Morgunblaðið - 30.04.2008, Síða 20

Morgunblaðið - 30.04.2008, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SVONEFNDIR vogunarsjóðir hafa verið nokkuð til umræðu hér uppi á Íslandi að undanförnu. Sögur hafa verið á kreiki um jafnvel skipulagða atlögu nokk- urra þeirra að íslensku krónunni og íslensku efnahagslífi. Tilteknir ráðamenn hafa, að því er virðist, fremur ýtt undir þann orðróm en hitt, enda ekki við þá að sakast ef óvinurinn er jafn fjarlægur og ópersónulegur aðili eins og vond- ir vogunarsjóðir og áhættu- fjárfestingarsjóðir erlendis. Hér er ekki ætlunin að ræða frekar að hve miklu leyti vog- unarsjóðir hafa sannanlega komið við sögu í okkar efnahagsóáran en hitt er víst að sá vandi er að stærstu leyti heimatilbúinn og á ábyrgð núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnar en ekki utanaðkom- andi aðila. Árásir spákaupmanna eða vogunarsjóða á hagkerfi verða hvort sem er ekki til úr engu og upp úr þurru heldur eru áhlaup af því tagi reynd ef menn meta það svo að veikleikar við- komandi hagkerfis eða gjaldmið- ils séu svo miklir að það sé til vinnandi að gera áhlaup. En nóg um það. Hér skal tekinn fyrir annar þáttur í framgöngu tiltekinna vogunarsjóða og öllu svakalegri en sá að sæta færis á opnum, al- þjóðlegum mörkuðum og sam- kvæmt þeim leikreglum sem þar tíðkast. Talsmenn óheftrar samkeppni og markaðsvæðingar í efnahagslífinu hafa litla stöðu til að fara að væla þegar þeir hitta sjálfa sig og sína eigin hug- myndafræði fyrir í formi siðlausrar græðgisvæðingar við- skiptalífsins, eins og nýfrjálshyggjan og nýkapítalisminn hef- ur að sjálfsögðu meira og minna gengið út á. Græðgin er orðin dyggð og svo til allt leyfilegt til að kreista fram skjót- fenginn gróða, eins og kunnugt er. Grætt á þeim veikustu En það nýjasta sem rekið hefur á fjörur undirritaðs og tengist framferði sumra vogunarsjóða (á ensku er stundum talað um „vult- ure funds“ eða „hrægammasjóði“ í þessum tilvikum) er af því tagi, að það vekur spurningar um hvort siðleysi og græðgi í þessum heimi séu yfirhöfuð einhver tak- mörk sett. Hér vísa ég til þess að nú liggur fyrir að allmargir vog- unarsjóðir hafa tekið upp á því að kaupa upp skuldir fátækra og oft mjög skuldugra ríkja, höfða síðan mál gegn ríkjunum eða knýja þau með málaferlum eða hótunum um mála- ferli og jafnvel hót- unum um skemmd- arverk á veikburða efnahagslífi þeirra til að greiða lánin að fullu til baka og hina upphaflegu kröfu með vöxtum. Hér er um það að ræða að í gangi hafa verið að- gerðir til að létta skuldum af fátækum og skuldugum ríkj- um. Fyrstu umfangs- miklu aðgerðirnar af því tagi voru á vegum Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og Alþjóða- bankans og löndin sem í hlut áttu þá oft skammstöfuð sem HIPC (Heavily Indebted Poor Count- ries). Nú er svo í gangi, til við- bótar eða í framhaldi af HIPC- verkefninu, svonefnt MDRI- verkefni (Multilateral Debt Re- lief Initiative), sem átta stærstu iðnríkin samþykktu árið 2005. Hinir gráðugu vogunarsjóðir virðast ekki hika við að nýta sér tækifærin sem opnast þegar ver- ið er að lækka skuldir með eft- irgjöf lánveitendanna og beita þá bolabrögðum af því tagi sem áður voru nefnd: að höfða mál eða hóta málaferlum eða árás á efna- hagslíf viðkomandi ríkja ef þau borgi ekki að fullu hina upp- haflegu lánsupphæð með vöxtum. Sjóðirnir nýta sér að hafa harð- skeytta lögfræðinga á hverjum fingri til að finna leiðir til að komast hjá samningum um skuldaafléttingu á sama tíma og vestrænar ríkisstjórnir og al- þjóðastofnanir