Morgunblaðið - 29.04.2008, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 47
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
GÓÐIR hlutir gerast hægt og enginn er
spámaður í eigin föðurlandi. Þessi máltæki
eiga vel við í tilfelli Petters Winnberg,
bassaleikarans stimamjúka sem gerði allt
vitlaust hérlendis sem meðlimur reggísveit-
arinnar Hjálma. Utan kannski að Petter er
sænskur en ekki íslenskur og þess vegna
var hann aldrei spámaður hér á Íslandi. Allt
í lagi, við erum kannski komin ögn út fyrir
efnið hérna, en alltént gaf Petter út plötuna
Easily Tricked hérlendis fyrir jólin 2006 og
var sveit hans, The Pix, með í för. Útgef-
andi var fyrirtæki GusGus-manna, Pi-
neapple Records, en platan fór tiltölulega
hljótt á þeim tíma.
Hinn öflugi vélamaður GusGus, forsetinn
sjálfur, President Bongo lét þó hvergi deig-
an síga og fyrir stuttu framseldi hann plöt-
una til bresku útgáfunnar Gung-Ho! Platan
kom út sem niðurhal eingöngu þann 31.
mars og gerði það strax gott á iTunes, seld-
ist von úr viti þar og var lagið „Nevermind“
valið sem smáskífa vikunnar þar á bæ. Plat-
an hefur síðan dottið inn á tölvur margra
málsmetandi aðila í Lundúnarborg, útvarps-
maðurinn Pete Tong á BBC hefur verið að
spila lög af henni í þætti sínum og Mark
Brydon, leiðtogi Moloko, ku einnig aðdá-
andi. Hipsterar borgarinnar gátu svo barið
Petter & the Pix augum í síðustu viku en þá
hélt sveitin sína fyrstu tónleika þar í borg,
á Fly Bar á Oxford Street. Platan kemur
svo út á efnislegu formi í gegnum Gung-Ho!
í dag.
Velgjörðarmaður sveitarinnar, President
Bongo, hefur þetta um málið að segja:
„Já, það er svona þegar Íslendingar
skjóta hluti niður og veiða þá svo aftur upp
þegar útlönd taka við sér … vittu til … þeir
verða heimsfrægir!“ segir hann og hlær
sigri hrósandi.
Petter & the Pix í góðum málum í Bretlandi
Petter Winberg, bassaleikari Hjálma, selur
og selur af rúmlega árs gamalli plötu sinni
Vinsæll Útvarpsmaðurinn Pete Tong á BBC spilar lög Petters í þætti sínum.
KAMMERSVEITIN Ísafold efndi
til vel sóttra útgáfutónleika í Lang-
holtskirkju á sunnudag. Hljómdisk-
urinn heitir í höfuðið á tónverki
stjórnandans, Öll hljóð bíða þagnar
– All sounds to silence come utan
landsteina – er frumflutt var í Skál-
holti í fyrrasumar að undirrituðum
viðstöddum en hefur að auki að
geyma verk eftir Schnittke, Varèse
og Bent Sørensen. Voru þau öll flutt
hér, fyrir utan bráðskemmtilega
Sinfóníettu Benjamins Brittens Op.
1 frá 1932 sem hefði sómt sér fjall-
myndarlega á sama diski. Að ekki sé
minnzt á þar með auknar líkur á
dómtöku í heimstímariti á við Gra-
mophone.
Hefði þar vart þurft að spyrja um
vænlegar viðtökur eftir hreint fram-
úrskarandi flutningi sveitarinnar að
dæma. Hvað þá í upptöku úr Lang-
holtskirkju, sem miðað við lifandi
áheyrnarhljóm virtist varla standa
nafntogaðri heyrð Skálholtskirkju á
sporði. T.a.m. var undravert hvað
óuppmögnuð 5 manna strengjasveit-
in náði góðu samvægi við blás-
arahópinn, er að öllu jöfnu hefði út-
heimt fjór- ef ekki sexfalt fleiri
strengi. Jafnvel þótt vera kunni að
höfundar umræddra verka hafi gætt
sérstaks aðhalds í rithætti, eins og
kannski bezt kom fram í verkum
Brittens og Daníels.
