Morgunblaðið - 30.04.2008, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 30.04.2008, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 21 UNDANFARIN ár hefur það ver- ið skýr stefna velferðarráðs Reykja- víkurborgar að styðja fólk til að dvelja sem lengst á eigin heimili, með þeirri þjónustu sem til þarf og seinka þar með stofnanavistun eins og kostur er. Velferðarsvið Reykja- víkurborgar ber ábyrgð á að þeirri stefnu sé framfylgt. Stefna velferðarráðs hefur endurspeglast í starfsáætlunum vel- ferðarsviðs Reykjavík- urborgar þar sem lögð er áhersla á áfram- haldandi þróun úrræða og lausna sem stuðla að því að fólk geti dval- ið sem lengst á eigin heimili. Frá árinu 2004 hefur verið unnið að því að samþætta félagslega heimaþjónustu Reykjavíkurborgar og heima- hjúkrun sem veitt er af Miðstöð heimahjúkrunar, en ráðist var í það verkefni í framhaldi af samkomulagi ríkisstjórnarinnar og Lands- sambands eldri borgara frá árinu 2002. Markmið með samþættingu þjónustunnar er fyrst og fremst að bæta þjónustu inni á heimilum fólks, auka og efla samvinnu milli þeirra aðila sem sinna þjónustunni og auka sameiginlega ábyrgð þjónustuaðila á því að styðja fólk til að búa á eigin heimili eins lengi og unnt er. Einnig hefur verið unnið að því mikilvæga verkefni að koma á sameiginlegu matstæki (RAI-hc) til að meta þjón- ustuþörf fólks í heimahúsum. Sam- hliða samþættingarvinnunni hefur verið lögð aukin áhersla á að efla kvöld- og helgarþjónustu í öllum hverfum borgarinnar, einnig í sam- vinnu við Miðstöð heimahjúkrunar. Reynslan hefur sýnt að skipulegt samstarf milli aðila skilar betri yf- irsýn yfir þarfir notenda þjónust- unnar og heildstæðari þjónustu við hvern og einn. Árangurinn end- urspeglast í því að árið 2007 fengu 578 heimili í Reykjavík samþætta þjónustu en það er u.þ.b. 21% af þeim heimilum sem fá félagslega heimaþjónustu í Reykjavík sam- anborið við 17% árið 2004. Árið 2007 fengu um 10% heimila sem fá fé- lagslega heimaþjónustu einnig kvöld- og helgarþjónustu sam- anborið við 5% heimila árið 2005. Frá september 2007 hefur einnig verið í gangi samstarfsverkefni milli velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Miðstöðvar heimahjúkrunar og Ör- yggismiðstöðvar Ís- lands um rekstur ör- yggissíma fyrir aldraða sem búa heima. Mark- mið með starfrækslu öryggissíma er að veita fólki í heimahúsum aukna öryggistilfinn- ingu og möguleika á þjónustu á þeim tíma sólarhringsins sem það hefur þörf fyrir. Sér- hæft starfsfólk er sent á vettvang ef þörf kref- ur. Nú standa yfir við- ræður milli Reykjavíkurborgar og heilbrigðisráðuneytis um þriggja ára tilraunaverkefni sem gengur út á að sameina stjórnun félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar undir stjórn Reykjavíkurborgar með það að markmiði að efla þjónustuna enn frekar og ná enn betri samhæf- ingu og samfellu í þjónustunni til hagsbóta fyrir notendur hennar. Ennfremur er að störfum starfs- hópur á vegum félags- og trygginga- málaráðuneytisins og Reykjavík- urborgar sem vinnur að tillögum um samstarf ráðuneytisins og borg- arinnar um stefnu og skipulag í öldr- unarþjónustu í Reykjavík til næstu ára. Í þeirri vinnu er m.a. horft til reynslu annarra þjóða. Skipulagðar heimsóknir til íbúa í Reykjavík 80 ára og eldri sem ekki hafa heimaþjónustu eða heima- hjúkrun eru í gangi í öllum hverfum borgarinnar. Markmið heimsókn- anna er að veita ráðgjöf og upplýs- ingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í Reykja- vík. Í hverfum Reykjavíkurborgar hafa verið settir á