eru að reyna að tryggja framkvæmd hins gagn- stæða. Þannig hefur t.d. Kens- ington-sjóðurinn keypt upp skuldir lýðveldisins Kongó fyrir að talið er 1,8 milljarða dollara og ætlar sér að græða fast að 300 milljónir dollara á athæfinu. Þúsaldarmarkmið í uppnámi Ekki þarf að fara mörgum orð- um um hversu stórháskalegar þessar aðgerðir eru gagnvart viðkomandi ríkjum, fyrir nú utan siðleysið og grimmdina sem þær endurspegla. Ljóst er að þúsald- armarkmiðin um að helminga fá- tækt í heiminum fyrir árið 2015 og byggja meðal annars á að af- létta skuldum fátækra ríkja eru sums staðar í uppnámi af þess- um sökum. Er þó ekki á bætandi þau áföll sem mörg þessi sömu ríki verða fyrir einmitt nú vegna stórhækkaðs matvælaverðs á heimsmarkaði. Samkvæmt upp- lýsingum frá alþjóðasamtökunum Oxfam eru a.m.k. 40 málaferli af þessu tagi komin af stað sem beinast að fátækum skuldugum ríkjum og hefur Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn opinberlega lýst áhyggjum sínum af þessu fram- ferði vogunarsjóðanna. Enn sem komið er hafa hins vegar til- raunir til að leysa málin ekki borið árangur. Ekki veit ég hvort einhverjir vogunarsjóðanna, sem eyddu hinni frægu kvöldstund saman á barnum á 101 Hótel á liðnum vetri, eigi hlut að máli. En telji menn það grimmdarlegt og sið- laust að gera áhlaup á íslenska hagkerfið og íslensku krónuna – ja, hvað má þá segja um slíkt svívirðilegt framferði gagnvart fátækustu og skuldugustu ríkj- um heims og slík skemmdarverk á veiklulegum tilburðum þróaðra ríkja til að aðstoða þau? Græðgi sem þekkir engin takmörk Steingrímur J. Sigfússon skrifar um vogunarsjóði » Talsmenn óheftrar samkeppni og mark- aðsvæðingar í efnahags- lífinu hafa litla stöðu til að fara að væla þegar þeir hitta sjálfa sig og sína eigin hugmynda- fræði fyrir í formi sið- lausrar græðgisvæð- ingar viðskiptalífsins... Steingrímur J. Sigfússon Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar græns framboðs. ÁSÓKN barna og unglinga í áfengi og eiturlyf er mörgum áhyggjuefni. Áföll, kvíði og þjáning eru hlutskipti alltof margra ung- menna. Þjáning og sársauki eru óbærileg og lífsflóttinn er auðveld- aður með vímugjöfum. Ásókn í vímu er ekki gleðileikur, þvert á móti flótti frá óbærilegum veruleika, kvöl og pínu. Hvað getum við gert, hvernig getum við forðað ungu fólki frá slíkum örlögum? Við getum byrjað á því að vera ungu fólki góðar fyrirmyndir með því að vera sjálfum okkur samkvæm, gera rétt þola ei órétt, ástunda heiðarleik og sanngirni. Við eigum líka að uppræta ofbeldi gegn börnum með opinni umræðu, fræðslu og aðstoð. Við verðum að ráðast gegn kyn- ferðislegri misnotkun barna og ung- linga. Þá eigum við að bæta grunnskól- ann svo hann skili betur því hlut- verki mannræktar og mennta til lífs- leikni sem honum ber, tryggi ungviði áfallalausa skólagöngu, uppræti van- mátt, kvíða, kjarkleysi og feimni og geti heilað og grætt þau sár sem á falla utan skólans. Innan grunnskólans má vinna for- varnastarf, skilgreina áhættuhópa og aðstoða þá sem þeim tilheyra. Ég vil benda á þá áhættuhópa sem ég tel skilgreinanlega. Fyrstan áhættuhóp tel ég stúlkur, sem hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða misnotkun. Flest verða slík áföll utan skólans en einnig er það til að kennarar bregðist svo trausti og misnoti svo aðstöðu sína að nemendur þeirra verði aldrei samir eftir. Þolendurnir lifa í þögn og kvöl. Annan áhættuhóp tel ég unglinga sem í einangrun og einsemd glíma við óræða kynhneigð sína, uppgötva jafnvel sér til skelfingar að þeir séu