Spilamennskan var ekki aðeins af-
burðafáguð heldur einnig víðfeðm og
spræk. Að loknum djúpinnlifuðum
flutningi strengjakvartetts í anddyri
á Canon in memoriam Igor Stra-
vinsky (1971) eftir rússneska fjölstíl-
istann Alfred Schnittke (1934-98) og
hvassa Octandre hljómstreituetýðu
Edgards Varèses (1883-1965) kom
fyrri hápunktur kvöldsins í formi
nefndrar 11 manna Sinfóníettu Brit-
tens; „útrásarverks“ svo bragð er að
hjá aðeins 19 ára unglingi. Eftir hlé
birtist svartsýnt verk Danans Bents
Sørensens, The Weeping White Ro-
om (2002), er með glissandi LSD-
órum sínum og klínískri angist hefði
fallið ógnarvel að firrandi framtíð-
arsýn Aldous Huxleys.
Fjölskrúðugt 18 mín. verk hljóm-
sveitarstjórans lauk þessum frábær-
lega vel túlkuðu tónleikum. Tíndust
þar ófáar fjaðrir í hatt jafnt hans
sem hinnar einstaklega vel mönnuðu
kammersveitar, er óðum fer að fær-
ast á úrvalsstig kjörinna tónmenn-
ingarsendiherra þessa lýðveldis. Sé
hún ekki þangað komin nú þegar.
Kjörnir sendiherrar
Ísafold „[E]kki aðeins afburðafáguð heldur einnig víðfeðm og spræk.“
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Langholtskirkja
Útgáfutónleikar Kammersveitarinnar Ísa-
foldar. Stjórnandi: Daníel Bjarnason.
Sunnudaginn 27. apríl kl. 19.20.
Kammersveitartónleikarbbbbm
- S.V., MBL
eee
Sýnd kl. 8 og 10:15
www.laugarasbio.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
- V.J.V.,
TOPP5.IS/FBL
“Tryllingslegt hnefahögg
í andlitið!”
- S.V., MBL
- K.H.G., DV
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
endurgreitt
í Regnboganum
MögnuðMynd byggð
á sönnuM atburðuM
uMhóp neMenda seM
sérhæfðu sig í að
læra og telja í spilið
21Með þaðMarkMið
að hreinsa spilavítin
í vegas!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
- L.I.B. TOPP5.IS, FBL- H.J., MBL
- L.I.B.,
TOPP5.IS/FBL
SÝND Í REGNBOGANUM
bíóDAGARREGNBOGINN11.-30. APRÍL
GRÆNA ljóssiNs
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝNDAR Í REGNBOGANUMSÝND Í REGNBOGANUM
FRÁBÆR SPENNUTRYLLIR MEÐ JESSICU ALBA OG
HAYDEN CHRISTENSEN Í AÐALHLUTVERKUM.
Á HVERJU ÁRI VAKNAR
EINN AF HVERJUM 700
Á MEÐAN Á
SKURÐAÐGERÐ
STENDUR.
ÞEGAR ÞAU PLÖNUÐU
AÐ DREPA
EIGINMANN HENNAR
ÞÁ GRUNAÐI ÞAU EKKI
AÐ HANN YRÐI
EINN AF ÞESSUM 700
SEM VÆRU MEÐ
FULLA MEÐVITUND!
- H.J., MBL
eeeeVe
rð aðeins
550 kr.
Sýnd kl. 6Sýnd kl. 6 m/ísl. tali
The Ruins kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Vantage Point kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Tropa de Elite enskur texti kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
King of Kong íslenskur texti kl. 6 - 8 - 10 Leyfð
The Band’s Visit enskur texti kl. 6 Leyfð
Caramel enskur texti kl. 6 Leyfð
CARAMEL
- S.V., MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10
eeee
“Ein besta
gamanmynd
ársins”
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
-S.V., MBL
Sýnd kl. 8 og 10:15
eeee
- 24 stundir
-bara lúxus
Sími 553 2075
toppMyndin á íslandi í dag!