Morgunblaðið - 30.04.2008, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ásgeir Ingvarsson og
Steinþór Guðbjartsson
KAPPKOSTAÐ verður að halda
úti eins góðri þjónustu á Lands-
spítalanum og mögulegt er miðað
við aðstæður.
Þetta sagði Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra við
Morgunblaðið eftir fund sem boð-
að var til seint í gærkvöldi með
stjórnendum spítalanna á Akra-
nesi, Selfossi, í Reykjanesbæ og
Hafnarfirði. Á fundinum var rædd
aðkoma spítalanna og samvinna
við lausn á þeim mikla vanda sem
fyrirsjáanlegur er á Landspítalan-
um þegar uppsagnir skurð- og
svæfingarhjúkrunarfræðinga taka
gildi 1. maí. Á fundinum voru einn-
ig rædd viðbrögð við boðuðum að-
gerðum geislafræðinga, að sögn
ráðherra.
Vísa aðgerðum annað
Gripið verður til viðbragðsáætl-
unar sem verður nánar skipulögð í
dag og á morgun. „Lýstu forsvars-
menn spítalanna allir vilja sínum
til að koma að áætluninni í góðu
samstarfi við sitt starfsfólk. Einn-
ig verður haft samstarf við sjúkra-
húsið á Akureyri,“ sagði Guðlaug-
ur Þór.
Áætlunin felur í sér að hægt
verður að viðhalda lágmarksbráða-
þjónustu á Landspítala, þ. á m.
gera keisaraskurði og skurðað-
gerðir vegna krabbameins, en öðr-
um aðgerðum verður vísað til sam-
starfsspítalanna eins og unnt er.
Vonast eftir lausn á deilunni
Þeim breytingum sem boðaðar
hafa verið á störfum skurð- og
svæfingarhjúkrunarfræðinga segir
heilbrigðisráðherra að sé einkum
ætlað að uppfylla ákvæði tilskip-
unar Evrópusambandsins um lág-
markshvíldartíma og að óveruleg-
ur sparnaður hljótist fyrir
spítalann af hinu nýja fyrirkomu-
lagi. Vel hafi gengið að innleiða
sams konar breytingar við aðrar
deildir á spítalanum.
Guðlaugur Þór vonast til að deil-
an muni leysast og að þeir hjúkr-
unarfræðingar sem sagt hafa upp
komi aftur til starfa. „Ég held að
allir hlutaðeigandi séu reiðubúnir
til þess að finna leið til að leysa
málið,“ segir hann.“
Anna Stefánsdóttur og Björn
Zoëga, sem hafa verið sett til að
gegna starfi forstjóra Landspítal-
ans til hausts, segja að ákvörðun
hjúkrunarfræðinga um að standa
við uppsagnirnar valdi þeim mikl-
um vonbrigðum.
Björn segir að ákveðin sáttar-
hönd hafi verið rétt fram og farið
hafi verið að tilmælum Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga en það
hafi ekki dugað til. Margoft hafi
komið fram að óbreytt ástand sé
ólöglegt en hjúkrunarfræðingar
hafi ekki verið til viðræðu um
breytingar.
Þar sem ekki væri um hópupp-
sagnir að ræða sagðist Björn vona
að einhverjir hjúkrunarfræðingar
sæju möguleika í stöðunni.
Að sögn Björns eru engar laga-
heimildir fyrir því að krefjast þess
að hjúkrunarfræðingar starfi
áfram í ákveðinn tíma. Í starfs-
mannalögunum segi að hægt sé að
krefjast slíks allt að sex vikum áð-
ur en uppsagnir taki gildi en það
sé hugsað í sambandi við hópupp-
sagnir og fyrir sex vikum hafi eng-
um dottið í hug að þessi staða gæti
komið upp.
Anna Stefánsdóttir segir að
neyðaráætlunin verði kynnt í dag
og hún taki mið af stöðunni.
Landspítalinn vinnur að neyðar-
áætlun með öðrum spítölum
Geta ekki krafist
að uppsögnum
hjúkrunarfræð-
inga verði frestað
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Neyðarfundur Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hélt í gærkvöldi fund með forstöðumönnum sjúkrahúsa um málefni Landspítalans.
völl fyrir því að ræða frekar saman
því að stjórn spítalans ætli sér
greinilega að koma vaktabreyting-
unum á. „Við treystum þeim ekki í
samningaviðræður um þessi mál,“
segir hún.
96 hjúkrunarfræðingar hafa sagt
starfi sínu lausu og segir Vigdís að
rúmlega 80 þeirra hafi verið á fund-
inum en aðrir bundnir í vinnu. Hún
segir að margir hjúkrunarfræð-
ingar hafi þegar ráðið sig í vinnu
annars staðar og aðrir þurfi ekki að
hafa áhyggjur af því að fá ekki
vinnu. Hjúkrunarfræðingar vildu
gjarnan vinna á sínu sérsviði en
starfsfriður hefði ekki verið góður í
mörg ár og ekki væri gaman að
vinna á vinnustað þar sem stanslaust
væri verið að rjúfa vinnufriðinn.
Mikil samstaða væri í hópnum og
með frestun til hausts væri verið að
reyna að rjúfa þessa samstöðu.
Að sögn Vigdísar gefa hjúkr-
unarfræðingar lítið fyrir rökin fyrir
boðuðum breytingum á vaktafyr-
irkomulaginu. Boðaðar vaktir geti
valdið löngum vinnutíma og sam-
rýmist ekkert frekar kröfum Evr-
ópusambandsins en núverandi fyr-
irkomulag. ESB sé því bara afsökun.