laggirnar svokall- aðir nærþjónustuhópar sem þjón- ustumiðstöðvar borgarinnar leiða. Nærþjónustuhóparnir hafa það hlut- verk að kortleggja þjónustu fyrir eldri borgara í hverfinu og koma með tillögur um það sem betur má fara. Í nærþjónustuhópunum sitja auk starfsmanna Reykjavík- urborgar, fulltrúar íbúasamtaka, fé- lags eldri borgara, Rauða krossins, heilsugæslustöðva og kirkjusókna. Hjá Reykjavíkurborg er einnig verið að skoða hvernig hægt er að koma til móts við eldri borgara sem vilja búa lengur á eigin heimili en þurfa að breyta eða bæta aðgengi að heimilinu eða á heimilinu vegna minnkaðrar færni. Mikilvægir hlekkir í þjón- ustukeðju við aldraða eru einnig fé- lagsstarf sem starfrækt er víða í borginni með það að markmiði að efla virkni og frumkvæði, aksturs- þjónusta og heimsending matar. Einnig þurfa að standa til boða dag- vistarrými, hvíldarpláss, sérhæfðar þjónustu- eða öryggisíbúðir og hjúkrunarrými þegar á þarf að halda. Markmiðið með öflugri og fjöl- breyttri þjónustu á heimili er að aldraðir séu virkir og haldi miklum lífsgæðum eins lengi og verða má. Til að standa undir nafni þarf slík þjónusta að vera einstaklingsmiðuð í þeim skilningi að hún þarf að taka mið af þörfum fólks hverju sinni, hún þarf að vera sveigjanleg og veitt af virðingu og metnaði. Allir þeir aðilar sem koma að þjónustu inn á heimili fólks þurfa að leggjast á eitt með það að markmiði að þjónustan verði sam- þætt, samfelld og mæti þörfum not- andans sem best hverju sinni. Þjónusta við aldraða – þjónustan heim – hvert erum við komin? Stella K. Víðisdóttir segir frá þróun úrræða og lausna sem stuðla að því að fólk geti dvalið sem lengst á eigin heimili »Markmið með sam- þættingu þjónust- unnar er fyrst og fremst að bæta þjónustu inni á heimilum fólks. Stella K. Víðisdóttir Höfundur er sviðsstjóri velferð- arsviðs Reykjavíkurborgar VIÐ gerð þeirra tillagna sem sendar voru inn í samkeppninni um skipulag Vatnsmýrar, virðist sem höfundar hafi miðað við að þeir væru að móta borgarhverfi, sem þyrfti að skipuleggjast sem ein stakstæð heild. Þ.e. ein heild með öllu því sem ný borgarhverfi þurfa á að halda, þ.á.m. út- vistarsvæðum. Ekki hefur nægjanlega ver- ið horft til þess að hverfið er skipulagt á svæði þar sem er ágætlega séð fyrir opnum svæðum og því ástæða til að leggja enn frekari áherslu á þéttari byggð. Vatnsmýrarhverfið verður umlukið Öskjuhlíð, Nauthóls- vík og nær-umhverfi Norræna húss og Hljómskálagarðs, og því ekki þörf fyrir stór útivistarsvæði til viðbótar þessum svæðum, sem þar eru fyrir. Mér er til efs að nægjanlega hafi verið horft til þessara möguleika til útivistar þegar stórum svæð- um í Vatnsmýrinni sjálfri, er fórnað fyrir tjarnir og opin svæði, mitt á hinu verðmæta landi. Vel er séð fyrir flestum teg- undum íbúðahverfa Í Reykjavík og nágrannabyggð- um er vel séð fyrir flestum teg- undum íbúðahverfa nú þegar. Þar má finna einbýlis- og raðhúsahverfi, blokkahverfi með stórum gras- flötum á milli húsa og nú upp á síð- kastið einnig bryggjuhverfi. Sú teg- und íbúðahverfa sem sáran hefur vantað er hverfi þar sem íbúðarhús standa þétt við gangstéttir og sam- an fer, í sömu húsum, íbúðir, versl- anir og skrifstofur. Flest okkar þekkja hverfi af þessu tagi frá ná- grannalöndunum einfaldlega vegna þess að slík byggð er eftirsótt, bæði til að búa í og ekki síður, til þess einfaldlega að ganga um og njóta þess mannlífs sem þar er að finna. Þessi tegund hverfa er gjarnan til hliðar við eiginlega miðbæi en ekki endilega hluti af miðbænum. Hér nægir að nefna