Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Björg Svein-björnsdóttir
fæddist á Jaðri í
Hrunamannahreppi
21. nóvember 1945.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Skóg-
arbæ í Reykjavík 16.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar Bjargar
voru Jóhanna
Guðnadóttir frá
Jaðri, f. 1.6. 1925, d.
24.7. 2005 og Svein-
björn Sveinbjörns-
son, prófastur í
Hruna, f. 9.12. 1916, d. 22.11. 1996.
Systir sammæðra er Lilja Ólafs-
dóttir, f. 28.3. 1943. Bræður sam-
eru: 1) Kristján Valur, f. 8.11. 1970,
kvæntur Erlu Óskarsdóttur, f.
29.10. 1971, dóttir þeirra er Katla,
f. 31.1. 2007. 2) Steinvör, f. 12.3.
1976, sambýlismaður Finnur Ingi
Einarsson, f. 3.10. 1973. Börn
þeirra eru Ylfa Björg, f. 25.3. 1998
og Arngrímur Ari, f. 30.6. 2007.
Eiginmaður Bjargar frá 18.6.
1999 er Þórhallur Aðalsteinsson
bifvélavirki, f. 9.1. 1947. Börn hans
af fyrra hjónabandi eru Margrét, f.
17.1. 1964, Elín, f. 6.5. 1967 og Rík-
arður, f. 7.1. 1973.
Á unglingsárum stundaði Björg
nám í Héraðsskólanum á Skógum.
Hún starfaði í Ósló árin 1966 til
1971 þar sem Jón var við nám og
þar dvöldu þau svo aftur 1976 til
1977. Björg starfaði lengst af hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, ýmist
við mælaaflestur eða skrif-
stofustörf á meðan heilsan leyfði.
Útför Bjargar verður gerð frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
feðra eru Sveinbjörn,
f. 5.10. 1952 og Páll, f.
24.4. 1955. Stjúp-
systkin Bjargar eru
Herdís Petrína Páls-
dóttir, f. 10.11. 1947
og Magnús Pálsson, f.
2.8. 1949. Björg ólst
upp á Jaðri hjá móð-
urforeldrum sínum,
Kristínu Jónsdóttur,
f. 2.4. 1892, d. 3.6.
1988 og Guðna Jóns-
syni, f. 20.4. 1895, d.
7.11. 1982.
Hinn 13.8. 1966
gekk Björg að eiga Jón Krist-
jánsson fiskifræðing, f. 22.9. 1943.
Þau skildu. Börn Bjargar og Jóns
Af leiksviði lífsins er horfin enn ein hetja
hlutverk sitt erfitt af æðruleysi tók.
Blessuð sé sála þín, klökk við munum setja
stundirnar saman, í minninganna bók.
( SHL.)
Minning um góða konu lifir.
Pabbi, Steinvör, Kristján Valur,
Lilja og fjölskyldur, okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Margrét, Elín og Ríkarður
Þórhallsbörn.
Sárt er að kveðja hjartfólgna syst-
ur og nánustu vinkonu en þó blandast
það vissum feginleika fyrir hennar
hönd. Nú er hún laus úr viðjum veik-
indanna, loks getur hún flogið frjáls
eftir áralangt fjötur í aflvana líkama.
Björg systir mín var tápmikill
krakki og unglingur, áræðin, atorku-
söm og viljasterk. Hún vílaði verkin
ekki fyrir sér og var ekki með vafst-
ur. Þess er meðal annars minnst í
fjölskyldunni þegar unglingarnir hún
og Árni frændi okkar drifu af kvöld-
mjaltirnar til að verða fyrst á sveita-
böllin. Hún þekkti hverja skepnu og
var góður hestamaður. Hefði orðið
góður bóndi þótt það ætti ekki fyrir
henni að liggja.
Þótt hún væri fremur smávaxin
skorti hana ekki krafta og ég minnist
þess þegar þau Nonni ákváðu að
skipta um klæðningu á húsinu í
Skipasundinu að Björg stóð í stiga
með kúbeinið og reif gamla bárujárn-
ið af. Hún ræktaði og hirti garðinn
sinn af mikilli nákvæmni og nostraði
við heimili sitt. Sama ofursnyrti-
mennska ríkti utan dyra sem innan
húss.
