Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 15
MENNING
NOKKRIR breskir rithöfundar,
sem allir hafa átt bækur ofarlega á
metsölulistum þar í landi og víðar,
saka bresku
verslanakeðjuna
Tesco um að
bregðast of
harkalega við
gagnrýni á starfs-
hætti fyrirtæk-
isins í Taílandi.
Rithöfundarnir
eru Nick Hornby,
Mark Haddon,
Joanne Harris og
Deborah Mog-
gach. Dótturfyrirtæki Tesco í Taí-
landi, Tesco Lotus, höfðaði mál gegn
þremur Taílendingum sem gagn-
rýndu viðskiptahætti fyrirtækisins
þar í landi. Einn þeirra, Jit Siratr-
anont, á yfir höfði sér allt að tveggja
ára fangelsisvist fyrir vikið og jafn-
framt að þurfa að greiða Tesco Lo-
tus skaðabætur upp á allt að 16,6
milljónir punda. Hornby og félagar
segja of hart gengið gegn málfrelsi
þessa fólks þó svo þeir skilji að fyr-
irtækið vilji verja sig. Siratranont er
varaformaður viðskiptaráðs Taí-
lands. Hann lét þau ummæli falla að
Tesco Lotus væri að ýta minni fyr-
irtækjum út af markaði með harðri
útþenslustefnu. Annar gagnrýnandi
Tesco Lotus, Kamol Kamoltrakul, er
lausráðinn blaðamaður og gagn-
rýndi hann fyrirtækið í blaðagrein.
Þriðji maðurinn er einnig blaðamað-
ur, Nongnart Harnvilai, og hann var
lögsóttur fyrir að skrifa í blaðagrein:
„Fuss, Tesco Lotus elskar ekki Taí-
lendinga.“
Tesco segist styðja lagaaðgerðir
dótturfyrirtækisins þar sem ráðist
hafi verið gegn fyrirtækinu og það
hafi viljað fá opinberar afsök-
unarbeiðnir frá mönnunum. Ekkert
hafi hins vegar bólað á þeim og því
hafi komið til lögsókna.
Samtök rithöfunda sem standa
vörð um málfrelsi, PEN, segja það
sérstakt áhyggjuefni að Tesco Lotus
skuli lögsækja mennina of svo mikilli
hörku að komið geti til fangels-
isvistar. Tesco noti „stóran hamar til
að brjóta litla hnetu“. Þá hefur
Tesco höfðað mál á hendur ritstjóra
breska dagblaðsins Guardian, Alan
Rusbridger, fyrir að breiða út lygar
um fyrirtækið, nánar tiltekið til-
raunir þess til að komast undan
skattgreiðslum í Bretlandi. Tesco
ber því við að Guardian hafi ekki
beðist afsökunar á rangfærslunum.
Stór hamar,
lítil hneta
Metsöluhöfundar
gagnrýna Tesco
Rithöfundurinn
Nick Hornby
KAMMERKÓR
Mosfellsbæjar held-
ur vortónleika sína í
bókasafni bæjarins á
morgun klukkan
fjögur. Yfirskrift
tónleikana er „Salut
d́Amor“ og á efnisskránni eru söngperlur frá sjö
mismunandi löndum.
Einsöngvari er Auður Árnadóttir og meðleikari
er Arnhildur Valgarðsdóttir. Aðrir hljóðfæraleik-
arar eru Auður Árnadóttir flautuleikari og Eva
Þórdís Ebenezardóttir fiðluleikari. Nemendur úr
Listaskóla Mosfellsbæjar og Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar koma einnig fram.
Stjórnandi Kammerkórs Mosfellsbæjar er Símon
H. Ívarsson.
Tónlist
Kammerkór Mosfellsbæjar
Söngperlur
í Mosfellsdal
Á MORGUN verða fjórðu tón-
leikar ársins í hádegistón-
leikaröð Hafnarborgar.
Píanóleikarinn Antonía He-
vesi er listrænn stjórnandi tón-
leikaraðarinnar.