Nørrebro í Kaupmannahöfn, Eixample í Barce- lona, Schwabing í München, Söder- malm í Stokkhólmi og Prenzlauer Berg í Berlín svo fáein slík hverfi séu nefnd. Öll þessi hverfi eiga það sameiginlegt að þar eru hús yf- irleitt 4-6 hæðir, þau standa þétt við gang- stétt og oftar en ekki eru þau byggð í kring- um mismundandi stóra bakgarða. Á jarðhæð og jafnvel annarri hæð má finna þjónustu af einhverju tagi og íbúðir á efri hæðum þó sú skipan sé alls ekki ein- hlít. Vinningstillaga Vatnsmýrarhverfis gerir einnig ráð fyrir raðhúsabyggð á til- teknu svæði sem verð- ur að teljast afar hæp- in nýting þegar um jafn verðmætt land er að ræða og í Vatns- mýrinni. Uppskrift eftirsókn- arverðra hverfa er til Þar sem nú stendur yfir úrvinnsla borg- aryfirvalda á samkeppnistillög- unum þá er ástæða til að benda á þennan mikilvæga þátt. Nægj- anlega er séð fyrir útivistarsvæðum í næsta nágrenni hverfisins sem þ.a.l. á að skipuleggjast með tilliti til nálægðar þessara opnu svæða. Vatnsmýrarhverfinu sjálfu nægja fáein græn torg en ekki stór úti- vistarsvæði til viðbótar við þau sem fyrir eru. Það er þekkt hvaða teg- und byggðar er eftirsóknarverðust og ástæðulaust að leita langt yfir skammt. Fyrirmyndirnar eru til og einfalt að leita þeirra á þekktum slóðum til að skipuleggja þá byggð í höfuðborginni sem mest er þörf fyrir. Sú byggð er umtalsvert þétt- ari en vinningstillaga Vatnsmýr- arinnar gerir ráð fyrir. Meiri borg – minni opin svæði Bolli Héðinsson skrifar um borgarskipulagsmál Bolli Héðinsson » Það er þekkt hvaða teg- und byggðar er eftirsóknarverð- ust og ástæðu- laust að leita langt yfir skammt. Höfundur er hagfræðingur. Í BYRJUN apríl birtist grein eft- ir bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ með ofangreindri yfirskrift í Mosfellingi. Eitthvað fannst mér efni grein- arinnar ríma illa við titilinn sem leiddi til þess að ég fór að velta málinu fyrir mér. Vestræn iðnríki hafa um langt skeið ofnýtt náttúru- auðlindir Jarðar. Í samskiptum manns og náttúru hefur sá hugsunarháttur ráðið ríkjum að maðurinn sé herra yfir nátt- úrunni með þeim af- leiðingum að gæðum hennar hefur verið spillt, - oft á óaft- urkræfan hátt. Samspilið hefur ver- ið á einn veg, þ.e. að maðurinn hef- ur leikið einleik án tillits í ríki náttúrunnar. Hugtakið samspil er því lítið annað en upphafning á tengslum sem vart fyrirfinnast í neyslusamfélögum samtímans. Af umgengni hins iðnvædda manns við náttúruna má ráða að náttúran hafi ekkert gildi í sjálfu sér, heldur ein- ungis notagildi sem miðast við að þjóna þörfum hans á meðan auð- lindin gefur eitthvað af sér. En snúum okkar aftur að grein bæjarfulltrúans sem að mínu viti fjallaði um samskipti bæjaryf- irvalda við íbúa í Mosfellsbæ. Greinarhöfundur kvartar yfir því að alltof algengt sé að „rætt (sé) um yfirvöld og almenning sem andstæða póla. Yf- irvöld á móti almenn- ingi. Að yfirvöld vilji ekki taka tillit til at- hugasemda og að búið sé að taka ákvarðanir um framkvæmdir og skipulagsferlið sé sýnd- armennskan ein.