Eftir að þau fluttu heim frá Noregi
fór hún að vinna á skrifstofu Raf-
magnsveitu Reykjavíkur. En fljót-
lega breytti hún um starfssvið og fór
að lesa á orkumæla, þar sem sveigj-
anlegur vinnutími hentaði vel með lít-
il börn. Hún var fyrsta konan til að
gegna því starfi hjá Rafmagnsveit-
unni og sýnir það tíðarandann að
ýmsir höfðu vantrú á að mælaaflestur
væri kvenmannsverk.
Skömmu fyrir fertugt greindist
Björg með MS-sjúkdóminn, sem
ágerðist jafnt og þétt þar til öll
hreyfigeta var horfin. En því meira
sem líkaminn gaf sig því betur efldist
hennar innri styrkur. Það var aðdá-
unarvert að fylgjast með æðruleysi
hennar og því jafnvægi hugar og til-
finninga sem hún öðlaðist. Jafnframt
fylgdist hún með þjóðlífinu og heims-
málunum, hafði ákveðnar pólitískar
skoðanir, naut bókmennta af hljóð-
diskum, hlustaði á útvarp og horfði á
sjónvarp.
Þá voru þær ófáar stundirnar sem
við sátum og ræddum almættið og
æðri svið án nokkurs vafa um fram-
hald að jarðvist lokinni. Með slíka
vissu er léttbærara að kveðja.
Barnabörnin skiptu Björgu miklu.
Hún naut Ylfu Bjargar nöfnu sinnar í
tíu ár og sá litlu krílin Kötlu og Arn-
grím Ara komast dálítið á legg. Það
var hennar lokatakmark og fyrir
nokkrum vikum brosti hún kankvís-
lega til mín og sagði: „Nú sit ég bara
við hótelgluggann og bíð.“
Ég þakka að leiðarlokum náið sam-
band okkar systra, þakka þá fyrir-
mynd sem hún var mér í veikindum
sínum og þakka almættinu fyrir að
hafa leyft henni að skipta um tilve-
rusvið á meðan hún hafði enn getu til
að tjá sig.
Blessuð sé minning Bjargar syst-
ur.
Lilja.
Við fráfall frænku okkar, Bjargar
frá Jaðri, rifjast upp gamlar minn-
ingar. Hugurinn leitar ósjálfrátt aft-
ur í tímann til áranna um og eftir
miðja síðustu öld, þegar við systurnar
fórum ásamt foreldrum okkar í næst-
um árvissar sumarheimsóknir til
frændfólksins austur í Hrunamanna-
hrepp. Við héldum til í Tungufelli en
trítluðum oft yfir túnið vestur að
Jaðri. Á Jaðri bjó móðurbróðir okkar
ásamt fjölskyldu sinni og þar áttu
frænkur okkar Lilja og Björg heima.
Þær voru á líkum aldri og við, Björg
aðeins einum degi eldri en sú yngri
okkar.
Við frænkurnar lékum okkur oft í
búleik þar sem hefðbundinn
sveitabúskapur var stundaður og ým-
is örnefni í nágrenninu bar á góma-
.Við systurnar úr borginni vorum
venjulega í byrjun smeykar við hús-
dýrin sem voru lifandi en frænkurnar
hjálpuðu okkur til að yfirvinna þann
ótta. Við fengum innsýn inn í það um-
hverfi sem þær systur ólust upp í,
kynntumst náttúruperlunum Hvítá
og Gullfossi og horfðum á Langjökul
með Jarlhetturnar í forgrunni sem
blasti við í fjarska. Þetta voru
ánægjulegar og ógleymanlegar
stundir sem voru stór þáttur í
bernsku okkar.
Björg ólst upp á Jaðri hjá ömmu
sinni og afa ásamt Lilju systur sinni
og móðursystkinum umvafin um-
hyggju og kærleika. Þar ríkti regla
og hirðusemi og guðsótti og góðir sið-
ir voru í heiðri hafðir. Þarna hefur
Björg án efa fengið veganesti sem
hjálpaði henni síðar í lífinu að takast á
við þá erfiðleika sem mættu henni, en
það gerði hún með æðruleysi og still-
ingu.