samkynhneigðir. Þriðja hópinn vil ég nefna þau ungmenni sem bognað hafa og guggnað, eru með brotna sjálfs- mynd, óörugg, kjarklaus, óframfær- in og feimin; félagslega fötluð. Fjórða hópinn nefni ég drengi, sem 14-16 ára eru taldir svo illa sett- ir námslega og sýna af sér slíka hegðan að þeir eigi ekki lengur sam- leið með „venjulegum“ nemendum. Oftast eru þessir drengir vel greind- ir, misþroska og hafa lent í erf- iðleikum með lestrarnám, jafnvel illa læsir við skólalok. Vegna lestr- arvanda hefur allt nám þeirra meira og minna misfarist. Sumir hafa alla tíð ver- ið erfiðir og jafnvel „hafðir fyrir öllu illu“ en aðrir týnst og skól- inn látið þá afskipta- lausa. Þegar líður að leikslokum fara gjarn- an allir að brjótast um og draga að sér nei- kvæða athygli og harkaleg viðbrögð. Aðstæður skóla leyfa sjaldan vandaða upp- eldisvinnu eða hand- leiðslu. Er þá oft gripið til þeirra uppeldisaðferða sýna þeim ýmist afskiptaleysi eða hörku. Úr- ræðaleysi rekur skólann til þess að beita þessum aðferðum sem jafnan gefast verst og virðast öðrum að- ferðum fremur auka á vansæld, óör- yggi, mótþróa og andfélagslega hegðan ungmenna og þá er oft orðið stutt í vímuefnanotkun. Þessu verður að breyta. Við get- um breytt áherslum í lestrarkennslu svo erfiðleikar sumra nemenda við að ná tökum á lestri verði ekki til þess að buga þá og brjóta, yf- irskyggja allar þeirra sterku hliðar, spilla skólagöngunni og jafnvel skaða þá fyrir lífstíð. Leggja verður áherslu á að þroska almennt og fumlaust lesnæmi skyn- getu okkar, tilfinninga og þá greind- ar, jafnt á innhverfi okkar sem um- hverfi. Nú er því haldið fram, að þeir sem glíma við svo nefnda „dyslexiu“ séu almennt vel greindir og búi auk þess yfir sérstökum hæfileikum er snýr að skynjun, hugmyndaauðgi og innsæi. Þá er því haldið fram að gjarnan fari saman ofurburðir til íþróttaafreka, listsköpunar, tækni- og verkfræði eða stjórnkænsku og vangeta til „hefðbundins“ lestr- arnáms. Sú reynsla hlýtur að vera sár og bitur að búa yfir hæfni og styrk sem einskis er metinn en vera dæmdur og markaður bás af veikleikum sín- um. Er það ekki einelti? Raunhæfasta forvarnastarfið er í því fólgið að forða börnum og ung- lingum frá auðmýkjandi og nið- urlægjandi reynslu, afskiptaleysi, ranglæti og harðræði. Við getum þegar hafist handa og dregið úr áföllum í skóla. Við getum litið að uppeldisaðferðum eða stíl í skólastarfi. Leitt hefur verið í ljós að börnum og unglingum, sem búa við uppeld- islegt afskiptaleysi er öðrum erf- iðara að fóta sig í lífinu og leita meira í áfengi og eiturlyf en jafnaldrar. Börn og unglingar, sem búa við skip- andi uppeldi standa þeim næst sem áhættuhópur, þá koma þau í þriðja sæti sem búa við undanlátssemi. Langbest standa svo þau ungmenni sem búa við leiðandi uppeldi. Þessar niðurstöður virðast sjálf- gefnar og gefa kjörið tækifæri til þróunarvinnu í skólum um samskipti og uppeldisstíl. Látum börnin okkar finna að þau séu mikils metin, ávinningur þess- arar kynslóðar, fyrirheit um framtíð. Hjálpum þeim að efla með sér sjálfs- virðingu og jákvæða sjálfsmynd. Sýnum skilning á vandamálum, leið- beinum, hrósum og hvetjum alla til að leggja sig fram, finna styrk sinn og takmörk. Sýnum þeim umhyggju og athygli, hvetjum þau til dáða og veitum þeim skilyrðislausa ást, sem elur af sér ör- yggi og traust. Forvarnir Sturla Kristjánsson skrifar um skólasýn » Leggja verður áherslu á að þroska almennt og fumlaust lesnæmi skyngetu okk- ar, tilfinninga og þá greindar, jafnt á inn- hverfi okkar sem um- hverfi. Sturla