Morgunblaðið - 29.04.2008, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 29.04.2008, Qupperneq 32
Kæri mágur. Senn slokkna öll mín litlu gleði- ljós,og líf mitt fjarar senn við dauð- ans ós,og húmið stóra hylur mína brá:Ó, Herra Jesús, vertu hjá mér þá. (Matthías Jochumsson.) Ralph. Kæra Jóna Magga, elsku- legu börn og barnabörn ykk- ar Valla, hjartanlegar sam- úðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Helga, Ralph og Emma. Valli minn. Við stóðum á árbakkanum og föðmuðum laxana. Við vorum holdvotir meira eða minna. Þú brostir út í annað eins og alla tíð. Slíkar upplif- anir urðu margar. Ég votta Jónu Möggu, börnum og barnabörnum mína dýpstu samúð. Vertu Guði falinn, elsku frændi minn. Þinn, Jón Már. HINSTA KVEÐJA 32 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Valdimar ÓskarJónsson fæddist í Holti undir Eyja- fjöllum 13. júlí 1940. Hann lést á Líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 17. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru sr. Jón M. Guð- jónsson, f. 31.5. 1905, d. 18.2. 1994 og Jónína Lilja Páls- dóttir, húsfreyja, f. 15.1. 1909, d. 5.9. 1980. Systkini Valdi- mars eru Ást, f. 1.11. 1930, d. 2.11. 1930, Pétur Guðjón, f. 15.12. 1931, d. 12.7. 2007, Margrét, f. 22.2. 1933, Sjöfn Pálfríður, f. 14.11. 1934, Ólafur Ágúst, f. 28.2. 1936, Helga Gyða, f. 22.10. 1937, Guð- ríður Þórunn, f. 13.5. 1939, d. 30.11. 2006, Gyða Guðbjörg, f. 13.6. 1943, Edda Sigríður, f. 16.5. 1946 og Jóhanna, f. 2.8. 1951. Valdimar kvæntist 1966 Jónu Margréti Guðmundsdóttur bóka- verði, f. á Ísafirði 12.7. 1945. For- eldrar hennar eru Guðmundur Guðmundsson framkvæmdarstjóri, f. 11.4. 1916 og Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 12.12. 1916, d. 15.11. 1981. Börn Valdimars og Jónu Margrétar eru: 1) Guðmundur Stefán bátsmaður hjá Landhelg- isgæslunni, f. 3.10. 1966. Kvæntur Hjördísi Kvaran Einarsdóttur, nema í HÍ., f. 21.12. 1970. Dætur Guðrún Lilja, f. 25.9. 1994, Þuríður sveit á ýmsum bæjum undir Eyja- fjöllum. Síðar starfaði hann m.a. í fiski, uppskipunum úr togurum svo og við vinnslu á skreið hjá Bæj- arútgerð Akraness. Þá vann hann um tíma í Sementsverksmiðju rík- isins á Akranesi og á árunum 1958- 59 sigldi hann á Gullfossi. Vorið 1961 lauk Valdimar námi í Loftskeytaskólanum í Reykjavík og hóf störf sem loftskeytamaður hjá Landhelgisgæslunni á varð- skipinu Ægi. Hann starfaði hjá Landhelgisgæslunni, á sjó, á flug- vélum og í landi næstu 25 árin, að undanskildu rúmu ári er hann vann hjá Almannavörnum ríkisins við skipulagsstörf (1973-74). Á veg- um Landhelgisgæslunnar fór hann tvívegis á radarnámskeið erlendis, 1965 og 1977. Árið 1981 fékk hann kennsluréttindi í skyndihjálp frá RKÍ. Af og til leysti hann af sem loftskeytamaður á millilandaskip- um. Árið 1986 hóf Valdimar störf sem tæknimaður hjá RÚV Sjón- varp, en þar lét hann af störfum 1995 vegna veikinda. Hann sat í stjórn Starfsmannafélags Land- helgisgæslunnar, m.a. sem formað- ur 1972. Hann sat í einnig í stjórn félags íslenskra loftskeytamanna, m.a. sem varaformaður 1977 til 1979. Hann sat í öldungaráði Land- helgisgæslunnar frá stofnun til hinsta dags og var heiðraður á sjó- mannadaginn 2006, fyrir sjó- mannsstörf, en fyrst og fremst fyr- ir söfnun og varðveislu gamalla muna tengdra sjómennsku. Valdimar verður jarðsunginn frá Áskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 11. Kvaran, f. 4.6. 