“ Telur höfundur hina nei- kvæðu afstöðu „al- mennings“ ekki eiga rétt á sér. Hún sé ým- ist byggð á misskilningi eða mótist af pólitík og eiginhagsmunum frekar en um- hyggju fyrir umhverfinu. Hinir raunverulegu handhafar sannleik- ans eru sem sagt yfirvöld. Engum dylst sem til þekkir við hverja hér er átt en bæjarfulltrúinn kýs að sveipa dylgjurnar dulúð og nefna ekki nöfn. En til hvers að gefa umfjöllun um raunverulegt ágreiningsmál yfirbragð hlutleysis og fræðimennsku? Til að varpa ljósi á forsöguna hef- ur núverandi bæjarstjórnarmeiri- hluti í Mosfellsbæ af mikilli einurð vísað öllum athugasemdum Var- mársamtakanna við skipulagstil- lögur sem verið hafa í farvatninu á bug. Í svörum sínum og yfirlýs- ingum hvers konar hafa fulltrúar meirihlutans afgreitt tillögur sam- takanna ýmist sem misskilning, pólitískan áróður eða sem eig- inhagsmunapot. Ekki eitt augnablik virðist hafa hvarflað að þeim að sýna „almenningi“ þá virðingu að taka málefnalega afstöðu til tillagn- anna sem flestar hafa þó snúist um að gæta hagsmuna almennings, þ.e. að varðveita náttúru og menning- arminjar sveitarfélagsins og um leið þá sérstöðu sem bærinn hafði áður en framkvæmdagleðin tók völdin. Í athugasemdum við skipulagstil- lögur hafa Varmársamtökin ítrekað beðið bæjaryfirvöld um að leyfa ekki byggingar á náttúruvernd- arsvæðum á bökkum Varmár og Skammadalslækjar, heldur nýta svæðið til útivistar fyrir almenning eins og lög gera ráð fyrir. Bendum við á að skynsamlegra sé að taka framtíðarútivistarhagsmuni íbúa í Helgafellslandi og Mosfellsbæ fram yfir einkahagsmuni landeigandans, - en hagnaður af sölu einbýlis- húsalóða við gljúfur Skammadals- lækjar var mikill. Fulltrúar Var- mársamtakanna sem frekar vildu gæta hagsmuna almennings lögðu til að 50-100 m hverfisvernd á svæðinu yrði ekki aflétt. En bæj- arstjórnarmeirihlutinn aflétti hverf- isverndinni og tók með því hags- muni landeigandans fram yfir þau lífsgæði sem almenningur hefði annars orðið aðnjótandi. Í svari Mosfellsbæjar er athugasemdum samtakanna vísað á bug með þeim rökum að þær byggi bara á skoð- unum samtakanna. Það er skemmst frá því að segja að engin málefnaleg rök koma fram í svari frá bænum fyrir því að hverfisvernd var aflétt á þessu svæði. Þegar yfirvöld valta yfir skoðanir íbúa án rökstuðnings gefur augaleið að til verða andstæðir pólar. Sam- spil getur aldrei byggst á því að annar aðilinn eigi alltaf leik. Skammadalsgljúfur og umhverfi þess er eitt fallegasta kennileitið í landslagi Mosfellsbæjar. Það voru því hvorki sjónarmið lýðræðis né náttúruverndar sem hér réðu ferð. Í stað samspils var leikinn ein- leikur. Í greininni talar bæjarfulltrúinn ennfremur um mikilvægi þess að virða lög um umhverfismat og nátt- úruvernd en það er eins og þetta hafi gleymst þegar á reyndi við at- kvæðagreiðslu í bæjarstjórn. Sömu sögu er að segja um yfirlýsingu hans um nauðsyn þess að grípa til mótvægisaðgerða til að forðast náttúruspjöll í tengslum við fram- kvæmdir. Er ekki nokkuð seint að krefjast mótvægisaðgerða þegar jarðvegsframkvæmdum er að mestu lokið? Í þessu sambandi skal tekið fram að íbúar í Mosfellsbæ hafa margítrekað beðið nefndir og ráð bæjarins að grípa til aðgerða vegna þess mikla magns af aur sem verktakar í Helgafellslandi hafa lát- ið renna í árnar frá upphafi fram- kvæmda. Það er aldrei gott fyrir stjórn- málamenn að vera vitrir eftir á og enn verra að íklæðast sauðargæru þegar brjóta þarf málefni til mergj- ar sem brenna á íbúum. Óljósar dylgjur geta aldrei markað upphaf- ið að málefnalegri umræðu. Í þeim tilgangi að opna fyrir slíka umræðu um umhverfismál í Mosfellsbæ ger- ir undirrituð að tillögu sinni að bæj- arfulltrúinn færi rök fyrir því af hverju húsbyggingar voru leyfðar á hverfisverndarbelti við Skamma- dalsgljúfur. Samspil manns og náttúru? Sigrún Pálsdóttir skrifar um skipulagsmál í Mosfellsbæ » Samspil getur aldrei byggst á því að ann- ar aðilinn eigi alltaf leik. Sigrún Pálsdóttir Höfundur er stjórnarmaður í Var- mársamtökunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.