Að þessu sinni er það ten-
órinn Kolbeinn J. Ketilsson
sem er gestur hádegistónleik-
anna. Hann hefur starfað mik-
ið erlendis undanfarin ár, en
fór með hlutverk Bakkusar í
uppsetningu Íslensku óperunnar á síðasta ári. Á
efnisskránni á morgun eru íslenskar og ítalskar
aríur.
Tónleikarnir hefjast klukkan tólf og standa í um
hálfa klukkustund. Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
Aríur í hádeginu
í Hafnarborg
Kolbeinn J.
Ketilsson
Á MORGUN
verður Sjón-
listadaginn hald-
inn hátíðlegur í
annað sinn. Af því
tilefni verður opið
hús á Korpúlfsstöðum í Reykjavík frá klukkan
eitt til fimm.
Á Korpúlfsstöðum eru fjörutíu myndlist-
armenn og hönnuðir með vinnuaðstöðu. Sýn-
ingin FLÓÐ verður í kjallara hússins og vinnu-
stofur listamannanna verða opnar. Þá verður
einnig sýning á verkum nemenda úr Myndlist-
arskólanum í Reykjavík, en skólinn rekur útibú
á Korpúlfsstöðum.
Aðgangur er ókeypis og kaffiveitingar verða
seldar á staðnum.
Myndlist
Sjónlistadagurinn
á Korpúlfsstöðum
Korpúlfsstaðir
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
Í NÆSTU viku verður frumflutt í
Síbelíusarhöllinni í Lahti í Finn-
landi, verkið ORA eftir Áskel Más-
son tónskáld. Flytjendurnir eru
slagverkssextettinn Kroumata frá
Svíþjóð og sinfóníuhljómsveitin í
Lahti, undir stjórn Osmo Vänskä.
„Þetta er töluvert umfangsmikið
verk,“ segir Áskell, sem er nýkom-
inn frá Stokkhólmi þar sem hann
vann með einleikurunum í Krou-
mata, sem hann segir einhvern fín-
asta slagverkshóp í heimi.
„Þesir aðilar pöntuðu verkið sér-
staklega. Vänskä hefur verið að-
alstjórnandi hljómsveitarinnar í
Lahti. Þetta verður síðasti konsert-
inn sem hann stjórnar sem slíkur í
húsinu, en hann hefur gegnt stöð-
unni í 20 ár.“
Áskell segir slagverkið fyrir
miðju í verkinu, enda sólistarnir sex
allir slagverksleikarar. En hvað
skyldi heiti þess tákna?
„Ora er latína og þýðir strönd. Á
abstrakt hátt var ég með strendur
nágrannalanda okkar Íslendinga í
huga. Sextettinn er að vissu leyti
fulltrúi þessarra landa á sviðinu, Ís-
lands, Grænlands, Færeyja, Orkn-
eyja, Norður-Skotlands og Norður-
Írlands. Það myndast einskonar
bogi ef maður dregur línu milli
stranda landanna og slagverksleik-
ararnir standa í slíkum boga meðan
þeir spila. Þeir mynda strandir í
hafsjó hljómsveitarinnar. Hljóm-
sveitin er einnig sett upp á sér-
stakan hátt; fiðluleikararnnir eru
ein deild, fjarri lægri strengjunum
sem eru gegnt þeim, og ég skipti
tré- og málblásurunum einnig upp.“
Áskell lýsir verkinu sem einni
stórri heild með umtalsverðri ka-
densu, þar sem slagverksleik-
ararnir leika allir. Hann segist hafa
unnið að verkinu um hríð, samtímis
öðrum stórum verkefnum.