1997, og Jóna Margrét, f. 30.1. 2002. 2) Ragn- heiður hugbún- aðarsérfræðingur hjá Landsteinum Streng, f. 4.11. 1967. Sam- býlismaður Gunnar Skúli Guðjónsson framkvæmdastjóri, f. 13.9. 1968. Börn: Ágústa Hannesdóttir, f. 16.6. 1985, Stefanía Svavarsdóttir, f. 20.8. 1992, Steinunn Svav- arsdóttir, f. 20.8. 1992, Melkorka Gunnarsdóttir, f. 23.5. 2002 og Valdimar Gunn- arsson, f. 30.8. 2004. 3) Katrín, f. 2.1. 1970, d. 15.3. 1970. 4) Davíð Þór slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamaður hjá Slökkviliði höf- uðborgarsvæðisins, f. 6.5. 1973. Kvæntur Erlu Dögg Ragn- arsdóttur hjúkrunarfræðingi, f. 27.3. 1976. Dóttir hans og Höllu Drafnar Þorsteinsdóttur er Erna Hörn, f. 4.6. 1997. Dætur Davíðs Þórs og Erlu Daggar eru Katrín Helga, f. 8.3. 2001 og Kristín Gyða, f. 6.10. 2003. 5) Margrét skrif- stofustjóri hjá Verkefnalausnum ehf., f. 7.5. 1974. Gift Ormari Gylfasyni Líndal hagfræðingi, f. 27.10. 1970. Dóttir Íris Birta, f. 29.6.2005. Valdimar lauk landsprófi 1957. Árið 1958 fór hann í garðyrkju- skóla í Svíþjóð. Frá níu ára aldri og til unglingsára var hann á sumrin í Okkur langar, í örfáum orðum, að minnast hans pabba. Hann var fyr- irmynd okkar allra, maður sem átti ekki í vandræðum með að redda hlut- unum. Byggja hús með öllu, múra, smíða, sparsla og mála, alveg sama hvað var. Listasmiður, þegar hann tók sig til, t.d. við rennibekkinn að renna nálahús fyrir mömmu, ljósa- krónur á heimilið eða þegar hann dundaði sér við að gera naglamyndir. Öll enduðu þessi listaverk í höndum vina og vandamanna. Pabbi sat aldrei auðum höndum. Um að gera að drífa hlutina af, þá væru þeir ekki eftir. Húmorinn var alltaf í lagi og það sást vel í því hvernig hann tókst á við veik- indi sín. Við viljum þakka honum fyrir allar þær góðu stundir og minningar sem við eigum og höfum rifjað upp undanfarna daga. Endalaust bætast við skemmtilegar sögur. Við þökkum honum fyrir allar þær yndislegu stundir sem við höfum átt saman og að þeim mömmu hafi tekist að gera okkur að þeim manneskjum sem við erum í dag. Fjölskylda Valdimars vill koma fram þakklæti til þess góða fagfólks sem kom að umönnun hans undanfar- in 13 ár og þá sérstaklega starfsfólks Grensásdeildar fyrir hið ómetanlega starf sem þar er unnið. Megi guð geyma elsku pabba, Guðmundur Stefán, Ragnheiður, Davíð Þór og Margrét. Kær vinur, mágur og tengdasonur hefur nú lagt upp í enn eina ferðina sem að þessu sinni er ekki sjóferð heldur ferðalag inn í aðrar víddir, á nýjar slóðir. Valdimar verður tæplega í vandræðum með að stilla inn á réttar bylgjulengdir með reynslu loftskeyta- mannsins í farteskinu. Fyrir rúmum 40 árum sigldi hann borðalagður og glæsilegur inn í líf fjölskyldu okkar þegar hann og Jóna Magga stilltu saman strengi sína. Hún eignaðist þá kærleiksríka og stóra tengdafjölskyldu, sem við sann- arlega nutum góðs af, og við fengum hann. Valdimar var fjölhæfur með