skátaheimilinu Hvammi. Sögurnar, leikirnir og nærveran sem Bogi miðlaði okkur af var allt til þess fallið að maður lét sig ekki vanta á einn einasta ylfingafund. Og auðvit- að mættum við allir sem einn þegar heimsækja átti sjúkrahús eða aðrar stofnanir til að gleðja fólkið sem þar bjó. Útilegan á vorönn var að sjálfsögðu hápunkturinn þar sem við tókum virkan þátt, fullir af trausti til þess foringja sem Bogi var. Við erum nærri óteljandi mörg sem fengum að dvelja hjá Boga á Ástjörn í þá rúmu hálfu öld sem hann starfaði þar. Nærvera hans, vinátta, frásagnargleði og innileg trúarfullvissa gerðu það að verkum að mörg okkar fundu innri frið á Ástjörn. Sem enginn annar kunni Bogi að miðla okkur að Jesús Kristur tæki við okkur skilyrðis- laust, aftur og aftur. Söngurinn, sögurnar, útivist á fögrum stað og ekki síst mandolínleikur Boga fylgir okkur sem dvöldum á Ástjörn. Við erum fleiri en við gerum okk- ur grein fyrir sem höfum átt bæna- samfélag við Boga. Það fyrirbæna- starf sem hann og Margrét kona hans hafa sinnt í gegnum árin er dýrmætara en orð fá lýst. Ófeimin við að nefna fólk og aðstæður þess frammi fyrir Drottni voru þau vön að taka sér góðan tíma til fyr- irbæna. Við erum ekki margir sem höfum setið á biblíu- og bænastund með Boga í Fangahúsinu á Akureyri. Það var sá þáttur í þjónustu Boga við náungann sem fæstir vissu um enda var Bogi aldrei í starfi til að hreykja sjálfum sér. Í yfir 30 ár fór Bogi í hartnær hverri viku í fanga- húsið og bauð hverjum sem vildi að deila með honum bænasamfélagi, samfélagi þar sem hann játaði líka sína sekt og baðst fyrirgefningar eins og sá sem veit um eigin ófull- komleika. Mér er ljóst sem aldrei fyrr að Bogi átti meira hrós skilið en hann fékk að heyra úr mínum munni og fátækleg orð mín nú fá ekki bætt. En fullvissa mín er sú að Drottinn mun launa honum ríkulega þjón- ustu hans, þjónustu sem við sem hennar nutum fáum seint þakkað. Elsku Margrét og Arthur, elsku systkini Boga, elsku ættingjar, tengdafólk og vinir. Ég votta ykkur öllum samúð mína. Pétur Björgvin Þorsteinsson. Elsku Bogi minn, mig langar að þakka þér fyrir allt. Það var ynd- islegt að koma á Ástjörn þegar ég var lítill strákur. Það var nú stund- um erfitt að segja bless við pabba og mömmu, en það var svo gaman hjá þér að ég var fljótur að gleyma því. Ég kom ekki eingöngu til þín á Ástjörn, ég sótti líka skátafundi, fundi á Sjónarhæð og gekk í sunnu- dagaskóla þar sem þú varst. Það var rosalega gaman að fara í vinnu- ferðir á vorin á Ástjörn. Þú rækt- aðir trú þína af heilum hug og kenndir drengjunum á Ástjörn að biðja. Ég fór oft með þér austur til Ástjarnar og þá stoppuðum við æv- inlega á Leiruvegi og báðum bæn fyrir ferðinni. Þú varst duglegur að fá þér göngutúr og komst oft við heima hjá pabba og mömmu. Þær heim- sóknir voru ómetanlegar og ég hugsa með miklu þakklæti til þess hversu gott samband þið pabbi höfðuð. Þið voruð góðir vinir og ég hef ávallt borið mikla virðingu fyrir þér. Okkur langar öll að þakka þér hjartanlega fyrir alla þá aðstoð sem þú veittir okkur. Þegar mamma dó vékst þú ekki frá okkur. Þú sast með okkur við dánarbeð hennar og baðst fyrir henni og unnir þér ekki hvíldar fyrr en það var afstaðið. Það er ómetanlegt og mig langar að nota þetta tækifæri og þakka þér af heilum hug fyrir