Erfitt sé fyrir utanaðkomandi aðila,
sem hugsi bara um peninga, að segja
hvernig vinnutilhögunin eigi að vera
og hjúkrunarfræðingar viti best
hvernig standa eigi að málum.
Geislafræðingar funduðu í gær-
kvöldi. Þeir sögðust ætla að ræða við
yfirmenn sína á Landspítalanum
árla dags í dag og tilkynna í kjölfar-
ið hvort þeir stæðu við uppsagnir
sínar og gengju út á miðnætti eða
drægju þær til baka.
Uppsagnir hjúkrunarfræðinganna standa
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
SKURÐ- og svæfingarhjúkr-
unarfræðingar á Landspítalanum
samþykktu einróma á fundi sínum í
gær að standa við uppsagnir sínar
sem taka gildi á miðnætti í kvöld.
Í yfirlýsingu frá hjúkrunarfræð-
ingunum kemur fram að þeir sjái sér
ekki fært að verða við tilmælum
stjórnenda spítalans um að draga
uppsagnir sínar til baka því með því
sé aðeins verið að fresta vandanum.
Ekkert hafi komið fram sem bendi
til samningsvilja yfirmanna um að
hvika frá fyrirhuguðum breytingum
á vaktafyrirkomulagi. Ábyrgð á því
ástandi sem kunni að skapast er vís-
að á hendur yfirmanna og heilbrigð-
isráðherra og lýst er yfir vantrausti
á yfirstjórn Landspítalans.
Vigdís Árnadóttir skurðhjúkr-
unarfræðingur segir að hjúkr-
unarfræðingarnir telji ekki grund-
Morgunblaðið/Frikki
Biðstaða Geislafræðingar funduðu í gærkvöldi og taka af skarið í dag.
Geislafræðingar sýndu ekki spilin
AÐSTANDENDUR netkosningar
um Gjábakkaveg og aðra valkosti í
samgönguúrbótum við Þingvallavatn
hvetja landsmenn til að taka þátt í
kosningunni og minna á að sam-
kvæmt lögum um þjóðgarðinn á
Þingvöllum á þjóðgarðurinn að vera
helgistaður allra Íslendinga. Á for-
síðu mbl.is er að finna tengil á kosn-
ingavefinn.
Kosið er um fimm leiðir: Leið 1 er
lagfærður núverandi vegur, leið 2 er
vegur norðan Lyngdalsheiðar og
vestur að Miðfelli, leið 3 er vegur
norðan Lyngdalsheiðar og sunnan
Þingvallavatns, leið 4 er vegur sunn-
an Lyngdalsheiðar og upp á Hellis-
irfarandi hætti: 1. sæti fyrir þann
kost sem þeir telja bestan, 2. sæti fyr-
ir þann næsta og svo koll af kolli.
Ekki þarf þó að velja nema einn kost.
Þessi sama aðferð var notuð þegar
kosið var um þjóðarblómið og varð þá
Holtasóley fyrir valinu. Slóðin á kosn-
ingavefinn er www.landvernd.is/
gjabakki og þar má nálgast mats-
skýrslu fyrir vegagerðinni, úrskurð
Skipulagsstofnunar og úrskurð um-
hverfisráðherra auk frétta um Gjá-
bakkaveg og nánari upplýsingar um
kosningaraðferðina raðval.
Aðstandendur kosningarinnar eru
Landvernd, Lýðræðissetrið, Morg-
unblaðið og mbl.is.
heiði og leið 5 er vegur sunnan Lyng-
dalsheiðar og niður Grafninginn.
Kosningaraðferðin sem notuð er
heitir raðval. Kjósendur geta raðað
mögulegum leiðum í sæti með eft-
Hvetja til þátttöku í kosn-
ingu um Gjábakkaveg
Tært Margir hafa áhyggjur af því
að mengun spilli Þingvallavatni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Héðinn segir að flestar þær breyt-
ingar sem til stóð að gera á kjörum
og vaktafyrirkomulagi læknanna
hafi verið dregnar til baka auk þess
sem skipulagsbreytingar og til-
færslur hafi komið í veg fyrir kjara-
skerðingu.
Bjartsýn á framhaldið
„Við sjáum nú fram á sameiningu
heilbrigðisstofnananna á Blönduósi
og Sauðárkróki sem þýðir breytta
yfirstjórn,“ segir Héðinn. Starfs-
menn stofnunarinnar geti því flestir
horft fram á betri tíma en sam-
kvæmt tillögu ráðherra standi til að
styrkja innviði stofnunarinnar og
bæta þjónustuna.
LAUSN hefur verið fundin í deilu
heilbrigðisstofnunarinnar á Blöndu-
ósi og þeirra lækna sem þar starfa.
Læknarnir hugðust segja upp störf-
um 1. apríl en höfðu fallist á að fresta
því til 1. maí. Þeir hafa nú ákveðið að
halda áfram störfum.
„Við gátum ekki staðið í samn-
ingaviðræðum við forstjóra stofnun-
arinnar vegna langvarandi sam-
skiptaörðugleika, þeir örðugleikar
voru stór þáttur í því að við ákváðum
að segja upp,“ segir Héðinn Sigurðs-
son, trúnaðarmaður Læknafélags
Norðvesturlands og læknir á Heil-
brigðisstofnun Blönduóss. Íhlutun
heilbrigðisráðuneytisins til að leysa
deiluna hafi því verið óhjákvæmileg.
Læknar á Blönduósi
halda áfram störfum