ein- dæmum, listrænn þannig að allt lék í höndum hans, hann hafði yndi af góðri tónlist, var fróðleiksfús og af- burða minnugur. Hann var eins og al- fræðibók sem hægt var að fletta upp í um ótrúlegustu hluti allt fram á síð- ustu daga. Hann var gott fordæmi um hvernig rækta má vináttu við sam- ferðamenn og tengsl við fortíðina. Eftir hann liggja mörg góð verk. Hann gerði sér grein fyrir mikilvægi þess að halda til haga sögulegum verðmætum og lét ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Hann naut þess að leggja öðrum lið og nutu ófáir góðs af því. Hann ávann sér traust samferð- armanna og átti vini sem héldu tryggð við hann alla tíð. Það sem einkenndi Valdimar var heiðarleiki og hreinskiptni, eljusemi, ótrúlegt æðruleysi og góð kímnigáfa sem kom sér ekki síst vel í löngum og erfiðum veikindum. Aldrei heyrðist hann kvarta heldur tók hverju sem að höndum bar með einstöku jafnaðar- geði. Hann var í raun mikill kennari á lífsins leið um þau gildi sem skipta máli og hvernig maður tekst á við lífið og erfiðleika þess. Valdimar var mikill fjölskyldumað- ur. Þau Jóna Magga eiga sannarlega miklu barnaláni að fagna þrátt fyrir að hafa þurft að takast á við sorgina sem fylgdi missi litlu Katrínar aðeins rúmlega tveggja mánaða gamallar. Jóna Magga hefur staðið eins og klettur við hlið eiginmanns síns í veik- indum hans og engin orð fá því lýst hvílíka ást og umhyggju hún hefur sýnt á undanförnum árum sem og alla tíð. Börnin þeirra fjögur og barnabörn- in tólf eru sannarlega gleðigjafar, hafa verið foreldrum sínum mikill styrkur og bera þeim gott vitni. Kærleikur, samúð og væntum- þykja var lífsmáti Valdimars og þeirra eignleika naut fjölskylda hans og samferðamenn í ríkum mæli, á allt of stuttri ævi. Far þú í friði, kæri vinur. Fyrir hönd tengdafjölskyldunnar, Bryndís, Ingibjörg og Guð- mundur Guðmundsson. Minningabrotin renna hjá. „Vertu trúr allt til dauða.“ Árið er 1954, ferm- ing í Akraneskirkju. Langþráður draumur pabba og mömmu hefur ræst. Fermingarkyrtlarnir teknir í notkun í fyrsta sinn. Valli bróðir er í þessum hópi. Árið er 1940. Barn er að fæðast í Holti undir Eyjafjöllum. Það er ljúf- lingurinn okkar og við eldri systkinin rígmontin. Valdimar Óskar er nafnið hans, eftir bræðrum pabba, sem lét- ust í barnæsku. Lítill kútur, bjartur yfirlitum með ljósa lokka, hvers manns hugljúfi. Árin líða og drengurinn vex úr grasi. Alltaf sami ljúflingurinn, vin- sæll meðal foreldra, systkina og allra vinanna. Svolítið uppátektarsamur eins og tíðkast í systkinahópnum. Oddur, fréttaritari á Skaganum, fréttir af glæfraför á pramma í Krókalóni. Þetta fer í Moggann. Unglingurinn, góða skapið, skopið, hlýleikinn. Sjórinn heillar og nú er það ekki prammi heldur messagutti á Gullfossi. Árin líða hjá og guttinn orð- inn að glæsilegum ungum manni, sem heillar alla. Hann verður hugfanginn af sígildri tónlist, helst eru það óp- erurnar, svolítið óvenjulegt á þessum árum. Hann er farinn að stunda nám í Loftskeytaskólanum. Kannske eru óperur og loftskeyti ekki svo ólík. Svo segir hann sögur, skemmtilegar sög- ur. Okkar maður fer óvenjumargar ferðir að Bifröst í Borgarfirði. Hvað