Ung glæsileg kona, tveggja barna
móðir, greindist hún með ólæknandi
sjúkdóm sem smám saman dró úr
henni allan líkamlegan þrótt. En
þrátt fyrir að hún væri bundin við
hjólastól og ætti erfitt með að tjá sig,
fylgdist hún vel með öllu sem gerðist.
Þannig hagaði til að á síðari árum
höfum við ekki haft mörg tækifæri til
að halda sambandinu við Björgu sem
skyldi. En við fylgdumst með henni
úr fjarlægð og þegar við hittum hana
var alltaf yfir henni einhver reisn og
innri ró og í augunum var glampi sem
minnti okkur á liðna daga.
Við sendum eftirlifandi eigin-
manni, börnunum og fjölskyldum
þeirra, svo og Lilju og öðrum ætt-
ingjum einlægar samúðarkveðjur.
Við minnumst Bjargar frænku
okkar með virðingu og þökk. Blessuð
sé minning hennar.
Svandís og Sigríður ( Sigga).
Nú erum við að kveðja Björgu
frænku. Það ber ekki brátt að, veik-
indin búin að vera löng og ströng. Og
sárt er það. Minningarnar hrúgast
fram. Það er gott að eiga svo góðar
minningar.
Öll mín uppvaxtarár var Björg og
hennar fjölskylda svo sjálfsagður
hluti af okkar daglega lífi að það var
varla nokkur sá atburður að þau
komu ekki þar nærri. „Stelpurnar“,
sem mamma kallaði þær systurdæt-
ur sínar, Lilju og Björgu, ólust upp
sem systur hennar. Og þær hefðu
ekki verið nánari þótt svo hefði verið.
Aldísi, systur mína, kallaði mamma
Björgu svo oft að við leiðréttum það
ekki lengur. Það var heldur ekki leið-
um að líkjast. Björg var ein af mínum
fyrirmyndum. Ég bar alltaf mikla
virðingu fyrir henni. Hún var glæsi-
leg, fjörleg, kvik og skemmtileg.
Glæsileikann bar hún fram á síðasta
dag, hann gátu veikindin ekki tekið
frá henni. Hláturinn og glettnisblikið
í augunum er mér svo í fersku minni
líka.
Mér þótti eiginlega allt flott hjá
Björgu. Hún var nákvæm og vann
verk sín af mikilli kröfuhörku til
sjálfrar sín. Heimilið hennar var
mjög smekklegt og alltaf fallegt. Mér
þótti garðurinn hennar svo fallegur
og gott að koma til þeirra í Skipa-
sundið. Þegar ég fékk fyrst minn
garð að vinna í leitaði ég til hennar
með að fá ráð um ýmsa hluti. Þegar
ég var að móta mitt umhverfi á full-
orðinsárum, hugsaði ég svo oft til
Bjargar og þeirrar tilfinningar að
koma til hennar. Svipuðum áhrifum
vildi ég ná hjá mér – það tókst nátt-
úrulega ekki, en maður miðar við það
besta.
Með Björgu fór ég fyrst á sjó á
trillunni Skreppi, kynntist hunda-
haldi, hlustaði á svo mikið af sögum
frá Noregi að landið skipaði óséð allt-
af sérstakan sess hjá mér. Féll fyrir
garðskúrum og gróðurhúsum – svo-
leiðis var nefnilega hjá Björgu.
Kiddi og Steinvör voru næstum
eins og yngri systkin okkar, og alltaf
er jafngott að hitta þau aftur þótt
lengra líði á milli núna. Ég er svo glöð
yfir að Björg fékk að sjá og kynnast
litlu börnunum þeirra þremur. Ég
veit að það var henni mjög dýrmætt.
Elsku Þórhallur, Kiddi og Erla,
Steinvör og Finnur og börn. Ég votta
ykkur mína dýpstu samúð. Ég veit að
missirinn er mikill. Guð gefi ykkur
styrk til að vinna úr sorginni.
Kristín Ingimarsdóttir (Sigga
Stína).