það. Þegar ég giftist Toggu minni hélst þú ræðu í veislunni og hún var alveg yndisleg. Við erum mjög þakklát fyrir aðild þína að brúð- kaupinu. Kvöldið eftir að þú kvaddir sett- umst við Togga niður og horfðum á viðtal sem Ingvi Hrafn Jónsson tók við þig árið 1988 á Ástjörn og það var nú aldeilis gaman að rifja upp sumrin á Ástjörn. Þú varst svo góð- ur maður og hugsaðir vel um þig og þína. Í þessu viðtali kom fram hvað þú varst þakklátur fyrir að fá drengina til þín og það traust sem foreldrar þeirra báru til þín. Þú sagðir jafnframt að þú værir stund- um harður eins og harðfiskur en gætir lítið við því gert. Þú sagðir: „Ég er eins og ég er og nákvæm- lega eins og Guð skapaði mig“. Þú varst bara yndislegur maður og Guð var svo elskulegur að skapa þig. Við áttum virkilega góðan mann að og þökkum Guði fyrir það. Nú þökkum við Guði fyrir að veita þér hvíld og frið. Hafðu þökk fyrir allt, elsku Bogi frændi minn. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Valdimar Briem.) Kveðja frá frænda þínum; Ingi Rafn Ingason. Þegar ég minnist vinar míns og samverkamanns, Boga Pétursson- ar, þá koma mér orð úr Rómverjav- bréfinu í huga: „Hversu fagurt er fótatak þeirra sem boða fagnaðar- erindið um hið góða.“ Eða orðin úr Filippíbréfinu: „Verið ávallt glöð í Drottni. Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum.“ Eða orð Jesú úr Jóhannesarguðspjalli: „Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hvert annað. Á því munu allir þekkja að þér eruð mín- ir lærisveinar.“ Öll þessi ritningarorð lýsa Boga betur en fátækleg orð mannshug- ans. Fótatakið var hæglátt en fum- laust. Hann vissi hverslags land hann hafði undir fótum, bjargið ei- lífa, sem aldrei bifast eða bregst. Jafnvel ekki þrátt fyrir torfærur á stundum og mikil él. Hann hélt ávallt ótrauður áfram sínu góða verki af óbilandi trú og trausti til frelsara síns og lífgjafa sem hann nú hefur fengið augum að líta og þegið hvíldina hjá. Staðfesta hans, trúarvitnisburður og ljúfmennska var fágæt enda víðfræg og kunnug miklu fleirum en þeim sem höfðu orðið svo lánsamir að komast í per- sónuleg kynni við hann. Með líf og starf, framkomu og viðmót Boga Péturssonar fyrir aug- um var það eftirsóknarvert að vera lærisveinn Jesú Krists og vilja leit- ast við að koma fram við náungann eins og um Krist sjálfan væri að ræða eða vegna þess sem Jesús Kristur hafði fyrir okkur gert. Þannig var Bogi Pétursson eld- hugi sem náði að vekja sálir af doða með einlægum og allt að því barns- legum vitnisburði sínum, umhyggju og veru allri. Hann sinnti sannri jafningjafræðslu með virðingu fyrir samferðarfólki sínu og af stakri geðprýði. Hann vissi ekkert mik- ilvægara mannkyninu til heilla en Jesú Krist, hinn eilífa Guðsson, krossfestan og upprisinn frelsara öllum mönnum til eilífrar sáluhjálp- ar, öllum þeim er þiggja vilja. Boga á Ástjörn heyrði ég fyrst minnst á þegar ég var drengur en náinn æskuvinur minn Kjartan Guðjónsson leikari, sem gekk undir nafninu Óperan, á Ástjörn, hafði dvalið þar svo vikum skipti sumar eftir sumar. Sagði hann sögur af Boga og lék hann af eftirminnilegri snilld ef því var að skipta. Ætíð var þó undirliggjandi mikil virðing fyrir forstöðumanninum og öllu því sem hann sagði, gerði og kenndi. Faðir minn hafði einnig kynnast Boga í gegnum sameiginlegt