er þar? Jú ung stúlka að vestan, með græn augu, Jóna Magga. Þvílík ger- semi, enda af vestfirsku kjarnafólki komin. Árið er 1966. Brúðkaup, blik í augum sem boða fögur fyrirheit. Kærleikurinn, sem umber allt og fell- ur aldrei úr gildi. Valli fer að starfa hjá Gæslunni eftir skóla. Það kemur í hlut Jónu Möggu að sjá um börn og bú. Eflaust hefur það ekki verið auð- velt hjá sjómannskonunni að sinna öllu sem sneri að heimilinu og barna- uppeldi. Jóna Magga er svo sannar- lega starfi sínu vaxin og það er ynd- islegt að sjá hvað þau bera alltaf virðingu og væntumþykju hvort í annars garð. Valli kemur miklu í verk fyrir utan vinnuna. Ótal áhugamál. Fleiri hundruð mynda í tölvunni, ætt- armótin, minningarsteinarnir, sem hann hannaði við gamla Garðahúsið á Akranesi. Hann hefur alltaf verið heilsugóður og því kemur það eins og þruma úr heiðskíru lofti, er hann greinist með æxli í höfði. Þar með hefst baráttan mikla, sem stendur í um 12 ár. Maður á eiginlega ekki orð yfir þessum hetjum, sem mæta hverj- um degi með bros á vör, húmorinn og æðruleysið alltaf til staðar. Þau Jóna Magga og Valli hafa gefið okkur hin- um heilmikið, sem við ættum að til- einka okkur betur. Árið er 2006. 50 ára fermingaraf- mæli og ljúflingurinn okkar ætlar að stíga í stólinn. En hvernig? Hann er í hjólastól. „Þú getur flutt ávarpið þitt svona sitjandi,“ segir meðhjálparinn. „Ég ætla í stólinn“, svarar hann og gerir það si svona. „Vertu trúr allt til dauða og Guð mun gefa þér lífsins kórónu.“ Lífsbókinni hans hefur verið lokað, en á landi lifenda finnumst við aftur. Við systkini hans og tengdafólk viljum þakka Jónu Möggu alla þá ást- úð og kærleika, er hún tókst á við í veikindum hans. Þar fór engin með- almanneskja. Hún er gimsteinn af Guði gerð og gefin. Systkinin og fjölskyldur þeirra. Hann kom brosandi í þennan heim og hélt því til æviloka, hjartkær elsku bróðir okkar sem við nú kveðjum. Hjartahlýr, kærleiksríkur og hugul- samur var hann og hafði einstaka kímnigáfu. Æskuheimilið á Kirkju- hvoli var okkar griðastaður, enda ríkti þar mikill kærleikur og friður. Þar var annasamt, enda bæði heimili, safnaðarheimili og þar fóru athafnir fram. Því giltu þar ákveðnar reglur sem bar að fylgja. Aldrei komu upp nein vandamál, við lærðum að ganga um hljóðlega og það fylgdi okkur út í lífið. Valli okkar átti stóran þátt í að skapa þann anda. Hann var einstakur sonur, um það ber minningarsteinn- inn um föður okkar í Görðum á Akra- nesi vitni. Hann hannaði hann að öllu leyti. Öll árin sem hann kom af sjón- um hringdi hann til foreldra okkar til að láta vita að allt hefði gengið vel. Eitt hans síðasta verk var að sam- þykkja nýjan legstein yfir þau, sem komin er nú upp, en þá var hann orð- inn lamaður og búinn að missa málið. Ungur að árum kynntist hann Jónu Möggu sínum lífsförunaut. Við teljum að enga hefði hann getað valið betri. Þessi einstaka hetja sem aldrei hefur frá honum vikið. Aldrei heyrðist æðruorð frá þeirra munni. Ástin og umhyggjan sem þau báru gagnvart hvert öðru er ólýsanleg. Við þetta ól- ust börnin þeirra upp og munu þau skila því til sinna barna. Samheldnari fjölskyldu er vart að