Ævilöng vinátta varð til fyrir meira
en 40 árum, þegar vinur minn Jón
Kristjánsson rak mig út úr „Mosk-
anum“ á gamla rúntinum, til að bjóða
tveimur glæsilegum yngismeyjum í
bíltúr.
Önnur þessara stúlkna, sem þenn-
an yndislega vordag í Reykjavík
skartaði sínu fegursta, var Björg
Sveinbjörnsdóttir.
Þetta „frumlega“ tiltæki til að
húkka stelpur varð til þess að innan
fárra ára varð úr hjónaband Bjargar
og Jóns. Fljótlega fluttu þau til Nor-
egs, þar sem Jón nam fiskifræði. Á
þessum árum ól Björg þeim tvö ynd-
isleg börn, sem eru Kristján og Stein-
vör. Og sól skein í heiði.
Þegar síldarævintýrinu sem við
Jón höfðum báðir tekið virkan þátt í
lauk 1967 bauðst okkur frítt far til
Englands með hafrannóknarskipinu
Árna Friðrikssyni. Við vorum reynd-
ar á leið til Noregs þar sem Björg og
Jón voru að búa sig undir Noregs-
dvölina.
Ég hef lengi síðan litið á þessa
Noregsferð sem eitt aðal-happ mitt í
lífinu, meðal annars til þess að kynn-
ast Björgu og mannkostum hennar
betur en orðið hefði ella. En stað-
reyndin varð sú að þau sátu hreinlega
uppi með kappann í marga mánuði.
Þessi túr varð líka til þess að ég
ákvað sjálfur að fara í framhaldsnám,
þegar ég hafði kynnst því hvílík sæld
það var að vera íslenskur námsmaður
erlendis. Með öllum þeim fríðindum,
Frydenlund-bjór og skíðaferðum í
Norefjeld, sem þetta frábæra land
bauð upp á.
Nokkrum árum eftir heimkomu
fjölskyldunnar til Íslands aftur barði
að dyrum vágestur sá, sem örlögin af
óbilgjörnu örlæti skenktu Björgu að
glíma við öll þau ár ævinnar, sem með
réttu hefðu átt að verða hennar
bestu. Þetta var hinn illvígi tauga-
sjúkdómur MS, sem varð að hennar
miskunnarlausu baráttu fyrir lífinu í
meir en tvo áratugi.
Þungur harmur var kveðinn að
fjölskyldu hennar og vinum, að sjá
þennan ósérhlífna dugnaðarfork í
endalausri þjónustu sinni við fjöl-
skyldu og vini þurfa nú að takst á við
þessi vægðarlausu veikindi. Við vor-
um þiggjendur sem öll nutum góðs af
hennar dugnaði, styrk og fórnfýsi.
Jafnvel eftir að kraftar hennar voru á
þrotum.
Það hefur oft verið vitnað í Söknuð,
kvæði Jóhanns Jónssonar; „Hvar
hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað“.
Ég leyfi mér að fullyrða að við, sem
þekktum til Bjargar og fórnfýsi
hennar í baráttunni við veikindin og
dauðann, getum verið sammála um
að hetjuskapur hennar og æðruleysi
hafi borið þessa ljóðlínu ofurliði, það
er að baráttuviljinn, andlegt jafnvægi
og jákvæðni gagnvart dapurlegu
hlutskipti sínu hafi þegar upp var
staðið orðið til þess að dagar lífs
hennar hafi ekki eitt einasta andar-
tak lit sínum glatað.
Þessu ber kannski vitni síðasta
samverustund okkar, þegar ég bar
gæfu til að heimsækja hana nokkrum
dögum fyrir dánarstund hennar.
Þennan dag var hún jafn-björt og
glöð og í öll hin skiptin sem ég hafði
heimsótt hana á síðasta heimili henn-
ar. Við ákváðum að í næstu heimsókn
kæmi ég með hálfa hvítvínsflösku,
sem við myndum deila með okkur.
Þegar ég gekk út gólfið og vinkandi
henni brosandi, kallaði hún; „Hafðu
hana sæta.“
Yfir móðuna miklu sendi ég Björgu
Sveinbjörnsdóttur kærar þakkir fyr-
ir allt sem hún gaf mér og mínum af
sínu göfuga hjartalagi og rausnar-
skap.