Kristjánsson Höfundur er sálar- og uppeldisfræð- ingur og Davis ráðgjafi. TENGLAR .............................................. www.les.is VELFERÐARRÁÐ Reykjavík- urborgar er fagráð velferðarsviðs og mótar stefnu í velferðarþjónustu í Reykjavík. Velferðarsvið ber ábyrgð á að stefnu ráðsins sé fylgt auk þess að annast áætlanagerð og eftirlit með fram- kvæmd þjónustunnar. Þjónustumiðstöðvar í hverfum Reykjavík- urborgar og Barna- vernd Reykjavíkur heyra undir velferð- arsvið Reykjavík- urborgar og bera ábyrgð á framkvæmd viðamikillar velferð- arþjónustu í borginni. Til að fylgjast með viðhorfum notenda til þjónustunnar eru gerð- ar þjónustukannanir. Nýverið voru framkvæmdar þjónustukannanir á þjónustumiðstöðvum Reykjavík- urborgar og hjá Barnavernd Reykja- víkur. Hér er um svokallaðar út- göngukannanir að ræða, þar sem notendur þjónustunnar eru spurðir álits þegar þeir yfirgefa þjón- ustuvettvang. Niðurstöður voru frá- bærar sem er mjög jákvætt séð í ljósi þess að þjónustumiðstöðvarnar og Barnavernd hafa afar mikilvægu hlutverki að gegna gagnvart íbúum borgarinnar og miklu skiptir að þar sé veitt góð og fagleg þjónusta. Þjónustumiðstöðvarnar eru sex í hverfum borgarinnar; þjónustu- miðstöðin sem þjónar íbúum í Vest- urbæ – Vesturgarður – er til húsa á Hjarðarhaga 45-47, þjónustumiðstöð í Miðborg og Hlíðum er á Skúlagötu 21, þjónustumiðstöð í Laugardal og Háaleiti er í Síðumúla 39, þjónustu- miðstöð í Árbæ og Grafarholti er á Bæjarhálsi 1, þjónustumiðstöð í Breiðholti er í Álfabakka 12 og þjón- ustumiðstöðin Miðgarður, sem þjón- ar íbúum í Grafarvogi og Kjalarnesi, er í Langarima 21. Þjónustu- miðstöðvarnar annast félagslega ráð- gjöf og þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sálfræði- og sér- kennsluráðgjöf við leik- og grunn- skólabörn, frístundaráðgjöf og for- varnarstarf, auk upplýsingamiðlunar um starfsemi Reykjavík- urborgar. Í starfi þjón- ustumiðstöðvanna er mikil áhersla lögð á samþætta og þverfag- lega þjónustu, en hluta verkefna sinna vinna þjónustumiðstöðvarnar skv. þjónustusamningi við menntasvið Reykja- víkur, leikskólasvið Reykjavíkur og íþrótta- og tómstundasvið í Reykjavík. Barnavernd Reykjavíkur er til húsa í Skipholti 50b og hennar hlut- verk er að tryggja að reykvísk börn sem búa við óviðunandi aðstæður fái nauðsynlega aðstoð. Niðurstöður sýna að almenn ánægja er með þjónustuna. Á heild- ina litið kváðust rúm 86% notenda mjög eða frekar ánægð með þjónustu þjónustumiðstöðvanna og rúm 58% þeirra sem heimsóttu Barnavernd Reykjavíkur. Sérstaklega ánægju- legt er að mikill meirihluti notenda taldi viðmót og framkomu starfsfólks vera mjög eða frekar góða, eða 93% svarenda á þjónustumiðstöðvum og 84% svarenda hjá Barnavernd Reykjavíkur. Þjónustukannanir eru mjög mikilvægt tæki til að nálgast álit notenda á þjónustunni, bæði svo hægt sé að bregðast við ef eitthvað fer úrskeiðis og einnig til að styrkja enn frekar það sem vel er gert. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á að áfram verði öt- ullega unnið að því veita framúrskar- andi þjónustu þar sem áhersla er lögð á gæði þjónustunnar, þjón- ustulund og samstarf. Almenn ánægja með þjónustuna Sigríður Jónsdóttir fjallar um barnaverndar- og þjónustu- miðstöðvar í Reykjavík Sigríður Jónsdóttir » Ánægjulegt er að mikill meirihluti notenda taldi viðmót og framkomu starfsfólks vera mjög eða frekar góða... Höfundur er skrifstofustjóri rann- sókna og þjónustumats, velferðarsviði Reykjavíkurborgar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.