finna. Fyrir þrettán árum hófst hans þrautaganga, en hann lét ekki deigan síga. Fann sér verðugt verkefni og fór að vinna við söfnun mynda, m.a. fyrir Landhelgisgæsluna. Í dag er hún rík- ari af gömlum minningum, m.a. úr þorskastríðinu. Allt var þetta hug- sjónastarf sem hann innti af hendi með bros á vör. Til merkis um hug- ulsemi hans þá var hann óþreytandi að senda systrum sínum sem dvöldu erlendis upptökur með ýmiskonar efni sem hann hafði tekið upp. Fastur liður á föstudögum var að senda ætt- ingjum og vinum skemmtisögur á netinu, sem hann gerði þar til mátt- urinn þvarr, en þá tók Jóna Magga til við að aðstoða hann. Þó söknuðurinn sé sár er hjarta okkar yfirfullt af þakklæti fyrir að hafa átt hann sem bróður og vin. Jóna Magga okkar, börnin ykkar, tengdabörn og barnabörn, megi al- góður Guð styrkja ykkur og vernda á þeim erfiðu tímum sem framundan eru. Vertu Guði falinn, elskulegur. Gyða, Edda, Hanna. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. – Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson.) Kæri bróðir minn og sólargeislinn, vertu Guði falinn Helga systir. „Á grænum grundum lætur Hann mig hvílast“. Þessi hending úr 23. Davíðssálmi komu mér í hug þegar okkur hjónum var tilkynnt lát okkar einstaka vinar Valdimars Jónssonar. Ekki duldist okkur þó við síðustu heimsókn til hans að stutt væri í enda- lokin. Hetjan sanna var að láta í minni pokann fyrir illvígum sjúkdómi sem hafði í rúman áratug tekið sinn toll og sett mark sitt á þennan glaðværa öð- ling. Um hugann fljúga ótal minning- ar um liðlega fjörutíu ára vináttu. Fundum okkar bar fyrst saman um borð í v/s Óðni árið 1964, en þar um borð var Valdi loftskeytamaður. Ekki tók það langan tíma fyrir nýja háset- ann að átta sig á því að Valdi var einn öflugasti hlekkurinn í þeim góða anda og samheldni sem ríkti þar um borð, um og upp úr miðjum sjöunda áratug síðustu aldar. Ávallt lifandi, kátur og hress og einn aðalforsprakkinn í út- gáfu Óðinshanans sem var vélritað blað sem tók á helstu málum líðandi stundar um borð í Óðni. Þegar háset- inn hafði öðlast þroska til að gegna stöðu stýrimanns fannst Valda tími til kominn að kynna honum óperutónlist. Leiddi það til margra sameiginlegra hlustunarstunda í loftskeytaklefanum á Óðni. Smám saman bar þessi mús- iktilraun árangur þó hún næði ekki al- veg að kaffæra bítlahljóminn í kolli drengsins. Einnig pældum við í bók- menntum og eru mér þar hugstæð- astar bækurnar Brekkukotsannáll, Gerpla og Íslandsklukkan, ásamt ævisögu séra Árna Þórarinssonar. Um þær bækur var margt skrafað og mikið hlegið. Árið 1972 skildu leiðir um tíma, er ég hóf störf hjá Almannavörnum rík- isins, en þó ekki lengi því í febrúar- byrjun 1973 var Valdi kallaður til starfa hjá Almannavörnum við upp- haf Heimaeyjargossins. Þar starfaði hann í liðlega 3 ár sem gagnaðist hon- um vel þar sem hann stóð í húsbygg- Valdimar Jónsson Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BOGI TH. MELSTEÐ yfirlæknir, Svíþjóð, lést laugardaginn 26. apríl. Ingibjörg Þorláksdóttir, Páll Melsteð, Anna Guðríður Melsteð, Jón Þorlákur Melsteð, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.