Ég sendi börnum hennar og barna-
börnum, ættingjum og vinum mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sigurður R. Þórðarson.
Það var mikil gæfa fyrir mig að
eignast tvær systurdætur meðan ég
var barn og unglingur þar sem ég var
yngst af systkinum mínum, fyrir utan
tvíburabróður minn sem var svo
langt í burtu. Þær ólust upp á heimili
mínu svo ég var eins og stóra systir.
Ég gætti þeirra og lék mér bæði við
þær og að þeim.
Í öll þessi rúmlega 60 ár höfum við
haldið mjög þétt saman bæði í blíðu
og stríðu.
Björg sem ég er að kveðja núna
var alltaf litla stelpan mín, hún var
mjög fljót að komast á fót og lét sitt
ekki eftir liggja við heimilisstörfin.
Eins og gefur að skilja var það í byrj-
un ekki alltaf vel þegið, en hún var þó
ekki gömul þegar hún náði tökum á
viðfangsefninu.
Alla tíð síðan sá Björg um að um-
hverfi hennar væri hreint og fágað og
allir hlutir á sínum stað. Á heimili
hennar gilti það jafnt úti sem inni.
Garðurinn hennar var alltaf í topp-
standi og garðhúsið hennar mjög vin-
sæll íverustaður svo ekki sé meira
sagt.
Og sem dæmi um hversu jafnvíg
Björg var úti, inni og í öllum verkum
þá vann hún með fyrri manni sínum
við að gera upp gamla húsið sem afi
og amma hans höfðu átt.
Björg hafði næma tilfinningu fyrir
öllum skepnum. Ærnar þekkti hún
allar með nafni og hún var góður
hestamaður. Áður en hún var fær um
að sitja hest var hún farin að venja
komur sínar í hesthúsið. Þessi fjör-
kálfur, sem aldrei virtist geta verið
kyrr, gat varið löngum stundum sitj-
andi á hækjum sér í stallinum, horf-
andi á hrossin eta og hlustandi á
skrjáf þeirra í útheyinu.
Oft naut ég aðstoðar Bjargar, svo
sem eins og þegar við Ingimar
byggðum okkur hús í Langagerði. Þá
kom sér vel að hafa Björgu til að að-
stoða við aðdrætti því hún var manna
flinkust að bakka jeppakerrunni sem
mér var ofviða.
Svo kom sjúkdómurinn sem
breytti lífi Bjargar en hún var ekki
tilbúin að gefast upp og stóð á meðan
stætt var. Sjúkdómsgreiningin var
harður dómur og það tók á alla fjöl-
skylduna að sætta sig við óumflýjan-
leg örlög. Þótt kraftarnir þyrru
missti hún aldrei þá reisn sem alltaf
hafði einkennt hana. Ég minnist einn-
ar af síðustu heimsóknum mínum til
hennar þar sem hún sat í stólnum sín-
um, teinrétt og vel til höfð eins og
ekkert væri að. Við ræddum þjóð-
félagsmál og fjölskyldumál og ég
fann hina einlægu ánægju sem hún
hafði af barnabörnunum sínum
þremur.
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið
að vera samferða Björgu í gegnum
lífið.
Ég óska henni velferðar í nýjum
heimkynnum, þar sem vel er tekið á
móti henni. Börnum og eiginmanni
votta ég samúð mína.
Guðrún Guðnadóttir.
Björg
Sveinbjörnsdóttir
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
REGÍNA L. RIST,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudaginn
28. apríl.
Óttar Guðmundsson, Gíslunn Jóhannsdóttir,
Kristín G. Ísfeld, Haukur Ísfeld,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
STEINUNN JÓSEFSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
áður Deildartúni 5,
andaðist þriðjudaginn 22. apríl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
2. maí kl. 14.00.
Adda Ingvarsdóttir, Viðar Karlsson,
Elsa Ingvarsdóttir, Böðvar Jóhannesson,
Ellert Ingvarsson, Svanhildur Kristjánsdóttir
og ömmubörn.