„Ég er á kafi núna í heljarmikilli
óratoríu fyrir Hallgrímskirkju, sem
heitir Cecilia. Hún er skrifuð fyrir
nánast alla tónlistarkrafta innan
kirkjunnar, þrjá kóra, hljómsveit,
tvö orgel og einsöngvara. Frum-
flutningur verður á Degi tónlistar-
innar, 22. nóvember.“
Spennandi heimur
slagverksins
Áskell hefur samið talsvert af
verkum fyrir slagverk. „Ég er mik-
ið orðaður við slagverk. Þetta er
spennandi heimur, þetta eru hljóð-
færi nútímans, svipað og píanóið
var á dögum Mozarts og Beetho-
ven. Þetta er sú hljóðfæragrúppa
sem mest ber á í heiminum í dag og
mest er að gerast í. Ég hef þó einn-
ig skrifað fyrir flest önnur hljóðfæri
í hljómsveitinni, bæði fyrir strengi
og blásara: einleiksverk, kamm-
erverk og konserta.“
Flutningnum á fimmtudags-
kvöldið 8. maí verður útvarpað
beint á vefnum www.classiclive-
.com.
Hljóðfæri nútímans
Nýtt verk Áskels Mássonar verður frumflutt í Lahti
Síðustu tónleikar stjórnandans Osmo Vänskä eftir 20 ár í brúnni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Tónskáldið „Á abstrakt hátt var ég með strendur nágrannalanda okkar Ís-
lendinga í huga,“ segir Áskell Másson um tónverkið ORA.
Í HNOTSKURN
» ORA, nýtt tónverk ÁskelsMássonar, verður frumflutt í
Síbelíusarhöllinni í Lahti í næstu
viku. Flytjendur eru Kroumata-
hópurinn og sinfóníhljómsveit
undir stjórn Osmo Vänskä.
» Fyrirhugað er að flytja verk-ið í nýja tónlistarhúsinu í
Reykjavík árið 2010.
» Áskell vinnur um þessarmundir að óratoríu fyrir
Hallgrímskirkju, sem frumflutt
verður 22. nóvember.
RAFLISTAHÁTÍÐIN Raflost hefst í dag og verður
tónlist í fyrirrúmi að þessu sinni. Raflist er sú list þar
sem rafmagn og tækni skiptir verulegu máli í listsköp-
uninni. Hátíðin er haldin öðru sinni, sú fyrsta var haldin
í fyrra, og vonast skipuleggjendur til þess að hún verði
árviss viðburður.
Raftónlist er „tónlist þar sem þú vinnur með hljóð“,
eins og einn skipuleggjenda, Ríkharður H. Friðriksson,
lýsir því. Hljóðið þurfi ekki upphaflega að hafa komið úr
raftæki en unnið sé úr því með rafmagni. Ríkharður
bendir á að stór hluti popptónlistar sé orðinn þannig að
hljóð komi úr raftækjum og menn farnir að fjarlægjast
nótur og vinna með hrein hljóð. Hljóðin geta engu að
síður komið úr náttúrunni og þá unnið með þau í tölvu.
Aðalgestur hátíðarinnar er Morton Subotnick, banda-
rískur raftónlistarfrumkvöðull sem fyrstur manna var
beðinn um að semja raftónverk fyrir LP hljómplötu
sem kom út árið 1967, Silver Apples of the Moon. Rík-
harður segir þá sem fylgst hafa með raftónlist án efa
þekkja Subotnick. Hann heldur fyrirlestur í Listahá-
skóla Íslands í Laugarnesi í hádeginu í dag kl. 12.30-14
og tónleika 1. maí kl. 20 í Sölvhóli, tónleikasal tónlist-
ardeildar LHÍ við Sölvhósgötu. Subotnick er orðinn 75
ára og enn í fullu fjöri við tónsmíðar og tónleikahald.
Aðrir erlendir gestir verða á hátíðinni, vídeólistamenn-
irnir Teijo Pellinen frá Finnlandi og Monika Frycova
frá Tékklandi, sem koma fram með íslenskum lista-
mönnum á tón- og myndleikum í Möguleikhúsinu við
Hlemm 2. maí kl. 20. Dagskrá hátíðarinnar er á vefsíð-
unni raflost.is.
Raftónlistarfrumkvöðullinn
Subotnick á Raflosti 2008
Morton Subotnick Var fyrstur manna beðinn um að
semja raftónverk fyrir LP hljómplötu, árið 1967. Plat-
an heitir Silver Apples of the Moon.