starf þeirra í Gídeonfélaginu og talaði hann ætíð um hann með sérstakri aðdáun og virðingu, allt að því lotn- ingu. Þegar ég síðan var svo lán- samur að fá að ganga til liðs við Gí- deonfélagið 21 árs gamall, árið 1985, á 40 ára afmælismóti félags- ins sem haldið var á Hrafnagili við Eyjafjörð var Bogi að sjálfsögðu þar. Tókust upp frá því með okkur góð kynni sem leiddu til djúprar vináttu í gegnum náið samstarf okkar í Gídeonfélaginu og er ég þakklátur fyrir öll okkar gefandi samtöl og nærandi samverustundir. Bogi Pétursson var þjóðsagna- persóna í lifanda lífi og er hann í hópi merkari manna sem á vegi mínum hafa orðið. Vonandi var hann ekki einn af síðustu alvöru hugsjónamönnunum í okkar landi. Góður Guð blessi okkur öllum dýr- mæta minningu hans. Sigurbjörn Þorkelsson. Það má með sanni segja og er ekki ofmælt að það hafi orðið ríkur fögnuður innan veggja Gagnfræða- skóla Akureyrar þegar skólastjóri tilkynnti að Bogi Pétursson hefði verið ráðinn að skólanum sem gangavörður á haustdögum 1988. Bogi var þjóðþekktur fyrir störf sín sem sumarbúðastjóri við Ástjörn í Kelduhverfi í 40 sumur en frum- kvöðull að því starfi var Arthur Go- ok, breskur trúboði sem fluttist hingað til Akureyrar árið 1905 en hornsteininn að Ástjarnarstarfinu lagði hann 1945. Að vetrinum starfaði Bogi hjá Ið- unni, skóverksmiðju SÍS á Gler- áreyrum, lengst af sem verkstjóri. Þegar starfsþrekið fór að minnka ákvað hann að söðla um, hætta hjá Iðunni og þá var nærtækast að velja það starf sem hann kunni öðr- um betur en það var að leiðbeina ungu fólki að feta lífsleiðina því til gæfu. Bogi var snillingur í mannlegum samskiptum. Góðvild hans og gæska samfara glöðu sinni smitaði út frá sér og jafnvel forhertustu prökkurum datt ekki í hug að bekkjast við Boga. Hann hafði ein- stakt lag á því að stilla til friðar. Ef Bogi kom að þar sem drengir voru í slagsmálum brýndi hann röddina og oftar en ekki dugði það. Til þess að treysta friðarböndin sagði Bogi gjarnan drengjunum viðeigandi sögur og friðurinn síðan innsiglaður með handabandi. Ríkur þáttur í fari Boga var samkennd með þeim sem bágt áttu eða stóðu höllum fæti. Öllum vildi hann hjálpa og spar- aði hann hvorki eigið fé eða fyr- irhöfn. Hann var óspar á bílinn sinn og ófáar ferðir fór hann með veika krakka heim úr skólanum eða slasaða á spítala. Að loknum vinnu- degi í erilsömu starfi mætti ætla að Bogi færi beint heim til Margrétar sinnar. Nei. Fyrst vildi hann líta inn til fanganna á Lögreglustöðinni til að biðja fyrir þeim, uppörva og vísa þeim veginn til birtunnar. Þá fyrst var hann ánægður. Það voru forréttindi að fá að kynnast Boga og eiga hann að vini. Við þökkum honum samfylgdina. Margréti og fjölskyldu vottum við dýpstu samúð. Magnús Aðalbjörnsson, Baldvin Jóh. Bjarnason. Kveðja frá Gídeonfélögum á Akureyri Í dag kveðja Gídeonfélagar á Ak- ureyri kæran félaga, Boga Péturs- son, sem lést þann 17. apríl sl. á sjúkrahúsinu á Akureyri. Bogi eignaðist þegar á unga aldri lifandi trú á frelsara sinn Jesúm Krist. Hann helgaði honum æ síðan starfskrafta sína jafnframt með daglegum skyldustörfum sínum. Fjölmargir, sem komnir eru á efri árin, þekktu og minnast Boga fyrir kristilegt starf hans með ungling- um, börnum í sunnudagaskóla og Bogi Pétursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.